Fréttablaðið - 12.11.2001, Síða 13
A \
MÁNUDAGUR 12. nóvember 2001
FRÉTTABIAÐIÐ
Osama bin Laden:
„Bandaríkin geta aldrei náð mér lifandi
ii
ISLAMABAD.PAKISTAN.AP Osama bin
Laden segist hvergi hafa komið
nærri miltisbrandstilfellunum
sem komið hafa upp í Bandaríkj-
unum. „Við vitum ekkert um
neinn miltisbrand," sagði hann og
hló, aðspurður um þátt hans í
árásunum. Þetta kemur fram í
viðtali sem pakistanskur blaða-
maður tók við bin Laden nýlega.
Bundið var fyrir augun á blaða-
manninum þar til honum var ekið
í um 5 klukkustundir frá Kabúl,
höfuðborg Afganistan, á kaldan
áfangastað þar sem hann ræddi
við bin Laden í tvær klukku-
stundir. „Bandaríkin munu aldrei
ná mér lifandi," sagði bin Laden
einnig í viðtalinu, sem birt var í
gær. „Það er hægt að gera út af
við mig en ekki takmark mitt,“
sagði hann. „Við munum berjast
við hlið Mullah Omar [leiðtoga
talibana] til síðasta blóðdropa." í
viðtalinu játar bin Laden í fyrsta
skipti aðild sína að hryðjuverk-
unum á Bandaríkin. „Tvíburat-
urnarnir voru lögmæt takmörk,
þeir studdu efnahagsveldi
Bandaríkjanna," sagði hann. ■
BIN LADEN
Bin Laden segist hvergi hafa
komið nærri miltisbrandstil-
fellunum sem komið hafa
upp í Bandaríkjunum.
Flutningur íjár-
heimilda of mikill
Alþingi á að taka ákvarðanir um ráðstafanir
fjár, áður en stofnað er til skuldbindinga, nema
um ófyrirséða atburði sé að ræða. Stjórnarskrá-
in leggur bann við greiðslum úr ríkissjóði án
heimildar í íjárlögum. Vilji á Alþingi til að
virða betur fjárstjórnarvaldið. Enn stofnanir
sem fara fram úr fjárveitingum.
FJÁRAUKAIACAFRUMVARP „Megin-
hugmynd fjárlaganna er sú að Al-
þingi fari með fjárstjórnarvald og
að öllu jöfnu ætti að taka ákvarð-
anir um ráðstafanir fjár, áður en
stofnað er til skuldbindinga,“ seg-
ir Sigurður Þórðarson, ríkisendur-
skoðandi. „Á þeirri meginreglu
eru þó undantekningar, ef um
ófyrirséða atburði, slys og annað
því líkt, er að ræða, sem krejast
úrlausnar þegar í stað.“ Sam-
kvæmt skýrslu Ríkisendurskoðun-
ar um útgjaldastýringu ríkisins,
kemur fram að í stjórnarskránni
sé lagt bann við greiðslum úr rík-
issjóði án heimildar í fjárlögum,
en ekki hafi verið litið svo á að það
bann væri algilt. Talið hafi verið
að framkvæmdavaldið hefði svig-
rúm til að ráðstafa fjármunum úr
ríkissjóði, umfram fjárlög, og leita
síðan heimilda eftirá, í fjárauka-
lögum. Á síðari árum hafi þó kom-
ið fram vilji til þess að fjárstjórn-
arvald þingsins sé betur virt. Að
sögn Sigurðar hefur agi og utan-
umhald fjárreiða ríkisstofnana
batnað til muna undanfarin ár.
„Það er þó slæmt, að enn eru
stofnanir og viðfangsefni, sem
ekki hafa verið teknar ákvarðanir
um, hvernig skuli vera í umfangi,
og fjárveitingarnar því ekki sam-
svarandi," segir Sigurður. Fjárlög
ríkisins séu stjórntæki og frávikin
eigi því að vera sem minnst.
Reglugerð, sem hafi tekið gildi
síðustu áramót hafi styrkt þá
framkvæmd, þar séu heimildir til
að flytja fjármuni milli ára og ætl-
SIGURÐURÞÓRÐARSON
Ég er sammála því, að flytja eigi fjárheim-
ildir á milli ára, en spurningin er sú, hvort
ekki sé orðið of mikið af því góða.
ast sé til að því sé fylgt eftir. Að-
spurður segir Sigurður að umræð-
ur um frumvarp til fjáraukalaga
2001 og fjárlaga 2002 þurfi ekki
endilega að fara saman. „Fjár-
aukalagafrumvarpið 2001 á auð-
vitað að f jalla um þetta ár og betra
hefði verið að þær ákvarðanir sem
þar, eru hefðu verið teknar fyrr á
árinu,“ segir Sigurður. „Ég er sam-
mála því, að flytja eigi fjárheim-
ildir á milli ára, en spurningin er
sú, hvort ekki sé orðið of mikið af
því góða.“
arndis@frettabladid.is
iningur
vandamálsins er, hvort kennarar
grípa inn í, hvort nemendur grípa
inn í o.s.frv.," segir Olweus. „Það er
einnig mikilvægt að auka hæfni
kennaranna til að fást við málið.
Skólinn ber lykilábyrgð og þess
vegna þurfa kennarar að fræðast
um það hvernig eineltið gengur fyr-
ir sig og hvernig vinnum við á
vandamálinu." Fræðsla um einelti
og viðbrögð við því verður að vera
þáttur í grunnmenntun kennara og
einnig símenntun þeirra eftir að
þeir eru komnir til starfa að mati
Olweus.
„Skólinn hefur afneitað einelt-
inu allt of lengi," segir Olweus en
viðhorfið er að mati hans að breyt-
ast. Hann telur skólayfirvöld um
allan heim gera sér betur og betur
grein fyrir alvarleika og umfangi
eineltis og gildi þess að vinna með
markvissum hætti gegn því.
steinunn@frettabladid.is
AÐGERÐAAÆTLUN OLWEUS
GEGN EINELTI
Skólaþrep
• Könnun á umfangi og birtingu eineltis
• Vinnudagur til að samræma hug-
myndir
• Skilvirk frímínútnagæsla
• Kennslufræðilegir umræðuhópar
kennara
Bekkjarþrep
• Kennarar og nemendur koma sér
saman um fáar en skýrar reglur varð-
andi einelti.
• Hrós og hvatning eru mikilvægir
þættir og auðveldar nemandanum að
taka neikvæðri gagnrýni
• Fyrirfram ákveðin viðbrögð við brot á
reglum
• Bekkjarfundur I hverri viku
Einstaklingsþrep
Ef merki sjást um einelti skal bregðast
fljótt við með samtali við þann eða þá
sem leggja i einelti
• Viðtal við þann sem lagður er í ein-
elti, nauðsynlegt er að sjá til þess að
viðkomandi eigi öruggt skjól
• Gera foreldrum grein fyrir stöðu mála
• Þótt farsælast sé að leysa mál innan
skóla, getur það verið úrslitakostur að
gerandi/gerendur skipti um bekk eða
jafnvel skóla, til dæmis til að leysa upp
neikvæðar klíkur.
ÚTSALA
Tölvuleikir
DVD myndir
DVD tónlist
Geisladiskar
Leikfimispólur
og margt fleira
Síðumúla 37 • Sími 575-2310
Stuttar og síðar ullarkápur.
Hattar, húfur.
Mörkinni 6, sími 588 5518
Bílastæði við búðarvegginn.
Fyrirtæki til sölu, t.d.:
• Góður skyndibitastaður i at-
vinnuhverfi. Ársvelta 20 MKR.
• Rótgróin heildverslun með sæl-
gæti. 80 MKR árvelta. Mjög góð
framlegð.
• Sjálfsalafyrirtæki. Mikill tækja-
búnaður, lítil vinna.
• Hárgreiðslustofa í miðbænum.
• Gott fyrirtæki í jarðvegsvinnu,
hellulögn, steypusögun, kjarna-
borun og múrbroti. Traust hluta-
félag í eigin húsnæði.
• Veitinga- og skemmtistaður á
Höfn í Hornafirði. Eigið húsnæði.
• Stór og vinsæll pub í miðbæn-
um. Mikil velta.
• Sólbaðsstofa á ótrúlega lágu
verði af sérstökum ástæðum.
Besti tíminn framundan. Auðveld
kaup.
• Bón & þvottabíllinn. Sniðugt fyr-
irtæki í bílaþrifum. Lítil fjárfest-
ing. Aðveld kaup.
• Söluturn á Akureyri. Lottó, video
og grill. Ársvelta 20-24 MKR.
Auðveld kaup.
• Verslun, bensínssala og veitinga-
rekstur í Búðardal. Eigið hús-
næði. Mjög góður rekstur. Árs-
velta 160 MKR.
• Falleg lítil blómabúð í Breiðholti.
Mjög einfaldur og öruggur rekst-
ur. Auðveld kaup.
• Söluturn með bílalúgum, grill og
video. 6,5 MKR mánaðarvelta.
• Unglingafataverslun í Kringlunni.
2 MKR mánaðarvelta. Auðveld
kaup.
• Kjötvinnslufyrirtæki sem er í
miklum vexti. Ársvelta nú um
100 MKR. Meðeign eða samein-
ing kemur vel til greina.
• Sérverslun á Djúpavogi. Eigið
húsnæði á besta stað. 20 MKR
ársvelta.
• Lítið verktakafyrirtæki sem star-
far nær eingöngu á sumrin. Fast-
ir viðskiptavinir, stofnanir og
stórfyrirtæki. Hagnaður 7-8 MKR
á ári.
• Gömul og þekkt heildverslun
með byggingarvörur og búsá-
höld. 30 MKR ársvelta. Góð
framlegð.
• (s og videosjoppa í Grundarfirði.
Miklir möguleikar.
• Þekkt bílabónstöð með 15 MKR
ársveltu. Stórir viðskiptavinir í
föstum viðskiptum. Gott hús-
næði, ný tæki.
• Húsgagnaverslun með mjög gott
umboð. Auðveld kaup.
• Gistihús miðsvæðis í Reykjavík.
15 herbergi. 20 MKR ársvelta.
• Öflugt og mjög þekkt verslunar-
fyrirtæki í vefnaðarvöru með 175
MKR ársveltu. Heildsala, smásala
og sterkt á stofnanamarkaði.
• Kjörbúð í Reykjavík. 40 MKR
ársvelta. Rótgróin verslun í
gömlu hverfi.
• Djásn og Grænir Skógar. Verslun
við Laugaveginn, heildsala og
netverslun. Gott fyrirtæki og
mikil tækifæri.
• Rótgróið veitingahús við Bláa
Lónið. Góður og vaxandi rekstur
í eigin húsnæði.
• Stór og mjög vinsæll pub í út-
hverfi. Einn sá heitasti í borginni.
• Traust verktakafyrirtæki í jarð-
vinnu. 80 MKR ársvelta. Mjög
góð verkefnastaða næstu tvö ár.
• Einn þekktasti pizza staður
borgarinnar. 4 MKR mánaðar-
velta og vaxandi. Auðveld kaup.
• Höfum til sölu nokkrar heild-
verslanir í ýmsum greinum fyrir
rétta kaupendur. Ársvelta 150-
350 MKR. Einnig stór verslunar-
fyrirtæki sem sum stunda einnig
heildverslun.
• Skyndibitastaðurinn THIS í Lækj-
argötu (áður Skalli). Nýlegar inn-
réttingar og góð tæki.
• Rótgróin innflutningsverslun með
tæki og vörur fyrir byggingariðn-
aðinn. Ársvelta 165 MKR. Góður
hagnaður.
• Góð videósjoppa i Breiðholti
með 4 MKR veltu á mánuði.
Auðveld kaup.
• Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin)
• Sími 533 4300 • Gsm 895 8248