Fréttablaðið - 02.10.2001, Síða 17
ÞRIÐJUDAGUR 2. okóber 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
17
ItAILOR OG PANAMA kl. 5.45,8 og 10.15^1
! GVfS & DOGS m/ íslensku tali kl-6|
IPLANET OF THE APES kl. 8 og 1Q.lo|gg|
ÞRILLERiNN
Nicole Kidman fer á kostum í hryllings-
myndinni The Others. Leikstjóri myndar-
innar er hinn spænski Alejandro Amenábar
Spennumynd vinsælust:
Fyrrum kyn-
lífsfíkill efstur
kvikmyndir Þrjár nýjar myndir
skjótast í efstu sætin yfir vin-
sælustu kvikmyndir Bandaríkj-
anna. Don’t Say a Word með
fyrrum kynlífsfíklinum Michael
Douglas í aðalhlutverki nær
efsta sætinu, gamanmyndin
Zoolander með Ben Stiller í aðal-
hlutverki er í öðru sæti og He-
arts in Atlantis nær því þriðja.
Don’t Say a Word segir frá geð-
lækni nokkrum sem þarf að
reyna að endurheimta dóttur
sína úr höndum mannræningja.
Auk þess sem læknirinn þarf að
kljást við ræningja þarf hann að
skyggnast inní hugarheim geð-
sjúkrar stúlku.
Hrollvekjan Hearts in Atlant-
is er með Anthony Hopkins í að-
alhlutverki og er myndin byggð
á sögu hins mistæka Stephen
Kings.
Önnur hrollvekja, The Others,
með Nicole Kidman í aðalhlut-
verki fellur niður í fimmta sæti
en myndin hefur komið talsvert
á óvart og halað inn meiri pen-
inga en framleiðendur þorðu að
vona. Kidman bregður sér í móð-
urhlutverkið og fjárfestir í
gömlu sveitasetri með mikla og
hættulega sögu.
Rat Race heldur áttunda sæt-
inu en American Pie 2 fellur útaf
topp tíu listanum, niður í það ell-
efta. ■
KRlNGLUwriJl
KRINGLUNNI 4-6, SÍMI 588 0800
* ( ;«r
. /V
A L Hi
Sýnd kl 6, 8 og 10 vrr 270
(CRAZY BEAUTIFUL kl. 6, 8 og TÖI jSi
i RUGARTS IN PARIS m/ íslensku tali wtai
ICATS & DOGS m/ íslensku tali kl 4 Msl
LAUGARÁS ^ SS3 ZQ7S
mmBiOMrnm
SÍMI 553 2075_
iawrenc£ aShro
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10
IRAT RACE kl.6, 8og 10.10 !
RUSH HOUR 2 kl. 8 og 10.10
LAUCAVEGI 94. SIMI 551 6500
Sýnd kl. 6, 8 og 10
[Á KNÍGHfSTALE kl. 5.30,8 og lQ.3ol
551 650|/PP/|
!t takee
a crook
to rutil
a thtoi.
What's the
WW I tturt couM^
HAPPEN?
Jennifer Lopez:
Gifti sig í laumi
brúðkaup Leik- og söngkonan
Jennifer Lopez átti ekki amalega
helgi. Stúlkan tók sig nefnilega
til og giftist kærasta sínum,
dansaranum Chris Judd á laugar-
daginn. Athöfnin fór fram í næði,
með fjölskyldu og vinum, fjarri
forvitnum augum heimsins í út-
hverfi Los Angeles borgar. Alls
voru um 170 gestir. Umboðsmað-
ur söngkonunnar var svaramaður
hennar, en æskuvinkona hennar
var brúðarmey. Lopez og Judd
kynntust skömmu eftir að hún
sleit samvistum sínum við vand-
ræðagemlinginn Sean (Bad Boy
Puffy P. Diddy eða hvað sem
hann kallar sig núna??) Combs.
Þá var Judd dansari og danshöf-
undur í hóp sem ferðaðist og kom
fram með söngkonunni á tón-
leikaferðalagi hennar um heim-
inn. Hjónakornin eru nú í brúð-
kaupsferð á óuppgefnum stað, en
vitað ei' til þess að þau verða við-
stödd tískusýningu Donatellu
Versace í Mílanó á næstu dögum.
Þetta er annað brúðkaup söng-
konunnar en hún skyldi við fyrri
eiginmanninn, fyrirsætuna Ojani
Noa, árið 1998. ■
JENNIFER LOPEZ OC CHRIS JUDD
Brúðarkjóllinn var hannaður af Valentino
þrátt fyrir sögusagnir að hún ætlaði að
klæðast 10 þúsund punda kjól frá Dona-
tellu Versace.
Dpr.MOAr.lMM
HVERFISGÖTU SÍMI 551 9000
www.skifan.is
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
IPLANET OF THE APES kl. 5.30, 8 og 10.30;
Iheartbreakers" kl. 5.30, 8 og 10.30]
IHEDWIG kl. 6, 8og7Öl
Vandaðir sánaklefar.
Ofnar og aðrir
aukahlutir fyrírliggjandi.
VATNSVUUUMM chf.
Ármúla 21, Sími: 533-2020
j
BÆKUR
Saga og myndir eftir Gillian Johnson.
Böðvar Guðmundsson þýddi
Hundar og börn
Spóla systir eftir Gillian
Johnson fjallar um hundinn
Kát sem lifir í vellystingum
praktuglega hjá góðri fjöl-
skyldu. Samt er eins og eitt-
hvað skorti í tilveru hans.
Hann þráir bróður sem leikur
við hann daginn út og inn, kát-
ur og fjörugur úti í haga. Hann
eignast systkini sem er þung-
lamaleg systir sem heitir
Spóla, í stað þess bróður sem
hann þráir svo mjög.
Þetta er falleg saga um ást-
ir og afbrýði sem er komið til
skila í bráðlipurri þýðingu
Böðvars Guðmundssonar.
Textinn er í bundnu máli og
mátulega flókinn, þannig að
börn skilja vel samhengið, en
spyrja að merkingu einstakra
orða. Myndir eru lifandi og
skemmtilegar. Söguna má auð-
veldlega lesa sem dæmisögu
um barn sem glímir við af-
brýðisemi út í yngra systkini.
Sem slík er bókin tilvalin fyrir
foreldra sem glíma við af-
brýðisemi eldri barna sinna.
Hitt er svo annað að það má
líka lesa þessa bók sér og öðr-
um til skemmtunar. Eldri dótt-
ir mín, tæpra sjö ára, hafði
gaman að henni og það er
alltaf fengur í barnabók, þar
sem lipurt, bundið mál segir
skemmtilega sögu. Þetta er
velheppnuð barnabók.
Í ví fcvtd.**) s rí hh
Sími:
Hafliði Heigason
570-9700