Fréttablaðið - 02.11.2001, Síða 2
KJÖRKASSINN
FRÉTTABLAÐIÐ
LÍTILL STUÐNINGUR
Ferð Sturlu Börðvars-
sonar með flugvél Flug-
málastjórnar á leiksýn-
ingu á Ólafsvík nýtur
lítils skilnings kjósenda
á visi.is.
Hafði samgönguráðherra heimild
til að láta vél Flugmálastjórnar
flytja sig á leiksýningu og ráð-
stefnu á Snæfellsnesi?
Niðurstöður gærdagsins
á wvwv.visir.is
Nei
27%
73%
Spurning dagsins í dag:
Hefur hernaðurinn gegn Afganistan bor-
ið þann árangur sem þú bjóst við?
Farðu inn á vísi.is og segðu I
þlna skoðun
___________
BAK VIÐ TJÖLDIN
David Trimble, leiðtogi Sambandsflokks Ul-
sters, hagræddi gluggatjöldum á skrifstofu
sinni í Stormont í gær, og ræddi um leið i
gemsann sinn. i dag ganga þingmenn í
heimastjórn Norður-írlands til atkvæða um
það hvort Trimble verði f forsæti á ný.
David Trimble vill aftur í
forystusætið:
Örlög
Trimbles ráð-
ast í dag
belfast. ap David Trimble, sem
sagði af sér forsæti í heimastjórn
Norður-írlands í júlí, sækist eftir
því að fá embættið á ný. Óvíst er
þó hvort honum verður að ósk
sinni, því tveir flokksbræður hans
hafa ekki gert upp hug sinn hvort
þeir ætli að veita honum stuðning
á ný.
Trimble sagði af sér í rnót-
mælaskyni vegna þess að írski
lýðveldisherinn (IRA) hafði neit-
að að byrja afvopnun, og þótti
TVimble litil ástæða til að halda
áfram stjórnarsamstarfi með lýð-
veldissinnum. Þegar svo staðfest
var í síðustu viku að afvopnunin
væri hafin, þá breyttist staða
mála.
Trimble vill því aftur komast í
embættið, og nýtur til þess stuðn-
ings kaþólskra lýðveldissinna.
Hins vegar eru mótmælendur tví-
skiptir í afstöðu sinni. Ian Paisley
og Lýðræðislegi sambandssinna-
flokkurinn ætla að greiða atkvæði
gegn 'frimble, samtals 28 þing-
menn. Megnið af flokksbræðrum
TVimbles, eða 26 af 28 þingmönn-
um flokksins, ætla að greiða hon-
um atkvæði. Sömuleiðis tveir aðr-
ir mótmælendur sem eru utan-
flokka. Öll spjót standa því á
tveimur flokksbræðrum
Trimbles, sem hafa lýst sig trega
til að greiða honum atkvæði. ■
Bókmenntaverðlaun
Laxness:
Komu í hlut
Bjarna
Bjarnasonar
bækur Bjarni Bjarnason hlaut í
gær Bókmenntaverðlaun Halldórs
Laxness fyrir skáldsögu sína,
Mannætukonan og maður hennar.
Sagan greinir frá lögreglumanni í
leit að mannætukonunni fögru, og
er allt í senn, glæpasaga, hryll-
ingssaga, ástar- og þjóðsaga, en
höfundur snýr jafnframt út úr
þessum formum öllum saman.
Bókin kom einnig út í gær.
Þetta er í fimmta sinn sem
Bókmenntaverðlaun Halldórs
Helgafell sem stendur að verð-
laununum í samráði við fjölskyldu
Nóbelskáldsins.
Bjarni hefur áður fengið bók-
menntaverðlaun Tómasar Guð-
mundssonar fyrir sögu sína,
Borgin bak við orðin, auk þess
sem hann var tilnefndur til ís-
Bjarni Bjarnason tekur við verðlaununum,
500.000 krónur, úr hendi Péturs Más
Ólafssonar, útgáfustjóra Vöku. Verðlaunin
voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjóð-
menningarhúsinu.
lensku bókmenntaverðlaunanna
fyrir söguna Endurkomu Maríu
árið 1996. ■
vrfté/t
HITTUST i GAZABORG
Tony Blair og Jasser Arafat tókust í hendur. Blair sagði að mikilvægt að fólk gerði sér grein fyrir að það væri Arafat sem talaði máli Palest-
ínumanna, en ekki Osama bin Laden.
Rjúfa verður
vítahring ofbeldis
Tony Blair hitti Sharon og Arafat í gær. Skammaði Israelsmenn fyrir
hörð viðbrögð þeirra og hvatti múslima til að gæta hófs. Þingforseti
Palestínumanna vill lýsa yfir stofnun Palestínuríkis.
JERúsalem. ap Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, hitti í gær
Ariel Sharon forsætisráðherra
ísraels í Jerúsalem og síðar um
daginn hitti hann Jasser Arafat
leiðtoga Palestínumanna í Gaza-
borg. Hann hvatti þá báða til þess
að stöðva ofbeldi og setjast aftur
að friðarsamningum. Einnig hvat-
ti hann múslima til þess að gæta
hófs og forðast öfgaöfl.
Hann sagðist skilja vel þann
þrýsting sem Ariel Sharon væri
undir, og fordæmdi sjálfs-
morðsárásir Palestínumanna.
Hins vegar skammaði hann ísra-
elsmenn fyrir að grípa til um-
deildra aðgerða á borð við að
senda skriðdreka inn á yfirráða-
svæði Palestínumanna og senda
launmorðingja á eftir herskáum
Palestínumönnum.
Eftir fundinn með Arafat sagði
hann öfgamenn á borð við Osama
bin Laden vera að reyna að etja
múslimum á móti Vesturlöndum.
Hann sagði hins vegar ekki mark
takandi á stuðningsyfirlýsingum
bin Ladens við málstað Palestínu-
manna. Það sé Arafat, en ekki bin
Laden, sem sé fulltrúi Palestínu.
Blair ítrekaði jafnframt stuðn-
ing sinn við stofnun Palestínurík-
is, en fór ekki nánar út í þá sálma.
Háttsettir Palestínumenn höfðu
bundið vonir við að heimsókn Bla-
irs myndi valda þáttaskilum.
Arafat var kominn á fremsta
hlunn með að lýsa yfir stofnun
Palestínuríkis áður en átök blos-
suðu upp milli Palestínumanna og
ísraelsmanna fyrir rúmu ári. Svo
virðist sem hann hafi lagt þau
áform á hilluna í bili.
Ahmed Quria, forseti þings
Palestínumanna, sagði hins vegar
í gær nauðsynlegt að lýsa yfir
stofnun sjálfstæðs ríkis Palest-
ínumanna. „Sjálfstæði Palestínu
nýtur alþjóðlegrar viðurkenning-
ar, ekki síst eftir að George W.
Bush lýsti yfir stuðningi sínum
við Palestínuríki," sagði hann.
Ilann sagði að yfirlýsingin ætti að
ná til allra þeirra svæða sem ísra-
elsmenn hertóku í stríðinu árið
1967, þ.e. Vesturbakkann, Gaza-
svæðið og austurhluta Jerúsalem-
borgar.
Blair hefur verið á ferð um
Mið-Austurlönd síðustu daga, og
kom á miðvikudag til Sýrlands
þar sem hann lenti í deilum við
Assad forseta. Assad sagði loft-
árásunum á Afganistan verða að
linna. Auk þess sagði Assad að
þeir sem berjast fyrir málstað
Palestínumanna séu ekki hryðju-
verkamenn. ■
Opið f Austurveri
f ré 8:00 á morgnana
til 2:00 eftir miðnæffi
lyfi,heilsa
Prófkjör Nes-listans:
Þrjú efstu sætin listans
verða bindandi
framboðsmál Þrjú efstu sætin
verða bindandi í prófkjöri Bæjar-
málafélags Seltjarnarness sem
haldið verður í Valhúsaskóla 17.
nóvember n.k. Alls taka átta
manns þátt í prófkjörinu sem er
opið öllum þeim sem eiga lög-
heimili á Nesinu á kjördag. Hins
vegar hefur ekki verið tekin
ákvörðun hvernig staðið verður
að niðurröðun fólks í önnur sæti,
en alls verða 14 á framboðslista
Bæjarmálafélagsins.
Þau sem taka þátt í prófkjör-
inu eru Árni Einarsson fram-
kvæmdastjóri, Edda Kjartans-
dóttir deildarstjóri, Guðrún
Helga Brynleifsdóttir héraðs-
dómslögmaður, Kristján Einar
Einarsson aðflugshönnuður,
Nökkvi Gunnarsson skrifstofu-
maður, Stefán Bergmann dósent,
Sunneva Hafsteinsdóttir bæjar-
fulltrúi og Þorvaldur Kolbeins
Árnason verkfræðingur. Formað-
ur prófkjörsnefndar er Högni
Óskarsson bæjarfulltrúi sem
ákvað að gefa ekki kost á sér til
endurkjörs. Við síðustu kosningar
fékk Nes-listinn tvo fulltrúa kjör-
na í bæjarstjórnina en sjálfstæð-
ismenn fimm fulltrúa. ■
2. nóvemer 2001 FÖSTUDAGUR
Afkomutölur í sjávarútvegi:
Ekki allt sem
sýnist
SJÁVARÚTVEGUR Þótt hefðbundin
reikningsskil sýni nú lélega af-
komu í sjávarútvegi sýna aðrar
uppgjörsaðferðir gagnstæða nið-
urstöðu Svo segir í frétt frá Þjóð-
hagsstofnun. Þannig sé svokölluð
árgreiðsluaðferð þess megnug að
snúa tapi í hagnað, bókhaldslegt að
vísu. Með henni eru reiknaðir 6%
raunvextir á allt það fjármagn sem
bundið er í rekstri fyrirtækjanna.
Þannig sýni sú aðferð 2,6 milljarða
heildarhagnað fiskveiða á síðasta
ári á meðan hefðbundna aðferðin,
sem gjaldfærir gengistap og af-
skriftir inn í rekstrarreikning,
sýni tap upp fimm milljarða. ■
Dóra BA 24:
Liggur í höfn-
inni og býr til
peninga
kvótakerfi Undanfarin tvö ár hef-
ur báturinn Dóra BA 24 legið
bundinn við bryggju í Ólafsvíkur-
höfn á meðan eigendur bátsins
hafa hagnast á sölu kvótans sem
honum er úthlutað árlega. Vakin
er athygli á þessu í vestfirska
vefritinu Bæjarins besta og bent á
að Hali ehf., eignarhaldsfélag
bátsins, sé á meðal 10 stærstu
skattgreiðenda Vestfjarðakjör-
dæmis. Félagið er skráð á ísafirði
en til heimilis að Vesturbrún í
Reykjavík.
Árni Múli Jónasson, aðstoðar-
fiskistofustjóri, segist ekki vita til
þess að eigendur bátsins hafi
gerst brotlegir við reglur um
kvótaframsal. „Annarsvegar gild-
ir regla um 50% takmörkun á
framsali kvóta og hinsvegar um
að bátur verði að veiða upp í að
minnsta kosti helming kvóta síns
annað hvert ár ellegar falli kvóta-
úthlutum niður.“ Báturinn fékk
úthlutað 332 þorskígildistonnum á
síðasta fiskveiðiári en landaði
engu. Fyrir þetta ár fékk hann 303
tonn og hafa eigendur þegar selt
151,5 tonn, eða nákvæmlega 50%.
Samkvæmt þessu er Hali ehf.
nauðbeygður til að veiða 151,5
tonn fyrir nk. ágústlok til að fá
aftur úthlutað fyrir fiskveiðiárið
2002/3. ■
Sálfræðingar semja við
borgina:
Afturvirkur um
þrjá mánuði
kjaramál Samningar tókust í
fyrrakvöld á milli Stéttarfélags
sálfi'æðinga og Reykjavíkui’borg-
ar um nýjan kjarasaming sem fel-
ur í sér um 20% launahækkun á
samningstímanum, eða til nóvem-
berloka árið 2005. Athygli vekur
að samningurinn
er afturvirkur til 1.
ágúst sl. eða um 3
mánuði. Fróðlegt
verður að fylgjast
með því hvort
borgarráð muni
samþykkja þessa
afturvirkni því lík-
legt má telja að
aðrir stéttir muni
telja það vera for-
dæmisgefandi af
hálfu borgarinnar
fyrir aðra viðsemj-
endur sína. Ingi
Jón Hauksson framkvæmdastjóri
sálfræðinga segist vera hóflega
ánægður með samninginn sem
verður kynntur von bráðar og síð-
an borin undir atkvæði þeirra hátt
í 30 sálfræðinga sem vinna hjá
borginni.
Baráttukaffið sem ætlunin var
að halda í gærmorgun í Ráðhús-
kaffi til að minnast þess að ár var
liðið frá því samningur borgarinn-
ar við sálfræðinga var laus breytt-
ist því í nokkurs skonar „ferming-
ai'veislu" með þátttöku borgar-
stjóra eins og það var orðað. ■
INGI JÓN
HAUKSSON
Meðaldagvinnu-
laun hækka úr
255-260 þúsund
í um 280 þús-
und á mánuði