Fréttablaðið - 13.12.2001, Page 6
SPURNING DAGSINS
FRETTABLAÐIÐ
13. desember 2001 FIMMTUDAGUR
Hvað ætiarðu að hafa í
jólamatinn?
Uppáhaldiö mitt er kalkúnn. En þau vilja
borða gæs í ár, því miður.
Bjarni Einarsson stúdent
CostgQ-pöntunarlistinn:
85 greiddu
5.000 kall
LOCREGLURANNSÓKN Rannsókn lög-
reglu á starfsemi Costgo-pöntun-
arlistans er á lokastigi og ljóst að
fjárhagslegt tjón
þeirra sem greid-
du fyrir pöntun-
arlistann verður
óverulegt. Rann-
sókn málsins leid-
di í ljós að 85 ein-
staklingar greid-
du alls 425.000
krónur fyrir pönt-
unarlistann en
lögregla hefur
lagt hald á megin-
hluta þess fjár.
Lögreglan hefur
COÐI
SVEINSSON
Samtals 425 þús-
und sem greiddar
voru af viðskipta-
vinum Costgo
verða að mestu
endurgreidd að
sögn lögreglu.
þegar haft samband við flesta þá
sem keyptu pöntunarlistann og
munu þeir fá það fé sem lagt var
hald á greitt inn á reikninga sína á
næstu dögum. ■
Tveimur fiðlum stolið frá tónlistarkennara:
Heitir fundarlaunum
innbrot Tveimur fiðlum var stolið
frá heimili Ewu Tosik, tónlistar-
kennara, að Laugavegi 69 í nóv-
ember síðastliðinn. Ewa segir
þessar fiðlur skipta hana miklu
máli og þar sem hún starfi sem
tónlistarkennari séu þetta í raun
verkfæri hennar sem hún sakni
mikið. Hún segist heita fundar-
launum hverjum þeim sem geti
einhverjar upplýsingar gefið um
fiðlurnar. Ewa segir þær hafa ver-
ið teknar þegar verkfall tónlistar-
kennara stóð sem hæst. Þá hafi
hún þurft að æfa sig oft heima við
og gruni jafnvel aó einhverjum
nágrönnum hafi ekki Iíkað hávað-
inn og verið orðnir pirraðir og
ákveðið að stríða henni með
þessu. Gruninn byggir hún á því
að einungis fiðlunum hafi verið
stolið og einni vískíflösku en allt
annað verðmæti látið í friði.
Ewa segir fiðlurnar skráðar og
því erfitt um vik fyrir þjófana að
Bandarískur fyrrum liðsmaður talibana:
Sýklavopnaárás á
Bandaríkin væntcinleg
árás Á ameríku Bandaríkjamaður-
inn John Walker, sem barðist með
talibönum gegn hersveitum
Norðurbandalagsins í Afganist-
an, varaði í gær við því að Banda-
ríkjamenn ættu yfir höfði sér
sýklavopnaárás á næstu dögum.
Sagði hann við yfirheyrslur
skammt frá borginni Kandahar
að „annað stigið" í stríði al Qaeda
gegn Bandaríkjunum myndi eiga
sér stað undir lok ramadan, sem
WALKER
John Philip Wal-
ker, 18 ára gamall,
á þessari mynd
sem tekin var árið
1998.
er föstumánuður múslima, en
honum lýkur á sunnudaginn.
Þriðja stigið í stíði al Qaeda mun
síðan leiða til gjöreyðingar
Bandaríkjanna, að því er frétta-
vefur Sky greindi frá. Ráðamenn
hafa tekið þessum upplýsingum
með fyrirvara þar sem Walker
var ekki hátt settur á meðal tali-
bana og aðeins lauslega tengdur
al Qaeda-samtökunum. Walker,
sem var handsamaður í Afganist-
an nýlega, gæti átt yfir höfði sér
ákæru fyrir landráð. ■
Flutningur Jafnréttisstofu:
Ferdakostnadur
aukist verulega
stjórnsýsla „Það sem stendur upp
úr er að ferðakostnaður hefur
aukist mjög mikið og við höfum
haft aukinn kostnað af þessum
flutningi", segir Stefanía Óskars-
dóttir, varaþingmaður Sjálfstæð-
isflokksins um svar féiagsmála-
ráðherra við fyrirspurn hennar
um kostnað við flutning Jafnrétt-
isstofu til Akureyrar.
Jafnréttisstofa tók til starfa á
Samráð þýskra banka:
Sektaðir um 100
milljón evrur
esb Framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins hefur sektað fimm
þýska banka fyrir að hafa samráð
um þjónustugjöld sem innheimt
voru af viðskiptavinum sem skip-
tu peningum sínum í evrur. Sektin
sem bankarnir fimm þurfa að
greiða nemur hundrað milljónum
evra, jafnvirði 950 milljóna króna,
en það er ein hæsta sekt sem
framkvæmdastjórn ESB lagt á
fyrirtæki fyrir brot á samkeppn-
islögum.Mario Monti sem fer með
samkeppnismál í framkvæmda-
stjórninni sagði samráð bankanna
hafa leitt til beins og óafturkræfs
taps viðskiptavina og dregið úr
tiltrú fólks á evruna. ■
Akureyri 1. september á síðasta
ári og var stofnkostnaður 3,7
milljónir. Ferðakostnaður hefur
aukist verulega frá því Jafnréttis-
stofa tók við störfum Skrifstofu
jafnréttismála sem var staðsett í
Reykjavík. Ferðakostnaður Skrif-
stofu jafnréttismála nam 182.000
krónum árin 1999 og fram í ágúst
2000 en ferðakostnaður skrifstofu
jafnréttismála frá september á
síðasta ári nemur 2,3 milljónum
króna. Skiptist kostnaðurinn milli
ferða starfsmanna og leiðbein-
enda og fyrirlesara á námskeið-
um.
„Við höfum aukinn kostnað af
flutningi ríkisstofnana eins og
Jafnréttisstofu og Byggðastofn-
unar út á land“, segir Stefanía.
„Spurningin er hvort það skili sér
í aukinni uppbyggingu byggð-
STEFANÍA ÓSKARSDÓTTIR
Visað er til aukinnar þjónustu við lands-
byggðina vegna aukins ferðakostnaðar.
anna. Því hefur ekki verið svarað
endanlega með þessu svari, það
verður tíminn að leiða f ljós.“ ■
| INNLENlH
ICökkrinu og vætutíðinni sem
nú er virðast ökumenn sjá illa
frá sér þegar kettir eru að skjóta
sér yfir götur. í gærmorgun var
ekið yfir þrjá ketti, einn á
Kringlumýrarbraut, Langholts-
vegi og Suðurfelli í Breiðholtinu
og drápust þeir allir. Að sögn lög-
reglunnar eru eigendur látnir
vita ef kettirnir eru merktir þan-
nig að auðvelt sé að rekja þá til
þeirra. Oft reynist það erfitt séu
þeir einungis eyrnamerktir og
því sé öruggara að nota ól.
Tilraun var gerð til innbrots í
fyrirtæki í Grafarvogi í gær-
morgun. Unnar voru skemmdir á
gluggakörmum en svo virðist
sem þjófunum hafi ekki tekist
ætlunarverk sitt. Þá voru unnar
skemmdir á fjórum bifreiðum í
Grafarvogi. Þykir líklegt að eynt
hafi verið að stela þeim því bæði
stýrislás og kveikjulás voru eyði-
lagðir.
EWA TOSIK SAKNAR HLJÓÐFÆRANNA
Ewa lofar þeim sem tóku fiðlurnar að gera ekkert frekar í málinu skili þeir henni hljóðfær-
unum heldur muni hún gera gott betur og borga viðkomandi skilalaun fyrir.
koma þeim í verðmæti og gagnist ekki ætla að gera neitt frekar í
þær engum nema viðkomandi málinu verði fiðlunum skilað og
leiki sjálfur á fiðlu. Ilún segist lofar jafnvel skilalaunum. ■
Stofnun um forvarnir í smíðum:
Lýðheilsustofn-
un á næsta þingi
heilbricðismál Stefnt er að því að
leggja fram frumvarp um Lýð-
heilsustofnun á Alþingi eftir ára-
mót, að sögn Jóns Kristjánssonar,
heilbrigðisráðherra. „Við erum í
ráðuneytinu að kanna laga-
grundvöllinn og erum með í
vinnslu lagafrumvarp varð-
andi Lýðheilsustofnun,"
sagði hann en hlutverk
hennar yrði að efla for-
varnir með samstarfi þeir-
ra aðila og stofnana sem að
þeim koma. „Það er stefnt
að því að efla þennan þátt í
heilbrigðiskerfinu og fjöl-
margt sem þarna kemur
undir,“ sagði hann og nefn-
JÁN5SON
Kallað hefur verið
eftir aðgerðum til
að bregðast við
þyngdaraukningu
þjóðarinnar.
di að offita, bæði barna og fullorð-
inna, væri einn af þeim þáttum.
Nýlega var spurst fyrir, á Alþingi,
um aðgerðir sem snúa að börnum
sem stríða við offitu. „Það er full
ástæða til að koma þeim
málum upp á borðið, ásamt
fleirum. Það er til mikils að
vinna, að koma í veg fyrir
heilsutjón með forvörnum,
en þetta kallar á mikið
skipulag," sagði heilbrigð-
isráðherra og treysti sér
ekki til að spá fyrir um
hvenær Lýðheilsustofnun
gæti komist á legg, enda
ætti þingið eftir að fjalla
um málið. ■
Komdu og njóttu hátíðarstemningarinnar
í Smáralind þar sem jólasveinarnir og yfir 70 verslanir
og þjónustuaðilar bjóða alla velkomna.
JóTadagskráin í Vetrargarðinum í dag!
16:30 og 1730 JÓIasaganiesin.
17:00 og 18:00 Jólasveinar skemmta.
Ævintgraheimur barnanna íJÓlalandÍnUíallandag.
Veröldin okkar er full af lífi og fjöri í dag og það sama
á við um göngugötuna þar sem Jólasveinakvartettinn
og harmonikkuleikarar skapa rétta jólaandann.
VG> Smáralind
I -RÉTTI JÓLAANDINN
Verslanir opnar í dag milli klukkan 11:00 og 20:00 • www.smaralind.is
1