Fréttablaðið - 21.11.2001, Side 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
21. nóvember 2001 MIÐVIKUDACUR
HASKÓLABIO
HAGATORGI, SIMI 530 1919
Þar sem allir salir eru stórir
Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.45
IMÁLARINN
kl 5.45
THE OTHERS
kl. 6,8 og 10,15 j
Sýnd kt. 5.45, 8 og 10.15
KUIKMVNDAHÁTID
ELLING kl. 6,8ogl0
HEFTIG OG BEGEISTRET kl. 8
BREAD AND TULIP kl. 10
rAVH’,'1 ÁLÍ ABAKKA
•\ .-A'T
rii.M Mi7imiiiiii.i!i.|.—■—
Sýnd kl. 5.30 í , 8 og 10.30 V,T 296 jOSMOSIS JONES kL6lH
CORKY ROMANO 4,6,8 og íaiöj P1 1AMERICAN PIE 2 kL8og 10.10 j Pföj
|THE OTHERS kL 550,8 og 10.15 |W| jSEXY BEAST kL 8 og 10.10 | j¥A|
[SKÖLALÍF m/ísL tal k 4 og¥l P1 iRUGARTSINRARlSm/ísÍ. tali kL 3.50 | pMS]
jPRINCESS DIARIES kL 3.45 og 5501 MV jSHREK m/bLtali kl.4lPl
| FRÉTTIR AF FÓLKI
ÖRYGGIÐ A ODDINN
Tyrkneska heilbrigðisráðuneytið hóf auglýs-
ingaherför í síðustu viku þar sem það hvetur
ungmenni til að fara öllu með gát þegar að
kynllfi kemur. Það gaf meðal annars út hand-
bók smokksins. Titill bókarinnar (efri mynd)
er Aldrei án verndarenglanna en á baksíð-
unni (neðri mynd) má sjá smokka „syngja"
lítill lagstúf. „Ég ver þig, þú verð þig.."
OPNUNARTIMAR
Söludeildin er opin alla virka
daga frá kl. 8:00 -17:00
nema á föstudögur
þá erlokað
kl 16:00.
-UNDUR^
lustofa SÍBS 4
Símig628500 - 5628501
Heima'sjða: www.mulalundur.is
atvinnu
llfið.
/FQnix
Hátúni 6a S 552 4420
Leikarinn Sir Ian McKellen (X-
Men, Lord of the Rings) segir
það viðurstyggilegt að það skuli
enn vera löglegt í
Bretlandi að segja
upp fólki fyrir það
eitt að vera sam-
kynhneigt. Hann
segir fyrrverandi
forsetisráðherra
Breta John Major
hafa verið merki-
lega óupplýstan um samkyn-
hneigð og segir reyndar núver-
andi ríkisstjórn lítið skárri. Hann
segist þó ánægður með það að
hafa verið aðlaður eftir að hann
kom út úr skápnum. McKellen fer
með hlutverk Gandalfs í væntan-
legum myndum eftir Hringadrótt-
inssögu Tokiens.
David Beckham fær víst meira
út úr því að njóta ásta með
konu sinni Victoriu Beckham en
að skora mörk
fyrir England. Því
hélt kona hans
a.m.k. fram í við-
| tali á dögunum en
bætti því svo við
að það væri eins
gott fyrir kapp-
ann að halda ekki
hinu gagnstæða fram.
Tónleikar sem Geri Halliwell
hélt nýlega fyrir hermenn í
Oman hafa vakið umtal. Venjan er
sú að listamenn
gefi vinnu sína til
þess að hvetja
hermenn þjóðar
sinnar til dáða en
Geri á víst að hafa
fengið dágóða
summu í sinn vasa
fyrir sitt. Tals-
menn söngkonunnar halda því
fram að hún hafi í raun tapað á
tónleikunum þar sem upphæðin
hafi farið í það að borga fylgdar-
liði hennar launin sín.
BBC hefur gefið út formlega af-
sökunarbeiðni til áhorfenda
sinna fyrir óheflað málfar söngvar-
ans Robbie Williams í sjónvarps-
tónleikum hans síðasta laugardags-
kvöld. Þar flutti pilturinn sín uppá-
halds Frank Sinatra lög. Það sem
fór fyrir brjóstið á áhorfendum var
dónatal Williams og sjónvarps-
mannsins Rupert Everett.
Dýrslegur kjallara-
blús í Hálsaskógi
Það er nú ekki víst að Lilli klifurmús hefði nokkurtímann komist
niður út trénu ef hann hefði leikið þá útgáfu „Vögguvísunnar" fyrir
Mikka ref sem er að finna á geisladiski Dýranna í Hálsaskógi,
„Láttekkeinsoðúsértekkiðanna". Hvað er eiginlega á seyði hérna?
tónlist Geislaplatan hljómar eins
og Tom Waits hafi uppgötvað lögin
á mánudegi og tekið þau beint inn
á band án söngs á þriðjudags-
kvöldi eftir heila vískíflösku. Hér
eru greinilega djassgeggjarar í
nostalgíukasti á ferð. „Þessi tón-
list er hluti af uppeldi okkar,“ seg-
ir Óskar Guðjónsson saxófónleik-
ari en hann mannar hljómsveitina
Dýrin í Hálsaskógi ásamt þeim
Eðvari Lárussyni gítarleikara,
Matthías M.D. Hemstock og Pétri
Grétarssyni. „Uppsetning Þjóð-
leikhússins á þessu verki var frá-
bær og maður hlustaði á þessa
plötu þangað til hún gaf sig. Þetta
er kannski fyrsta platan sem mað-
ur hlustaði á alveg í tætlur, áður
en maður varð unglingur og fór að
ákveða hvaða tónlist manni lang-
aði að hlusta á sjálfur." Þó svo að
hér sé verið að minnast barnæsk-
unnar er „barnið sem býr í okkur
öllum“ fjarri góðu gamni í útsetn-
ingum þeirra á lögum leikritsins.
„Hin platan er til fyrir börnin og
ég sé ekki að við hefðum geta far-
ið að gera betri barnaplötu en
hana. Mig langaði bara að fara
eitthvað allt annað með þetta,
spila þessi lög eins og okkur lang-
aði til þess að spila þau. Eitt lag er
kannski hægt og undir miklum
dub-áhrifum á meðan annað er
hratt og pönkað. Platan er tekin
upp í kjallara hjá félaga mínum á
gamla segulbandsupptökuvél.
Plötuumslagið teiknaði ég sjálfur,
það er allt mjög heimagerður fíl-
ingur yfir þessu öllu saman." í
kvöld halda Dýrin útgáfutónleika
sína á fjölum Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins sem hlýtur að
teljast vel við hæfi. Bessi Bjarna-
son sagði einu sinni frá því að þeg-
ar hann var í hlutverki Mikka refs
sínum tíma hafi hann oftar en
sjaldan freistast til þess að kippa
litlu hnoðrunum af afturendum
litlu kanínubarnanna. Er ekki við
ÓSKAR GUÐJÓNSSON
Töluverðan tíma tók að fá leyfi frá fjölskyldu Thorbjarnar Egner til þess að gefa diskinn út.
hæfi fyrir „Dýrin“ að fá leik-
myndina gömlu, klæða sig í bún-
ingana og keppast við að kippa í
skottið á hvort öðrum í kvöld,
fyrst að þeir eru nú í Þjóðleikhús-
inu á annað borð? „Ef við sjáum þá
þarna baksviðs þá er aldrei að vita
nema að við kippum með einu
eyra eða svo,“ segir Óskar að lok-
um með tón sem gefur til kynna að
blaðamaður sé kominn út á hálann
ís, hvað djassgrínið varðar. Tón-
leikarnir hefjast kl. 21.
biggi@frettabladid.is