Fréttablaðið - 12.11.2001, Page 14

Fréttablaðið - 12.11.2001, Page 14
14 FRÉTTABLAÐIÐ 12. nóvember 2001 MÁNUDAGUR Þrír Evrópuleikir um helgina hjá íslenskum liðum: Barcelona í miklu stuði OFJARLAR Þrátt fyrir að eiga góða spretti og skora 29 mörk á útivelli töpuðu Haukar allhressilega fyrir Börsungum. HEIL UMFERÐ f GÆR KR vann Skallagrím 77-74, UMFN vann Stjörnuna 64-92, Grindavik vann Keflavík 105-99, Haukar unnu Breiðablik 58-55, Tindastól vann ÍR 85-92 og Þór A. og Hamar gerðu 102-102 jafntefli. EPSON-PEILDIN Lið Leikir U J T Stig KR 6 6 0 0 524:469 12 Keflavík 6 4 0 2 559:510 8 UMFN 6 4 0 2 508:462 8 Grindavík 6 4 0 2 544:519 8 Tindastóll 6 4 0 2 479:481 8 Þór A. 6 3 1 2 547:538 7 Haukar 6 3 0 3 445:462 6 Hamar 6 2 1 3 544:562 5 |R 6 2 0 4 492:505 4 Breiðablik 6 2 0 4 482:498 4 Skallagrímur 6 1 0 5 444:477 2 Stjarnan 6 0 0 6 419:504 0 handbolti Haukar, HK og Fram spiluðu öll Evrópuleiki um helg- ina. Á laugardaginn mætti HK Porto í Evrópukeppni bikarhafa í Digranesi. Úrslitin voru Portúgöl- unum í hag, 24-29. í hálfleik voru þeir tveimur mörkum yfir, 14-16. HK á því erfiðan leik fyrir hönd- um í Portúgal. Vilhelm Gauti Bergsveinsson var markahæstur hjá HK með sjö mörk. Jaliesky Garcia skoraði sex mörk og þjálf- arinn Valdimar Grímsson fimm. Þetta var fyrsti Evrópuleikur fé- lagsins. íslands- og bikarmeistarar Hauka mættu Barcelona í Kata- lóníu á laugardaginn. Þetta var þriðja umferð Evrópukeppni bik- arhafa. Barcelona vann leikinn 39-29. Atkvæðamestur í liði Hauka var Halldór Ingólfsson fyrirliði. Hann skoraði fimmtán mörk framhjá sænska landsliðs- markverðinum Thomas Svensson en á heildina litið var það mjög hraður leikur og fimi Barcelona, sem gerði út af við Hauka. í gærkvöldi mætti Fram síðan Frökkunum í Paris Saint Germain í þriðju umferð Áskorendabikars- ins í handknattleik. Gunnar Berg Viktorsson er leikmaður hjá PSG og spilaði með sínum mönnum í Framhúsinu í gærkvöldi. Frakk- arnir unnu leikinn 26-22. ■ Ipswich - Bolton tnski bolfinn kl. 15.55 L.A. Clippers - New York Knicks NBA kl. 20.30 mán Charlton - West Ham kl. 19.55 www.syn.is eða í síma 515 6100 ^^28^34; 37; Jókertölur laugardags 5 0 8 7 7 AnAIT/SlllR 1 AÐALTÖLUR 1 j 4 ) 10 11)3!) BÓNUSTÖLUR | /i*í\ Alltaf á s ZZJ ZZ/ m'övikudögum Jókertölur mlðvlkudags 9 5 3 5 3 Upplyslngar isfma 580 2525 Textavarp ÍÚ 110-113 RÚV281, 283 og 284 10.11.2001 TÉKKNESKT TAP Tékkneski leikmaðurinn Vratislav Lokvenc skallar aukaspyrnu Belgans Sven Vermant frá í leik liðanna á King Baudouin vellinum í Brussel á laugardag. Belgar sigruðu með einu marki gegn engu. Löng leið að HM Fyrri leikir í umspili um fimm laus sæti á HM 2002 fóru fram á laugardag. Þýskaland gerði jafn- tefli en Irland, Slóvenía, Belgía og Tyrkland unnu sína leiki. knattspyrna Það er óneitanlega niðurlægjandi fyrir Þjóðverja ef þeir komast ekki í úrslitakeppn- ina um heimsmeistaratitilinn í Japan og Suður-Kóreu á næsta ári. Þeir hafa þrisvar sinnum orðið heimsmeistarar, síðast á Ítalíu 1990, og aldrei mistekist að kom- ast í úrslitakeppnina í 15 skipti. Þeir þurftu að hafa mikið fyrir 1- 1 jafntefli á móti Úkraínu í um- spili um laust sæti í Kiev á laugar- dag. Tæplega 84 þúsund manns mættu þar á völlinn. Henadiy Zu- bov skoraði fyrsta mark leiksins á 18. mínútu en Michael Ballack jafnaði fyrir Þýskaland stuttu seinna. Þjóðverjar lentu í umspil- inu eftir 5-1 tap fyrir Englandi í byrjun september og að lenda í öðru sæti í riðlinum. Úrslitin gefa þeim forskot á Úkrani fyrir seinni leikinn í Dortmund á miðvikudag- inn. írland lenti ekki í vandræðum með írani á Lansdowne Road í Dublin. Það vann leikinn með tveimur mörkum gegn engu. Ian Harte skoraði úr víti og fyrirliðinn Robbie Keane af tuttugu metra færi. íranir áttu nokkur færi en komust ekki framhjá markverðin- um Shay Given. írland komst síð- ast í úrslitakeppnina í Bandaríkj- unum 1994. fran komst til Frakk- lands 1998 og vakti mikla athygli með 2-1 sigri á Bandaríkjunum. Seinni leikur liðanna fer fram í íran á fimmtudaginn en Keane mun ekki spila með vegna hné- meiðsla. Hann hefur ekki getað spilað með liði sínu, Leeds United, í fimm leiki vegna meiðsla. Óvænt úrslit urðu í Ljubljana þegar Slóvanía sigraði Rúmeníu 2-1. Rúmanir voru sigurstrang- legri fyrir leikinn en þeir spiluðu í úrslitakeppninni í Frakklandi og komust í fjórðungsúrslit í Banda- ríkjunum. Fyrsta mark leiksins kom eftir slappt skot frá Rúman- anum Marius Niculae, sem hrökk af varnarmanni og yfir markvörð- inn. Slóvanir jöfnuðu síðan með skallamarki frá Mile Acimovic. Rúmanir hefðu getað komist yfir en klúðruðu færum og Milan Osterc skoraði sigurmarkið fyrir Slóvani. Belgar fögnuðu sigri á Tékkum í Brussel. Eina mark leiksins var skorað í fyrri hálfleik af fyrirlið- anum Gert Verheyen. Tékkar lágu í vörn og voru orðnir nokkuð pirraðir á sókn Belga, ef marka má olnbogaskotið sem Tomas Repka gaf Belganum Bart Goor. Ilann fékk rautt spjald fyrir vikið og Tékkar spiluðu einum manni færri hálfan íeikinn. Tyrkir fóru í vel heppnaða heimsókn til Austurríkismanna í Vínarborg. Okan Buruk skoraði eina mark leiksins í seinni hálf- leik en Austurríkismenn áttu ein- nig nokkur færi. Tyrkir voru sig- urstranglegri fyrir leikinn því Austurríkismenn spiluðu án níu uppreisnargjarnra leikmanna, sem neituðu að spila í síðasta leiknum í riðlinum í ísrael vegna öryggisástæðna. Liðin spila aftur á miðvikudag. ■ 1. deild kvenna: Fyrsta tap Stjörnunnar handbolti Þrír leikir fóru fram í 1. deild kvenna í handbolta um helg- ina en fresta þurfti þeim fjórða, milli KA/Þórs og FH. Á laugardag- inn voru það Grótta/KR og Víking- ur annarsvegar og Haukar og Val- ur hinsvegar, sem áttust við. Grótta/KR vann Víking glæsilega 20-19 eftir að hafa verið 8-13 undir í hálfleik. Amela Hegic skoraði 11 mörk fyrir Gróttu/KR. Á Ásvöllum unnu Haukar Val 23-18. Inga Fríða TVyggvadóttir skoraði 9 mörk, þar af 3 úr vítum, fyrir Hauka. 1. PEILP KVENNA Lið Leikir U J T Mörk Stig Stjaman 7 5 1 1 167:146 11 Ibv 6 5 0 1 131:105 10 Haukar 6 4 0 2 145:103 8 Grótta/KR 5 3 1 1 99:91 7 Valur 5 1 2 2 101:100 4 FH 5 2 0 3 98:109 4 Víkingur 6 2 0 4 100:119 4 Fram 6 1 0 5 115:155 2 KA/Þór 4 0 0 4 74:102 0 í gær fór síðan fram leikur ÍBV og Stjörnunnar. Honum var frestað um einn dag og Stjarnan komst til Eyja í gær. ÍBV vann leikinn 26-24 og er þetta fyrsti ósigur Stjörnunnar í vetur. Theodora Visockaite skoraði 9 mörk fyrir ÍBV en Ragnheiður Stephensen í Stjörnunni skoraði 14.1 1. deild karla: Þórvann í Eyjum HANDBOLTI Tveir leikir fóru fram í 1. deild karla í handbolta um helg- ina. Grótta KR sótti Val heim á föstudaginn og Þór ÍBV í gær. Þór burstaði ÍBV 31-24. Páll V. Gíslason skoraði níu mörk fyrir Þór, Petras Raupenas 10 fyrir IBV og Mindaugas Andriuska níu. Sigurður Bragason hjá ÍBV fékk rautt spjald fyrir brot í lok fyrri hálfleiks. Valur vann leikinn ör- ugglega á föstudaginn með fimm marka mun, 30-25. Bjarki Sigurðs- son og Markús Máni Mikaelsson í ,1. PEILD KARLA Lið Leikir U J T Mörk Stig Haukar 7 7 0 0 192:165 14 Valur 7 6 1 0 199:166 13 Þór A. 7 5 1 1 195:176 11 Grótta/KR 7 4 0 3 178:185 8 KA 7 3 1 3 175:167 7 UMFA 7 3 1 3 163:163 7 ÍR 7 3 1 3 154:162 7 FH 7 2 2 3 178:174 6 HK 7 2 2 3 191:190 6 Selfoss 7 3 0 4 189:189 6 Stjarnan 7 2 1 4 168:176 5 ÍBV 7 2 0 5 183:207 4 Fram 7 0 3 4 163:176 3 Víkingur 7 0 1 6 153:185 1 Val skoruðu átta mörk hvor og Sig- fús Sigurðsson skoraði sjö. Jóhann Samúelsson var markahæstur í Gróttu/KR, skoraði sex mörk. Vals- menn eru enn taplausir á leiktíð- inni og sitja í öðru sæti. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.