Fréttablaðið - 10.12.2001, Blaðsíða 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
10. desember 2001 MÁNUDAGUR
SPURNING DAGSINS
Verða hvít jól?
Já, þau geta alveg orðið hvit. Ég vona það
allavega.
Ingibjörg Vigfúsdóttir skrifstofumaður.
Grafarholtið:
Byggja minni íbúðir
að kröfu markaðarins
nýbyccincar Byggingafyrirtækið
Járnbending hefur brugðist við
kröfu markaðarins með því að byg-
gja minni íbúðir en upphaflega stóð
til á byggingarsvæði sínu í Grafar-
holti. Sigurður Sigurgeirsson fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins segir
að fyrir vikið eigi þeir ekki í nein-
um erfiðleikum með að selja íbúðir
þar öndvert kannski við aðra sem
byggt hafa stórar íbúðir. Hann seg-
ir að fyrirtækið sé þegar búið að
byggja 35 íbúðir og selja þar allar
nema eina og sé þegar byrjað á 39
til viðbótar en alls hafa þeir lóðir til
VILHJÁLMUR Þ.
VILHJÁLMSSON
Segir R-listann
eiga sök á 60-
80% hækkun á
húsaleigu
að byggja 117 íbúð-
ir í Grafarholtinu.
Hann segir að
það sé misskilning-
ur að byggingafyr-
irtæki þurfi sér-
stakt leyfi frá
borgaryfirvöldum
til að byggja minni
íbúðir í fjölbýlis-
húsum en upphaf-
lega stóð til í
hverfinu. Aðalat-
riðið sé að halda
sig innan þess byggingarreits sem
GRAFARHOLT
Þeir sem hafa sniðið stærð (búða að kröfu markaðarins segjast ekki vera í neinum erfið-
leikum með að selja þær.
það hefur fengið úthlutað á grund-
velli útboðs. í því sambandi bendir
hann á að markaðurinn vilji 3 her-
bergja íbúðir sem séu um 90 fer-
metrar en ekki 120 fermetrar og 4.
herbergja sem séu rúmlega 100 fer-
metrar að stærð en ekki 130-150
fermetra stórar íbúðir. Á fundi
borgarstjórnar í gær gagnrýndi
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgar-
fulltrúi sjálfstæðismanna R-listann
harðlega fyrir lóðaskort og upp-
boðsstefnu á byggingarlóðum.
Hann sagði að þetta hefði leitt til
þess að byggingarkostnaður hafi
hækkað og söluverð íbúða auk þess
sem húsaleiga á almennum mark-
aði hafi hækkað um 60-80%. ■
Bandarískur vísindamaður:
Hlýnun á Mars
WASHINGTON. ap A reikistjörnunni
Mars eru stór svæði þakin eins
konar ís, sem reyndar er ekki
frosið vatn heldur frosinn koltví-
sýringur. Nú er komið í ljós, með
samanburði mynda sem teknar
voru 1999 og 2001, að þessi svæði
eru að minnka. Þetta bendir til
þess að andrúmsloftið á Mars fari
hlýnandi, og gæti sú þróun endað
með því að vatn verði á ný finnan-
legt á rauðu reikistjörnunni.
Þetta telur að minnsta kosti
bandaríski vísindamður Michal A.
Caplinger vera líklegt, en eftir
hann birtist í síðustu viku lærð
grein um málið í tímaritinu Sci-
ence.
Caplinger segir ennfremur, að
haldi þessi þróun áfram í þúsund-
ir ára, þá myndi það enda með því
að andrúmsloftið á Mars verði
býsna hagstætt mönnum. „Maður
þyrfti ekki lengur að klæðast
NORÐURPÓLLINN Á MARS
Á þessari mynd má greinilega sjá fsbreið-
una á norðurpólnum á Mars, sem reyndar
er ekki frosið vatn heldur frosinn koltvísýr-
ingur.
geimbúning, heldur væri nóg að
fara í frakka og nota súrefnis-
grímu,“ sagði hann. ■
Komdu og njóttu hátíðarstemningarinnar
i Smáralmd þarsem jólasveinarnir og yfir 70 verslj/jir
og þjónustuaðilar bjóða alla velkomna.
16:00-18:00 í Sumargarðínum bjóða jólasveinar
börnunum með sér í stuttar hestvagnaferðir.
Jóladagskráin í Vetrargarðinum í dag!
16:30 og 17:30 JÓlasagan lesin.
17:00 og 18:00 JÓlaSVeÍnarskemmta.
Ævintýraheimur barnanna í JÓlalandínu í allan dag.
Veröldin okkar er full af lífi og fjöri í dag og það sama
á við um göngugötuna þar sem tónlist harmonikku-
leikara skapar rétta jólaandann.
-RÉTTI JÓLAANDINN
Verslanir opnar (dag milli klukkan 11:00 og 20:00 • www.smaralind.is
OLfUBIRGÐASTÖÐ OLÍUFÉLAGANNA Á GRANDA
Eldsneytiskostnaður er einn stærsti þátturinn í rekstri heimila og fyrirtækja.
Brjóta olíufélögin
á neytendum?
Hagnaður olíufélaganna 1.540 milljónir á þremur mánuðum. Formaður
FIB segir margt benda til verðsamráðs hér á landi og vonar að Sam-
keppnisstofnun þurfi ekki á leynilegum fundargerðum að halda.
Risasektir í Skandinavíu á grundvelli hagfræðilegra raka.
olíudreifing Eftir að hægjast hef-
ur á falli krónunnar á síðari helm-
ingi ársins hafa íslensku olíufé-
lögin snúið tapi í svo ríflegan
hagnað að varla eru dæmi um við-
líka viðsnúning heillar atvinnu-
greinar í íslensku viðskiptalífi.
Samanlagt tap Olíufélagsins, Olís
og Skeljungs frá janúar til júní á
þessu ári var 541 milljón króna.
Má þar ætla að gengishrun krón-
unnar hafi ráðið mestu enda
borga félögin fyrir eldsneyti í er-
lendum gjaldmiðlum og fá greitt
fyrir í krónum. Næstu þrjá mán-
uði á eftir, frá júnílokum til sept-
emberlöka, högnuðust þau hins-
vegáf um 1.540 milljónir RriSna á
sama tíma og heimsmarkaðsverð
á olíu hefur náð nýjum lágmörk-
um.
, Runólfur Ólafsson, formaður
FÍB, segir að með-
alhlutur íslensku
olíufélaganna í
hverjum seldum
lítra af bílabens-
íni, miðað við
neysluverðsvísi-
tölu framreiknað
til dagsins í dag,
hafi verið 22 krón-
ur árið 1999, 24,36
krónur árið 2000
og 25,40 krónur
það sem af er ár-
inu 2001. Athygl-
isverðust sé þó
aukningin frá því í júní, en síðan
þá sé meðaltalshlutur félaganna
kominn í 27,88 kónur af hverjum
seldum lítra. Runólfur segir því
RUNÓLFUR
ÓLAFSSON
Hröð aukning á
álagningu er til
marks um litla
samkeppni.
HAGNAÐUR AF OLÍUDREIFINGU Á ÍSLANDI
3 ársfj. 2001 9 mán. 2001 6 mán. 2001 12 mán. 2000
Olíufélagið 789 485 -541 646
ÖÍÍs 309 112 -197 119
Skeljungur 442 402 -40 159
Samtals 1.540 1.000 -541 646
Allar tölur í milljónum króna
EYRÚN
INGADÓTTIR
Forsendur fyrir
lækkun á
díselolíu.
efni til að gagn-
rýna ummæli
Kristins Björns-
sonar, forstjöra
Skeljungs, í við-
tali við Morgun-
blaðið fyrir sköm-
mu þess efnis aö
hlutur , olíufélag-
anna hafi lækkað
um 5,8% á þremur
árum.
„Hann notaði
eingöngu tvö
verðhnit af 24 og taldi sig geta
fengið niðurstöðu af því. Á svipað-
an hátt væri hægt að fara 20 ár
aftur í tímann þegar ofurverð-
bólga geisaði hér, taka eitt verð-
bólguhnit og halda því svo fram
að verðbólga hafi lækkað gríðar-
lega á tímabilinu." Viðskiptaráð-
herra bættist nýlega í hóp þeirra
sem hafa sent erindi um málið til
Samkeppnisstofnunar.
„Það einkennir atvinnugreinar
þar sem samkeppni ríkir að þar
henda menn ekki óhikað gengis-
tapi og öðru beint út í verðiagið."
Ljóst sé að innra aðhald skorti og
að brýnt sé að taka upp sam-
keppniseftirlit af því tagi sem
þekkist í kringum okkur. „Sam-
keppnisyfirvöld í Skandinavíu
þurftu ekki að komast yfir leyni-
legar fundargerðir til að sýna
fram á nýlegt samráð olíufélaga í
Danmörku og Svíþjóð heldur voru
hagfræðileg rök tekin góð og
gild.“
Eyrún Ingadóttir, fram-
kvæmdastjóri Trausta, félags
sendibifreiðastjóra, er í sam-
starfshóp félaga atvinnubílstjóra
og FÍB um verðlagningu á elds-
neyti. „Við hittumst eftir síðustu
mánaðarmót þegar ljóst var að
ekkert olíufélaganna myndi
lækka díselolíu til jafns við
skipagasolíu. Þróun þeirra teg-
unda hefur að jafnaði verið mjög
áþekk.“ Hún segir að sendibíl-
stjórar sætti sig ekki við skýring-
ar Gunnars Kvaran hjá Skeljungi,
en hann svaraði fyrirspurn þeirra
á þá leið að sérstakt efni væri sett
f olíuna vegna vetrarkulda. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Samtök-
um iðnaðarins var mismunurinn á
díselolíuverði hér og í Bandaríkj-
um, mælt í dollurum, 36% í sept-
ember á síðasta ári en 55% í síð-
asta mánuði. Á grundvelli þessa
beina samtökin þeim tilmælum til
Samkeppnisstofnunar á heima-
síðu sinni að hún hraði rannsókn
sinni.
matti@frettabladid.is