Fréttablaðið - 14.11.2001, Page 12
Fósturforeldrar
á höfuðborgarsvæðinu
óskast í krefjandi en
gefandi verkefni
Fósturforeldrar óskast fyrir 12 ára þroskaheftan dreng. Við
erum að leita að fólki sem hefur reynslu af að vinna með
börnum með þroskafrávik og getur tekið að sér krefjandi en
jafnframt gefandi verkefni á heimili sínu.
Drengurinn er í sérskóla, dagvistun eftir skóla og einnig dvelur
hann 7 daga mánaðarlega í hvíldarvistun. Einnig áætlað að
drengurinn hafi regluleg samskipti við fjölskyldu sína.
Frekari upplýsingar gefur Hildur Sveinsdóttir
K_______Barnaverndarstofu í síma 530-2600._
/------------------------------------\
símver^
Konur...............
þurfið þið alltaf að vaska upp eftir matinn?
Hvernig væri að segja því upp og koma að
FRÉTTABLAÐIÐ
14. nóvember 2001 MIÐVIKUDAGUR
CLAÐBEITTIR FORSETAR
Leiðtogarnir voru glaðbeittir á blaðamannafundi í Washington að loknum fundi í gær.
Bush hittir Putin:
Fækkun
kjamavopna
washincton. ap George W. Bush,
Bandaríkjaforseti, hét því í gær að
eyða tveimur þriðju hlutum lang-
drægra kjarnavopna úr vopnabúri
Bandaríkjanna á næsta áratug.
Þetta kom fram eftir fyrsta fundinn
í Bandaríkjaheimsókn Pútins,
Rússlandsforseta, sem nú er í
Bandaríkjunum.
Pútin sagði á blaðamannafundi
við sama tækifæri að Rússland
mundi „reyna að svara í sömu
mynt.“ Bush sagði að markmið um
að fækka sprengjuhleðslum í 1.700
til 2.200 væri í fyllsta samræmi við
öryggi Bandaríkjanna.
Á blaðamannafundinum sögðu
leiðtogarnir að þeir hefðu komist
niður á sameiginlegan flöt á fjöl-
mörgum málefnum, svo sem varð-
andi stríðið gegn hryðjuverkum og
mótun nýrrar ríkisstjórnar í
Afganistan. Enn væru þeir ósam-
mála um áform Bandaríkjamanna
um geimvarnaáætlun. Þeir halda
áfram viðræðum sínum í Texas
næstu tvo daga. Bush sagði að við-
ræður þeirra væru til marks um
„að nýr dagur væri risinn í hinni
löngu sögu rússnesk-bandarískra
samskipta, dagur framfara og von-
ar.“ Þau ummæli þóttu til marks um
þáttaskil í samskiptum hinna höf-
uðandstæðinga kalda stríðsins. ■
Mál Sophiu Hansen tekið fyrir af Mannréttindadómstól Evrópu:
Islenska ríkið skilar inn
athugasemdum
vinna innanum skemmtilegan hóp á kvöldin.
Vinnutími frá kl 18:00 - 22:00.
Næg verkefni og fjölbreytni....endilega kíkið í
heimsókn til að okkar að Borgartúni 29 og
fáið nánari upplýsingar hjá okkur.
Símver ehf
Borgartún 29
<___________________________________________*
mannréttindi Samþykkt var á rík-
isstjórnarfundi í gærmorgun að
verða við boði Mannréttindadóm-
stóls Evrópu að senda inn athuga-
semdir til stuðnings kæru Sophiu
Hansen gegn tyrkneska ríkinu
um brot á 8. grein mannréttinda-
sáttmálans sem kveður á um rétt
manna til friðhelgi einkalífs,
heimilis og fjölskyldu. í ákæru
Sophiu gegn Tyrklandi er því
haldið fram að brotið hafi verið á
rétti hennar til þess að njóta um-
gegnisréttar við dætur sínar
þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir til
tyrkneska stjórnvalda að fram-
fylgja þeim rétti á árabilinu 1992-
1997, en Hæstiréttur Tyrklands
SOPHIA HANSEN
Kæra Sophiu Hansen var fyrst skráð hjá
Mannréttindadómstólnum árið 1997 en
ákvörðun um að taka málið til efnislegrar
meðferðar var ekki tekin fyrr en 19. júní
2001.
var búinn að viðurkenna þann
rétt.
Að sögn Bjargar Thorarensen,
skrifstofustjóra dómsmálaráðu-
neytisins, er venja að bjóða
stjórnvöldum frá heimalandi
ákærandans tækifæri til að skila
inn greinagerð áður en tekin sé
efnisleg afstaða í kærumálinu,
slíkt sé ekki sjaldgæft. Bætti hún
því jafnframt við að þrátt fyrir að
skila inn stuðningsyfirlýsingu sé
íslenska ríkið ekki beint aðili í
málinu, það sé alfarið rekið af
Sophiu Hansen. Björg sagði stutt-
an tíma til stefnu til að skila inn
greinargerð en frestur renni út
11. desember næstkomandi. ■
LANDSFUNDUR SAMFYLKINGARINNAR
HÓTEL SÖGU • REYKJAVÍK • 16.-18. NÓVEMBER 2001
Jöjh tœkifœri
Allir velkomnir á setningarathöfn landsfundar Samfylkingarinnar
Föstudagur 16. nóvember
Kl. 17.30 Setningarathöfn
Setningarræða formanns Samfylkingarinnar,
Össurar Skarphéðinssonar
Ávarp erlends heiðursgests, Dr. Mustafa Barghouthi læknis,
baráttumanns og verðlaunahafa frá Palestínu
Edda Heiðrún Backman syngur lög Atla Heimis Sveinssonar
Oflugar
málstofur á
föstudag og
laugardag
Allir áhugasamir um
framgang Samfylkingarinnar
og jafnaðarstefnunnar
hvattir til að mæta!
Aðalmálstofa föstudagskvöld
Kl. 20.00 -22.00
Súlnasalur
Auðsköpun og velferð
Stjórnandi
Bryndís Hlöðversdóttir,
formaður þingflokks Samfylkingarinnar
Framsögur
Ágúst Einarsson, prófessor
og deildarforseti Viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla íslands
Niels Chr. Nielsen, aðstoðarlækningaforstjóri
Landsspítala-Háskólasjúkrahúss
Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri
Alþýðusambands íslands
Aðrar málstofur föstudagskvöld ki. 21.00 - 22.30
• ísland í Evrópu
• Sveitarfélög nýrrar aldar
• Skuldbindingar íslands í umhverfismálum
Sérstök málstofa á laugardag
kl. 15.00 - 1600
Breytt heimsmynd
og barátta Palestínumanna
Framsaga Dr. Mustafa Barghouthi,
heiðursgestur landsfundarins
Umræöuvaki
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri
Landsfundurinn er öllum opinn
Nánari upplýsingar um landsfundinn veittar á skrifstofu flokksins í síma 551 1660.
Netfang samfylking@samfylking.is. Veffang www.samfylking.is
Samfylkingin
aNAW/dV