Fréttablaðið - 13.12.2001, Blaðsíða 4
4
FRETTABLAÐIÐ
13. desember 2001 FIMMTUDAGUR
SVONA ERUM VIÐ
FJÖLDI SKRÁÐRA LÉNA
Hér að neðan er hægt að sjá hve mörg
lén, eða vefföng, hafa verið skráð á fslandi
undanfarna mánuði.
Mars _____________________2Z2.
i Aprfl 1 225
I Maí ' . ~~1 220
1 Júnf : I 202
IJúli ...... I 159
Ágnst I 163
|---—----------------
September _________J 174
Október_______________I 197
Nóvember 177
Heimild: Internet á fslandi hf.
Deilt um stjórnun þingforseta
Fundarstjóm á Alþingi:
Enn deilt
á forseta
alþingi Stjórnarandstæðingar
gagnrýndu Halldór Blöndal for-
seta Alþingis harkalega í gær fyr-
ir að víkja út af ákveðinni dagskrá
þingsins og hleypa Vilhjálmi Eg-
ilssyni að með framsögu um ráð-
stafanir í ríkisfjármálum við upp-
haf þingfundar þegar ekki var
gert ráð fyrir umræðunni fyrr en
eftir hádegi.
Bryndís Hlöðversdóttir sagði
fullkomlega óeðlilegt að taka mál-
ið fyrir í ljósi þess að vitað væri
að nefndarálit minnihlutans væri
ekki tilbúið þó fyrir lægi að fram-
sögumaður meirihlutans yrði ekki
viðstaddur umræðu eftir hádegi
þar sem hann væri á förum til út-
landa. Nokkrir stjórnarandstæð-
ingar tóku undir orð Bryndísar og
sagði Jóhanna Sigurðardóttir
vinnubrögðin vera fyrir neðan all-
ar hellur. Halldór sagði ekkert
óeðlilegt við það hvernig staðið
hefði verið að málum. Venja væri
fyrir því að reynt væri að hliðra
til fyrir framsögumenn og þing-
mönnum þá gefinn kostur á
andsvörum þó umræða um mál
væri látin bíða betri tíma. Stjórn-
arliðum fannst mörgum illa að
forseta vegið og bað Sigríður
Anna Þórðardóttir þingmenn um
að halda ró sinni. ■
Nýjar tölur Hagstofunnar:
Verðbólgan
eykst enn
VERÐBÓLGUÞRÓUN ÞESSA ÁRS MIÐAÐ
VIÐ TÓLF UNDANGENGNA MÁNUÐI:
Jan. Feb. Mar. Apr. Mai Júní Júli Ágú. Sept. Okt. Nóv. Des.
efnahagsmál Verðbólguvísitala
síðastliðinna tólf mánaða er 8,6
prósent, en án húsnæðis um 9,4
prósent og nemur hækkunin í
þessum mánuði 0,5 prósentum.
Vísitalan miðuð við verðlag í byrj-
un mánaðarins var 219,5 stig en
án húsnæðis 219,1 stig.
Hagstofan segir verð á mat- og
drykkjarvörum hafa lækkað um
0,44 prósent, verð á áfengi og tó-
baki hækkað um 3 prósent og bíl-
verð hækkað um 1,1 prósent. Þá
segir að gengisbreytingar virðist
hafa valdið mestu um verðbólgu-
aukninguna í desember, en verð á
innfluttum vörum hækkaði um 0,9
prósent.
í tilkynningu Hagstofunnar
kemur fram að gerðar hafi verið
leiðréttingar við útreikning vísi-
tölunnar í desember sem leitt hafi
til 0,27 prósenta heildarlækkunar
á vísitölunni. Leiðréttingarnar
voru gerðar á grundvelli nýrra
gagna frá stærstu verslunarkeðj-
unni í dagvöruverslun og úr
neyslukönnun Hagstofunnar.
„Gögnin sýna að veruleg breyting
hefur orðið á skipulagi verslunar
og verslunarháttum neytenda á
árinu 2001. Neytendur versla nú í
meira mæli en áður þar sem verð
er tiltölulega lágt án þess að þjón-
ustustig hafi breyst til muna. Ekki
hefur verið tekið tillit til þessa í
vísitölunni og því hafa verðbreyt-
ingar í dagvöruverslun verið of-
metnar að undanförnu," segir í til-
kynningunni. ■
Gekk út af lok-
aðri geðdeild
Síbrotamaðurinn sem áreitt hefur Qölskyldu í Grafarvoginum gekk út
af lokaðri geðdeild. Nálgunarbann ekki úrræði gegn geðröskunum.
Lögregla segir málið í eðlilegum farvegi.
herkví „Við höfum verið í sam-
bandi við fjölskylduna og er málið
í eðlilegum farvegi og sátt um
það,“ sagði Hörður Jóhannesson,
yfirlögregluþjónn, um mál fjöl-
skyldunnar £ Grafarvogi sem búið
hefur í stöðugum ótta vegna hót-
ana og innbrota af hendi síbrota-
manns sem á barn og barnsmóður
á heimilinu. Hörður sagði málinu
framhaldið £ samráði við fjölskyld-
una.
Hörður segist aðspurður eiga
erfitt með að svara þvi hvernig
lögreglan tekur almennt á hótunar-
málum þar sem þau séu æði mis-
jöfn „Fólk stendur £ þeirri trú að
þegar búið sé að gefa sig fram við
lögregluyfirvöld fái það óðara
lausn sinna mála. Þetta er þvf mið-
ur ekki svona einfalt. Brotið eitt og
sér gefur kannski ekki tilefni til að
loka gerandann inni og það eina
sem við getum gert er að veita við-
komandi tiltal en við erum ekki £
aðstöðu til að gæta fólks.“
í samtali við Hildi Briem, lög-
fræðing hjá lögregluembættinu,
kom fram að nálgunarbanni hafi
einungis verið beitt £ örfáum til-
fellum en það úrræði hafi ekki ver-
ið sett í lög fyrr en árið 2000. Menn
séu að fikra sig áfram með þessa
nýju löggjöf en áður hafi svokall-
LÉT ÞUNG HÖGG FALLA Á
HURÐINA
Eins og sjá má á hurðinni að utan-
verðu hefur maðurinn látið þung
högg falla á hurðina til þess að
komast inn.
aðri lögregluáminningum
verið beitt. Segir hún ekki
rétt hjá viðmælanda Frétta-
blaðsins á mánudag að lög-
lærðir fulltrúar lögreglunn-
ar hefðu tjáð sig um það að ekki
kæmi til greina að leggja á nálgun-
arbann. Honum hafi ávallt verið
tjáð að málið væri í skoðun. Komið
hefði reyndar £ ljós að ekki væru
fyrir hendi nægjanleg tilefni en
kröfunni hefði aldrei verið hafnað.
Hún segir umgengnisrétt föður og
barns ásamt fleirum atriðum hafa
átt þar hlut að máli. Um tilfelli þar
sem geðraskanir eiga í hlut, eins
og við á í þessu tilfelli, segir Hild-
ur nálgunarbann úrræði sem veiti
fólki enga sérstaka vernd og sé
nánast fyrirliggjandi að brotin
verði endurtekin. „Að mínu mati á
þá að leita annarra úrræða og tel
ég £ slik tilfelli segja til um það úr-
ræðisleysi sem rikir í heilbrigðis-
kerfinu."
kolbrun@frettabladid.is
SETTU UPP SLAGBRAND
Fjölskyldan i Grafarvogi sá sér þann kost
vænstan að setja slagbrand fyrir útidyr
íbúðarinnar af ótta við innrás síbrota-
mannsins.
Aukin verðbólga í des-
embermánuði:
Hefur ekki áhrif
á vaxtastefnu
Seðlabanka
efnahagsmál Verðbólguvisitala
siðastliðinna tólf mánaða er 8,6
prósent og nemur hækkun frá sið-
asta mánuði 0,5 prósentum. Már
Guðmundsson, aðalhagfræðingur
Seðlabankans, segir verðbólguna
ívið meiri en mark-
aðsaðilar hafi vænst
og skýrðist það að
K- j-n-T-i hluta til af sterkum
g gengisáhrifum.
■ „Þetta er kannski
£ fl aðeins á neikvæðu
i 1W 1 jjliðina, en breytir
lítið verðbólgu-
myndinni frá því
sem við vorum með
i okkar verðbólgu-
spá í nóvember."
Már nefndi styrk-
ingu gengisins í
fyrradag og sagði
bankann telja forsendur til frekari
styrkingar gengisins næstu vikur
vera til staðar og það myndi skipta
verulegu máli varðandi verðlags-
þróun næsta árs. „Hækkunin hefur
ekki áhrif á vaxtastefnu bankans
að svo stöddu. Við lækkuðum vexti
í byrjun nóvember, því líkurnar
höfðu aukist á að okkar verðbólgu-
markmið fyrir árið 2003 myndu
nást. Við gáfum í skyn að ef það
staðfestist í framhaldinu gæti auð-
vitað orðið þar framhald á. Það er
bara allt of snemmt að segja til um
það. Það er bara mánuður liðinn og
menn breyta ekki kúrs í vaxtapóli-
tík með krampakenndum hætti út
af einhverjum mánaðarlegum töl-
um. Þannig að á þessu stigi málsins
breytir þetta litlu," sagði hann og
taldi að þróun mála varðandi end-
urskoðun kjarasamninga myndi
vega þyngra varðandi ástand og
horfur í verðlagsmálum. ■
MÁR GUÐ-
MUNDSSON
Már segir að
aukin verðbólga
í þessum mán-
uði einum og
sér hafi ekki
áhrif á vaxta-
stefnu bankans.
E <s
GO C
‘fö ‘tu
i— i—
CQ CD
ÆSKAN
Sir Paul McCartney spilaði á Nóbelsverðlaunahátíðinni:
Styður hernað í Afganist-
an þrátt fyrir friðarvilja
MCCARTNEY
Sir Paul McCartney ásamt unnustu sinni Heather Mills (til hægri) við komuna til Grand
Hotel í Osló á mánudaginn þar sem Nóbelsverðlaunin voru afhent.
nóbelsverðlaun Sir Paul McCartn-
ey, sem í fyrrakvöld kom fram á
hinum árlegu Nóbels-tónleikum
sem haldnir eru eftir afhendingu
Nóbelsverðlaunanna, segist styð-
ja með miklu stolti friðarumleit-
anir í heiminum enda hefur hann
verð friðarsinni allt sitt líf. Samt
sem áður segist hann styðja
sprengjuárásir Bandaríkjamanna
á Afganistan, að því er kemur
fram á fréttavef Aftenposten.
Þrátt fyrir að syrgja mjög vin
sinn og fyrrverandi félaga í Bítl-
unum, George Harrison, sem lést
á dögunum, hélt hann sig við fyrri
ákvörðun sína um að koma fram á
tónleikunum. „Þetta er svo mikil-
vægt tilefni," sagði McCartney í
viðtali við TV2 sjónvarpsstöðina í
Noregi. Sagðist hann hafa fylgst
með Nóbelsverðlaununum frá því
hann var smá hnokki og að hann
væri stoltur af að taka þátt í at-
höfninni.
í viðtali á norskri útvarpsstöð
sagðist McCartney hafa verið í
erfiðri aðstöðu eftir hryðjuverka-
árásirnar á Bandaríkin. „Fólk
spurði mig hvort ég styddi árásir
Bandaríkjamanna," sagði hinn
heimsfrægi friðarsinni. Sagðist
hann skilja vel viðbrögð Banda-
ríkjamanna og væri því fylgjandi
sprengjuárásunum. „Hvað áttu
þeir annað að gera? Segja bara
„ekki gera þetta aftur.“ ■