Fréttablaðið - 31.10.2001, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 31.10.2001, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 31. október 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 15 Zanardi farinn af spítala: „Eg er ánægður að vera á lífi“ kappakstur ítalinn Alex Zanardi, ökumaður í bandaríska CART- kappakstrinum, sem lenti í hörð- um árekstri við Alex Tagliani í Þýskalandi fyrir sjö vikum, er farinn heim af spitala. Zanardi er nú bundinn við hjólastól því taka þurfti báða fæturna af fyrir ofan hné eftir áreksturinn, en bíll Zan- ardi var nánast kyrrstæður þeg- ar Tagliani ók á hann á 320 km hraða. „Mér líður nægilega vel til að fara heim og byrja nýtt líf,“ sagði Zanardi. „Ég er ánægður að vera á lífi og reyni að hugsa ekki um hvað ég missti." Zanardi sagði að kannski myndi hann keppa aftur í kap- pakstri, en að helsta markmið hans væri að læra að ganga aftur með hjálp gervilima. Hann sagð- ist ekkert muna eftir slysinu en hafa séð sjónvarpsupptökur af því. „Þetta var harður árekstur, hræðilegur. Ég missti ekki mikið því ég hef lært að meta mikil- ALEX ZANARDl ítalski ökumaðurinn er bundinn við hjóla- stjól eftir að ekið var á hann á 320 km hraða í siðasta mánuði. vægi þess að eiga góða fjölskyldu og vini. Stundum gleymum við því hvað við höfum það gott.“ ■ Retief Goosen: Ætlar að einbeita sér að Bandaríkjunum golf Suður-Afríku- maðurinn Retief Goosen, sem er tekjuhæsti golfari Evrópsku mótarað- arinnar, ætlar að ein- beita sér meira að Bandarísku móta- röðinni á næsta ári, en hann keypti sér nýlega hús í Orlando í Flórída. Goosen, sem er 32 ára, hefur slegið rækilega í gegn á þessu ári, en hann sigraði m.a. á SIGURSÆLL Retief Goosen fagnaði sigri á Opna Madridarmótinu í golfi á sunnudaginn. Opna bandaríska meistaramótinu sem og á Opna skoska meistaramótinu. Þá sigraði hann á Opna Madrídarmótinu á sunnudaginn. Hann hyggst keppa á 15 mótum í Bandaríkj- unum á næsta ári, 11 mótum í Evrópu og 3 í S-Afríku. Goosen kom til íslands í sum- ar og keppti á Canon-mótinu á golfvelli Keilis í Hafnarfirði. ■ MARCEL DESAILLY Franski varnarmaður Chelsea var ósáttur við móðganir Ravanellis. Fabrizio Ra\7anelli: „Chelsea er skipað áhuga- mönnum“ knattspyrna Fabrizio Ravanelli, ítalski framherjinn hjá Derby County, segir að enska úrvalsdeild- arliðið Chelsea sé skipað áhuga- mönnum. Ravanelli, sem er 32 ára, lenti í áflogum við Marcel Desailly, varn- armannin sterka, í 1-1 jafnteflis- leik liðanna um síðustu helgi og slík var reiðin að skilja þurfti þá að. ítalinn segir að hroki leikmanna Chelsea hefði farið í taugarnar á sér og vandar þeim ekki kveðjunar. „Miðað við gang leiksins spyr maður sig hvort Chelsea sé að stef- na að titli eða hreinlega reyna að halda sér uppi? Þetta er samansafn af áhugamönnum." Ravanelli, sem skoraði mark Derby var afa fúll eftir leikinn og sat fyrir Desailly að leik loknum. Hann var einnig mjög reiður mið- vallarleikmanninum Boudjewijn Zenden sem sagði fyrir leikinn að hann þekkti ekki einn leikmann Derby með nafni. „Zenden hlýtur að vera nýkom- inn frá tunglinu ef hann hefur ekki heyrt mín getið. Hvað hefur hann svo sem gert? Ég minnist þess ekki að hann hafi skorað í úrslitaleik Meistaradeildarinnar líkt og ég gerði árið 1996 gegn Ajax.“ ■ Leikmannakaup: Þrír í skipt- um fyrir Sinclair knattspyrna Bobby Robson, fram- kvæmdastjóri Newcastle, hefur mikinn áhuga á að krækja í kant- manninn rIbevor Sinclair, sem leik- ur rneð West Ham. Breskir fjöl- miðlar greindu frá því í gær að Robson væri jafnvel tilbúinn að láta þrjá menn í skiptum fyrir Sinclair eða þá Nolberto Solano, Nikos Dabizas og annaðhvort Ro- bert Lee eða Warren Barton. Robson bauð 6 milljónir punda í Sinclair í sumar, en West Ham metur hann á 10 milljónir. Víst er hægt að meta þetta hugsanlega til- boð Robson á 10 milljónir punda. Það er hins vegar ekki vitað hvort Glenn Roeder, framkvæmdastjóri West Ham er tilbúinn í leikmanna- ttVið erum hungraðir í sigur“ Argentínumaðurinn Juan Sebastian Veron telur Argentínu og England bæði sigurstrangleg á HM 2002. Hann segir að Marcelo Bielsa sé gífurlega kröfuharður þjálfari. Argnentínska liðið í dag er það sókndjarfasta í áratug. knattspyrna Argentínski lands- liðsmaðurinn Juan Sebastian Ver- on og enski landsliðsmaðurinn David Beckham eru orðnir góðir félagar enda leika þeir nú saman hjá Man. Utd. Argentína og Eng- land hafa bæði tryggt sér sæti í úrslitum Heimsmeistarakeppn- innar í knattspyrnu og sagði Ver- on í viðtali við breska fjölmiðla að ef þeir félagar myndu mætast í úrslitakeppninni myndi vináttan ekki hafa neina þýðingu. „Heimsmeistarakeppnin er sérstök," sagði Veron. „Þar eru menn að leika fyrir sína eigin þjóð.“ Argentína og England mættust síðast í úrslitakeppni HM í Frakk- landi 1998. Leikurinn var söguleg- ur því Beckham var rekinn útaf eftir að hafa sparkað í Diego Si- meone og Michael Owen skoraði eitt eftirminnilegasta mark síðari ára. Leiknum lauk með 2-2 jafn- tefli, en Argentína komst áfram eftir vítaspyrnukeppni. Leikir lið- anna hafa reyndar oftar en ekki verið eftirminnilegir. Árið 1966 var Antonio Rattin rekinn út af og árið 1986 skoraði Maradona með „hönd guðs.“ Síðasti leikur lið- anna var í febrúar í fyrra en hon- um lauk með 0-0 jafntefli. Veron telur að Argentína geti sigrað á HM ef liðinu tekst að halda áfram á þeirri braut sem það hefur verið á undanfarið, en liðið hefur aðeins tapað einum af síðustu 19 leikjum og er langefst í undankeppni HM í Suður-Amer- íku. „Við erum hungraðir í sigur,“ sagði Veron. „Það er allt öðruvísi stemmning í liðinu núna en 1998, en ekki útaf því að við erum með nýjan þjálfara." Fjórtán leikmenn sem eru í landsliðinu núna, sem er stjórnað SINCLAIR West Flam metur Trevor Sindair á 10 milljónir punda. skipti eða hvort hann vill bara fá peningana og kaupa þá leikmenn sem hann hefur áhuga á. Roeder mun samt verða að íhuga vel tilboð Newcastle því Sinclair hefur lýst því yfir að hann vilji fara frá West Ham. Liverpool og Sunderland hafa einnig áhuga á að kaupa Sinclair. ■ af Marcelo Bielsa, léku einnig undir stjórn Daniel Passarella og sagði Veron að leikmennirnir væru búnir að læra mikið af báð- um þjálfurunum. „Þeir eru mjög ólíkir. Bielsa er gífurlega kröfuharður og hefur gert liðinu mjög gott,“ sagði Ver- on sem vildi samt ekki bera þjálf- arana saman að öðru leyti. Al- mennt er þó talið að Bielsa hafi gefið liðinu meira frelsi til að sækja, þrátt fyrir að leggja einnig mikla áherslu á taktík. Argent- ínska liðið í dag er það sókn- djarfasta í áratug, eða síðan Alfio Basile stjórnaði því. Þá, eða í maí árið 1991, gerði það m.a. 2-2 jafn- tefli við England á Wembley eftir að hafa lent 2-0 undir. Tveimur mánuðum síðar vann það Amer- íkubikarinn auðveldlega. Veron telur að þau lið sem komi til með að veita Argentínu mesta keppni á HM verði Ítalía, Spánn, Frakkland og England. Leið Argentínu í úrslitakeppnina var nokkuð ólík leið enska liðsins. Eins og áður sagði hefur Argent- ína þegar tryggt sér farseðilinn til Japan og S-Kóreu þrátt fyrir að fjórir leikir séu enn eftir í Suður- Ameríkuriðlinum. England tryg- gði sér aftur á móti sæti á loka- JUAN SEBASTIAN VERON „Það er allt öðruvísi stemmning í liðinu núna en 1998, en ekki útaf því að við erum með nýjan þjálfara." stundu með því að gera 2-2 jafn- tefli við Grikkland, þar sem Beck- ham skoraði jöfnunarmarkið þeg- ar komið var fram yfir hefðbund- inn leiktíma. Englendingar geta kannski huggað sig við það að árið 1986 tryggði Argentínska lands- liðið sér sæti á HM á lokastundu með 2-2 jafntefli við Perú. Liðið gerði sér síðan lítið fyrir og varð heimsmeistari. trausti@frettabladid.is Hrein og klár bylting MeO Kártber 5500 AquaSfflwct tytou&umi í gnsgprt! uurmi vítJtiw Hhaimiairlifelg&fflÉ áHnrtBÍrriimsto fijFJmjytætsiutt jínairra aifim: Iþníttt a(f rtyteafwrænrnií • fHhattiw liíttelööliar Og veröið er aðeins 29.426- /.'PHMImW/#/ {ItínthnSimðyttti um> ibmti SWhlfAWJEF SlrMliatT ZBESv' 3HS1 amS.VWMWWaNtBBI®

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.