Fréttablaðið - 19.11.2001, Blaðsíða 6
SPURNING DAGSINS
Ferðu oft í leikhús?
Nei, ég hef ekki efni á því, ég er öryrki.
Marla Arínbjarnardóttir.
ÍNA BJÖRG HJÁLMARSDÓTTIR
Segist fagna því að þetta baráttumál
sé í höfn.
Stofnanaþáttur kjara-
samninga:
Endurskoð-
aðir annað
hvert ár
ríkisstarfsmenn ína Björg Hjálm-
arsdóttir formaður Félags ís-
lenskra náttúrufræðinga segist
fagna þeirri breytingu fjármála-
ráðuneytisins á kjarasamingum
sem kveður á um að skylt sé að
endurskoða stofnanaþátt þeirra
eigi sjaldnar en annað hvert ár.
Hún segir ríkisstarfsmenn hafa
barist fyrir því að þessi breyting
næði í gegn og m.a. til þess að geta
brugðist við ýmsum þeim breyt-
ingum sem kunna að verða á að-
stæðum í starfi og umhverfi.
Af hálfu fjármálaráðuneytisins
er litið á þessa endurskoðun sem
kjörið tækifæri fyrir stofnanir til
þess að sníða af þá agnúa sem geta
komið fram við framkvæmd stofn-
anasamninga. í fréttabréfi ráðu-
neytisins fyrir stjórnendur ríkis-
stofnana er lögð áhersla á mikil-
vægi þess fyrir hagsmuni stofnana
að hafa gott og hæft starfsfólk.
Jafnframt að því sé ljóst á hverj-
um tíma hvernig það geti þróað sig
í starfi og hvaða áhrif það hefur á
eigin launaþróun. í því sambandi
sé stofnanaþáttur samninga mikil-
vægt verkfæri. ■
FRETTABLAÐIÐ
19. nóvemer 2001 MANUDAGUR
Haraldur Örn tekur fjóra tinda:
Eyðir jólunum á
Suðurskautslandinu
fjallgöngur Fjallagarpurinn Har-
aldur Örn Ólafsson lagði í gær
upp í tveggja mánaða ferð þar
sem hann mun klífa þrjá af tind-
unum sjö sem hann ætlar að klífa
á einu ári. Haraldur Örn klífur
fyrst Carstensz Pyramid á Nýju
Gíneu í Indónesíu. „Þetta er svo-
lítið framandi því það er sagt vera
steinaldarsamfélag á þessari
eyju. Þetta eru mjög fáfarnar
slóðir og ekki beint auðvelt að
fara þarna inn og maður þarf að
hafa varúðarráðstafanir. Það var
þarna kannibalismi áður en hann
er víst ekki stundaður lengur.
Hins vegar hafa menn verið tekn-
ir þarna í gíslingu út af skæru-
hernaði sem tengist sjálfstæðis-
baráttu."
Haraldur Örn fer síðan til Ástr-
alíu og klífur Kosciosko sem Har-
aldur er að bæta við tindana sjö,
enda telja sumir hann hæsta tind
Eyjaálfu. Þá fer hann til Suður-
skautslandsins þar sem hann ætl-
ar að klífa Vinson en Haraldur
mun eyða jólahátíðinni á Suður-
skautslandi fjarri konu sinni og
ættingjum. Eftir áramótin heldur
Haraldur til Argentínu þar sem
hann ætlar að klífa hæsta tind
Suður Ameríku, Aconcagua og er
svo væntanlegur heim eftir um
það bil tvo mánuði.
Haraldur verður einn á ferð
frá íslandi en mun á hverjum stað
setja sig í samband við fjalla-
ELTIR SUMARIÐ
Haraldur Örn Ólafsson ætlar að klífa fjóra
tinda á Suðurhveli enda er þar að vora og
koma sumar.
menn. Þegar heim er komið tekur
við tveggja mánaða hvíldar- og
undirbúningstími fyrir sjöunda
tindinn, Everest. Hægt er að
fylgjast með ferðum Haraldar á
heimasíðunni www.7t.is. ■
Heimilislæknar
sitji við sama borð
Sérfræðingum í heimilislækningum er ekki heimilt að reka stofur á
sama hátt og öðrum sérfræðilæknum. Félag íslenskra heimilislækna hef-
ur höfðað mál vegna þessa og skorar á heilbrigðis- og tryggingaráðherra
að heimila reksturinn.
heilbrigðisþjónusta Heimilislækn-
ar eru ósáttir við að sérfræðing-
um í heimilislækningum skuli
ekki vera heimilt að hefja stofu-
rekstur samkvæmt gjaldskrár-
samningi við Tryggingastofnun
ríkisins á sama hátt og öðrum sér-
fræðilæknum. Þeir telja það brot
á atvinnufrelsi að heimila ekki
heimilislæknum slíkan rekstur og
hafa höfðað mál til að fá úr því
skorið. „Þetta
hófst fyrir Sam-
„Meira að keppnisstofnun
segja hefur þegar fjórir lækn-
vel á annan ar fóru þess a leit
tug sérfræð- að stofna eigin
inga í heimil- rekstur og vildu
islækningum komast inn á sama
á undanförn- samning og aðrir
um árum sérfræðilæknar
skipt yfir í aðr- hafa við Trygg-
ar sérgreinar." ingastofnun en
... fengu ekki leyfi til
þess. Samkeppnis-
stofnun taldi í úrskurði sínum að í
gildi væri kerfi þar sem við vær-
um grunnþjónusta þannig að þetta
væri ekki sambærilegt en við
erum ekki sammála því. Við telj-
um okkur hafa alveg sambærileg
réttindi og sérfræðingar í al-
mennum lækningum yfirleitt."
Mál heimilislæknanna fer fyrir
héraðsdóm á næstu vikum eða
mánuðum.
Að sögn Böðvars Arnar er ný-
liðun hjá heimilislæknum afar
hæg og skýringin er að hans mati
að starfskjör þeirra eru lakari en
annarra sérfræðinga. Heimilis-
læknaskortur er því mikill um allt
starfskjör heimilislækna lakari en annarra lækna
Böðvar örn Sigurðsson er ritari Félags fslenskra heimilislaekna. Hann segir nýliðun meðal
heimilislaekna hæga og að auki sé farið að bera á flótta úr stétt heimilislækna.
land. „Meira að segja hefur vel á
annan tug sérfræðinga í heimilis-
lækningum á undanförnum árum
skipt yfir í aðrar sérgreinar.“
Starfsaðstaða og tekjumögu-
leikar heimilislækna eru mun
síðri en annarra lækna að sögn
Böðvars Arnar. „Við viljum fá
meira rekstrarlegt sjálfstæði og
fleiri rekstrarform og vera að
minnsta kosti jafnvel launaðir og
sérfræðingar á spítölunum. Við
erum ekki samkeppnisfær um
unga fólkið nema við séum með
jafngóð laun og starfskjör."
Ljóst er að heimilislæknar eru
ekki einir um að hafa áhuga á að
auka fjölbreytni í rekstarformi
heilsugæslunnar því Félagsþjón-
ustan í Reykjavík er nú að auglýsa
útboð á læknisþjónustu við nokkr-
ar stofnanir fyrir aldraða í
Reykjavík. Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra hefur sett á stofn
nefnd sem á að stuðla að því að
styrkja heilsugæsluna í .landinu.
„Við teljum að ráðuneytið beri
ábyrgðina og verði að axla hana,“
segir Böðvar Örn.
steinunn@frettabladid.is
HÁTÆKNIGREINAR
Búist er við mikilli fjölgun starfsmanna
í hátæknigreinum á næstu árum,
samkvæmt könnun sem gerð var.
Hátæknigreinar:
Spá 700%
fjölgun starfa
skipulag í áætlunum sem unnar
hafa verið fyrir samvinnunefnd
um svæðaskipulag höfuðborgar-
svæðisins er gengið út frá þeirri
forsendu að störfum í hátækni-
greinum fjölgi um 700% fram til
ársins 2024, verslunarstörfum
fjölgi um 26% en fjöldi starfa í
iðnaði haldist óbreyttur. Á grund-
velli þessara áætlana er ráðgert
að störfum á svæðinu fjölgi um 16
þúsund. Vegna breytinga á land-
notkun og tilfærslu starfa er við-
búið að byggja þurfi nýtt atvinnu-
húsnæði fyrir um 18 þúsund störf.
Þá er talið að 70% atvinnuupp-
byggingarinnar á næstu tveimur
áratugum muni eiga sér stað aust-
an Elliðaáa.
í forsendum fyrir aðalskipu-
lagi Reykjavíkur til ársins 2024
kemur m.a. fram að útflutnings-
verðmæti í hugbúnaðargerð sé
komin yfir 2 milljarða á ári, þótt
aðeins 8 ár séu liðin frá því að
þessi útflutningur hófst. Á sl.
þremur árum hefur fjöldi starfa í
þessari atvinnugrein nær tvöfald-
ast og nemur fjöldi þessara starfa
um 2000 um þessar mundir. ■
Jt
FYRIRTÆKJASALA
ISLANDS11™'" ' ‘ '
.‘YHIRTÆKI TIL SOLU
SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
SÍÐUMÚLA 15
588 5160
Gissur V. Kristjánsson hdl. og
lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali
SÖLUSTJÓRI
GUNNAR JÓN YNGVASON
HEILDSALA I VINNUFATNAÐI ung og öflug
heildsala með góðar vörur, gott verð
HEILDSALA BÚSÁHÖLD vegna sérhæfingar
vill stærri heildsala láta frá sér búsáhaldadeild-
ina, þekkt góð merki í tugi ára.
BÓKABÚÐ MEÐ MIKLU MEIRU i litlum versl-
unarkjarna á góðum stað, góð velta.
HÚSGAGNAVERSLUN miöa þekkt með
vönduð húsgögn og húsbúnað, Besti tíminn
VEL ÞEKKT DÓMUFATAVERSLUN á góðum
áberandi stað, mikið að gera og flott afkoma ,
eigin innflutn, glæsilegur fatnaður
HEILDSALA MEÐ BYSSUR OG FL mjög
þekkt umboð, miklir framtíðarmöguleikar
SPORTBAR með veitingasölu í úthverfi, 15 ár
sami eigandi, mikil traffík og góð afkoma
HÁRGREIÐSLUSTOFA 5 stólar, góðar inn-
réttingar, fullbókað, selst vegna veikinda.
SNYRTISTOFA 14 ár á sama stað velta vel-
rúmar 10 millj á ári.fullbókað alla daga .
EKTA KONUFYRIRTÆKI mjög vel kynnt og
stanslaus traffík, auðveldur rekstur
SKARTGRIPAV. - GULLSMiÐASTOFA um 50
ára gamalt fyrirtæki á Laugavegi
VEISLUPJÓNUSTA FERÐAÞJÓNUSTA á
sérsökum stað með mikla möguleika,
SÓLBAÐSSTOFA 8 nýlegir bekkir, gott að
gera , aðstaða td snyrtifræðing, nudd og fl
EFNALAUG vel staðsett með góða veltu góð
tæki og búnaður, 11 ár sami eigandi.
SÖLUTURN.VIDEO OG GRILL 80millj ár-
velta, bílalúga, framhaldsskóli beint á móti
MIKILL FJÖLDI ANNARA FYRIR-
TÆKJA Á SKRÁ - MIKIL SALA
VANTAR FYRIRTÆKI SEM MÁ FLYTJA
ÚT Á LAND STÓR OG SMÁ
Atvinnuhúsnæði
sýnishorn
SKUTUVOGUR til leigu eða sölu 240 fm lager
6 m lofth. + 200 fm skrifstofur
SMIÐSHÖFÐI 276 fm á 1h innkeyrslubil
AKRALIND 300 fm 120/180 2 innkeyrluh
Vinnuslys:
Dæmdar 3,4 milljónir í bætur
hæstiréttur Hæstiréttur hefur
dæmt Aburðarverksmiðjuna til að
greiða fyrrum starfsmanni sínum
3,4 milljónir króna auk vaxta í bæt-
ur vegna örorku sem hann hlaut í
slysi sem hann varð fyrir við vinnu
sína í apríl 1998 en nettta varð vin-
stri fótlegg mannsins af rétt ofan
við hné. I Héraðsdómi Reykjavík-
ur hafði manninum verið dæmdar
5,8 milljónir króna í bætur.
Varanleg örorka mannsins var
metin 100% og varanlegur miski
50%. Deilt var um hvort miða ætti
við fjárhagslega eða læknisfræði-
lega örorku og hvort greiða skyldi
bætur fyrir varanlegan miska.
Hæstiréttur komst að þeirri niður-
stöðu að fyrirtækinu bæri ekki að
greiða starfsmanninum fyrrver-
andi bætur fyrir miska sem hann
hefði orðið fyrir heldur einungis
fyrir fjárhagslega örorku en ekki
var tekið undir kröfu Áburðar-
verksmiðjunnar um að miða við
læknisfræðilega örorku. ■
ÁBURÐARVERKSMIÐJAN
Dæmd til greiðslu bóta
vegna vinnuslyss.