Fréttablaðið - 14.11.2001, Síða 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
14. nóvember 2001 MIÐVIKUDAGUR
KNATTSPYRNA
BESTU SÓKNARLIÐ ENGLANDS
Lið Mörk
1 Man. Utd. 28
2 Arsenal 24
3 Newcastle 21
4 Blackburn r 20
5 Liverpool ^ 20
6 Tottenham 19
7 Everton 18
8 Aston Villa 17
9 Middlesbrough 16
10 Bolton 16
11 Chelsea 16
12 Leeds 15
13 Ipswich 13
14 Charlton 12
15 West Ham 12
16 Fulham 12
17 Southampton 10
18 Sunderland 10
19 Derby 9
20 Leicester 7
LENNOX LEWIS
Tapaði óvænt fyrir Hasim Rahman í Suður-
Afríku f apríl.
Las Vegas:
Erfítt hjá
Levvis
hnefaleikar Englendingurinn
Lennox Lewis fær tækifæri til aö
endurheimta heimsmeistaratitil-
inn í þungavigt á laugardaginn
þegar hann mætir Bandaríkja-
manninum Hasim Rahman í Las
Vegas. Rahman sigraði Lewis
mjög óvænt í Suður-Afríku í apríl,
en vegna sérstaks ákvæðis í
samningi sem var gerður fyrir
þann bardaga fær Lewis nú annað
tækifæri gegn Bandaríkjamann-
inum.
Jim McDonnell, fyrrverandi
áskorandi í fjaðurvigt, telur að
Lewis sé að gera stór mistök með
því að berjast strax aftur við Ra-
hman. Hann telur að Lewis hefði
átt að berjast við nokkra aðra and-
stæðinga áður til þess að byggja
upp sjálfstraustið. Hann sagði að
þegar Lewis hefði tapað WBC og
IBF titlunum til Oliver McCall
árið 1994 hefði hann ekki barist
aftur við hann fyrr en 1997. Þá
hefði hann verið búinn að leggja
fjóra aðra hnefaleikamenn og því
verið vel undirbúinn til þess að
sigra McCall, sem hann hefði og
gert. ■
Massimo Gragnotti:
Ferguson á að hætta strax
knattspyrna Massimo Cragnotti,
sonur Sergio eiganda Lazio, tel-
ur að Man. Utd. eigi að láta Alex
Ferguson hætta strax. Aðeins
með því að gera það muni liðið
geta rétt úr kútnum.
Man. Utd. hefur valdið
nokkrum vonbrigðum það sem
af er tímabilinu og m.a. tapað
þremur leikjum í deildinni og
tvisvar fyrir Deportivo La Cor-
una í Meistaradeild Evrópu.
Cragnotti sagði að rekja mætti
þetta slæma gengi til þess að
Ferguson hefði ákveðið að hætta
eftir tímabilið. Lazio hefði lent í
svipuðum vandræðum þegar
Svíinn Sven Göran Eriksson
hefði þjálfað liðið eftir að hann
hefði verið búinn að ákveða að
taka við enska landsliðinu.
„Leikmennirnir ná ekki að
einbeita sér að fullu þegar þeir
vita að þjálfarinn er að fara,“
sagði Cragnotti og líkti liðinu við
sjómenn sem vissu að skipstjór-
inn væri u.þ.b. að fara að stökk-
va frá borði.
Cragnotti sagði að Man. Utd.
gæti lært mikið af reynslu Lazio
sem hefði náð að rétta úr kútn-
um eftir að ákveðið hefði verið
að láta Eriksson hætta strax.
Enskir fjölmiðlar greindu frá
því í gær að David Beckham,
sem myndað hefur sterk tengsli
við Eriksson, vildi fá hann sem
næsta þjálfara Man. Utd. Svíinn
er hins vegar samningsbundinn
enska knattspyrnusambandinu
til ársins 2006. ■
DAVID BECKHAM
Enskir fjölmiðlar greindu
frá þvl í gær að Beckham
vildi að Sven Göran Eriks-
son tæki við Man. Utd.
Brasilía og Þýskaland
ekki með á HM?
Nú fer að skýrast hvaða þjóðir komast í lokakeppni HM í knattspyrnu sem fram fer í Suður-
Kóreu og Japan næsta sumar. Ovíst er hvort Brasilía og Þýskaland komist í lokakeppnina. Það
skýrist í kvöld hvaða fíórar Evrópuþjóðir taka þátt.
BRASILÍA
Brasilfsku landsliðsmennirnir Belleti, Juninho, Luizao og Rivaldo á æfingu í Rio de Janeiro
fyrir leikinn gegn Venesúela.
KNATT5PYRNA Það hljómar kannski
ótrúlega, en bæði Brasilíu og
Þýskalandi gæti mistekist að
tryggja sæti sitt í lokakeppni HM
í knattspyrnu í Japan og Suður-
Kóreu á næsta ári. Átta lið frá
Evrópu leika í kvöld um fjögur
laus sæti í lokakeppninni og fimm
leikir fara fram í Suður-Ameríku
riðlinum.
Þjóðverjar hafa þrisvar sinn-
um hampað heimsmeistaratitlin-
um en voru ekki með í lokakeppn-
inni árið 1930 í Úrúgvæ og 1950 í
Brasilíu. Þeir mæta Úkraínu í
kvöld í Þýskalandi, í seinni leik
liðanna um laust sæti. Fyrri leikn-
um lauk með jafntefli, 1-1. Þótt
Þjóðverjar verði að teljast líklegri
til að komast áfram má ekki gley-
ma því að Úkraína er með feyki-
sterkan mannskap og þar fer
fremstur í flokki Andrei
Shevchenko, sóknarmaðurinn
snjalli hjá AC Milan.
„Við tókum lítið skref í áttina
LEIKIR KVÖLDSINS
Tyrkland - Austurríki (l-O)
Rúmenía - Slóvenía (2-1)
Þýskaland - Úkraína (1-1)
Tékkland - Belgía (O-l)
SUÐUR-AMERÍKU RIÐILL:
Úrúgvæ - Argentína Brasilía- Venezúela Paragvæ - Kólumbfa Chile - Ekvador Perú - Bólivla
Á morgun
1 Iran - írland (0-2) |
að HM með jafntefli," sagði Oli-
ver Kahn, markvörður og fyrirliði
þýska landsliðsins.
„Fyrir vikið þurfum við ekki að
taka mikla áhættu í leiknum á
miðvikudag.
„Við fengum smjöi’þefinn af
því sem koma skal en á miðviku-
dag er það allt eða ekkert. Að
komast í lokakeppni HM reynir
meira á taugarnar en að spila í
slíkri."
Mikil taugaspenna mun án efa
ríkja meðal þýsku áhorfendanna í
Westfalen í kvöld og sömu sögu
verður að segja um áhorfendur í
Sao Luiz de Maranhao í Brasilíu
þar sem heimamenn og Venesúela
mætast.
Fjögur lið frá Suður-Ameríku
komast beint í lokakeppnina en
fimmta þjóðin keppir við Ástrali
um síðasta sætið. Argentína,
Paragvæ og Ekvador eru þegar
búinn að tryggja sæti sitt en
Brasilía á í harðri baráttu við Úr-
úgvæ og Kólumbíu um laust sæti.
Brassar eru í fjórða sæti sem
stendur með 27 stig, Úrúgvæ er
með 26 og Kólumbía er með 24
stig. Brasilía hefur tekið þátt í
lokakeppni HM í öll skiptin frá
því hún var sett á laggirnar fyrir
71 ári.
Brasilía mætir Venesúela í
kvöld og verður við ramman reip
að draga. Venesúela hefur ekki
tapað fimm leikjum í röð, gerðu
fyrst jafntefli við Kólumbíu, 2-2,
og síðan kpmu fjórir sigrar í röð.
Chila 2-0, Úrúgvæ 2-0, Perú 3-0 og
síðast Paragvæ 3-1, en auk þess er
Roberto Carlos, bakvörðurinn
snalli meiddur.
Úrúgvæar mæta Argentínu-
mönnum á heimavelli en Kól-
umbíumenn sækja Paragvæ heim.
Týrkir mæta Austurríkismönn-
um en fyrrnefnda liðið vann fyrri
leikinn með einu marki gegn
engu. Tyrkir hafa ekki verið með í
lokakeppni HM síðan 1954.
Rúmenar, sem hafa þrisvar
sinnum tekið þátt í lokakeppninni,
taka á móti Slóvenum í Búkarest
en síðarnefnda þjóðin sigraði 2-1 í
fyrri leiknum.
Gheorghe Popescu, fyrirliði
Rúmeníu og mágur Georghe
Hagi, landsliðsþjálfara, segir liðið
eiga góða möguleika á að komast
áfram.
„Við spiluðum vel í fyrri leikn-
um en misnotuðum nokkur færi
og töpuðum. Slóvenar voru aftur
á móti heppnir og sigruðu."
Tékkar þurfa að sigra upp 1-0
tap á móti Belgum en í fyrri
leiknum spiluðu þeir manni færri
allan fyrri hálfleik. Tomas Repka
var rekinn af velli í lok fyrri hálf-
leiks og var það hans sjöunda
rauða spjald á þessu ári. Hann
verður í banni í kvöld og sömu
sögu er að segja af risanum Jan
Koller, sem fékk að sjá rautt
gegn fslendingum á Laugardals-
velli.
kristjan@frettabladid.is
Ný kappaksturskeppni:
Enski boltinn:
Leikmannakaup:
Ipswich
kaupir fransk-
an kantmann
knattspyrna Ipswich hefur keypt
franska kantmanninn Ulrich Le
Pen frá Lorient fyrir um 1,4 millj-
ónir punda. Le Pen, sem er 27 ára
gamall, hjálpaði Lorient að vinna
sér sæti í efstu deildinni í Frakk-
landi í vor, en þá skoraði hann sjö
mörk í 29 leikjum.
George Burley, framkvæmda-
stjóri Ipswich, sagði að Le Pen
væri sókndjarfur kantmaður, sem
væri mjög leikin og að skapa
marktækifæri. Frakkinn, sem
skrifaði undir þriggja og hálfs árs
samning, verður í leikmannahópi
Ipswich sem mætir Bolton á
sunnudaginn. ■
Bílamir merktir stærstu
knattspyrnuliðum Evrópu
kappakstur Premier 1 Grand Prix
er nafnið á nýrri kappakstur-
keppni sem verður hleypt af
stokkunum á næsta ári. Allir bíl-
arnir í keppninni verða með eins
vél og eins dekk og því verður ár-
angurinn alfarið undir ökumönn-
unum sjálfum kominn. Bílarnir í
keppninni verða merktir stærstu
knattspyrnuliðum Evrópu. Leeds
og Benfica hafa t.a.m. þegar
ákveðið að vera með og viðræður
eru í gangi við Man. Utd., Celtic
og fleiri lið.
Stefnt er að því að halda tíu
keppnir og mun sú fyrsta fara
fram í Estoril í Ungverjalandi 14.
júlí. f hverri keppni verða eknar
NIGEL MANSELL
Skipuleggjendur Premier 1 Grand Prix eiga
I viðræðum við Mansell, sem sigraðí í For-
múlu 1 árið 1992.
200 mílur, en smá hlé verður eftir
100 mílur. Rásröð verður ákveðin
með tímatöku, en rásröð eftir
hléið fer eftir því í hvaða sæti
ökumennirnir voru eftir fyrstu
100 mílurnar. Sigurvegarinn í
hverri keppni fær um 14 milljónir
í verðlaunafé og svipuð upphæð
verður veitt fyrir annað sætið.
Fyrrverandi kappaksturshetj-
urnar Nigel Mansell og Damon
Hill eru í viðræðum við skipu-
leggjendur keppninnar um að
vera með í henni, en Mansell sigr-
aði í Formúlu 1 árið 1992 og Hill
árið 1996. Þá er einnig verið að
ræða við þá Mark Blundell og
Johnny Herbert. ■
Stoke
rassskellt
knattspyrna Guðjón Þórðarson og
lærisveinar hans í Stoke voru
rassskelltir af Wigan Athletic í
ensku 2. deildinni í gær. Leiknum
lauk með 6-1 sigri Wigan, sem fyr-
ir hann sat í 21. sæti deildarinnar.
Með sigri hefði Stoke komist á
topp hennar, en þess í stað situr
liðið enn í þriðja sæti tveimur
stigum á eftir Brighton sem er í
því fyrsta.
Staðan í hálfleik var 3-1 fyrir
Wigan. Tony Dinning kom þeim
yfir á 4. mínútu en Jurgen Vand-
eurzen jafnaði tveimur mínútum
síðar. Síðan komu fimm mörk frá
Wigan í röð án þess að Stoke næði
að svara fyrir sig. ■