Fréttablaðið - 10.12.2001, Síða 22
FRÉTTABLAÐIÐ
10. desember 2001 MÁNI/DAGUR
SONUR VIKUNNAR
Michael Biggs, sonur hins alræmda lestar-
ræningja Ronnie Biggs, var hnugginn þeg-
ar hann tapaði máli í dómi í London í síð-
ustu viku. Michael, sem er brasilískur ríkis-
borgari, vildi fá landvistarleyfi í Bretlandi til
að geta verið við hlið föður síns, sem er
undir ströngu eftirliti. Hann sagði það
ómannúðlegt að aðskilja þá feðga. Ronnie
Biggs er við mjög slæma heilsu eftir þrjú
slög og getur aðeins tjáð sig með því að
rymja. Michael segist vera sá eini, sem get-
ur skilið hann. ■
22
Bandarísk könnun:
Imynd bandarískra
múslima hefur batnað
new york.ap ímynd bandarískra
múslima hefur batnað lítillega í
augum landa þeirra eftir hryðju-
verkaárásirnar á Bandaríkin. Er
það ekki sú þróun sem búist
hafði verið við, að því er kemur
fram í nýlegri bandarískri könn-
un. 59% Bandaríkjamanna höfðu
jákvætt viðhorf til múslimskra
landa sína í nóvembermánuði
samanborið við 45% í mars.
Repúblikanar i landinu, sem
löngum hafa verið taldir íhalds-
samir, sýna mestu breytinguna í
skoðunum. 64% þeirra líta já-
kvæðum augum á bandaríska
múslima á móti 35% í mars.
„Könnunun sýnir það svart á
hvítu að Bandaríkjamenn eru að
hlýða kalli George Bush, for-
seta, um aukið umburðarlyndi," Q
segir höfundur könnunarinnar. |
Er Bandaríkjamenn voru |
spurðir að því hvers vegna þeir
héldu að hryðjuverkaárásirnar
hafi verið gerðar á landið, sögðu
49% að stjórnmálaskoðanir
væru ástæðan á meðan 30%
sögðu að trúarástæður hefðu
verið á bak við verknaðinn. 85%
MÚSLIMAR
Múslimskar stúlkur sitja að snæðingi. Svo virðist sem múslimar í Bandaríkjunum séu ekki
litnir jafnmiklu hornauga og búist hafði verið við i Bandaríkjunum.
svarenda sögðust styðja árásirn- inn hefði lagt of lítið af mörkum
ar á Afganistan en 25% sögðu til að forðast lát óbreyttra borg-
aftur á móti að bandaríski her- ara í landinu. ■
Raf-
geyma
þjónusta
VELALAIMD
VÉLASALA • TÚRBÍNUR
UARAHLUTIR * VIÐGERÐIR
I/agnhöfði 21 • 110 Reykjavík
Sími: 577 4500
velaland@velaland.is
„Hvað er ein bók á milli vina?“
Vinirnir Diddú og Björgvin Halldórsson eru að leiða saman hesta sína á tveimur sviðum
fyrir þessi jól, á plötumarkaðinum og bókamarkaðinum. Það er því ekki aðeins tími til
þess að syngja, heldur líka staldra við og riíja upp. Þau lofa að 99% af því sem komi f
ram sé hreinn sannleikur.
DIDDÚ OG BJÖRGVIN
Diddú segir það að ákveða hversu miklu hún vildi deila með þjóðinni hafa verið erfitt,
Björgvin virðist þó vera óhræddari við að láta allt flakka.
tónlist Maður hefði talið það
verk að koma auga á Bó & Co
auðvelt á jafn litlum stað og á
Vegamótum. En þegar inn var
komið bólaði ekkert á honum né
Diddú. í örvæntingu minni sá ég
svo að öll borð voru mönnuð þan-
nig að þegar þessi tvö af þekktari
andlitum klakans mættu á svæð-
ið væri það mitt fyrsta verk að
leiða þau á annan stað. Skyndi-
lega kallar kunnulega rödd að
ofan nafn mitt og á efri hæðinni,
sem vanalega er lokuð, veifar Bó
til mín um að koma upp. „Önnur
hæðin opnar alltaf þegar við
komum á svæðið," er það fyrsta
sem hann segir þegar ég kem
mér fyrir við borðið við hlið hans
og Diddúar. Er eitthvað eðlilegra
en að skrifa bækur um svona
menn?
„Mér fannst nú fyrst ekkert
vera kominn tími á bók en svo
þegar ég fór að rifja upp ferilinn
fannst mér ágætt að fá að tappa
af þessum köflum í lífinu,"
svarar Diddú aðspurð um tilurð
bókar sinnar. Sjálf er hún sögu-
maður, Súsanna Svavarsdóttir er
söguritari og Guð almáttugur lík-
legast höfundur. „Þegar maður
eldist man maður hluti í allt öðru
ljósi heldur en á meðan þetta er
svona ferskt í hausnum, þannig
að ég sló til. Ég vildi gera þetta
núna af því að ég er búin að
ákveða að taka mér hlé frá allri
útgáfustarfsemi í óákveðin
tíma;“
„Ég vil ekki kalla bókina mína
ævisögu, heldur ævispegil,“ seg-
ir Bó. „Þetta er eins og hasarblað,
það eru myndir með hverjum
texta og talað mikið við sam-
ferðamenn. Þetta er saga af strák
sem fæddist í Hafnafirði og datt
inn í þennan bransa, fyrir
slysni.“ Hann stoppar við það að
Diddú flissar léttilega. „Þarna
koma allar hetjurnar fram, Lúdó
& Stefán, Raggi Bjarna og Alfreð
Clausen."
Þar sem Diddú og Björgvin
hafa unnið náið saman í gegn-
um árin (hann hefur t.d. stjórn-
að upptökum á 5 síðustu plötum
hennar) hefði maður haldið að
þau kæmu fram sem aukaper-
sónur í bókum hvors annars.
„Ég held að ég tali nú ekkert um
Björgvin í bókinni!" segir
Diddú og brosir. Hér verður
Björgvin auðséð hissa og tekur
það fram að hún hafi ekki einu
sinni sagt honum frá sinni bók
þegar þau tóku upp nýju plöt-
una hennar, þrátt fyrir að hún
vissi vel af hans. „Hvað er ein
bók á milli vina?“ spyr Diddú,
fær sér sopa af kaffinu og hlær
svo dátt með vini sínum að sér-
visku sinni.
biggi@frettabladid.is
w
FRÉTTIR AF FÓLKI
r Leiðangur
Vilhjálms Stefánssonar
Árið 1913 stóð Vilhjálmur Stefánsson
landkönnuður fyrir metnaðarfullum leiðangri norður
í Ishaf, 17. júní það ár lagði skipið Karluk upp frá
Kanada. Sex vikum síðar var heimsskautsveturinn
skollinn á, skipið teppt i ís og leiðangursstjórinn á bak
og burt. Með því að nýta sér dagbækur
skipbrotsmannanna hefur Jennifer Niven tekist að
endurskapa atburðarrás þessa afdrifaríka leiðangurs
og örvæntingarfullar tilraunir skipbrotsmanna til að
komast heim úr auðnum norðursins. Þeir sem komumst
lífs af urðu aldrei samir. Þessi kynngimagnaða
mannraunasaga lætur engan ósnortinn.
PP FORLAG
Vladimir Putin, forseti Rúss-
lands, mun sækja ísland heim
og sitja Reykjavíkurfund utanríkis-
ráðherra NATÓ í maí ef marka má
upplýsingar sem fram komu í rúss-
nesku sjónvarpi um helgina. Það
verður því margt stórmenna hér-
lendis þessa daga í maí. Auk Putins
og Halldórs Ásgrímssonar gista þá
landið Colin Powell, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, Joschka
Fischer, utanríkisráðherra Þýska-
lands, og Jack Straw, utanríkisráð-
herra Breta, svo fáeinir séu nefnd-
ir. Áætlun fjárlaga gerir ráð fyrir
að það kosti skattgreiðendur 340
milljónir króna að fá þessa herra-
menn í heimsókn.
Oli ’lVnes, er á förum frá frétta-
stofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar.
Það verður sjónarsviptir að Óla,
sem hefur flutt erlendu fréttirnar
af svo mikilli innlifun að hún hefði
varla verið meiri þótt hann sjálfur
hefði verið á vettvangi í Afganistan
eða ísrael. Hann hefur af hug-
kvæmni reynt að vinna upp ann-
marka fjarlægðarinnar frá atburð-
unum og orðið trúverðugur stríðs-
fréttaritari standandi í kakískyrtu
fyrir framan landakortið. Starfslok
Ola bætast við þann missi sem Stöð
2 hefur orðið fyrir með brotthvarfi
Páls Magnússonar, Sigmundar Ern-
is Rúnarssonar, Eggerts Skúlasonar
og Kristjáns Más Unnarssonar.