Fréttablaðið - 21.11.2001, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 21. nóvember 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
Sögulegur sigur borgaralegu flokkanna í Danmörku:
Anders Fogh Rasmussen fagnar sigri
KOSNINGAR í DANMÖRKU Þegar búið
var að telja nærri 25 prósent at-
kvæða úr þingkosningunum í
Danmörku í gær, höfðu borgara-
legu flokkarnir fengið samtals 97
þingsæti, þar af var Vinstriflokk-
urinn með 56 þingsæti og hafði
bætt við sig 14 sætum frá kosn-
ingunum 1998. Stjórnarflokkarnir
tveir og stuðningsflokkar hennar
74 þingsæti, þar af voru Sósíalde-
mókratar með 54 þingsæti og
höfðu tapað 9 sætum.
Nokkuð ljóst þótti því að And-
ers Fogh Rasmussen, leiðtogi
Vinstriflokksins, taki við forsæt-
isráðherraembættinu af Poul
Nyrup Rasmussen. Búist var við
að ný stjórn tæki við um næstu
mánaðamót. Líklegast þykir að
það verði minnihlutastjórn sem
njóti stuðnings Danska þjóðar-
flokksins.
Borgaralegu flokkarnir hafa
ekki haft meirihluta á danska
þjóðþinginu frá því 1929, þannig
að þessi úrslit þykja heldur betur
söguleg af þeirri ástæðu einni.
Til þess að ná manni á þing í
Danmörku þurfa stjórnmálaflokk-
ar að fá a.m.k. tvö prósent at-
kvæða. Fjórir flokkar voru ná-
lægt þessum mörkum. Framfara-
flokkurinn og Miðjuflokkurinn
FLÓKNIR KJÖRSEÐLAR
Ósagt skal látið, hvort Danir hafi tekið sér kosningastjórn í Flórlda til fyrirmyndar, en víst er að
kjósendur f Danmörku þurftu að skoða kjörseðlana sína vel í gær til þess að átta sig á þeim.
virtust ekki ætla að ná inn, en Ein- Demókratar virtust ætla að skríða
ingarflokkurinn og Kristilegir yfir markið. ■
Vantar á annað
þúsund sjúkraliða
Fjölga þarf um 300 sjúkraliða árlega næstu fimm árin til að fullnægja þörf fyrir þjónustu þeirra.
Stjórn og stjórnarandstaða sammála um að aðgerða sé þörf en stjórnarandstæðingar gagnrýna
stjórnarliða fyrir aðgerðaleysi.
alþingi Það vantar á annað þús-
und sjúkraliða til starfa ef manna
á að fullu stöður þeirra sjúkra-
liða sem þarf til að halda uppi
eðlilegri þjónustu í heilbrigðis-
kerfinu sagði Margrét Frímanns-
dóttir í utandagskrárumræðum
um stöðu sjúkraliða innan heil-
brigðiskerfisins sem fram fór á
Alþingi í gær.
„Er ljóst að fjölga þyrfti um
300 einstaklinga með sjúkraliða-
réttindi á hverju ári næstu fimm
árin“, sagði Margrét en benti á að
æ færri innriti sig í sjúkraliða-
nám og ljúka því eða um 20 ein-
staklingar á ári. Starfsaðstæður
og kjör sjúkraliða sagði Margrét
standa í vegi fyrir fjölgun þeirra
og vildi vita hvernig heilbrigðis-
ráðherra hyggðist taka á málinu
og hvað hann hyggðist gera í
menntunarmálum sjúkraliða og
hvort metið hefði verið sérstak-
lega hver yrði þörfin fyrir sér-
menntað hjúkrunarfólk næstu tíu
árin og hvort sérstakar aðgerðir
væru fyrirhugaðar vegna þessa.
Jón Kristjánsson, heilbrigðis-
ráðherra, tók undir að sjúkraliða-
skortur virtist vera viðvarandi
vandi. Hann sagði að útskrifuð-
um sjúkraliðum hefði fækkað
síðustu ár og hefðu verið gefin út
færri starfsleyfi en áður. Hann
sagði samráð ráðuneytisins og
Félags ísienskra sjúkraliða urn
lausn á vandanum vera gott og
hygðist hann stofna starfshóp til
að koma með tillögur um hvernig
mætti bæta úr vandanum. Hann
sagði sjálfsagt að beita sér fyrir
því að ómenntaðir starfsmenn
fengju frekari tækifæri til að
afla sér menntunar. Hins vegar
hefði áður fyrr reynst erfitt að
meta mannaflaþörf fram í tím-
SJÚKRALIÐAR Á ÞINGPÖLLUM
Sjúkraliðar fjölmenntu á áhorfendapalla Alþingis í gær íil að fylgjast með utandagskrárumræðum um stöðu sína og aðstæður.
ann en þó væri stefnt að því í
heilbrigðisáætlun að slíkt mat
færi fram.
Guðmundur Árni Stefánsson
sagði vandann liggja í áhugaleysi
Sjálfstæðisflokksins sem vildi
brjóta kerfið niður innanfrá svo
hægt væri að boða markaðsvæð-
ingu í heilbrigðiskerfinu. Drífa
Hjartardóttir var bjartsýnni á úr-
bætur og sagði að stofnanasamn-
ingur sem væntanlega yrði geng-
ið frá tæki á kjaramálum, starfs-
aðstöðu og menntun sjúkraliða og
gæti orðið fyrirmynd annarra. ■
Gerhard Schröder á flokksþingi þýskra jafnaðarmanna:
Vill enn nánara samstarf Evrópusambandsríkja
nurnberg. ap Gerhard Schröder
Þýskalandskanslari ítrekaði í gær
hugmyndir sínar um að Evrópu-
sambandið eigi að ganga enn
lengra í áttina að því að vera sam-
bandsríki. í ræðu sinni á flokks-
þingi þýska Sósíaldemókrata-
flokksins sagði hann að aðildar-
ríki sambandsins ættu að leggja
enn meiri völd í hendur sameigin-
legra stofnana ESB, og sagði rétt
að samin verði sérstök stjórnar-
skrá fyrir ESB.
„Það er vel hugsanlegt að þjóð-
ríkið þurfi að framselja fleiri völd
til Evrópu," sagði hann, en bætti
því þó við að um leið sé rétt að
færa önnur valdasvið niður á við,
frá Evrópusambandinu til þjóð-
ríkjanna eða héraða innan þeirra.
Þegar Schröder viðraði þessar
hugmyndir sínar síðastliðið vor
mætti hann litlum skilningi meðal
í’áðamanna annarra aðildarríkja
Evrópusambandsins. Sérstaklega
líst Bretum og Frökkum illa á
hugmyndir um evi’ópskt alríki í
einni eða annarri mynd. ■
SCHRÖDER RÆÐIR
VIÐ BLAÐAMENN
Myndin er tekin í Numberg í
Þýskalandi í gær, þar sem
flokksþing þýska Sósíalde-
mókrataflokksins stendur yfir.
Fyrirtæki til sölu, t.d.:
• Rótgróið og arðbært eininga-
húsafyrirtæki. Mikil sérstaða á
markaði.
• Sólbaðsstofa í miðbænum. 6
bekkir + gufubað og önnur að-
staða. Lágt verð.
• Stór útivistarverslun í góðum
rekstri. Ársvelta 140 MKR.
• Vinnufataverslun með eigin inn-
flutning. Ársvelta 24 MKR.
• Stór og glæsileg hárgreiðslustofa
í miðbænum. 8 stólar og mikið
að gera
• Mjög góður söluturn í Hafnarfirði
með bilalúgum, grilli og video.
6,5 MKR mánaðarvelta og vax-
andi.
• Höfum til sölu nokkrar heildversl-
anir í ýmsum greinum fyrir rétta
kaupendur. Ársvelta 100-350
MKR. Einnig stór verslunarfyrir-
tæki sem sum stunda einnig
heildverslun.
• Austurlenskur take-away mat-
sölustaður á Akureyri. Ársvelta
18 MKR.
• Bílaverkstæði í Hafnarfirði. Gott
húsnæði og vel tækjum búið.
Mikið að gera.
• Traust verktakafyrirtæki í jarð-
vinnu. 80 MKR ársveita. Mjög
góð verkefnastaða næstu tvö ár.
• Lítill skyndibitastaður í atvinnu-
hverfi. Ársvelta 20 MKR. Þægi-
legt fyrir einn kokk.
• Rótgróin heildverslun með sæl-
gæti. 80 MKR ársvelta. Mjög góð
framlegð.
• Sjálfsalafyrirtæki. Mikill tækja-
búnaður, lítil vinna.
• Hárgreiðslustofa í miðbænum.
• Gott fyrirtæki í jarðvegsvinnu,
hellulögn, steypusögun, kjarna-
borun og múrbroti. Traust hluta-
félag í eigin húsnæði.
• Veitinga- og skemmtistaður á
Höfn í Hornafirði. Eigið húsnæði.
• Stór og vinsæll pub i miðbæn-
um. Mikil velta.
• Góð videósjoppa í Breiðholti
með 4 MKR veltu á mánuði.
Auðveld kaup.
• Söluturn á Akureyri. Lottó, video
og grill. Ársvelta 20-24 MKR.
Auðveld kaup.
• Verslun, bensinsala og veitinga-
rekstur í Búðardal. Eigið hús-
næði. Mjög góður rekstur. Árs-
velta 160 MKR.
• Falleg lítil blómabúð í Breiðholti.
Mjög einfaldur og öruggur rekst-
ur. Auðveld kaup.
® Þekkt unglingafataverslun í
Kringlunni. 24 MKR ársvelta.
Auðveld kaup.
• Kjötvinnslufyrirtæki sem er í
miklum vexti. Ársvelta nú um 100
MKR. Meðeign eða sameining
kemur vel til greina.
• Sérverslun á Djúpavogi. Eigið
húsnæði á besta stað. 20 MKR
ársvelta.
• Lítið verktakafyrirtæki sem star-
far nær eingöngu á sumrin. Fastir
viðskiptavinir, stofnanir og stór-
fyrirtæki. Hagnaður 7-8 MKR á
ári.
• Gömul og þekkt heildverslun
með byggingarvörur og búsá-
höld. 30 MKR ársvelta. Góð
framlegð.
• (s og videosjoppa í Grundarfirði.
Miklir möguleikar.
• Þekkt bílabónstöð með 15 MKR
ársveltu. Stórir viðskiptavinir í
föstum viðskiptum. Gott hús-
næði, ný tæki.
• Gistihús miðsvæðis í Reykjavík.
15 herbergi. 20 MKR ársvelta.
• Kjörbúð i Reykjavík. 40 MKR árs-
velta. Rótgróin verslun í gömlu
hverfi.
• Falleg gjafavöruverslun við
Laugaveginn, heildsala og net-
verslun. Mikil tækifæri.
• Suðurlandsbraut 50 (bláu húsln)
• Sími 533 4300 • Gsm 895 8248