Fréttablaðið - 19.11.2001, Qupperneq 14
14
FRETTABLAÐIÐ
19. nóvemer 2001 MÁNUDAGUR
I
ÚRSLIT HELGARINNAR
Úrvalsdeildin í körfubolta
Skallagrímur - Stjarnan 89-73
Hamar - Haukar 100-92
Keflavík - Þór Ak. 106-89 UMFN - fR 106-88
Tindastóll - UMFG 88-76
Breiðablik - KR 83-86
Kjörísbikar kvenna
UMFN - KFl 74-67
Esso-deildin í handbolta:
FH - IBV 25-25
Lokeren:
Stórleikur
hjá Rúnari
knattspyrna Rúnar Kristinsson átti
stórleik um helgina þegar Lokeren
sigraði Anderlect 4-3 í belgísku bik-
arkeppninni. Anderlect komst í 3-0
eftir fimmtán mínútur. Rúnar skor-
að annað mark Lokeren á 24. mín-
útu með glæsilegu skoti og lagði
síðan upp það þriðja fyrir Patrick
Zoundi ■
Iþróttir
aSyn
19,- 25. rtóvember
mán- Heklusport
kl. 22.30
mán Charlton - West Ham
Enski bollinn kl. 19.55
Þri Bayem M. - Man. Utd.
Meistarakeppnin kl. 19.30
Uveipool - Barcelona
Meistarakeppnin kl. 21.45
mið Deportivo - Arsenal
Meistarakeppnin kl. 19.30
Juventus - Leverkusen
Meistarakeppnin kl. 21.45
<im HMiralli
kl. 21.00 (einnig fö, lau og sun)
sun italski boltinn
kl. 13.45
Arsenal - Man. Utd.
kl. 15.55
Toronto - Philadelphia 76ers
NBA kl. 18.00
Stoke City:
Hafa áhuga
á Amari
knattspyrna John Rudge, aðstoð-
armaður Guðjóns Þórðarsonar hjá
Stoke, útilokar ekki að félagið
muni reyna að krækja í Arnar
Gunnlaugsson, sem var settur á
sölulista hjá Leicester í síðustu
viku.
Arnar var í láni hjá Stoke fyrir
einu og hálfu ári og fyrr á þessu
tímabili reyndi Stoke að fá hann
aftur að láni, en án árangurs.
Rudge sagðist samt ekki telja lík-
legt að Stoke myndi borga mikið
fyrir Arnar, þar sem hann yrði
samningslaus eftir þetta tímabil.
Hann sagði að Arnar væri með
Ekki alltaf Scimmála
föður sínum
Snorri Steinn Guðjónsson, handknattleikskappinn ungi, hefur farið mikinn með liði Vals í 1.
deild karla og var á dögunum valinn í A-landsliðið. Hann segir föður sinn hafa kennt sér mikið í
handbolta og að íslenska landsliðið geti komið á óvart í Evrópumótinu.
landi. Það gleymist aldrei.“
Snorri Steinn segist ekki vera
hugsa um landsliðið að svo stöddu
en ætlar þó að reyna að standa sig
og halda sínu sæti. Hann telur lið-
ið geta komið á óvart á Evrópu-
mótinu á næsta ári.
„Þetta er lið sem getur komið á
óvart. Við erum með marga leik-
menn sem spila erlendis í sterk-
um deildum. Það er kannski ekki
hægt að bera mannskapinn saman
við bestu landslið heims en þetta
er lið sem getur gert góða hluti og
ég tel að við getum komið á
óvart.“
krístjan@frettabladid.is
Maðurinn og ferillinn
NAFN: Snorri Steinn Guðjónsson
FÆDDUR: 17.10 1981
UNNUSTA: Marín Sörens
BÖRN: Engin eins og er
UPPÁHALDS MATUR: Jólamaturinn
UPPÁHALDSTÓNLISTARMAÐUR:
A mér engan uppáhaldstónlistar-
mann
UPPAhaLDS LEIKARI: Er lítið fyrir
b/ómyndir
AHUÓamAL: (þróttir, veiði og að
vera i góðra vina hópi
FERILL: 7. flokkur hjá Víking.
Hefur spilað með Val alla yngri flokk-
ana í 7. flokk.
M EISTAR AFLOKKSLEI Kl R: 115
A-LANDSLIÐ: 3 leikir
YNGRI LANDSLIÐ: 30 með U-18 og
U-21 árs
EFTIRMINNILEGASTI LEIKURINN:
Gegn Haukum í úrslitakeppninni í
fyrra og svo úrslitaleikurinn á Partilla
Cup með 4. flokki á móti Savehof.
Bara tvö íslensk lið sem hafa unnið
mótið þ.e. okkar árgangur og svo
Geir Sveinsson, Júlíus Jónasson,
Guðni Bergsson og félagar.
UPPÁHALDS HANDKNATTLEIKS-
MAÐURINN: Igor Lavrov og
Jovanovic frá Júgúslavíuavíu.
SNORRI STEINN GUÐJÓNSSON
Fyrirliði Valsmanna hefur staðið sig vel í 1. deildinni. Hann er með markahæstu mönnum
deildarinnar og var valinn í A-landsliðið.
handbolti „Við getum ekki verið
annað en ánægðir, við erum enn
taplausir og erum komnir í átta liða
úrslit í bikar. Þetta hefur kannski
gengið vonum framar," sagði
Snorri Steinn í samtali við Frétta-
blaðið. Árangur Valsmanna kemur
kannski ekki hvað síst á óvart þar
sem liðið er að mestu skipað ungum
leikmönnum.
„Við erum með mjög ungt lið.
Rolan, markvörður, er þrítugur og
hann er lang elsti maðurinn í liðinu.
En ef við lítum á útileikmennina þá
er Sigfús 26 eða 27 ára og er með
eldri mönnum í liðinu. í byrjunar-
liðinu eru strákar sem voru í 2.
flokki fyrir nokkrum árum. Það er
mjög gaman að þetta skuli vera orð-
ið þannig og mjög skemmtilegt að
spila með þessum strákum í meist-
araflokki. Það er ekki að gerast í
öðrum liðum. Þetta var kannski
draumur þegar maður var yngri,
þótt maður vissi að það væri erfitt
en það er frábært að við séum
komnir út í það að vera allir sam-
an.“
Snorri Steinn á ekki langt að
sækja hæfileikana en faðir hans er
Guðjón Guðmundsson, íþróttaf-
réttafréttamaður, sem gerði garð-
inn frægan með Víkingum á árum
áður.
„Hann á marga íslands- og bik-
armeistaratitla með Víkingum og
ég byrjaði nú undir hans stjórn í 7.
flokki hjá Víking. Ég átti samt
alltaf heima í Hlíðunum og það
gerðist ósjálfrátt að við félagarnir
úr hverfinu og grunnskólanum fór-
um niður í Val. Það var kannski
strax þegar við vorum svona litlir
að þetta varð svona samheldur hóp-
ur. Maður varð ekki lengi að verða
Valsari og maður er með vel rautt
hjarta í dag.“
Hann segir föður sinn duglegan
við að gefa góð ráð af hliðarlínunni.
„Hann hefur hjálpað mér mjög
mikið frá því ég var lítill. Alltaf
sagt mér mikið til og á stóran þátt í
því hvert ég er kominn. Það er mjög
gott að hafa hann því þegar gengur
illa styður hann við bakið á mér.
Eins þegar gengur vel þá segir
hann mér hvað maður getur gert
betur.“
Snorri Steinn segist þó ekki
alltaf vera sammála föður sínum.
„Ég er mjög oft ósammála hon-
um. Ef það hefur kannski gengið
illa og hann er að reyna segja
manni til er maður oft ósammála
honum. En þegar reiðin rennur af
manni sér maður þetta í réttu ljósi
og veit að hann hefur oft rétt fyr-
ir sér. Ég reyni að taka mikið
mark á honum."
Leikstjórnandinn ungi lék sinn
fyrsta landsleik á dögunum gegn
Norðmönnum og segir það hafa
verið mikla upplifun.
„Það var alveg frábært að fá að
prófa það og kynnast þessu. Þetta
er svolítið öðruvísi að spila fyrir
ísland en félagslið. Þetta hefur
verið draumur frá því maður var
smá polli og fór með pabba á
landsliðsæfingar þegar hann var
liðsstjóri. Það var alveg frábært
þegar maður hljóp inn á í fyrsta
landsleiknum."
Snorri Steinn stóð sig vel í
leikjunum og með honum spiluðu
gamlar fyrirmyndir s.s. Ölafur
Stefánsson.
„Það var mjög gaman að fá að
stjórna besta handboltamanni í
heimi og Patreki sem hefur verið
að gera frábæra hluti í Þýska-
Birgir Leifur Hafþórsson:
Þarf að vera þolinmóður
ARNAR GUNNLAUGSSON
Stoke er ekki tilbúið að borga mikið fyrir
Arnar.
miklu hærri laun hjá Leicester en
Stoke gæti borgað og þá gæti ein-
nig verið erfitt að stilla Peter
Hoekstra og Arnari saman, þar
sem þeir væru of líkir leikmenn.
Þrátt fyrir þetta væri Arnar inni í
myndinni.
Stoke á enn í viðræðum við
Pétur Marteinsson, sem leikið
hefur með Stabæk, en er samn-
ingslaus. ■
golf Birgir Leifur Hafþórsson er í
37. sæti á lokaúrtökumótinu fyrir
Evrópsku mótaröðina. Birgir Leif-
ur lék fimmta hringinn á 70 högg-
um eða tveimur höggum undir pari
og er hann samanlagt á fjórum
höggum undir pari. Lokahringurinn
verður leikinn í dag og þá mun
koma í ljós hvaða 35 golfarar munu
öðlast rétt til að leika á Evrópsku
mótaröðinni á næsta ári.
í samtali við Fréttablaðið sagði
Birgir Leifur að þetta væri búið að
vera langt og strangt mót. Hann
væri ánægður með stöðuna, enda
ætti hann enn töluverða möguleika
á að komast áfram. Hann sagði að
þó hann þyrfti að vinna upp eitt
högg, ætlaði hann ekki taka mikla
áhættu. Allavega
ekki til að byrja
með.
„Ég ætla að
vera rólegur
fyrstu níu, en eftir
það sér maður
hvort maður þarf
að taka einhverja
áhættu," sagði
Birgir Leifur. „í svona móti þarf
maður að spila jafnt og vera þolin-
móður.“
Birgir Leifur sagði að það myndi
breyta öllu ef hann kæmist á Evr-
ópsku mótaröðina, því þá fengi
hann að spila með þeim allra bestu
í heimi. Hann sagðist samt reyna að
hugsa sem minnst um það núna. ■
AUÐBREKKA 1 200 KÓPAVOGUR
SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335
I www.straumur.is I
Brettahillur
Stærð:
D: 100 cm B: 290 cm H: 300
Tekur 9 bretti
___ Aðeins
kr. 25,896,-
Næsta bil ódýrara
Aðrar stærðir
einnig fáanlegar
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
Strazsmisr
Enska Úrvalsdeildin:
Guðni skoraði
knattspyrna Liverpool skaust á
topp ensku Úrvalsdeildarinnar
um helgina, þrátt fyrir að gera að-
eins 1-1 jafntefli við Blackburn á
útivelli.
Michael Owen kom Liverpool
yfir en Matt Jansen jafnaði metin
fyrir Blackburn. Leeds tapaði sín-
um fyrsta leik á tímabilinu þegar
þeir sóttu Sunderland heim. Sund-
erland sigraði 2-0 með mörkum
frá Kevin Phillips og Julio Arca.
Guðni Bergsson skoraði fyrra
mark Bolton í 2-1 sigri á Ipswich,
en Hermann Hreiðarsson lék all-
an leikinn fyrir Ipswich. Eiður
Smári Guðjohnsen mátti sætta sig
við að sitja á bekknum í leik Ev-
erton og Chelsea, sem lauk með
markalausu jafntefli. Arnar
sigurleik gegn Leeds.
Gunnlaugsson var ekki í leik-
mannahópi Leicester, sem tapaði
2-0 fyrir Man. Utd., en hann hefur
átt við meiðsli að stríða síðustu
vikur.
L U 1 T MSrk Stig
1 Liverpool 11 7 2 2 10 23
2 Leeds 12 6 5 1 8 23
3 Aston Villa 12 6 4 2 6 22
4 Man Utd 12 6 3 3 10 21
5 Arsenal 12 5 5 2 11 20
6 Newcastle 12 6 2 4 5 20
7 Chelsea 12 4 7 1 5 19
8 Bolton 13 5 4 4 1 19
9 Blackburn 13 4 6 3 5 18
10 Tottenham 13 5 3 5 2 18
11 Fulham 12 4 5 3 2 17
12 Everton 12 4 4 4 1 16
13 Sunderland 13 4 4 5 -2 16
14 Middlesbro 13 4 3 6 -4 15
15 West Ham 11 4 2 5 -9 14
16 Charlton 11 3 4 4 -1 13
17 Derby 12 2 4 6 -12 10
18 Leicester 13 2 3 8 -18 9
19 Ipswich 13 1 5 7 -8 8
20 Southampton 12 2 1 9 -12 7
Sol Campbell og félagar hans í
Arsenal gerðu 1-1 jafntefli við
Tottenham á útivelli, þar sem
Tottenham skoraði jöfnunarmark-
ið á 94 mínútu. ■