Fréttablaðið - 16.10.2001, Síða 4
SVONA ERUM VIÐ
INNKOMNAR UMSÓKNIR
TIL ÍBÚÐALÁNASJÓÐS
ibúðalánasjóður gerði ráð fyrir samdrætti i
húsnæðisviðskiptum, en sú hefur ekki orð-
ið raunin. í júlí, ágúst og september jókst
.fjöldi umsókna um 15% frá fyrra ári. Þess
ber að geta að samdráttur í húsnæðisvið-
skiptum snertir aðrar lánastofnanir fyrr.
■ 2000
■ 2001
Lse*..®
FRETTABLAÐIÐ
16. október 2001 ÞRIÐJUDAGUR
styrkir Um 170 umsóknir bárust
um úthlutun úr Kristnihátíðar-
sjóði að sögn Guðmundar Árna-
sonar, skrifstofustjóra í forsætis-
ráðuneytinu.
Alþingi samþykkti í fyrra að
setja Kristnihátíðarsjóð á fót í til-
efni 1000 ára afmælis kristnitök-
unnar. Úthlutað verður 100 millj-
ónum króna úr sjóðnum árlega á
fimm árum.
Styrkveitinguar sjóðsins eru
annars vegar eyrnamerktar forn-
leifarannsóknum en hins vegar
menningar- og trúararfi. í þessari
fyrstu úthlutun sjóðsins bárust
um 20 umsóknir vegna fornleifa-
rannsókna en um 150 umsóknanna
voru vegna verkefna tengdum
menningar- og trúararfinum.
Skipaður verður verkefnis-
stjóri með hvorum málaflokknum
fyrir sig og afstaða tekin til um-
sóknanna á næstunni á grundvelli
nýrrar reglugerðar um starfsemi
Kristnihátíðarsjóðs. Guðmundur
Árnason sagði enn ekki hafa verið
tekið saman hversu há fjárhæð
umsækjendur hefðu farið fram á
samanlegt. ■
jLÖGREGLUFRÉTTIR
Botist var inn í bensínstöð Olís
við Álfheima í Reykjavík um
tvöleytió í fyrrinótt. Hafði þjóf-
urinn komist inn um glugga á
skrifstofu hússins. Af ummerkj-
um að dæma þykir sýnt að þjóf-
urinn hafi reynt að losa peninga-
kassa af vegg en ekki tekist. Or-
yggiskerfi bensínstöðvarinnar
fór í gang en þegar öryggisvörð-
ur kom á staðinn var þjófurinn
stunginn af. Að sögn lögreglunn-
ar í Reykjavík var engu stolið og
er málið í rannsókn.
Stolið var tveimur skjávörpum
úr kennslustofu Lögbergs,
lagadeildar Iláskóla íslands í
fyrrakvöld. Komst þjófurinn inn í
ólæst húsið.
Maður ók utan í húsvegg á
Vatnsnesvegi í Keflavík
seint á sunnudagskvöld. Við nán-
ari eftirgrennslan lögreglunnar í
Keflavík reyndist maóurinn ölv-
aður.
ALÞINGISMENN Á KRISTNIHÁTIÐ
Alþingi samþykkti í fyrra að minnast
kristnitökunnar með hálfs milljarðs króna
sjóði sem styrkja á fornleifarannsóknir og
verkefni á sviði menningar- og trúararfs.
Úthlutun á 100 milljón-
um á næstunni:
Kristnihátíð-
arsjóður fékk
170 umsóknir
Engin leyfissvipting á Rauðarárstíg en borgin leitar ásjár lögreglu:
Kaffí-Stígur settur undir smásjá
SVEITArstjórnir Borgarráð hefur
samþykkt að beina því til lögreglu-
'stjórans í Reykjavík að hann tryggi
náið eftirlit með rekstri veitinga-
staðarins Kaffi-Stígs og beiti úr-
ræðum áfengislaga um áminningu
og leyfissviptingu ef tilefni er til.
Nágrannar og sambýlingar
Kaffi-Stígs á Rauðarárstíg höfðu
krafist þess að vínveitingaleyfi
staðarins yrði afturkallað vegna
ónæðis sem staðurinn var sagður
valda þeim og öðrum.
Komið hafði í ljós að vegna mis-
taka í borgarkerfinu hafði Kaffi-
Stíg verið veitt vínveitingaleyfi án
þess að greiða tryggingagjald en
úr því hefur nú verið bætt. Fulltrúi
skrifstofustjóra borgarstjórnar
segir engar forsendur fyrir því að
verða við kröfu nágrannana um
afturköllun vínveitingaleyfisins.
Ekkert kom heldur fram í umsögn
lögreglustjórans í Reykjavík til
borgarráðs sem var ráðinu tilefni
til aðgerða gegn Kaffi-Stíg. Eins og
áður sagði vill borgarráð hins veg-
ar að veitingastaðurinn verði
framvegis undir smásjá lögregl-
unnar. I
KAFFI-STfGUR
Nágrannar Kaffi-Stlgs
gátu ekki knúið fram
lokun staðarins.
[lögreglufréttir|
Tilkynnt var um reyk í íbúð við
Ránargötu í Reykjavík um
tíuleytið í gærmorgun. Var
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
kallað út. Við nánari eftirgrennsl-
an kom í Ijós að pottur hafði
gleymst á eldavél. Enginn eldur
braust út og var íbúðin reykræst.
Ekki urðu miklar skemmdir á
íbúðinni.
Þrír bílar lentu saman í hörðum
árekstri við gatnamót Reykja-
nesbrautar og Stekkjarbakka í
Reykjavík um tíuleytið í fyrra-
kvöld. Flytja þurfi einn ökumann-
inn á slysadeild Landspítala - há-
skólasjúkrahús í Fossvogi þar
sem hann kvartaði yfir eymslum
í hálsi og baki.
um
Vilja að netþjónabú
stækki um 20% árlega
Unnið að undirbúningi 8 MW netþjónabús á Suðurnesjum í samstarfi við bandarískaJjarfesta
sem ætla ekki að láta staðar numið. Góð samkeppnisstaða Islands. Stóriðja nýja hagkerfisins á
undir högg að sækja í Bandaríkjunum vegna orkuskorts og öryggisleysis.
netþjónabÚ „Staðan er sú að verið
er að setja saman undirbúningshóp
með þeim aðilum sem hafa hags-
muni að gæta. Á næstu dögum
___^___ hefst vinna af full-
um krafti við að
koma upp net-
þjónabúi hér í nán-
ustu framtíð," seg-
ir Helga Sigrún
Harðardóttir hjá
Markaðs- og at-
vinnuskrifstofu
Reykjanesbæjar,
en á meðal sam-
starfaðila bæjarins
eru Landssíminn,
Auk sölu á
umframorku
gæti fram-
kvæmdin
reynst lyfti-
stöng fyrir
byggingariðn-
að og tengdar
atvinnugrein-
ar.
...♦...
Fjárfestingarskrifstofa íslands og
Hitaveita Suðurnesja.
„Það er auðvitað hugsanlegt að í
kjölfarið opnist nýjar víddir í at-
vinnu- og útflutningsmálum. Það er
erfitt að sjá fyrir öll þau áhrif sem
netþjónabú af þeirri stærðargráðu
sem við leggjum af stað með getur
haft, sérstaklega vegna þess að
þessi markaður er síbreytilegur og
ekkert lát á nýrri tækni,“ segir
Helga. Áætlanir geri ráð fyrir að í
upphafi verði byggt 8.000 fm. bú
sem noti 8 megawött, en ólíklegt sé
að þar verði látið staðar numið
reynist starfsemin vel. „Banda-
rísku fjárfestarnir sem koma
munu að fjármögnun gera ráð fyr-
ir möguleika á 20% stækkun á ári.
Það má segja að möguleikarnir séu
óendanlegir." Ómögulegt er að átta
sig fyrirfram á öllum grenndará-
hrifum, eða „spin-off,“ fyrir at-
vinnulífið. Auk sölu á umframorku
gæti framkvæmdin til að mynda
reynst lyftistöng fyrir byggingar-
iðnaðinn og tengdar atvinnugrein-
ar þrátt fyrir að eiginlegir starfs-
menn netþjónabúsins verði innan
við 20 fyrst um sinn.
Varðandi samkeppnisstöðu ís-
lands nefnir Helga Sigrún sérstak-
HELGA SIGRÚN HARÐARDOTTIR
Gríðarlegir vaxtamöguleikar í geiranum sem mikilvægt er að missa ekki af. „Við getum meðal annars boðið upp á öryggi sem ekki er fyrir
að fara í Bandaríkjunum um þessar mundir," segir Helga Sigrún.
lega orkukreppuna í Bandaríkjun-
um og einnig óvissu í öryggismál-
um eftir atburðina 11. september.
Það séu meðal annars þessi atriði
sem fái þarlenda fjárfesta til að líta
í auknum mæli til annarra landa.
Hún segir að dæmi séu um að net-
þjónabú séu rekin á 15-20% afköst-
um þar í landi vegna orkuskorts, en
þó með viðunandi afkomu.
„Ráðgjafafyrirtæki gera ráð
fyrir yfir 40% árlegum vexti í
geiranum til ársins 2005, það er
ekki síst ástæða þess að banda-
rískir fjárfestar horfa út fyrir
landsteinana," segir Helga og
bendir á að markaðurinn hafi ver-
ið metinn á 4,5 milljarða dollara
árið 2000, en í nýrri skýrslu sem
unnin var fyrir Reykjanesbæ af
viðskiptaþjónustu utanríkisráðu-
neytisins sé gert ráð fyrir að sú
tala verði 30 milljarðar árið 2005.
matti@frettabladid.is
Fiskvinnsla á landsbyggð:
Fjórir flytja fyrir hvert tapað starf
sjávarútvegur Fyrir hvert starf
sem tapast í fiskvinnslu í minni
sjávarbyggðum landsins má
áætla að það hafi þau áhrif að
tæplega fjórir íbúar flytji á brott.
Á sama hátt er talið að fyrir hvert
starf í frumvinnslu leiði til 0,75
annarra starfa í byggðarlaginu.
Þetta kemur m.a. fram í greinar-
gerð Bjarka Jóhannessonar for-
stöðumanns Þróunarsviðs
Byggðastofnunar sem hann vann
fyrir nefnd um framtíðarskipan
fiskvinnslunnar.
í greinargerðinni er lögð áher-
sla á að minni sjávarbyggðir geta
ekki byggt tilvist sína til langs
tíma á fiskvinnslu eingöngu.
Verði ekkert að gert sé viðbúið að
íbúafækkunin í þessum plássum
verði svo mikil að það verði ekki
lengur grundvöllur fyrir verslun
og annarri þjónustu. Af þeim sök-
um sé brýnt að auka fjölbreytni
atvinnulífs á þessum stöðum. Þá
verður atvinnulífið ekki eins háð
samdrætti í fiskveiðum og fisk-
vinnslu auk þess sem dregið er úr
viðkvæmni atvinnulífs sjávar-
byggða gegn gengissveiflum. ■
FISKVINNSLA Á
RAUFARHÖFN
Einhæft atvinnulíf getur
orðið banabiti margra
minni sjávarbyggða
Árni Johnsen:
Rannsókn
enn í gangi
fjársvikamál „Rannsókn er enn í
fullum gangi og alveg óljóst
hvenær niðurstöðu er að vænta“,“
sagði Jón H.
Snorrason, sak-
sóknari og yfir-
maður efnahags-
brotadeildar Ríkis-
lögreglustjórans,
\ 1 meint fjársvik
Árna Johnsen,
fyrrum alþingis-
ÁRNI
JOHNSEN
óljóst hvenær manns. Jon sagðist
niðurstöðu er að ekki treysta sér til
vænta í meintu þess að segja fyrir
fjársvikamáli. um þyersu langt
rannsóknin væri komin. ■