Fréttablaðið - 13.12.2001, Page 1
FÓLK
Stærsta
jólagjöfin í ár
bls 22
NAUNGINN
Takmark eða
leið að takmarki?
bls 18
J>—
MCCARTNEY
Styður hernað
í Afganistan
*
HYUNDAI Multidp)
Total IT Solution Provider
bls 4
éik
Hagkvæm og traust tölva
OTÆKNIBÆR Skipholti 50C
S: 551-6700 www.tb.is
Umboðsaðíli HYUNDAI á Islandi
FRETTABLAÐIÐ
165. tölublað - 1. árgangur
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Fimmtudagurinn 13. desember 2001
PIMWITUBAGUR
Þingmenn fá
handfrjálsa gjöf
örycci Slysavarnafélagið Lands-
björg gefur öllum þingmönnum
handfrjálsan búnað fyrir GSM-
síma við Alþingishúsið kl. 9.30.
Þetta er gert í tilefni þess að nú er
skylt að nota slíkan búnað þegar
talað er í síma við akstur.
Borgardætur með
jólatónleika
tónleikar Borgardæturnar Ellen
Kristjánsdóttir, Andrea Gylfadóttir
og Berglind Björk Jónasdóttir
halda jólatónleika á Nasa við Aust-
urvöll kl. 21.
Breiðhyltingar fara
í Miðbæinn
ferðalag Nemendur Fella- og Hóla-
brekkuskóla hafa spilað félagsvist
við eldri borgara í Breiðholti í vet-
ur. í dag fara spilafélagarnir saman
í fræðsluferð undir leiðsögn lög-
reglumanna og er förinni heitið í
Miðborgina að horfa á jólaljósin og
anda að sér jólastemmningunni.
Komið verður við í Dómkirkjunni
þar sem hópurinn tekur lagið.
IVEÐRIÐ í PAC |
REYKJAVÍK
Suðaustan 10-15 m/s og
þokusúld með köflum.
Hiti 4 til 8 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
ísafjörður O 10-15 Súld Q 8
Akureyri © 5-8 Léttskýjað Q 6
Egilsstaðir Q 8-13 Súld Q6
Vestmannaeyjar Q 10-15 Þokusúld Q7
Jólin nálgast í
Hæstarétti
pómstólar Hæstiréttur kveður upp
dóma kl. 16. í dag eru einnig flutt
mál fyrir réttinum í síðasta sinn
fram til 9. janúar á næsta ári.
1KVÖLPIÐ i KVÖLP(
Tónlist 18 Bió 16
Leikhús 18 Iþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára
íbúar á bKfnA-65,8%
borgarsvæð-
inu í dag?
Meðallestur 25 til 49
ára á fimmtudögum
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2001
70.000 eintök
65% fólks les blaðið
MEÐALLESTUR FÓLKS A ALDRINUM 25 TIL 80 ÁRA Á
HÖFUÐBORGARSWEÐINU SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP I OKTÓBER 2001.
Engin prófkjör
hjá R-listanum
Vinstri-grænir verða með. Sigrún Magnúsdóttir sögð á útleið og Anna
Kristinsdóttir taka við. Stefán Jón Hafstein er von borgarstjórans til að
styrkja veika hlekki Samfylkingarinnar.
r-listinn Samfylkingin mun fá
þrjá af sjö fyrstu á framboðslista
Reykjavíkurlistans við borgar-
stjórnarkosningar í vor. Heimildir
Fréttablaðsins herma að búið sé
að ganga frá samkomulagi
um listann. Þar er gert ráð
fyrir að Vinstri-grænir fái
tvo fulltrúa og Framsókn-
arflokkur tvo. Allt bendir
til að Vinstri-grænir fá for-
seta borgarstjórnar, hald-
ist meirihlutinn, og eftir
því sem næst verður kom-
ist fá Framsóknarmenn fyrsta
sæti listans og þá um leið leiðtoga-
sætið, nokkurskonar þingflokks-
formennsku.
Vinstri-grænir og Framsókn
munu ætla að stilla upp í sín sæti.
Samfylkingin mun ekki ætla að
hafa prófkjör og ekki uppstill-
ingu, heldur verður farin einhver
önnur leið. Skoðanakönnun hefur
verið nefnd, en ekki með hvaða
hætti hún yrði framkvæmd.
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri verður
sem fyrr í áttunda sæti list-
ans.
Innan Vinstri-grænna er
andstaða við þátttöku á
Reykjavíkurlistanum.
Helstu andstæðingarnir
eru sagðir vera bræðurnir
Ármann og Sverrir Jakobssynir
og Sigrún Stefánsdóttir, en hún
hefur leitt viðræðurnar fyrir
flokkinn.
Meðal Framsóknarmanna er
gert ráð fyrir að Alfreð Þorsteins-
son verði þeirra leiðtogi og að Sig-
rún Magnúsdóttir gefi ekki kost á
sér. í hennar stað verði valin Anna
Kristinsdóttir, Finnbogasonar.
Nokkur spenna er meðal Sam-
fylkingarfólks þar sem ekki er
einhugur um þeirra fremstu
menn; þá Helga Hjörvar og
Hrannar B. Arnarsson. Víst er að
þeir munu hafa nokkuð fyrir að
verja sæti sín. Heimildir blaðsins
herma að leit sé hafin að nýjum
þátttakendum og hefur nafn Stef-
áns Jóns Hafstein verið nefnt
hvað oftast. „Því fer fjarri að allir
séu sáttir við að hann taki að sér
stórt hlutverk hjá okkur. Borgar-
stjóri er hins vegar á því að Stef-
án Jón sé góður kostur, en þetta
eftir að skýrast," sagði áhrifamað-
ur innan Samfylkingarinnar.
sme@frettabladid.is
Tuttugu og fjórir látnir í
umferoinni:
Lést í árekstri
á Eyrar-
bakkavegi
banaslvs Banaslys varð á Eyrar-
bakkavegi þegar fólksbíll og jeppi
rákust saman rétt norðan við bæ-
inn Stekki um klukkan hálfþrjú í
gær.
Jeppinn var á leið suður Eyrar-
bakkaveg þegar hann skall fram-
an á fólksbifreið sem var á norð-
urleið. Karlmaður, sem var öku-
maður fólksbifreiðarinnar, lét líf-
ið, en tvær konur, farþegi í fólks-
bílnum svo og ökumaður jeppans,
voru fluttar illa slasaðar á heil-
brigðisstofnun á Selfossi og þaðan
á Landspítala-háskólasjúkrahús.
Vaktahafandi læknir á Landspít-
ala sagði í samtali við Fréttablað-
ið í gærkvöldi að konurnar væru í
rannsókn og ljóst að báðar yrðu
lagðar inn á sjúkrahús. Þær eru
þó ekki í lífshættu.
Eyrarbakkavegurinn var lok-
aður í um tvær klukkustundir
meðan lögregla og slökkvilið unnu
að því að ná fólkinu úr bílunum.
Nú hafa tuttugu og fjórir látist
í umferðarslysum á árinu sem er
að líða. ■
—«—
Innan Vinstri-
grænna er
andstaða við
þátttöku á
Reykjavíkur-
listanum.
—
LlK FJÖCURRA PALESTfNUMANNA BORIN TIL GRAFAR Mikill mannfjöldi safnaðist saman í Khan Yunis flóttamannabúðunum í
gær þegar fjórir Palestínumenn voru bomir til grafar, en þeir létust snemma um morguninn. Sjá má vopnaða menn 1 hópi syrgjenda.
Útboði Bakkavarar lokið:
ÞETTA HELST
Hefðu getað
selt miklu meira
útboð „Það er ljóst að það verður
að koma til skerðingar, bæði með-
al almennings og fagfjárfesta
vegna gríðarlega góðra undir-
tekta. Við fengum skráningar fyr-
ir um fimm milljörðum króna,“
segir Ármann Þorvaldsson hjá
Kaupþingi en tvískiptu útboði
Bakkavarar Group hf. á nýju
hlutafé lauk í gær. Sala til fagfjár-
festa fór einnig fram í nokkrum
Evrópulöndum auk fslands. Lagt
var upp með að almenningur gæti
skráð sig fyrir 700 milljónum að
markaðsvirði og fagfjárfestar
fyrir 2.200 milljónum, eða samtals
2.900 milljónum. Þó var heimild
fyrir um 3.600 milljóna heildar-
hlutafjáraukningu og má því telja
líklegt að lokaniðurstaða verði ná-
lægt þeirri tölu. Nánari tölulegar
upplýsingar voru ekki gefnar í
gærkvöld. Kaupþing og Búnaðar-
bankinn sölutryggðu útboðið, en
ljóst er að ekki mun reyna á slíkt.
„Við vorum nokkuð bjartsýn-
ir,“ sagði Ármann, „en það er
ljóst að þetta fór fram úr björt-
ustu vonum. Það má segja að
þetta sýni mikið traust fjárfesta á
Bakkavör." Útboðsgengi hlutanna
hefur verið ákveðið 6,80 krónur
eða við hærri mörk, en ákveðið
var að láta gengið ráðast af sölu. ■
T Terðbólga síðustu 12 mánuði
V er 8,6%. Verð á innfluttum
vörum hækkaði um 0,9% í liðnum
mánuði og ollu gengisbreytingar
mestu um verðhækkanir í þeim
mánuði. bls. 4.
Átta ísraelsmenn létust og
a.m.k. 25 særðust í tveimur
árásum Palestínumanna í gær.
bls. 2.
—♦— .
Fangar á Litla-Hrauni segja
fangelsisyfirvöld sýna betrun-
arhlutverki fangelsa lítinn skiln-
ing. Þróun fangelsismála hér á
landi sé ekki í takt við önnur Evr-
ópulönd. bls. 2.
—♦—
Ibúar Kabúl eru hungraðir og
kaldir. Öngþveiti og uppþot í
tengslum við matargjafir eru
daglegt brauð í borginni. Ótti við
stjórnleysi eftir að ógnarstjórn
talibana leið undir lok. bls. 2.
Heimastjórn Palestínu:
Til atlögu gegn
Hamas og Jihad
cazaborc. ap Heimastjórn Palest-
ínumanna á Vesturbakkanum og
Gazaströndinni sagðist í gær ætla
að loka öllum skrifstofum og
stofnunum samtakanna Hamas og
íslömsku Jihad, sem bera ábyrgð
á flestum sjálfsmorðsárásum
Palestínumanna og skotárásum á
ísraelsmenn. Jasser Arafat, leið-
togi Palestínumanna, hefur verið
undir sívaxandi þrýstingi ísraels-
manna, Bandaríkjamanna og Evr-
ópusambandsins um að grípa til
harðra aðgerða gegn herskáum
Palestínumönnum. Með því gæti
Arafat þó kallað ýfir sig innbyrðis
átök Palestínumanna. ■
300m OOO kr.
sólarferð með Urval-Utsýn
fyrir ^ O O kr. ?
SímaLottó!
Hringdu strax í
907-2000
DregiS alla fimmtudaga. Fylgstu mefl á RÚV.
Ekki missa afvinningi!