Fréttablaðið - 13.12.2001, Qupperneq 2
KJÖRKASSINN
MEIRI LÁN
Flestir kjósendur á Vísi
styðja málstað náms-
manna sem sumir
hverjir hafa farið fram á
hærri lán vegna gengis-
falls krónunnar.
Eiga íslenskir námsmenn er-
lendis að fá hærri lán til að
mæta lægra gengi krónunnar?
Niðurstöður gærdagsins
á www.vlsir.is
27%
Spurning dagsins í dag:
Reiknarðu með að borða rjúpur um
þessi jól?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þína skoðun
Endurskoðun stjórnar
fiskveiða:
Frumvarp í
upphafi vor-
þings
lagasetning Árni Mathiesen sjávar-
útvegsráðherra sagði á Alþingi í
gær að hann stefndi að því leggja
frumvarp um endurskoðaða stjórn
fiskveiða fyrir Alþingi á fyrstu dög-
um vorþings.
Sjávarútvegsráðherra sagðist
hafa vonast til þess að geta lagt
frumvarpi þessa efnis fram fyrir
jólaleyfi en ýmislegt hefði tafið
málið og komið í veg fyrir það. Þar
mætti m.a. telja annir í ráðuneytinu
og það að Framsóknarflokkurinn
hefði ekki lokið málinu að sínu leyti
fyrr en á miðstjórnarfundi fyrir
nokkru.Endurskoðunin væri þó
komin langt á leið og raunhæft að
þingflokkar stjórnarflokkanna
fengju frumvarpið í sínar hendur
áður en þing hæfist að nýju eftir
áramót og að það yrði lagt fram á
fyrstu dögum þingsins.
Jóhanni Ársælssyni þótti frum-
varpið eiga að koma seint fram
miðað við hversu stórt mál væri um
að ræða. Því efaðist hann um að
nægur tími gæfist til að gaumgæfa
málið. Þeirri skoðun lýsti sjávarút-
vegsráðherra sig andvígan, mikið
hefði þegar verið unnið í málinu og
að sínu áliti væri vel mögulegt að
Ijúka því fyrir þinglok. ■
kðCREGLUFRÉTTIRl
Forsvarsmenn ASÍ og Samtaka
atvinnulífsins sátu á fundi þeg-
ar blaðið fór í prentun og var von-
ast til að þeir næðu samkomulagi
um að fresta ákvörðun um upp-
sögn gildandi kjarasamninga til 1.
maí í stað 15. febrúar.
Gengi krónunnar hefur styrkst
um 5% síðan hún náði sögu-
legu lágmarki í lok nóvembermán-
aðar. í gær nam styrkingin rúmu
hálfu prósenti og stóð gengisvísi-
talan í 144 stigum við lokun mark-
aða. Úrvalsvísitalan hækkaði um
0,3% og er nú 1.101 stig.
FRÉTTABLAÐIÐ
13. desember 2001 FIMMTUDACUR
,Fjórjr Palestínu- og tíu
Israelsmenn létust í gær:
Vonir um
2ja daga frið
urðu að engu
gazaborg. ap Tíu f sraelsmenn létust
og að minnsta kosti 25 særðust i
gær í tveimur árásum Palestínu-
manna. Annars vegar hófu Palest-
ínumenn skothríð á ísraelskan
strætisvagn á Veturbakkanum.
Hins vegar sprengdu tveir sjálfs-
morðsárásarmenn sig upp nálægt
ísraelskri landnemabyggð á Gaza-
svæðinu. fsraelsmenn hefndu
þessa fáeinum klukkustundum
síðar með loftárásum á
lögreglustöðvar Palestínumanna.
Á LEIÐ f SJÚKRAHÚS
Pessi maður særðist í árás á byggð ísraelskra landtökumanna á Gazasvæðinu í gær.
Ekkert lát var á ofbeldinu í
gær þótt Anthony Zinni, sendifull-
trúi Bandaríkjanna, hafi beðið
menn um að halda ró sinni í tvo
sólarhringa.
í gærmorgun skutu ísraels-
menn úr þyrlum á palestínskar
flóttamannabúðir. í þeim árásum
létust fjórir palestínskir skæru-
liðar og 20 manns særðust. Þetta
var skömmu eftir að Palestínu-
menn hófu skothríð í nágrenni
ísraelskra landnemabyggða, án
þess þó að valda tjóni. I átökum
lsraelsmanna og Palestínumanna
undanfarna fimmtán mánuði hafa
815 Palestínumenn og 232 ísraels-
menn látið lífið. ■
Osama bin Laden:
Fleiri mynd-
bönd fundin
hryðjuverk Fresturinn, sem liðs-
mönnum al Kaída í Hvítufjöllum í
Afganistan gafst til að gefast upp,
var í gær framlengdur þar til í dag.
Sýna átti myndband, sem sagt er
sanna sekt Osama bin Ladens, í
gærkvöldi.
Sjónvarpsstöðin A1 Djasíra í
Katar segist hafa fengið nokkur
myndbönd send frá bin Laden, bæði
fyrir og eftir 11. september, en ekki
sýnt þau enda hafi þau ekki talist
fréttnæm. Sjónvarpsstöðin tók við-
tal við bin Laden í október, en sýndi
það ekki því hann svaraði ekki
spurningum fréttamanns heldur
aðeins því sem honum sýndist. ■
Örvænting, ótti
og reiði í Kabúl
Ibúar Kabúl hungraðir og kaldir. Ongþveiti og uppþot myndast á
hverjum degi í tengslum við matargjafir. Otti við stjórnleysi eftir að
ógnarstjórn talibana leið undir lok.
kabúl. ap Á hverjum degi myndast
mikil spenna í Kabúl, höfuðborg
Afganistans, þegar matvælum er
dreift til fólks. Margir fyllast reiði
eða ótta þegar hamagangurinn
leysist upp í slagsmál og lögreglan
slær frá sér til þess að halda
hungruðum mannfjöldanum í
skefjum.
„Það er hræðilegt að horfa upp
á þetta,“ sagði Abdul Hadi, starfs-
maður Matvælastofnunar Samein-
uðu þjóðanna. „Fólkið er svo
svangt. Það er erfitt að segja við
það: Við ætlum að reyna að hjálpa
öllum, en þú verður að bíða þangað
til röðin kemur að þér.“
Afganskir hermenn, nýkomnir
af vígstöðvunum, hafa verið
fengnir til að halda aftur af fólki,
en beita oft meiri hörku en efni
standa til.
„Þeir voru að berja konur með
prikum, og ég þoldi ekki að horfa á
það,“ sagði Sarajuddin Khalid,
starfsmaður íslamskrar hjálpar-
stofnunar. „Ég fékk þá til að hætta
þessu, en tíu mínútum síðar gerð-
ist það aftur.“
Að minnsta kosti tveir af hverj-
um þremur íbúum borgarinnar
verða algjörlega að treysta á mat-
argjafir hjálparstofnana.
Margir foreldrar óttast um líf
barna sinna, ekki síst þegar næt-
urkuldinn er mestur. „Á hverjum
einasta morgni óttast ég að þau
vakni ekki,“ sagði Malalai Azizi,
fimm barna móðir og ekkja í Kab-
úl. „Og þegar þau gráta stanslaust
og segjast vera svöng, þá hef ég
BEÐIÐ EFTIR MATNUM
Wlóðir reynir að ná athygli hjálparstarfsmanns sem útdeilir hveiti, en hermenn reyna að
halda fólki í skefjum.
ekkert að gefa þeim nema þunnt
te.“
Þótt ástandið í Kabúl sé nógu
slæmt, þá segja starfsmenn hjálp-
arstofnana að það sé hálfu verra í
fjarlægari landshlutum þar sem
snjór er þegar orðinn djúpur og
tálmar umferð um fjallaskörð.
Víða má búast við þjófum og
stríðsherrar heimta sums staðar
toll af vörum sem fluttar eru land-
leiðina.
Meðan talibanar réðu ríkjum
var sjaldgæft að uppþot yrðu
vegna þess hve mikill óttinn við þá
var. Nú óttast hins vegar margir að
algjört stjórnleysi sé í uppsiglingu,
og atvik á borð við uppþot í kring-
um matargjafirnar í Kabúl styrkja
ótta manna við það. ■
Alþingi:
Þinglok
á morgun
alþingi „Við ætlum að halda okkur
við dagskrá og ljúka þingstörfum á
föstudag", sagði Halldór Blöndal
forseti Alþingis í gær og er því
stefnt á að störfum Alþingis fyrir
jólahlé ljúki á morgun. „Við höfum
haldið nokkurn veginn dagskrá
bæði í fyrra og hitteðfyrra." Minna
hefur verið um það síðustu ár en
áður að þingstörf drægjust fram
undir jól. Halldór sagði ástæðurnar
ýmsar og margt hafa breyst. Tekist
hafi að ná betri tökum á efnahags-
málum og ríkisfjármálum þannig
að slíkt dragist ekki fram undir jól.
Meiri festa hafi því fengist í þing-
störfin. „Þau eru óneitanlega færri
stóru málin sem hafa komið frá rík-
isstjórninni“, segir Guðmundur
Árni Stefánsson, 1. varaforseti Al-
þingis og telur það eina ástæðu
þess að svo virðist sem starfsáætl-
un haldist þó þingstörf geti tafist
lítillega. Guðmundur segir mikið
fundað síðustu dagana. „Það eru
fundir hér frá morgni til kvölds,
það er byrjað tíu á morgnana og
haldið áfram svo lengi sem þarf.“ ■
Bandarísk sprengjuvél:
Hrapaði í
Indlandshaf
WASHINGTON.
AP
Bandarísk
sprengjuflugvél hrapaði í Ind-
landshaf í gær, en flugvélin hefur
verið notuð í loftárásir á Afganist-
an. Fjögurra manna áhöfn er í vél-
inni, og björguðust þeir allir. Vélin
er útbúin þannig að áhöfnin getur
skotið sér út úr vélinni ef hún er að
hrapa. Flugvélin hrapaði u.þ.b. 50
km norður af eyjunni Diego
Garcia, sem er í miðju Indlands-
hafi. Eyjan lýtur breskum yfirráð-
um og þar er herflugvöllur sem
bandaríski herinn hefur notað frá
því árásirnar á Afganistan hófust
þann 7. október. ■
Fangar á Litla-Hrauni:
SKÍaldborg \
• BÓKAÚTGÁFA GrensásvegiU‘10e ReyktavleStm 588-2400'Fax 5888994
Aðför stjórnenda að
betrunarhlutverki
FANGELSISMÁL Fangar á Litla
Hrauni eru þeirrar skoðunar að
lokun svonefnds fyrirmynda-
gangs fangelsisins í október sl. sé
til marks um allsherjar slæmt
ástand þar. Þetta kemur fram í
greinargerð sem sendu til fjöl-
miðla og annarra í vikunni. Fram
kemur að stjórnendur Litla
Hrauns og önnur fangelsisyfir-
völd sýni betrunarhlutverkinu lít-
inn skilning og að þróun fangelsis-
mála hér á landi sé ekki í takt við
önnur Evrópulönd.
Meðal annars er sagt að starfs-
menn fangelsins noti flutning
fanga á milli deilda innan fangels-
LITLA HRAUN
„Það er því ekki að undra að einstaka
fangi ...sé að gefast upp og hugi að því að
lifa vistina af með aðstoð lyfja og öðru
sem ekki getur talist heppilegt," segja
fangar.
isins á gerræðislegan hátt sem
refsivönd. Auk þeirrar alvarlegu
frelsissviptingar sem felist í slíku
setji það fangana oft í erfiða stöðu
gagnvart fjölskyldum sínum.
Einnig gagnrýna þeir miklar
skorður varðandi símatíma og
segja óljós rök að baki því að koma
í veg fyrir samskipti þeirra við
fjölskyldur og vini. Þá er m.a.
nefnt dæmi um tilefnislausa ein-
angrun, þar sem viðkomandi fangi
vann sér það eitt til sakar að hafa
geymt of mikla fjármuni inni í
klefa sínum. Allt er sagt bera að
sama brunni, að fangelsið sé ekki
rekið með það að leiðarljósi að búa
fanga undir frelsi, heldur hvetji þá
beinlínis til endurkomu. ■