Fréttablaðið - 19.11.2001, Blaðsíða 9
MÁNUPAGUR 19. nóvember 2001
Síbrotamaður í fangelsi:
Skemmdi
hótelið
dqmsmál Hæstiréttur staðfesti í
gær dóm yfir karlmanni á fimm-
tugsaldri sem Héraðsdómur Vest-
urlands dæmdi fyrir margvísleg
brot, þ.á.m. gripdeild, fjársvik,
eignaspjöll og líkamsárás. Er
ákærða gert að sæta sex mánaða
fangelsi fyrir brot sín. Manninum
er meðal annars gefið að sök að
hafa notið veitinga og þjónustu á
gistiheimili í Stykkishólmi og á hót-
eli í Eyrarsveit án þess að greiða
fyrir þjónustuna og unnið þar eign-
aspjöll. í mars á þessu ári réðst
ákærði að konu á gistiheimili á Arn-
arstapa og gerðist sekur um marg-
vísleg eignaspjöll. ■
MIKILVIRKUR ÞYÐANDI
Ingibjörg Haraldsdóttir skáld og þýðandi
hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar,
500 þúsund krónur.
Viðurkenningar á degi
íslenskrar tungu:
Framlag
verðlaunað
DAGUR ÍSLENSKRAR TUNGU Ingibjörg
Haraldsdóttir hlaut á degi ís-
lenskrar tungu á föstudag, Verð-
laun Jónasar Hallgrímssonar.
Verðlaunin hlaut hún bæði fyrir
skáldskap sinn og þýðingar en
hún hefur þýtt mörg af helstu
bókmenntaverkum heims. Menn-
ingarsjóður íslandsbanka leggur
til verðlaunin sem eru 500 þúsund
krónur og heildarútgáfa á verkum
Jónasar Hallgrímssonar í hátíðar-
bandi.
Félag framhaldsskólanema
hlaut við sama tækifæri sérstaka
viðurkenningu fyrir stuðning við
móðurmálið með því að leyfa ein-
ungis að sungið sé á íslensku í
Söngvakeppni framhaldsskól-
anna. íris Elma Jónsdóttir Guð-
mann tók af þessi tilefni á móti
viðurkenningarskjali og lista-
verki eftir Pál Guðmundsson á
Húsafelli.
Menntamálaráðherra ákvað
einnig að veita Námsflokkum
Reykjavíkur viðurkenningu fyrir
framlag sitt til íslenskukennslu
fyrir útlendinga en mikilvægi
þeirrar starfsemi hefur aukist
með árunum hjá Námsflokkunum,
til dæmis munu 1700 manns af
hundrað þjóðernum sækja ís-
lenskunám í Námsflokkunum á
þessu ári. Guðrún Halldórsdóttir
skólastjóri Námsflokka Reykja-
víkur tók á móti verðlaununum,
viðurkenningarskjali og lista-
verki eftir Pál Guðmundsson á
Húsafelli. ■
IlögreglufréttirI
Helgin var róleg í umdæmi
Akraneslögreglu. Eitthvað var
um smávægilegar líkamsárásir, en
þær teljast til venjulegra ölvunar-
stympinga. Lögreglan segist ekki
þurfa að kvarta undan hegðun
bæjarbúa þessa dagana sem sé í
flestum tilvikum til fyrirmyndar.
Einn var tekinn í umdæmi ísa-
fjarðarlögreglu á 138 km
hraða og varð hann 40 þúsund
krónum fátækari fyrir vikið. Lög-
reglan á ísafirði sagði annars ekki
hægt að kvarta yfir umferðinni og
helgin hefði verið róleg. Vegir eru
auðir og skyggni almennt ágætt,
en engin ástæða sé til að leyfa sér
þennan hraða, þótt við góðar að-
stæður sé.
‘íJ.
■\ ' % v; . 'r ;
1
'<YM U/V
fyrir hörðu pökkunum
Verðfall á æfingafatnaði og fæðubótarefnum
Reykjavíkuitoi^
Borgarskipulag
Kynning
og sýning
í 4 *
Verðdæmi
Verð áður
Verð nú
Fóðraðar nylonbuxur
Skór
Þunnar flíspeysur
Þunnar flísbuxur
Toppar
Vandaðir bolir verð frá
5.990.- 1.995.
6.990.- 3.990.
5.990.- 3.990.
4.990.- 3.990.
1.990.- 995.
995.
frábærum
Verð
num
Tilboðsverð
MET-RX 20 bréf 7.990.- 4.995
Perfect Carbs 1.952.- 1.495
Nitrotech 907 g 6.544.- 4.995
Nitrotech 1814 g 11.824.- 8.995
DeSÍgner Whey protein 5.280.- 3.995
Myoplex Lite 42 bréf 12.770.- 10.995
Labrada Low Carb For her 6.824.” 5.995
Komdu o§ gerðu hraustleg kaup!
Opið
alla virka daga 10-18
Laugardaga 10-14
.allffynrkmppmo
HREYSTI
Skeifunni 19 - S. 568 1717
Fæðubótarefni - Æfingafatnaður - Rafþjálfunartæki
2001-2
Tillaga að aðalskipulagi Reykjavíkur verður til sýnis og kynningar í Tjarnarsal
Ráðhússins í dag, mánudaginn 19. nóvemberfrá kl. 16:00-19:00.
• Sýning á helstu markmiðum og breytingum í aðalskipulagstillögunni hefst
kl. 16:00.
• Borgarstjóri, formaður skipulags- og byggingarnefndar, fulltrúar Borgar-
skipulags, embættis borgarverkfræðings og Reykjavíkurhafnar kynna
helstu efnisatriði aðalskipulagstillögunnar og svara fyrirspurnum kl.
16:30-18:00.
• Aðalskipulagstillagan verður áfram til sýnis í Tjarnarsal Ráðhússins
þriðjudaginn 20. nóvember.
Fjölmargar nýstárlegar hugmyndir um þéttingu byggðar og
uppbyggingu Reykjavíkur sem alþjóðlegrar og vistvænnar
höfuðborgar eru birtar í aðalskipulagstillögunni og eru borgarbúar
hvattir til að mæta og kynna sér þær af eigin raun.