Fréttablaðið - 12.11.2001, Side 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
12. nóvember 2001 MÁNUDACUR
smiwHV) Bia
Oth
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
ILUCKY NUMBERS kL 10.15 f
[CAPTAIN CORRELIS kl. 8 og 10.30 [
BRIDCET JONES'S DIARY
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 KVIKMYNPAHÁTÍP
PANE E TULIOANI kl. 8
CRADDLE WILL ROCK kl. 10
MAN WHO CRIED kl. 6 og 8
GOYA IN BORDAUX kl. 8
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
|jOY RIDE kl. 5.45,8 og 10.101 jEVlL WOMAN kl. 3.40, 5.50,8 og 10.10 j
[FINAL fantasy kl. 3.30 [ jPÉTLÍR OC kÖmjRINN- kl. 41
□□ Dolby /DD/'Thx SÍMl 564 0000 - www.smarabio.is
|THE OTHERS kl 550,8 QgloTlTIfgj 13000 IVIILESTOCRACEL- kflonÖ]|^
[SKÓLALÍF m/isltal kL 4 og 6 1 ^ iRUGARTSINWRISm/isLtaÍi kl 3.50 [ í’ffi)
[PRINŒSS DIAR- kL5.45.8og ltLlsjEj ISHREK m/isLtali
OSMOSIS JONE5 ÍdTFöjTj gg iCATS & DÖCS m/iL1taT LL3.50 j gjg
HACATORGI, SÍMI 530 1919
Þar sem allir salir eru stórir
FRUMBURÐURINN
Plata Védísar heitir „In The Caste".
Hún samdi öll lögin á plötunni, sum í
samstarfi við Barða Jóhannsson, fyrir
utan Drive eftir hljómsveitina Cars.
„Stefni alla leið“
Sá orðrómur var lengi á kreiki að í húsakynnum Arna Sigfússonar,
fyrrum borgarstjóra, leyndist tónelskur kvenfugl í búri. Nú er Védís
flogin úr hreiðrinu, stoppaði við í hljóðveri, kom jafnvel við á Kúbu
og í Frakklandi, og getur almenningur nú nálgast frumraun hennar í
næstu plötubúð.
tónlist Frumburður Védísar
heitir „In The Caste“ og hefur
stúlkan gengið lengi með breið-
skífuna undir belti, enda samið
tónlist síðan í grunnskóla. „Ég
spila á píanó og get glamrað eitt-
hvað á gítar. Ég sem oftast út
frá píanóinu, annars er ég með
græjur til að gera tónlist hérna
heima,“ útskýrir Védís er blaða-
maður spyr hvernig lögin fæð-
ast. „Ég samdi öll lögin, reyndar
3 í samvinnu við Barða úr Bang
Gang sem stjórnaði upptökum á
plötunni. Svo er eitt gamalt lag
eftir hljómsveitina Cars sem
heitir Drive.“ Védís hefur aldrei
rokkað með hljómsveit. Henni
grunar þó að meginástæða þess
að engin boð um slíkt hafi borist
henni vera að vinir hennar hafi
alltaf vitað hvert hún stefndi.
En hvert er hún annars að stef-
na? „Ég veit það ekki, á ég ekki
bara að segja að ég stefni alla
leið? Núna er ég að gefa út þessa
plötu og svo ætla ég bara að sjá
til um framhaldið.“ Védís segir
kynningarvinnuna vera mikla,
jafnvel svo að hún hafi neyðst tií
að vera í fjarnámi þessa önn.
Stúlkan á að útskrifast úr Versló
næsta vor, skyldi hún vera orðin
smeyk um að klúðra því? „Nei,
nei hvað áttu við?“ svarar hún
hlær. „Núna skila ég bara verk-
efnum á Netinu á milli viðtala,
svo sé ég bara til eftir áramót
hvort ég sest aftur á skólabekk."
Gamlir kærastar eru ekki óal-
gengt umfjöllunarefni í dægur-
textum sjálfstæðra „R og B“
snóta þessa dagana, og varla
hægt að kveikja á PoppTíví án
þess að einhver fáklædd gyðja
sé að senda einhverjum
karlaumingja tóninn. Texta-
smíðar Védísar virðast ekki
lausar við slíkt heldur, eins og
glögglega má heyra í lögunum
„I was Wrong" og „Finished
Melody“. Er einhver ungur
snáði að fá á snúðinn, textalega
séð? „Ég fæ rosalega mikla út-
rás í gegnum textana. Hvort
sem það er fyrrverandi kærasti
eða ekki, þá er a.m.k. einhver
sem fær að kenna á því. Það er
ákveðinn fótur fyrir öllu, þetta
er ekki bara eitthvað rugl sem
rímar.“ Látum þar við sitja. Á
föstudag frumsýndi Védís nýtt
myndband við lag sitt
„Thoughts“ á 25 ára afmælis-
veislu Skífunnar.
biggi@frettabladid.is
HÁSKÓLABl'Ó
HÆRRA! ERU EKKI
ALLIR
Að æfu sig að
hita upp úhorf-
endur er ekki
að spyrja
spurningar.
Viðburður 19. desember:
FRETTIR AF FÓLKI
TÓNLEIKAR Björk Guð-
mundsdóttir lýkur
tónleikaferð sinni
um heiminn með
tónleikum í Laug-
ardalshöll 19. des-
ember. Sinfóníu-
hljómsveit íslands
leikur með henni á tón-
leikunum. Björk er að kynna nýja
plötu sína, Vespertine, og hefur
m.a. spilað í kirkjum, óperuhúsum
og leikhúsum en spilar í Höllinni
til að fleiri komist að. Með henni
koma grænlenskur stúlknakór,
hörpuleikarinn Zeena Parkins og
bandaríski tölvutónlistardúettinn
Matmos.
Miðasala hefst mánudaginn 19.
nóvember í miðasölu Háskólabíós.
Aðeins verður selt í sæti á tónleik-
unum og eru þau 2400. Hámark
miðafjölda á mann er tíu miðar. ■
Páll Lýðsson,
bóndi og sagnfræðingur.
„Minningabók Rannveigar Löve er
einhver besta ævisagan sem ég hef
lesið á þessu ári. Á tvennan hátt sker
þessi minningabók sig úr því mikla
ævisagnaflóði sem ég hef lesið.
Hvergi er þetri lýsing á hinu óvenju-
lega lífi þeirra bænda á fyrri hluta síð-
ustu aldar, sem kusu að reisa nýbýli
sin I Reykjavík og hvergi hef ég lesið
nærfærnari sjálfsævilýsingu sjúklings
á berklahælum. Margir féllu þar með
reisn fyrir vágestinum mikla, en sífellt
fleiri lifðu af og einnig með reisn byg-
gðu þeir uþþ líf sitt á ný. Um það
vitnar lífsstarf hjónanna Guðmundar
og Rannveigar Löve og lýsing Rann-
veigar hittir i mark.“
NABBI
kl. 4, 6, 8 og 10.10 V1T297
ÍAMERiCAN PIE 2 kL 8 og 10.101KH
Í1 SEXY BEAST
Leikonan Elizabeth Hurley, sem
er ef til vill þekktust fyrir að
fyrirgefa Hugh Grant framhjáhald
sitt með gleðikon-
unni Divine
Brown, hefur loks-
ins viðurkennt að
bera barn undir
belti en breska
pressan hefur
haldið því fram í
nokkrar vikur.
Barnsfaðir hennar
er kvikmyndaframleiðandinn
Stephen Bing en þau hafa verið
saman um stutt skeið.
Meðlimir úr fjölskyldu George
Harrisons segja hann afar
veikan og að óttast sé um líf hans.
Þau segja hann þó
baráttumann.
Harrison hefur
verið að berjast
við krabbamein
um langt skeið en
hann var nú á spít-
ala í New York.
Kántríkóngurinn Johnny Cash,
sem er 69 ára, þjáist af Parki-
sons veikinni. Þessu segist hann
hafa komist að
þegar hann fór í
læknisskoðun fyrr
á árinu. Hann seg-
ist þó ekki hafa
fundið fyrir henni,
fyrr en nú. Hann
er staðráðinn í því
að halda sjúk-
dómseinkennunum
niðri og ætlar að halda áfram að
leika á tónleikum um leið og hann
hefur jafnað sig.
Woody Allen, Billy Crystal og
Robert De Niro eru í hópi
þekktra einstaklinga sem taka þátt
í nýrri auglýsing-
arherferð sem á að
lokka ferðamenn
aftur til New York.
í auglýsingunni
sem Woody Allen
birtist í sést hann
skella sér á skauta
á svellinu við
Rockefeller Cent-
er. Þar sýnir hann ýmsar kúnstir,
tekur m.a. flókna snúninga áður en
hann fullyrðir að hann hafi aldrei
sett á sig skauta áður á ævinni.
Björk í
T T»»11 ♦ ♦
nomnni