Fréttablaðið - 21.11.2001, Page 2
KJÖRKASSINN
SVARTIR í
MYRKRINU
Meirihluti þeirra sem
greiddu atkvæði gerir
sitt besta til að vera
ósýnilegur í umferðinni
með þvl að nota ekki
endurskinsmerki.
Notar þú endurskinsmerki?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Nei
Spurning dagsins í dag:
Fylgist þú með dönskum stjórnmálum?
Farðu inn á vlsi.is og segðu
þína skoðun
____________________
LÍKKISTA BORIN
Lík blaðamannanna fjögurra, sem myrtir
voru í Afganistan á mánudag, fundust f
gær. Starfsmenn líkhúss sjást þarna halda
á líkkístu eins þeirra.
Fulltrúar helstu hópa í
Afganistan:
Ræða fram-
tíð Afganist-
an í Berlín
kabúl. ap Norðurbandalagið í
Afganistan, sem nú er með höfuð-
borgina Kabúl ög meira en helm-
ing landsins á sínu valdi, féllst í
gær á að taka þátt í viðræðum
allra, eða a.m.k. sem flestra þjóð-
arbrota um næstu stjórn landsins.
Viðræðurnar hefjast í byrjun
næstu viku og verða haldnar í
Berlín í Þýskalandi undir umsjón
Sameinuðu þjóðanna.
Joschka Fischer, utanríkisráð-
herra Þýskalands, sagðist í gær
hlakka til að fá að leggja sitt af
mörkum við að móta næstu stjórn
í Afganistan.
Norðurbandalagið, sem er
bandalag nokkurra þjóðarbrota í
Norður-Afganistan, verður einn
fjögurra helstu hópanna, sem taka
þátt í fundunum í Berlín. Fulltrú-
ar frá Mohammed Zaher Shah,
sem var konungur Afganistan
áratugum saman á síðustu öld og
vill verða konungur að nýju,
verða einnig á þessum fundum, en
talibanar verða ekki með. Hins
vegar verða fulltrúar pastúna á
staðnum, en pastúnar eru fjöl-
mennasti þjóðflokkurinn í
Afganistan. Talibanar eru lang-
flestir pastúnar, og Mohammed
Zaher Shah er einnig pastúni. ■
—♦—
Kvörtun um samkeppni:
Kröfum
hafnað
samkeppnismál Samkeppnisráð
hefur úrskurðað um kvörtun
Fornleifafræðistofunnar um ójaf-
na samkeppnisstöðu við fornleifa-
rannsóknir. Taldi Fornleifastofan
að hún keppti við ríkisstyrktar-
stofnanir sem gætu í krafti stöðu
sinnar undirboðið verk á þessum
markaði. Samkeppnisráð taldi
ekki skilyrði til að aðhafast í mál-
inu og því ekki orðið við kvörtun-
inni. Telur ráðið að samkeppnisað-
ilinn Fornleifastofnun sé sjálfs-
eignarstofnun sem starfi að öllu
leyti í samkeppnisumhverfi. ■
2
FRÉTTABLAÐIÐ
21. nóvemer 2001 MlÐVlKUrACUR
Ríkisútvarpið til umfjöllunar hjá ríkisstjórn:
Mega hækka afnotagjcddið um 7 %
ríkisútvarpið Hækkun afnota-
gjalds Ríkisútvarpsins hefur ver-
ið heimiluð frá næstu áramótum
og ákveðið að vinna að frekari
skipulagsbreytingum á rekstri
stofnunarinnar. Björn Bjarnason,
menntamálaráðherra, lagði á
fundi ríkisstjórnar í gærmorgun,
fram skýrslu starfshóps um fjár-
hag og rekstur Ríkisútvarpsins.
Ákveðið var að heimila Útvarpinu
7 prósent hækkun afnotagjalda
frá 1. janúar 2002 og að stjórnar-
flokkarnir settu niður hóp undir
forystu menntamálaráðherra til
að vinna að skipulagsbreytingum
á stofnuninni og breytingu á opin-
berri tekjuöflun til að stan-
da undir rekstri þess.
Gangi hækkun afnota-
gjaldsins eftir hækkar það
úr 2.250 krónum í 2.408. Þá
mun menntamálaráðherra,
í ljósi skýrslunnar, beita
sér sérstaklega fyrir at-
hugun á fjárhagslegum
tengslum Ríkisútvarpsins
pg Sinfóníuhljómsveitar
íslands. Vinnuhópurinn
skilaði af sér til ráðherra á
fimmtudaginn í síðustu
viku.
í skýrslu hópsins, sei
RÍKISÚTVARPIÐ
Vinnuhópurinn sem menntamálaráðherra skipaði til að fara yfir
fjárhag og rekstur Ríkisútvarpsins telur að meiri sveigjanleika sé
þörf í rekstri stofnunarinnar og hún þurfi að geta lagað sig betur
að aðstæðum án þess að til lagabreytingar þurfi að koma.
i má ráðuneytisins, kemur fram að
finna á heimasíðu menntamála- lagaákvæði sem kveði á um leiti.
verkaskiptingu og yfir-
stjórn stofnunarinnar séu
hamlandi fyrir rekstur og
að verkaskipting útvarps-
stjóra og útvarpsráðs sé
óskýr. Fram kemur að
þeir þættir sem helst
skýri versnandi fjárhags-
stöðu útvarpsins séu
auknar lífeyrisskuldbind-
ingar í kjölfar síðustu
kjarasamninga og kostn-
aður vegna lána sem tekin
voru til að uppfylla þær
skuldbindingar og vegna
flutnings stofnunarinnar í Efsta-
Mesta erlenda fjárfesting
í íslensku hlutafélagi
Bakkavör kaupir breskt matvælafyrirtæki á 15,6 milljarða. Seljendurnir koma með hlutafé upp á 2
milljarða inn í Bakkavör. Með kaupunum verður Bakkavör eitt af stærstu fyrirtækjum landsins með
starfsemi í níu löndum. Aætlaður hagnaður fyrir afskriftir skatta og íjármagnsliði er rúmir 4 milljarðar.
Það sem eru
ekki síður tíð-
indi er að fjöl-
skyldan sem á
fyrirtækið
kemur með
tveggja millj-
arða fjárfest-
ingu í Bakka-
vör fyrirtækja-
samsteypuna.
vipskipti Bakkavör Group hefur
keypt breskt matvælafyrirtæki,
Katsouris Fresh Foods Ltd. og er
kaupverðið um 15,6 milljarðar ís-
lenskra króna. Bakkavör hefur
einnig gert fjármögnunarsamn-
inga við þrjá af stærstu bönkum
Evrópu sem munu lána fyrirtæk-
inu rúma 12 millj-
arða, bæði til þess-
ara kaupa, svo og
til endurfjármögn-
unar eldri lána
fyrirtækisins.
„Þetta er mikil
viðurkenning fyrir
okkur sem lítið
fyrirtæki uppi á
íslandi,“ segir
Ágúst Guðmunds-
son, stjórnarfor-
maður Bakkavar-
ar. „Það sem eru
ekki síður tíðindi er að fjölskyld-
an sem á fyrirtækið kemur með
tveggja milljarða fjárfestingu í
Bakkavör fyrirtækjasam-
steypuna."
Ágúst segir að fyrir utan að
fjölskyldan hafi trú á rekstri
Bakkavarar, skipti verulegu máli
þær breytingar sem eru að verða
á umhverfi fyrirtækja. Það er
heimildin til að gera upp í erlendri
mynt, afnám verðbólguskila og
lækkun skatta.“Þessi fjárfesting
erlendra aðila í íslensku fyrirtæki
er sú stærsta sem orðið hefur,“
segir Ágúst.
Bakkavör hefur vaxið gríðar-
lega og Katsouris er annað fyrir-
tækið á Bretlandi sem keypt er.
Innan samsteypunnar eru fyrir-
MIKILL VÖXTUR
Bakkavör tilkynnti um langstærstu landvinninga sína til þessa, en fyrirtækið kaupir breskt fyrirtæki fyrir 15,6 milljarða króna.
tæki í níu löndum. „Við gerum
mjög strangar kröfur til þeirra
fyrirtækja sem við kaupum. Við
gerum kröfu um að reksturinn sé
góður og að þau skili hagnaði,
vaxtarmöguleikar séu fyrir hendi
og að eigendur hajdi áfram að
vinna með okkur. í okkar huga
skiptir miklu að hvert fyrirtæki
innan samsteypunnar hafi hag af
því að vera í samfloti með hinum.“
Bakkavör mun auka hlutafé
sitt í kjölfar kaupanna og efna til
hlutafjárútboðs hér á landi og í
Danmörku og Svíþjóð til að fjár-
magna 25% kaupanna. Katsouris
Fresh Foods Ltd. hefur verið í
eigu sömu fjölskyldu frá stofnun
árið 1982 og er skuldlaust. Hagn-
aður fyrirtækisins á síðasta ári
var rúmir 2 milljarðar fyrir skat-
ta. Lykilstarfsmenn fyrirtækisins
og fjölskyldan mun áfram starfa
hjá fyrirtækinu eftir kaupin.
Áætluð velta Bakkavarar fyrir
næsta ár er 20 milljarðar og áætl-
un geri ráð fyrir hagnaði fyrir
skatta, afskriftir og fjármagnsliði
upp á rúma 4 milljarða.
haflidi@frettabladid.is
Hugarfarsbreyting í Danmörku:
Um 40 prósent Dana fylgjandi pyntingum
PANSKT hucarfar Af einhverjum
ástæðum hefur afstaða Dana til
pyntinga breyst mjög á síðustu
mánuðum. Nú eru 40 prósent
Dana fylgjandi því að „hóflegum
líkamlegum þrýstingi" sé beitt í
baráttunni gegn hryðjuverkum.
Þetta kom fram í skoðanakönnun
sem dagblaðið Jyllandsposten lét
gera.
í júlí síðastliðnum voru hins
vegar aðeins 14 prósent Dana
fylgjandi „hóflegum líkamlegum
þrýstingi", að því er fram kom í
skoðanakönnun Gallup. Sú skoð-
anakönnun var gerð eftir að
Carmi Gillon, sem þá var væntan-
legur til Danmerkur til þess að
taka við embætti sendiherra fsra-
els, hafði viðurkennt í viðtali að
hann hefði tekið þátt í að beita
fanga „hóflegum líkamlegum
þrýstingi". Augljóst þótti, að með
þessu orðalagi ætti hann við pynt-
ingar.
Danir brugðust almennt
ókvæða við þessari yfirlýsingu,
og kröfðust þess margir að dönsk
stjórnvöld neituðu að taka við
honum, ellegar þá að hann yrði
lögsóttur þegar hann kæmi til
Danmerkur.
Nú er mannréttindasamtökum
í Danmörku hins vegar brugðið
vegna þeirrar hugarfarsbreyting-
ar sem orðið hefur. „Þá hafa
hryðjuverkamennirnir sigrað,"
sagði Inge Genefke, heiðursfor-
seti alþjóðlegra samtaka um end-
urhæfingu fórnarlamba hryðju-
verka, í viðtali við Jyllandsposten.
„Þeim hefur tekist að virkja ótt-
ann og sigrast á öllu því, sem
mannlegt og eðlilegt er, og sem
við höfum verið að berjast fyrir
árum saman.“ ■
ÚR KOSNINGABARÁTTUNNI
Anders Fogh Rasmussen er þarna á tali við kjósendur, en hann er formaður stærsta hægri
flokks Danmerkur og líklegur sigurvegari kosninganna I gær. Hann hefur mikið notfært sér
ótta landa sinna við útlendinga í kosningabaráttunni.