Fréttablaðið - 02.10.2001, Page 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
2. október 2001 ÞRIÐJUDAGUR
„Rúnar er ennþá besti miðjumaður Islands.
Hann er mjög skapandi leikmaður með
góðar langar sendingar og getur lika tekið
menn á. Hann er góður alhliða sóknarlega.
Menn vilja samt oft gleyma þvi að hann er
einnig mjög góður varnarmaður. Góður
tæklari og góður loftinu miðað við ekki
hærri mann."
Heimir Guðjónsson
lék með Rúnari Kristinsson í yngri flokkum KR
sem og í meistaraflokki. Hann lék með FH í sumar.
HEILL
Blomqvist hefur verið meiddur í rúm 2 ár.
Man. Utd.:
Blomqvist
loks til í
slaginn
knattspyrna Sænski knattspyrnu-
maðurinn Jesper Blomqvist, sem
gekk til liðs við Man. Utd. frá
Parma árið 1998, mun loks klæð-
ast rauðu treyjunni á morgun í
varaliðsleik gegn Man. City, en
hann hefur ekki leikið með Man.
Utd. í rúm tvö ár vegna meiðsla.
Blomqvist, sem leikur á vin-
stri kantinum, hefur átt við alvar-
leg hnémeiðsli að stríða og í vor
rann samningur hans við Man.
Utd. út. Þrátt fyrir það hefur
hann fengið að æfa með liðinu í
von um að honum verði boðinn
nýr samningur, en að hans sögn
segja læknar að útlitið sé gott.
Blomqvist, lék með Tavelsjö,
Umeá og IFK Gautaborg áður en
hann var seldur til AC Milan, þar
fékk hann fá tækifæri og var
seldur til Parma og síðan Man.
Utd. ■
f'-s KM 1 ralli
kl. 21.00
tðs Hm 1 ralli
kl. 20.40
lau England - Grikkland
Ðndankeppr.i HM kl. 13.40
Danmörk - fsland
Undankeppni HM kl. 17.45
HM í ralli
ki. 20.15
sun. Ameríski fótboltinn
Jtl. 17.00
Paragvæ - Argentína
Undankeppni HM kl. 21.05
HM í ralli
Bíaðamannafundur með Jordan:
„Eg verð að vera
þolinmóður“
körfuknattleikur Michael Jordan,
sem tilkynnti í síðustu viku að
hann hygðist taka fram skóna á
ný og leika með Washington Wiz-
ards næstu tvö ár, sagði á blaða-
mannafundi í gær að þráin til að
leika væri of sterk til þess að
hann gæti hunsað hana. Fundur-
inn í gær var sá fyrsti sem Jordan
hefur haldið með blaðamönnum
síðan hann tók ákvörðun um að
skella sér úti í baráttuna á ný.
„Ég verð að vera þolinmóður
og get ekki búist við að skora 40
til 50 stig í fyrsta leiknum," sagði
Jordan. „Ég ætla bara reyna að
leika körfubolta og ef ég get það
þá er það frábært. Ef ég get það
ekki þá er það líka frábært. Það
verður aldrei hægt að taka titlana
sex af mér né heldur það sem ég
hef gert áður.“
Jordan sagði að stefnan væri
að bæta árangur Wizards, en í
fyrra sigraði liðið 19 leiki en tap-
aði 63. Hann sagði menn mættu
hins vegar ekki gera sér of miklar
vonir og að það myndi koma hon-
um verulega á óvart ef liðið
myndi sigra 50 leiki. ■
MICHAEL JORDAN
„Ég ætla bara reyna að leika körfubolta."
XJtilokar ekki að leika með KR
Rúnar Kristinsson landsliðmadur í knattspyrnu er kominn af stað á ný eftir meiðsli. Hann er í
landsliðshópnum sem mætir Dönum. Hann spilar með þremur íslendingum með Lokeren í
belgísku deildinni.
EFNILEGUR
Rúnar Kristinsson (t.h.) var valinn efnilegasti leikmaður Islandsmótsins árið 1987 en Pétur
Ormslev (t.v.) sá besti. Rúnar lék það ár sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir KR og sinn
fyrsta A-landsliðsleik.
knattspyrna Rúnar Kristinsson,
landsliðsmaður í knattspyrnu hef-
ur verið búsettur í Belgíu í tæpt
ár þar sem hann spilar með
Lokeren í efstu deild. Hann fór í
uppskurð á ökkla í sumar en er
óðum að ná sér og verður með
landsliðshópnum sem mætir Dön-
um í Parken um næstu helgi.
„Þetta er búið að vera ágætt
eins og er. Það er samt búið að
vera rólegt hjá mér þar sem ég er
búinn að vera meiddur. Ég hef æft
mikið einn og sér, en er að ná mér
á strik,“ sagði Rúnar þegar
Fréttablaðið hafði samband við
hann í gær.
Hann hefur jafnað sig af meiðsl-
unum og sat meðal annars á bekkn-
um hjá aðalliðinu á sunnudag.
„Ef það hefði ekki gengið
svona vel hjá iiðinu í gær hefði ég
kannski fengið að koma aðeins
inná. En ég er klár að spila
hvenær sem er og reikna með að
fara í landsleikinn og vonast til að
fá að spila.“
„Það er gaman að koma aftur
inní landsliðshópinn og vera með
strákunum, hvort sem maður fær
að spila eða ekki. Maður tekur
þátt í þessu og hefur gaman af því
eins og alltaf.“
Rúnari finnst landsliðið hafa
staðið sig vel undir stjórn Atla og
segir stíganda hafi verið í leik
liðsins.
„Við höfum bætt okkar leik
mikið og erum farnir að halda
boltanum betur innan liðsins.
Þrátt fyrir að spila sterka og
mikla vörn þá förum við fram
með fleiri leikmenn en áður þegar
við höfum boltann. Ég held við
séum líka að skapa okkur fleiri
færi en áður. Það er líka mjög
góður andi í hópnum sem hefur
skapast kringum Atla.“
Auk Rúnars spila þrír íslend-
ingar með Lokeren, þeir Auðun
Helgason, Arnar Viðarsson og
Arnar Grétarsson. Rúnar segir
það ágætt að vera með landa sína
í sama liði.
„Við getum veitt hvor öðrum
stuðning þegar á þarf að halda og
getum hjálpað hvor öðrum. Þetta
er mjög jákvætt bæði innan vallar
sem utan.“
„Við hittumst á hverjum degi
á æfingu en fyrir utan það hitt-
umst við kannski ekkert rosalega
mikið enda höfum við ekki tíma
til að gera mikið annað. Við
æfum mikið, erum á miklu ferða-
lagi þannig að það er ágætt að
koma heim til fjölskyldunnar eft-
ir vinnu og vera með henni þann
litla tíma sem við höfum. Við
reynum samt að skella okkur í
golf saman og hittumst stundum
um helgar o.þ.h. Það fer bara eft-
ir aðstæðum og tíma hverju
sinni.
Rúnar er 32 ára og uppalinn
KR-ingur. Hann á eitt og hálft ár
eftir af samningnum við Lokeren
og segir nóg vera eftir af ferlin-
um en veit ekki hvort hann muni
enda ferilinn í Vesturbænum.
„Maður hefur alltaf ætlað sér
að gera það. En ég ætla ekki að
lofa neinu. Það getur vel verið að
maður klári ferilinn sinn hérna
úti og mæti svo bara sem áhorf-
andi á KR-völlinn. En maður á víst
aldrei að segja aldrei."
kristjan@frettabladid.is
Maðurinn og ferillinn
NAFN:
Rúnar Kristinsson
j FÆÐINGADAGUR: 05.09 1969
LIÐ: KR frá 1987-1995
-Örgryte frá 1995-1997
-Lilleström frá 1997-2000
1 -Lokeren frá 2000-
FYRSTI LANDSLEIKUR: I október 1987
| gegn Sovétrlkjunum
FJÖLDI LANDSLEIKJA: 93
TITLAR: Bikarmeistari með KR 1994
j MAKI: Erna María Jónsdóttir
BÖRN: Rúnar Alex 6 ára og Thelma Rut
: 11 mánaða
ÁHUGAMÁL: Fjöl-
skyldan, knatt-
spyrna, golf, veiði
UPPÁHALDS
MATUR: íslenska
lambalærið kemur
sterkt inn
UPPÁHALDS HUÓMSVEIT: Rolling
Stones
UPPÁHALDS BIÓMYND: Pulp Fiction
BESTI KNATTSPYRNUMAÐURIN: Figo
eða Zidane
ERFIÐASTI MÓTHERJINN: Spái minnst
í það
Tyson kominn til Kaupmannahafnar:
Berst næst við Rah-
man eða Lewis
HNEFALEIKAR Hnefaleikakappinn
Mike Týson kom til Kaupmanna-
hafnar í fyrradag en hann mætir
heimamanninum Brian Nielsen í
hringnum þann 13. október.
„Ef hann vinnur mun hann
mæta sigurvegaranum úr viður-
eign Hasim Rahman og Lennox
Lewis - það er öruggt," sagði
Shelly Fink, umboðsmaður Týsons.
Bardagi Rahmans og Lews hefur
verið settur þann 17. nóvember.
Bardaginn gegn Nielsen verður
fyrsti bardagi Tysons í heilt ár en
hann barðist síðast við Andrew
Golota þann 20. október í fyrra.
Tyson vann þann bardaga er
Golota gafst upp í annarri lotu.
Upphaflega átti slagur Tyson
og Nielsen að fara fram 8. sept-
ember en honum var frestað þar
sem Tyson varð fyrir bakmeiðsl-
um. Fink segir heimsmeistarann
fyrrverandi vera í góðu formi um
þessar mundir en hann kom til
Kaupmannahafnar þremur dög-
um fyrr en áætlað var. Talið er að
hann sé að flýja vandamálin
heima fyrir en hann var sakaður
um nauðgun fyrir stuttu, í annað
sinn á tæpum þremur mánuðum.
Hann hefur ekki verið kærður en
í síðustu viku gerði lögreglan hús-
leit hjá honum.
Mogens Palle, umboðsmaður,
Nielsen, sagðist vera glaður með
að Týson væri kominn til Kaup-
mannahafnar en það hefur tekið
hann fjögur ár að undirbúa bar-
dagann. Bardaginn fer fram á hin-
um sögulega leikvangi Parken,
viku eftir að íslendingar mæta
Dönum í undankeppni HM í knatt-
spyrnu.
Tyson varð yngsti heimsmeist-
ari sögunnar þegar hann vann tit-
ilinn í þungavigt árið 1986, þá tví-
tugur. Hann hefur 48 sinnum far-
ið í hringinn og í 42 skipti hefur
hann rotað andstæðinginn. Hann
HÉRNA ÚTI í KÖBENHAVN....
Mike Tyson sýnir vegabréf sitt við komuna á Kastrup flugvöllinn í Kaupmannahöfn. Hann
mætir Brian Nielsen þann 13. október.
var dæmdur í þriggja ára fangelsi
í Indinana fyrir að nauðga fegurð-
ardrottingu á hótelherbergi árið
1991. Árið 1997 var hann sektaður
um 3 milljónir dollara fyrir að
bíta stykki úr eyra Evander
Holyfields í bardaga um heims-
meistaratitilinn í Las Vegas. ■