Fréttablaðið - 12.12.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTABLAÐIÐ
12. desember 2001 MIÐVIKUDACUR
Svæðisskrifstofa
málefna fatlaðra á
Reykjanesi
EINSTAKT TÆKIFÆRI!
VILT ÞÚ STÝRA NÝJU
TILRAUNAVERKEFNI FYRIR
UNGLINGA MEÐ FÖTLUN ?
Við á Svæðisskrifstofunni leitum að áhugasömum
þroskaþjálfa eða einstaklingi sem hefur áhuga á að stýra
nýju tilraunaverkefni. Verkefnið felst í að þróa tómstunda-
starf fyrir unglinga með fötlun í félagsmiðstöð í Gerðu-
bergi í Breiðholti. Um er að ræða 50% stöðu. Vinnutími er
frá kl. 12.30 til 16.30 alla virka daga.
• Spennandi verkefni
• Sjálfstæði í starfi
• Ábyrgð og tækifæri til að vaxa í starfi
Boðið er upp á öflugan faglegan stuðning, þjálfun og
námskeið fyrir nýjan starfsmann.
Við bjóðum laun samkvæmt gildandi kjarasamningum
Þ.í. og S.F.R. sem meðal annars tryggja rétt til sumaror-
lofs og veikinda. Reyklaus vinnustaður.
Upplýsingar um ofangreint starf eru veittar í síma 525-
0900 á skrifstofutíma. Umsóknarfrestur er til og með 27.
des. nk. Ráðning getur hafist strax eða eftir samkomulagi.
Umsóknareyðublöð eru á skrifstofunni að Digranesvegi 5
í Kópavogi og á vef Svæðisskrifstofu á Netinu
http://www. smfr. is
Í3LAND
Vantar starfsfólk
í dagvinnu
/ boði eru nokkur störf við ræstingar á daginn.
Dagvinna á hjúkrunarheimili f Kópavogi,
vinnutími 10:00 - 16:00 fimm daga vikunnar.
/ janúar höfum við í boði störf við ræstingar
á nýju hjúkrunarheimili í Reykjavík.
í boði er eftirfarandi vinnutími:
klukkan 08:00- 12:30
klukkan 16:00 - 19:30
klukkan 08:00 - 16:00
í þessum störfum er unnið aðra hverja helgi.
Vantar fólk á skrá fyrir hlutastörf
Viljum bæta við fólki á skrá hjá okkur sem
leitar að hlutastarfi seinni partinn og á kvöldin.
Upplýsingar veitir Ólöf starfsmannastjóri.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu ISS ísland að
Ármúla 40, 3.hæð.
Sími 5 800 600. Netfang: olof@iss.is.
Verkstjórnarnámskeið
■tíó
ætlað ollum verkstjórnendum, bœðl nýlum
ilU.
og þeim sem vllja bæta námi vlð reynsl
Vorkstjórnarfraoðslan á Iðntæknlstofnun býr yfir
meira en þriggja áratuga reynslu við fræðslu verkstjórn-
enda. Námsþættirnir eru alls yfir 20. Meðal þeirra eru:
- Almenn samskipti - Hvatning og starfsánægja
- Samningatækni - Valdframsal
- Áætlanagerð - Stjórnun breytinga
Námskeiðið er samtals 90 stundir og skiptist í tvo hluta.
Fjögur námskeið verða á vorönn og hefjast T.Janúar,
4. nbrúar, 4. mars og 15. april.
Nánari upplýsingar og skráning
hjá Iðntmknlstofnun í slma 570 7100
og á vefsíöu okkar www.ltl.la %
ai á mi 1 M I
NAM SKEID AumuaiKjii .... •»— ■ 1 l(lnl<»»Knblolmin
i
Framsókn í Hafnarfirði:
Framboðslisti í næsta mánuði
framboðsmál Framsóknarmenn í
Hafnarfirði hafa einsett sér að verða
búnir að ganga frá framboðslista sín-
um fyrir komandi kosningar til sveit-
arstjórna fyrir lok næsta mánaðar.
Ingvar Kristinsson nýkjörinn for-
maður fulltrúaráðs framsóknarfé-
laga í Hafnarfirði segir að búið sé að
skipa í uppstillingarnefnd sem hefur
það verkefni að kanna vilja fólks til
að gefa kost á sér. Ef það verða marg-
ir sem keppa um sömu sætin þá verð-
ur viðhöfð skoðanakönnun innan full-
trúaráðsins þar sem sitja 60 manns.
Þorsteinn Njálsson bæjarfulltrúi
framsóknarmanna í Hafnarfirði hef-
ur ákveðið að gefa kost á sér til end-
urkjörs en óvíst er hvað Guðrún
Hjörleifsdóttir gerir en hún skipaði
annað sætið við síðustu kosningar. Þá
hefur fyrrverandi formaður fulltrúa-
ráðsins, Hildur Helga Gísladóttir
ákveðið að gefa kost á sér í eitt af
þremur sætunum en hún skipaði þrið-
ja sætið síðast. Fyrirfram er ekki bú-
ist við því að Þorsteinn fái mótfram-
boð gegn sér í fyrsta sætið. ■
INCVAR KRISTINSSON
Segist vera ánægður með
meirihlutasamstarfið með
sjálfstæðismönnum í
bæjarstjórninni.
Tvær konur greiddu
atkvæði gegn frestun
Formaður Vökuls í HornaQarðarbæ og varaformaður Verkalýðsfélagsins á
Húsavík. 45 sögðu já og 11 sátu hjá í atkvæðagreiðslu um frestun á uppsögn
launaliðar. Víða óánægja hjá verkafclki.
-—♦-—
Stjórnvöld eru
sökuð um að
hafa ekki sýnt
vilja til að
gera eitt eða
neitt nema að
auka álögur.
kjarasamningar Tvær konur greiddu
atkvæði gegn frestun á uppsögn
launalið kjarasamninga á formanna-
fundi ASÍ í fyrrdag. Það voru þær
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formað-
ur stéttarfélagsins Vökuls í Horna-
fjarðarbæ og Kristbjörg Sigurðardótt-
ir varaformaður Verkalýðsfélags
Húsavíkur. Alls greid-
du 45 atkvæði með
frestun en 11 sátu hjá.
Hins vegar voru á ann-
an tug fundarmanna
búnir að yfirgefa fund-
arstaðinn þegar at-
kvæði voru greidd
með handauppréttingu
að gömlum verkalýðs-
sið. Nokkur óánægja
er þegar farin að gera vart við sig
meðal félagsmanna í einstökum
verkalýðsfélögum og m.a. er vitað um
að formenn hafi fengið tölvupóst og
skeytasendingar þar sem mótmælt er
þessari afstöðu verkalýðshreyfingar-
innar í stað þess að nýta rétt sinn til að
semja um hærri laun.
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir foi'-
maður Vökuls segir að það hefði ekk-
ert annað komið til greina en að greiða
atkvæði gegn þessari frestun á upp-
sögn á launalið kjarasamningsins.
Hún bendir einnig á að í fyrra hefði
kjarasamningurinn verið samþykktur
með naumum meirihluta í Vökli. Þá
telur hún að það sé einhvern veginn
ekkert nýtt í þeim hugmyndum og til-
lögum sem lagðar voru fram á fundin-
um til að slá á verðbólguna. Hún er
heldur ekki hrifinn af því að verka-
lýðshreyfingin eigi að koma ríkis-
stjórninni til hjálpar þegar hún er al-
gjörlega búin að klúðra sínum málum.
Sérstaklega þegar haft sé í huga að
forusta ASÍ sé búin að ræða við stjórn-
völd af og til á árinu um aðgerðir til
úrbóta. Þá séu stjórnvöld búin að vita
af uppsagnarákvæði kjarasamnings-
ins í eitt og hálft ár án þess að hafa
sýnt nokkurn vilja til að gera eitt eða
formannafundur así
Staðhæft er að ótti við vaxandi atvinnuleysi og verðbólgu hafi átt stærstan þátt í því meirihluti for-
manna aðildarfélaga ASÍ vildi fresta uppsögn á launalið kjarasamninga um þrjá mánuði.
neitt nema að koma með nýjar álögur
á launafólk í tengslum við fjárlög
næsta árs.
Aðalsteinn Á. Baldursson formaður
Verkalýðsfélagsins á Húsavík segir að
varaformaður félagsins hefði greitt
atkvæði á fundinum í samræmi við
sína persónulegu skoðun en hann sat
hja. Hann segist ekki hafa haft umboð
til annars fyrst ekki náðist samstaða
um að segja launaliðnum upp.
grh@frettabladid.is
Nýtt lagafrumvarp um Ibúðalánasjóð:
Skuldir sveitarfélaga afskrifaðar
íbúðalánasjÓður Foisvarsmenn
skuldsettra sveitarfélaga fagna
frumvarpi sem heimilar Ibúðalána-
sjóði að semja um afskriftir hluta
skulda þeirra við sjóðinn. Páll Pét-
ursson, félagsmálaráðherra, mælti
fyrir frumvai’pinu á Alþingi í gær.
Páll sagði í raun verið að færa íbúða-
lánasjóði svipaðar heimildir í lögum
og aðrar lánastofnanir hafi. Þá gæti
tenging afskrifta við greiðslu hluta
skulda verið greiðsluhvetjandi og að
með lögfestingu heimildarinnar
væri því í raun verið að tryggja
hagsmuni íbúðalánasjóðs. Þingmenn
stjórnarandstöðu fögnuðu frum-
varpinu og töldu að þessi leið gæti
PÁLL PÉTURSSON
Félagsmálaráðherra mælti
í gær á Alþingi fyrir nýju
lagafrumvarpi sem heimil-
ar íbúðalánasjóði að af-
skrifa hluta skulda sveitar-
félaga vegna félagslega
íbúðakerfisins.
orðið til að minnka tap íbúðarlána-
sjóðs vegna skuldsetningar sveitar-
félaga.
Ætla má að kostnaðaráhrif frum-
varpsins verði veruleg. Að mati
Hauks Más Sigurðarsonar, bæjarfull-
trúa í Vesturbyggð þyrfti aó afskrifa
um 60 prósent skulda sveitarfélags-
ins við íbúðalánasjóð, eða um 2-30í
milljónir króna, til að félagslega íbúo
arkerfið yrði í'ekstrarhæft. „í raun
veruleikanum eru þessar tölur löngu
afskrifaðar,“ sagði hann en bætti viö
að einungis hafi vantað lagaheimild
til að þókfæra afskriftirnar, en þeim
hafi íbúöalánasjóður safnað í af-
skriftasjóð hjá sér. Haukur sagðist
fagna frumvarpinu. „Kei’fið er í end-
urskoðun og það þarf með einhverj-
um hætti að taka á þessu á landsvísu,
ekki með sértækum hætti,“ sagði
hann og taldi félagslega íbúðakerfið í
vanda statt víða um land, ekki bara á
Vestfjörðum. ■