Fréttablaðið - 31.10.2001, Page 10

Fréttablaðið - 31.10.2001, Page 10
10 FRÉTTABLAÐIÐ 31. október 2001 MIÐVIKUDAGUR I Rí I FABI AÐIÐ Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjóri: Einar Karl Haraldsson Fréttastjóri: Pétur Cunnarsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjom@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf. Prentun: (safoldarprentsmiðja hf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf- uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins (stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds. | BRÉF TIL BLAPSINSH GAMLI Þráinn og eðalvagninn Jónas Pór Steinarsson, framkvæmdastjóri Bíigreinasambandsins og einn af tais- mönnum Vina bilsins, skrifar: bíllinn Ekki veit ég hvort Þráinn Bertelsson er gleyminn maður, eða hvort hann treystir því bara að lesendur pistla hans í Frétta- blaðinu gleymi jafnharðan því sem hann skrifar. Þráinn skamm- ar mig nefnilega í Fréttablaðinu 30. október fyrir að kalla bílinn hans gamlan skrjóð. Eitt hafði samt gleymst... Tilefni skrifa minna til Þráins var pistill hans á baksíðu Frétta- blaðsins þann 24. október. Þar fjallaði Þráinn um tregafullt sam- band sitt við gamla bílinn sinn og að hann vildi ekki kaupa nýjan bíl fyrir fúlgur fjár. í framhaldi af því ritaði ég pistil til að upplýsa Þráin um það að nýir bílar menga miklu minna en gamlir, þeir eru sparneytnari en gamlir bílar, þeir eru öruggari og það kostar ekki jafn mikið að eignast nýjan bíl og Þráinn gaf í skyn í pistli sínum. Þráinn hneykslast á því að ég hafi „í hita augnabliksins" kallað eðalvagninn hans gamlan skrjóð. Þarna hefur óminnishegrinn held- ur betur tekið völdin, því það var Þráinn sjálfur sem kallaði bílinn sinn gamlan skrjóð í pistlinum þann 24. október. Þar kom hvergi fram að þetta væri „eðalvagn" heldur sagðist Þráinn hrökkva í kút í hvert sinn sem nýtt hljóð heyrðist í bílnum, því það væri ábending á óvænt útgjöld. Hann sagðist þó hugga þig við aó þurfa ekki að borga 70 til 80 þúsund krónur á mánuði í afborganir af nýjum bíl og frekar „reyna að tjasla upp á gamla skrjóðinn" heldur en borga af nýjum bíl. í pistli mínum benti ég Þráni á helstu kosti þess fyrir hann - og aðra - að aka á nýjum bíl. Meðal annars benti ég á að á nýjum bíl mundi hann spúa 50% minna af „eiturgasi" yfir samborgara sína en á gamla bílnum. Jafnframt upplýsti ég hann um að hann gæti sloppið með 23 þúsund krónur á mánuði í afborganir af bílaláni á rúmgóðum minni bíl. Ég skil nú ekki alveg hvers vegna Þráinn bregst svona ókvæða við þessum vinsamlegu ábendingum. Vitaskuld er Þráni Bertelssyni frjálst að aka sem lengst á sínum 14 ára gamla „eðalvagni". Von- andi skaðar það hann samt ekki að vita í hverju kostir nýrra bíla fel- ast. ■ SÞ-hersveitir gegn hryðjuverkum Almenningsálitið snýst gegn því að Bandaríkjaher helli sprengjum yfir stríðshrjáð og ör- fátækt land. Hið sama gerði það þegar alþjóðaher kom múslímum til varnar í Kosovo með sprengju- árásum á vígvélar Serba. Taliban- —♦— ar segja daglegar „Vilja að SÞ fréttar af börnum gegni lykilhlut- og fjölskyldum verki." sem týna lífi í loft- —♦.... árásunum, en þeir eru um leið sakaðir um að færa hernaðarskotmörk að manna- byggðum. David Blunkett, innan- ríkisráðherra Breta, sagði á dög- unum um aðgerðirnar gegn tali- bönum: „Það er hræsni að vilja búa £ lýðræðisríki, vilja njóta alls þess sem það hefur upp á að bjóða í efnalegu tilliti og einstaklings- frelsi, en neita að verja það þegar að því steðjar ógn.“ Sameinuðu þjóðirnar hafa, í samræmi við 51. grein sáttmála síns, stutt rétt Bandaríkjanna til sjálfsvarnar, og fáir efast um hlut Osama bin Laden, al-Qaeda og talibana í árásunum á Ameríku. Margir eru hins vegar ráðvilltir í umræðum um það hvar takmörk- in séu milli réttlætanlegrar sjálfs- varnar og óleyfilegrar árásar. Bandaríkjastjórn hefur sagt að kalli öryggishagsmunir á það muni jafnvel verða gerðar loft- árásir á önnur lönd en Afganistan í baráttunni við heimssamtök hryðjuverkamanna. Vangaveltur hafa verið um írak, Líbýu, íran, ..Mál manna Einar Karl Haraldsson ræðir hvatningu frá fundum ráðamanna í Kína Súdan, Norðurkóreu og Líbanon í þessu sambandi, en þessi lönd hafa veitt hryðjuverkasamtökum skjól og stuðning. í samtölum Halldórs Ásgríms- sonar utanríkisráðherra við Zhu Rongji, forsætisráðherra Kína, og Tang Jiaxuhan, utanríkisráðherra, kom fram sameiginlegur vilji til þess að Sameinuðu þjóðirnar gegni lykilhlutverki í baráttu gegn hryðjuverkamönnum, sem og í uppbyggingu og endurreisn í Afganistan. Vandséð er hvernig samtökin geti gegnt því hlutverki nema komið verði á fót SÞ-her- sveitum gegn hryðjuverkum, sem verði undir stjórn herráðs sam- takanna. Samkvæmt samþykktum SÞ væri þetta hægt. En hingað til hefur starfsemi SÞ ekki mátt kosta meira en rekstur slökkvi- liðsins í Tókýó. ■ Dregið úr útþenslu og miðborgirnar styrktar Margir tala um að gera borgirnar mennskar aftur, fegra og styrkja umgjörð markaðstorgsins í stað þess að stækka bílastæðin, segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri. Mótaðar verði vinnureglur um hvernig æskilegt sé að stýra stærð og staðsetningu verslunarmiðstöðva. „Samkeppnis- hæfní og lífs- gæði geta verið í húfi." —4---- ópu er mun skipulag Islendingar hafa almennt verið nokkuð feimnir við stýringu á þróun verslunar og þannig var ekkert tæki tiltækt í þeim efnum í miðborg Reykjavíkur fyrr en með þróunaráætluninni , sagði borgar- stjóri á ráðstefnu Samtaka verslun- ar og þjónustu á Grand Hotel, Reykjavík. „Hún var unnin að breskri fyrirmynd og með aðstoð breskra skipulagsfræðinga. í borgum erlendis, sérstaklega í V-Evr- ákveðnari stýring í þessum efnum, m.a. á opnunartíma verslana og stærð og staðsetningu verslunarmiöstööva." Borgarstjóri segir verslun talda svo mikilvæga fyrir viðgang og gæði borgarsamfélagsins að stjórnvöld vilji víðast hvar hafa áhrif á með hvaða hætti hún þróast. Það eru nefnilega ekki bara versl- unarmennirnir og stóru fjárfest- arnir sem eigi hagsmuna að gæta heldur samfélagið allt og samkeppnishæfni þess og lífsgæði geti verið í húfi. Því miður virðist sem umræða um þessi mál sé á frumstigi hér á landi og þær raddir sem þó hafa verið uppi hafa verið ansi hjáróma í þeim digurbarkalega kór sem sungið hefur magni en ekki gæðum lof og prís. „Þetta er engum til hags- bóta og það er því bæði mik- ilvægt að samtök í atvinnu- lífinu, og þar á meðal sam- tök í versluninni, láti sig þessa umræðu varða og vinni með skipulagsyfirvöldum á höfuðborg- arsvæðinu að vinnureglum um INGIBIÖRG SÓLRÚN GfSLA- DÓTTIR islendingar hafa almennt verið nokkuð feimnir við stýringu á þró- un verslunar. hvernig æskilegt sé að stýra stað- setningu og stærð verslunarmið- stöðva í skipulagsáætlunum sveit- arfélaganna hér á höfuðborgar- svæðinu. Þetta er mjög mikilvægt í tengslum við þau markmið sem sett hafa verið fram í svæðisskipu- lagi fyrir höfuðborgarsvæðið sem nú er til kynningar sem og í nýrri tillögu að aðalskipulagi Reykjavík- ur til ársins 2024. Núna er tækifær- ið til að hafa áhrif á skipulag fram- tíðarinnar - ekki þegar það er orðið að veruleika, „ sagði Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir. Stefnumótun nýja svæðisskipu- lagsins sé þrátt fyrir allt í sam- ræmi við þær nýju áherslur og til- lögur um stefnumótun um þróun borga sem komið hafi fram í ná- grannalöndum okkar á síðustu fimm til tíu árum. „Þessi nýja stefnumótun byggir á því að draga úr útþenslu borgar- svæða, auka þéttleika byggðar, styrkja miðborgir og efla almenn- ingssamgöngur. Með öðrum orðum að draga úr, og reyna helst að snúa við, þeirri miklu út- þenslu sem einkennt hefur vestrænar borgir frá lokum seinni heimstyrjaldarinnar og sem á rót sína að rekja til mikillar notkunar einkabíls- ins. Margir tala um að gera borgirnar mennskar aftur, fegra og styrkja umgjörð markaðstorgsins í stað þess að stækka bílastæðin. í sjál- fu sér má segja að tilkoma Smáralindar sé í mikilli mótsögn við allar þessar áherslur, en við því er bara ekkert að segja. Hún er orðinn hlutur...“ einarkarl@frettabladid.ís SMARALIND f sjálfu sér má segja að tilkoma Smáralindar sé í mikilli mótsögn við allar þessar áherslur, en við því er bara ekkert að segja. Hún er orðinn hlutur, segir borgarstjóri. 1 skipulag] REGLUR UM FJÖLBREYTT VERSLUNARUMHVERFI ■ í DANMÖRKU eru lög sem kveða á um fjarlægð frá íbúðum að fjölbreyttu verslanaumhverfi og er það notað til þess að styrkja miðbæi í svæðis- og að- alskipulagsáætlunum. Þá eru þar I gildi s.k. „lokunarlög" sem kveða á um að aðeins þær verslanir sem eru með veltu undir tiltekinni upphæð megi hafa opið á kvöldin og á sunnudögum. Er þetta gert til að styrkja hverfisverslunina í samkeppninni við stórmarkaðina. Þá eru þær reglur ennfremur I gildi að f miðborg Kaupmannahafnar má ekki taka verslunarrými I miðborginni sem er 500 fermetrar eða stærra undir aðra starfsemi. ■ í NOREGI er 5 ára bann við byggingu verslunarmiðstöðva 3000 m2 og stærri utan miðbæja meðan verið er að enduskoða ákvæði skipulagslaga um smá- söluverslun. (frá 1999) ■ í FINNLANDI hafa verið sett lög um staðsetningu verslanamiðstöðva og bygg- ingu verslana stærri en 2000m2 utan miðbæja, Frávik eru háð mati á um- hverfisáhrifum. ■ í FRAKKLANPI eru verslunarmiðstöðvar stærri en 3000 m2 utan miðbæja ein- ungis leyfðar að lokinni opinberri rannsókn þar sem öll sjónarmið og hags- munir hafa verið teknir til skoðunar. ■ í ÞÝSKALANPI er krafist áhrifamats og heimildir einungis veittar af svæðis- stjórnum. ■ í HOLLANDI er einnig farið fram á mat á umhverfisáhrifum og lögð er áhersla á uppbyggingu við tengipunkta almenningssamgangna. ■ í ENGLANDI eru ekki gefin leyfi fyrir verslanir utan miðhæja nema sýnt sé fram á að þær skaði ekki núverandi miðbæi. |ORPRÉTTI 70 þúsund hafa unnið sjálfboðastarf sjálfboðaliðar „Þriðji hver íslend- ingur hefur unnið mannúðarstörf í sjálfboðavinnu. Rauði krossinn stendur fyrir ráðstefnu og mál- þingi um sjálfboðastörf 2. og 3. —♦— nóvember í tilefni „Ómetanlegt af alþjóðlegu ári íslensku þjóð- sjálfboðaliðans. I félagi." könnun sem gerð —r#-i— var fyrir félagið kom í ljós að 35 prósent lands- manna yfir 18 ára aldri segjast hafa unnið mannúðarstarf í sjálf- boðinni vinnu einhvern tíma á æv- inni. Samkvæmt því hafa um 70 þúsund íslendingar unnið sjálf- boðastarf í þágu mannúðar. Ráðstefnan, sem fer fram á Hótel Loftleiðum undir yfirskrift- inni Sjálfboðastörf ? fjölbreytt afl í þágu þjóðfélagsins, er haldin að frumkvæði utanríkisráðuneyt- isins í samvinnu við Slysavarnafé- lagið Landsbjörg og Bandalag ís- lenskra skáta en að auki taka fjöl- mörg önnur félagasamtök þátt í henni. „Gróskumikið starf sjálfboða- liða á fjölmörgum sviðum er ómetanlegt íslensku þjóðfélagi," segir Anna Þrúður Þorkelsdóttir formaður Rauða kross íslands. „Sjálfboðaliðar halda veigamikl- um þáttum velferðarkerfisins gangandi, bjarga nauðstöddum á landi og sjó og binda þetta samfé- lag saman á fleiri vegu en hægt er að ímynda sér.“ Aðalfyrirlesari á ráðstefnunni er Katarine Gaskin frá Institute for Volunteering Research í Bret- Iandi, en hún hefur rannsakað fjárhagslegan ávinning samfé- lagsins af sjálfboðastarfi. í rann- sókn sem hún gerði fyrir danska Rauða krossinn komst hún að þeirri niðurstöðu að hver ein króna sem færi í umbun og þjálf- un sjálfboðaliða færði þjóðfélag- inu störf að verðmæti átta krónur. Eitt aðalmarkmið Sameinuðu þjóðanna með því að tileinka sjálf- boðaliðum árið 2001 var að hvetja stjórnvöld og frjáls félagasamtök til að bæta vinnuumhverfi sjálf- boðliða og að sjálfboðið starf sé viðurkennt í auknum mæli.“ Úr tilkynningu frá Rauða Krossi íslands, 30. nóv. 2000 SJÁLFBOÐALIÐASTÖRF Hver ein króna sem fer í umbun og þjálfun sjálfboðaliða færir þjóðfélaginu störf að verðmæti átta krónur.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.