Fréttablaðið - 10.12.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KIÖRKASSINN
JAFNTEFLI
Kjósendur á visi.is
skiptast (jafna hópa í
afstöðunni til þess
hvort launþegar eigi að
færa fórnir vegna nýrrar
þjóðarsáttar.
Eiga launþegar að taka á
sig skerðingu vegna nýrrar
þjóðarsáttar?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Spurning dagsins í dag:
Finnst þér að áhöfn þyrlu Gæslunnar
eigi að vera á vakt eða bakvakt allan
sólarhringinn?
Farðu inn é vísi.is og segðu I
þína skoðun —
____________cgrara
Strand við
Öndverðarnes:
Fórust með
Svanborgu
sjóslys Lík eins skipbrotsrtemns af
Svanborgu SH fannst við leit á
laugardag. Hann hét Sæbjörn
Vignir Ásgeirsson, skipstjóri,
Ennisbraut21, Ólafsvík. Hann var
fertugur og lætur eftir sig eigin-
konu og þrjú börn.
Tveggja er saknað og eru þeir
taldir af. Þeir hétu Vigfús Elvan
Friðriksson til heimilis að Brúar-
holti 5, Ólafsvík, 48 ára og Héðinn
Magnússon til heimilis að Vall-
holti 7, Ólafsvík 31 árs. Héðinn
var uppeldissonur Vigfúsar Frið-
rikssonar. Þeir voru báðir fjöl-
skyldumenn.
Leit á sjó var hætt við myrkur
í gærkvöldi en fjörur voru áfram
gengnar í nótt. ■
—-♦—
Innherjaviðskipti:
Ráðherra vill
breyta refsiá-
kvæðum
2
10. desember 2001 MÁNUDAGUR
Harðir bardagar í grennd Tora Bora:
Kandahar aftur á valdi gamla harðstjórans
BANDAMENN í AFGANISTAN
Tveir rússneskir sendimenn ræða þarna við bandaríska hermenn á herflugvellinum í Bag-
hram í Afganistan, norður af Kabúl.
TORA BORA. ISLAMABAD. AP Banda-
rískar sprengjur féllu á fjallshlíð-
arnar umhverfis þorpið Tora Bora
í austurhluta Afganistans í gær.
Tilgangurinn var að veikja varnir
A1 Kaída samtakanna, sem þar
verjast enn, og undirbúa þannig
landhernað afganskra hersveita.
Ekkert er vitað hvar Osama bin
Laden er niðurkominn. Sumir
segja hann enn staddan í fjöllun-
um umhverfis Tora Bora, og jafn-
vel hafa borist fréttir af því að
hann berjist þar í fremstu víglínu.
Aðrir telja hann í felum norðan
við Kandahar, eða farinn úr landi.
Stríðsherrar, sem deilt hafa um
yfirráð í Kandahar, komust að
samkomulagi í gær um að Gul
Agha, sem hélt uppi ógnarstjórn
þar áður en talibanar tóku völd,
muni stjórna borginni í samvinnu
við bráðabirgðastjórnina næstu
mánuðina. Þrátt fyrir ógnarstjórn
talibana í borginni, óar sumum
íbúum hennar þó við endurkomu
Aghas.
Ágreiningur og vantraust milli
afganskra stríðsherra og ættar-
höfðingja setja stóran svip á
ástandið í Afganistan. „Ástandið
er orðið aftur eins og það var áður
en talibanarnir komu,“ sagði
Michael Kleiner, talsmaður Rauða
krossins í Kabúl. „Nú eru komnir
vegatálmar alls staðar." Hann
sagði a.m.k. 15 vegatálma vera á
u.þ.b. 110 km leið frá Kandahar til
landamæra Pakistans, en vopnað-
ir stríðsmenn stunda þetta og
hleypa engum í gegn sem þeim er
ekki þóknanlegur. ■
Skelfílegt að
búa við þetta
Fjölskylda í Grafarvogi í herkví síbrotamanns, sem á barn og barnsmóð-
ur á heimilinu. Fjölskyldufaðirinn segir lögregluna ekkert vilja aðhafast.
HEIFT
ísraelskur hermaður hljóp til í gær og
reyndi að koma í veg fyrir að ísraelsk kona
berði palestínska konu í bænum Hebron á
Vesturbakkanum.
herkví „Það er skelfilegt að búa
við þetta,“ segir Baldvin Óskars-
son, fjölskyldufaðir í Grafarvogi.
Síbrotamaður, sem á fjögurra
mánaða barn með fósturdóttur
Baldvins, hefur haldið fjölskyld-
unni í herkví mánuðum saman og
hefur fimm sinnum brotist inn á
heimilið og valdið skemmdum á
heimilinu og bíl fjölskyldunnar. Á
fimmtudagskvöld hótaði hann að
koma á heimilið og skjóta Baldvin
með haglabyssu og hefur áður, að
sögn Baldvins, hótað að vinna
barninu og móður þess mein.
Baldvin segist taka hótanirnar al-
varlega enda hafi þær sífellt færst
í vöxt og orðið alvarlegri, einkum
í sinn garð.
Baldvin segist ítrekað hafa lagt
fram kærur til lögreglunnar bæði
vegna innbrotanna, skemmdar-
verkanna og hótananna en segist
hafa orðið fyrir miklum vonbrigð-
um með það aðgerðar- og skiln-
ingsleysi sem hann hefur mætt
hjá yfirmönnum lögreglunnar.
Sigrún Pálmadóttir, sambýlis-
kona Baldvins, segist m.a. hafa
fengið þau svör frá fjarskipta-
þjónustu lögreglunnar þegar hún
hefur hringt þangað vegna inn-
brota mannsins að dóttir sín geti
sjálfri sér um kennt að hafa lagt
lag sitt við þennan mann og lög-
reglan fari að hætta að sinna sí-
felldum kvörtunum fjölskyldunn-
ar. Baldvin segir að löglærðir
starfsmenn lögreglunnar telji
ekki tilefni til að úrskurða mann-
inn í nálgunarbann á fjölskylduna
eða grípa til annarra aðgerða.
f HERKVf
Baldvin hefur sett slagbrand fyrir útidyr heimilisins til að verja það innrásum.
Baldvin segir að fjölskyldan
búi við umsátursástand og þau
hjónin hafi sífelldar áhyggjur ef
þau fara að heiman. „Ég hef sér-
staklega áhyggjur af því hvaða
áhrif þetta hefur á börnin," segir
Baldvin. „Það er skelfilegt að búa
við þetta. Yngsta telpan, sem er 10
ára, er svo skelfingu lostin að hún
kemur upp í til okkar á næturna ef
hún heyrir í bíl út á plani.“
Baldvin hefur smíðað slagbrand
fyrir útihurðina til að yngri börnin
geti sofið róleg á nóttunni og sett
upp öryggiskerfi frá Securitas.
Hann segir að lögmaður sinn hafi
ráðlagt sér að stefna lögreglunni
fyrir aðgerðarleysi í málinu. ■
Átökin halda áfram:
Sharon
boðcir frekari
hernað
haífa. ap Ekkert lát er á átökum
Israelsmanna og Palestínumanna,
og létu sex manns lífið í gær.
Palestínumaður svipti sig lífi með
sprengju í bænum Haífa í ísrael í
gær. Ellefu manns særðust, en eng-
inn þeirra alvarlega. ísraelska lög-
reglan segir manninn hafa ætlað að
valda meira tjóni. Þá hélt ísraelski
herinn inn í bæinn Anabta á Vestur-
bakkanum og skiptist þar á skotum
við palestínska lögreglumenn, með
þeim afleiðingum að fjórir þeirra
létust. Þá skutu ísraelskir hermenn
á palestínskan leigubílstjóra ná-
lægt þorpinu Jenín. Maðurinn lést,
en hermennirnir sögðu hann hafa
ætlað að fara inn í þorpið, sem ísra-
elski herinn hefur lokað. Jasser
Arafat, leiðtogi Palestínumanna,
segist hafa handtekið 17 af þeim 33
mönnum, sem ísraels vilja láta
handtaka vegna sjálfsmorðsárás-
anna í Haífa og Jerúsalem, sem
urðu 26 manns að bana í byrjun
mánaðarins. Hann segist vilja allt
gera til að halda frið við ísraels-
menn, en ísraelskir ráðamenn segj-
ast ekki treysta honum og Ariel
Sharon forsætisráðherra boðar
frekari hernað á hendur Palestínu-
mönnum. ■
f
I
Breytingar á blaðamarkaði:
Frjáls ljölmiðlun selur hlut sinn í DV |
innherjaviðskipti „Ráðherra er
ekki sammála þeirri túlkun laga
um verðbréfaviðskipti sem leiddi
að sýknun," sagði Jónína Lárus-
dóttir, lögfræðingur í viðskipta-
ráðuneytinu og formaður nefnd-
ar um breytingu á verðbréfalög-
um, spurð um ástæðu stjórnar-
frumvarps sem lagt hefur verið
fram á Alþingi um breytingu á
refsiákvæðum í lögum um verð-
bréfaviðskipti. Héraðsdómur
komst nýlega að þeirri niður-
stöðu að Gunnar Scheving Thor-
steinsson, fyrrum stjórnarmaður
í Skeljungi, hafi ekki brotið af sér
þegar hann hagnaðist á kaupum
bréfa félagsins eftir að hafa
fengið trúnaðarupplýsingar á
stjórnarfundi.
„Af ýmsum ástæðum þótti
ásetningur ekki nægilega sann-
aður í þessu máli, en í frumvarp-
inu er hinsvegar tekinn af allur
vafi um að gáleysi í innherjavið-
skiptum dugar til sakfellingar.“
Ýmsar málsbætandi ástæður
verði því síður teknar til greina.
Ríkissaksóknari ákvað að áfrýja
ekki sýknudóminum til Hæsta-
réttar. ■
fjölmiðlar Frjáls fjölmiðlun hefur
selt hlut sinn í Útgáfufélagi DV,
sem gefur út samnefnt síðdegis-
blað, til fjárfestingarfélagsins
Esóbs. Samningur þar um tekur
gildi næstkomandi miðvikudag.
DV, og forveri þess Dagblaðið,
var næst útbreiddasta blað lands-
ins frá stofnun 1975 allt þar til á
þessu ári að Frjáls fjölmiðlun hóf
útgáfu Fréttablaðsins. Áætluð
ársvelta DV er um 1.100 milljónir
króna eða um 45 prósent af heild-
arveltu Frjálsrar fjölmiðlunar og
dótturfyrirtækja.
Frjáls fjölmiðlun seldi fjár-
festingarfélaginu Esób 40 pró-
sent hlut í DV síðastliðið vor.
Esób kaupir nú afganginn; 60 pró-
sent. í sameiginlegri tilkynningu
félaganna er kaupverðið sagt
trúnaðarmál. Sveinn R. Eyjólfs-
son, stjórnarformaður Frjálsrar
fjölmiðlunar, vildi ekki tilgreina
hvert kaupverðið er, en sagði það
mjög vel ásættanlegt. í kvöld-
fréttum Ríkissjónvarpsins í gær
kom fram að DV hefði í viðskipt-
unum verið metið á um 1.200
milljónir króna.
Fjárfestingarfélagið Esób er í
eigu Einars Sigurðssonar heitins
Einarssonar ríka úr Eyjum, föð-
urbróður hans, Ágústs Einarsson-
ar, prófessors og fyrrverandi
þingmanns, Óla Björns Kárason-
ar, ritstjóra DV og Hjartar Niel-
sen, framkvæmdastjóra heildsöl-
unnar ísólar.
Að sögn Eyjólfs Sveinssonar,
framkvæmdastjóra Fi-jálsrar fjöl-
miðlunar og stjórnarformanns
Fréttablaðsins, mun Frjáls fjöl-
miðlun nú einbeita sér að þeim
miklu breytingum sem framund-
an eru í íslensku fjölmiðlaum-
hverfi. Fyrirsjáanlegur er frekari
vöxtur Fréttablaðsins, sem sam-
kvæmt nýlegri fjölmiðlakönnun
Gallup er lesið af 65 prósent íbúa
á höfuðborgarsvæðinu eldri en 25
ára. Jafnframt mun Frjáls fjöl-
miðlun einbeita sér að frekari
uppbyggingu vefsvæðanna Vís-
ir.is og Leit.is, auk þeirra 25 fyrii--
tækja í fjölmiðlun og upplýsinga-
fjölmiðlar Sveinn R. Eyjólfsson
og Óli Björn Kárason sendu frá
sér svohljóðandi yfirlýsingu í
gær: „Tekist hafa samningar
milli Frjálsrar fjölmiðlunar ehf.
og Fjárfestingarfélagsins ESÓB
ehf. um kaup Jjess síðarnefnda á
60% hlut í Ótgáfufélaginu DV
ehf. í apríl síðastliðnum keypti
ESÓB 40% hlut í Útgáfufélaginu
tækni, sem Frjáls fjölmiðlun á
hlut í.
Fréttablaðið náði ekki tali af
Óla Birni Kárasyni, talsmanni
Esóbs, í gærkvöldi.
Sameiginleg yfirlýsing
Frjálsrar fjölmiðlunar og Esóbs
er birt hér að neðan. ■
DV af Frjálsri fjölmiðlun og
hafa aðilar nú náð samkomulagi
kaup ESÓB á öllum hlutabréfum
Útgáfufélagsins. Samningurinn
tekur gildi miðvikudaginn 12.
desember næstkomandi, en þá
er gert ráð fyrir að fjármögnun
hans verði lokið. Kaupverð er
trúnaðarmál milli samningsað-
ila.“ ■
Yfirlýsing um sölu á DV:
Samningar tekist um sölu