Fréttablaðið - 02.11.2001, Qupperneq 24
FRETTABLAÐIÐ
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabIadid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20
VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á V'ÍSÍr-ÍS Fyrstur með fréttirnar
Jffla<b6<wb í
Aáde^tTiii
Bakþankar
Þráins Bertelssonar
Minnkandi umferð
á Guðs vegum?
Til er sú saga að einhvers staðar
hafi eftirfarandi staðhæfing eftir
þýska heimspekinginn Friðrik
Nietzsche verið krotuð á vegg: „Guð
er dauður! - Nietzsche". Ekki leið á
löngu áður en annarri setningu hafði
verió bætt við fyrir neðan krotið og
hún var svohljóðandi: „Nietzsche er
dauður! - Guð“.
ÞESSI STUTTU skoðanaskipti eru
lýsandi fyrir þá umræðu sem oftar
mætti heyrast í samfélaginu um
hvaða sess trúarbrögð skipi í þjóðfé-
lagi sem mörgum virðist hneigjast
meira og meira í þá átt að leita stund-
arfró í stað hamingju og hafi minnk-
andi áhuga á trú og trúarbrögðum en
að sama skapi vaxandi áhuga á afþr-
eyingu sem tengist peningadýrkun,
áfengisneyslu, eiturlyfjum og
pomógrafíu.
KARDÍNÁLINN Kormákur
Murphy-O’Connor yfirmaður Kaþ-
ólsku kirkjunnar í Englandi og Wales
kom af stað heilmikilli umræðu í
Bretlandi þegar hann talaði um að
minnkandi kirkjusókn benti til þess
að kristni sem leiðarljós fólks í lífinu
ætti undir högg að sækja. Margt
fróðlegt kom þar fram:
—4—
GUÐLEYSINGI skrifar: „Ég tel að
mikilvægara en að gera það sem
kirkjan segir manni að gera sé að lifa
lífinu án þess að gera öðrum mein.
Sýndu öðrum virðingu og gerðu þér
ljóst að allar athafnir hafa afleiðingar
og þér mun vel farnast. Án þess að
þú þurfir á trú að halda.“ Daníel Raj í
Indlandi er ekki sammála þessu:
„Jesús Kristur er svarið. Hann hefur
fært mér innri ró, tilgang í lífinu,
fyrirgefningu og framtíðarvon.”
.—*—
„KRISTIN TRÚ er svona álíka mik-
ilvæg og ævintýri eftir H.C. Ander-
sen eða J.R. Tolkien," segir Stuart
Dawson frá Wales. „Ég er ekki trúað-
ur,“ segir Stephen frá Ameríku, „en
ég hef tekið eftir því að því „frjáls-
lyndara" eða „vinstrisinnaðra" sem
samfélagið er þeim mun meira ber á
á fordómum gegn trúarbrögðum.
Fordómar af þessu tagi fara vaxandi
í Evrópu og framsæknari fylkjum
Bandaríkjanna eins og Kaliforníu."
Marty Leighton í London segir: „Trú-
in kemur aldrei inn í líf mitt nema
þegar ég bið til Guðs um að Chester
City skori mark.“ „Kristur segir okk-
ur að elska hvert annað. Það er mín
trú,“ segir annar. Og lifandi umræða
heldur áfram. ■
Steve Zahn (Evil Woman), Paul Walker (Fast and the Furious) oa Leelee Sobieski (Eyes Wide Shut) lenda
í klóm geðveiks morðingja sem bau kynnast í gejgnum talstöð á ferðalagi. Upphefst nu æsispennandi
eltingarleikur sem fær harin til að risa! Einn óvæntasti spennutryliir ársins!
smfíRRKrBio