Fréttablaðið - 10.12.2001, Síða 1

Fréttablaðið - 10.12.2001, Síða 1
ein bók? i 1/ H bls 22 TÓNLIST £. --------- W'ávf Hverjir ^ ^ eigajólin? bls 16 ÚTLÖNP Sönnun fundin d myndbandi bls 12 HYUNDAI Mu/tiígfp) Total IT Solution Provider Hagkvæm og traust tölva OTÆKNIBÆR Skipholti 50C S: 551-6700 www.tb.is Umboðsaðili HYUNDAI á Islandi FRETTABLAÐIÐ 162. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Mánudagurinn 10. desember 2001 Formenn funda fundur Formanna- fundur Alþýðusam- bands íslands hefst á Grand Hótel í dag og er staðan í efnahags- og kjara- málum og endur- skoðun launaliðar kjarasamninga til umf jöllunar. Góð afkoma sjávarútvegtsins veld- ur því að fulltrúar af landsbyggð- inni vilja síður formenn af höfuð- borgarsvæðinu fresta ákvörðun um uppsögn. Nóbel í 100. sinn verðlaun Nóbelsverðlaunin verða afhent í dag í 100. skipti. Kofi Ann- an og Sameinuðu þjóðirnar taka við friðarverðlaununum í Osló. í Stokk- hólmi verða veitt verðlaun fyrir bókmenntir, hagfræði, læknisfræði, eðlisfræði og efnafræði. í tilefni tímamótanna verða viðstaddir flestir eða allir núlifandi verð- launahafar._____________ |VEÐRIÐ í DACI REYKIAVÍK Suðaustan 13-18 m/s, súld eða rigning og hiti 5 til 10 stig. VINDUR ÚRKOMA HITI ísafjörður Q 13-18 Þokusúld 06 Akureyri Q 8-13 Þurrt 07 Egilsstaðir 8-13 Þurrt 07 Vestmannaeyjar 8-13 Þokusúld Q6 Konur lesa upp upplestur Konur lesa úr nýjum bók- um sínum í Hlaðvarpanum í kl. 20.30 og svara spurningum við- staddra. Fram koma Hildur Her- móðsdóttir, Inga Lára Baldvinsdótt- ir, Oddný Sen, Sigrún Árnasdóttir og Steinunn Sigurðardóttir. Aðventutónleikar Amnesty TÓNLEIKAR í tÍleM mannréttin- dadagsins heldur íslandsdeild Amnesty , International aðventutónleika í Neskirkju kl. 20.30. Fram kemur f jöldi tónlistarmanna. IKVÖLDIÐ í KVÖLDI Tónlist 18 Bíó 16 Leikhús 18 íþróttir 14 Myndlist 18 Sjónvarp 20 Skemmtanir 18 Útvarp 21 NOKKRAR STAÐREYNDIR UM FRÉTTABLAÐIÐ 60,9% Hvaða blöð lesa 30 til 80 ára íbúar á höfuð- borgarsvæðinu í dag? Meðallestur 30 til 80 ára á mánudögum samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá október 2001 70.000 eintök 65% fólks les biaðið MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 25 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP I OKTÓBER 2001. ■ 38,8°/c > Um D SIGURGEIR SIGURÐSSON Bærinn hefur stutt Sinfóníuna 19 ár. Aðeins Reykjavík og Seltjarnarnes hafa greitt til hljómsveitarinnar auk ríkisins. Seltjarnarnes: Borga ekki Sinfóníunni menninc „Við höfum í sjálfu sér ekkert við störf Sinfóníuhljóm- sveitar íslands að athuga,“ sagði Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri Seltjarnarness, spurður um tillögu sína þess efnis að bærinn hætti að styrkja hljómsveitina frá árslok- um 2002. Styrknum, sem hefur verið um 3,5 milljónir árlega, verð- ur að mati bæjarstjórans betur varið til menningarlífs innan bæj- arins. „Við höfum öflugan tónlist- arskóla hér og margar hljómsveit- ir í kringum hann. Við viljum ekki taka þetta fé út úr menningunni, bara dreifa því öðruvísi." Laga- breytingar er þörf til að bærinn losni undan greiðslum til hljómsveitarinnar. ■ | ÞETTA HELST | Frjáls f jölmiðlun hefur náð samningum við ESÓB um sölu á 60% hlut FF í útgáfufélagi DV. ESÓB hafði áður keypt 40% hlut í blaðinu af FF. bls. 2. Ekki er vitað hvar Osama bin Laden er niðurkominn. Sumir segja hann verjast í Tora Bora, aðrir að hann sé í felum eða farinn úr landi. bls. 2. Fjölskylda í Grafarvogi hefur margsinnis þurft að þola inn- brot, skemmdarverk og hótanir frá sama síbrotamanni, sem á barnsmóður og barn á heimilinu. Fjölskyldan íhugar að stefna lög- reglunni fyrir aðgerðarleysi. bls. 2. JÓLATRÉ Á AUSTURVELLI Kveikt var á jólatrénu á Austurvelli I fimmtugasta skipti í gær. Börn og foreldrar fjölmenntu á staðinn ásamt jólasveinunum. Eins og venjulega er tréð gjöf Oslóarbúa til Reykvikinga. Hélt sér föstum og beið í þrjá tíma Eyþóri Garðarssyni var bjargað á ótrúlegan hátt þegar Svanborg SH- 404 frá Olafsvík fórst við Ondverðarnes. Sigmaður bandarískrar þyrlu vann stórkostlegt afrek við hrikalegar aðstæður. Eyþór hélt sér föstum í þrjá klukkutíma í stórsjó og ofsaveðri áður en honum var bjargað. sjóslys „Ég hafði stórar áhyggjur af drengnum, enda tók aldan hann strax,“ segir Eyþór Garðarsson um þær hugsanir sem flugu í gegnum huga hans þegar hann sá Jay Lane, sigmann bandarísku þyrlusveitarinnar fyrir framan sig. Eyþór sem bjargaðist á ótrú- legan hátt þegar Svanborg SH-404 fórst, segir að á þeirri stundu hafi björgunarmaðurinn verið í mun meiri lífshættu en hann sjálfur. „Ég hafði skjól af þakinu en hann kom á bert þakið og brotsjóirnir lentu á honum.“ Jay náði tökum á Eyþóri, en áður en hann náði að herða lykkjuna gekk sjórinn yfir þá. „Ég var kominn hálfur útfyrir þegar hann náði mér aftur.“ Línan úr þyrlunni flæktist og festist, en honum tókst á undra- verðan hátt að losa hana og koma þeim heilu og höldnu í þyrluna. „Ég sagði við fjölskylduna þegar ég hitti þau að ég skildi ekki hvað væri að heima hjá þessum manni að leggja sig í þessa hættu til að bjarga mér.“ Eyþór hélt sér föstum í þrjá klukkutíma í ofsaveðri og stórsjó. „Ég skil ekki sjálfur hvernig mér tókst þetta. Það er líklega þrjósk- an sem hefur bjargað mér. Hún er sterk þrjóskan og ákveðnin." Hann segir að þegar honum var bjargað hafi verið liðin þónokkur tími síðan hann heyrði síðast í fé- lögum sínum. Eyþór segir að ástandið hafi orðið verra eftir því sem leið á. „Það gekk meiri sjór yfir mig eftir því sem féll að og ástandið fór versnandi." Eyþór er ekki fastur skipverji á Svanborgu, heldur var í tveggja vikna afleysingum. Elínrós Mar- grét Jónsdóttir eiginkona Eyþórs segir að léttirinn hafi verið ólýs- anlegur að heyra að honum hefði verið bjargað „Þetta var ótrúlegt kraftaverk. Björgunarmaðurinn er ótrúlegur kraftaverkamaður. Það er ekki hægt að þakka honum nógsamlega,“ segir Elínrós. Þau vildu koma á framfæri þakklæti til allra þeirra f jölmörgu sem komu að björgunarstarfi og sögðu að hugur þeirra væri með fjölskyldum skipverjanna sem fórust. haflidi@frettabladid.ís Óánægja með langan viðbragðstíma þyrlu í strandinu á föstudag: 46 mínútur þar til þyrlan fór á loft ÞYRLA LANDHELGISGÆSLUNNAR Stjórntæki í TF-LIF biluðu og varð hún að snúa við þegar þriggja minútna flug var á slysstað. sjóslys 46 mínútur liðu frá því að fyrsta neyðarkall barst frá Svanborgu SH á föstudag þar til staðfesting kom frá Land- helgisgæslu um að TF-LIF stærri þyrla Gæslunnar væri komin í loftið. Samkvæmt heimildum ríkir reiði meðal Ólafsvíkinga og björgunar- manna vegna þess hversu lang- an tíma tók að senda þyrluna. Alvarleg bilun varð í stjórn- tækjum þyrlunnar þegar hún átti eftir þriggja mínútna flug að slysstað og varð hún að snúa við. Hafsteinn Hafsteinsson, for- stjóri Landhelgisgæslunnar, segir að ekki hafi verið við þessa bilun ráðandi og ekki annað að gera en að snúa þyrlunni til baka. Hann segir að venjulegur viðbragðstími frá útkalli áhafnar á bakvakt þar til þyrla fari í loftið séu 30 mínútur. Veður var slæmt í Reykjavík þegar þyrlan tók á loft og hafði það áhrif á hve langan tíma tók að komast af stað. Hafsteinn segir að gaumgæfi- lega verði farið í gegnum atburðar- rásina. Áhöfnin er á bakvakt og Hafsteinn segir að miðað við eðlilegan viðbragðstíma myndi muna 20 mínútum á því hvenær þyrla fer á loft eftir útkall ef menn væru á vakt við hana. Veður seinkaði líka för varn- arliðsþyrlu, en Hafsteinn segir að hún hafi þegar í stað verið kölluð út. Venjulegur við- bragðstími varnaliðsþyrlu er klukkutími, en tvær þyrlur fóru frá varnarliðinu tveimur klukkutímum eftir útkall. Ingi Hans Jónsson, einn þeirra sem stjórnaði aðgerðum á slysstað seg- ir aðstæður hafa verið gríðarlega erfiðar. „Ég hef verið viðloðandi björgunarstörf í 25 ár og hef aldrei lent í öðru eins.“ haflidi@frettabladid.is 300.000 sólarferð með Urval-Útsýn f.yrir 300 kr. ? SímaLottó! Hringdu strax í 907-2000 Dreglfl alla fimmtudaga. Fylg*tu með ó RÚV. Ekki missa af vinningi!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.