Fréttablaðið - 13.12.2001, Page 11
FIMMTUDACUR 13. desember 2001
Stóraukin þátttaka almennings í lyfjaverði:
Málin verða skoðuð
HEitBRiCÐiSMÁl Jón Kristjánsson,
heilbrigðisráðherra, segir að
könnun BSRB á þróun lyfjaverðs
sl. áratug verði tekin til skoðunar
í ráðuneytinu. „Tekin voru ákveð-
in sjúkdómstilfelli og reiknað út
hvað kostnaður hefði hækkað
mikið. Niðurstaðan var sú að
verulegar kostnaðarhækkanir
hafi orðið, sérstaklega á bilinu
1990 til 1996. Síðan hafa ekki
miklar hækkanir orðið, nema hjá
sjúklingum með lungnaþembu
þar sem hækkunin er töluverð.
Við höfum gert ráðstafanir til að
kalla þá til sem gerðu könnunina
og ætlum að fara yfir hana með
þeim. Við höfum líka áhuga fyrir
því að vita hvort aukin tækni,
nýrri lyf, eða aðrir þættir kunni
að spila inn í þessar niðurstöður,"
sagði Jón og bætti við að hann
fagnaði allri umræðu um málið.
Hann sagði ekki hægt að neita því
að á næsta ári kæmu til auknar
álögur á sjúklinga. „Það er aukin
greiðsluþátttaka. Hún er u.þ.b.
helmingurinn af þessum sparnað-
armarkmiðum [ríkisstjórnarinnar
á næsta ári]. Það reyndar felur
ekki í sér aukna greiðsluþátttöku
að raungildi, en krónurnar eru
fleiri því kostnaðurinn er reiknað-
ur upp til verðlags, en við höfum
reynt að miða okkur við það á sem
flestum sviðum.“ ■
Skipverjar á Júpiter ánægðir:
Feit og falleg
boltaloðna
sjávarútvecur Nóta- og togveiða-
skipti Júpiter var að koma aftur á
miðin í gærkvöldi norður af Langa-
nesi eftir að hafa landað 840 tonn-
um af loðnu á Þórshöfn. Jón Axels-
son, skipstjóri, var sáttur við veið-
arnar dagana á undan en þegar
bræla brast á dreif hann sig í land
til að landa.
Hann segir að erfitt hafi verið að
ná loðnunni undanfarið. „Það þarf
að kasta mikið fyrir þetta. Hún
kemur mjög vel upp en er dreifð
ennþá.“ Mannskapurinn um borð
hefur því þurft að hafa mikið fyrir
að ná þessum tonnum en Jón segir
að það liggi vel á áhöfninni. „Það er
hátt verð fyrir loðnuna svo þetta er
helvíti flott.“
Auðveldast er að ná loðnuna upp
úr klukkan sex á daginn og fram til
níu á morgnana. „Þetta er stór og
falleg loðna. Boltaloðna sem er sér-
staklega feit og kemur mjög vel
undan sumri,“ segir Jón og vonast
til að hún eigi eftir að þétta sig þeg-
JÚPITER Á LOÐNU
Vel liggur á áhöfn Júpiters þó það hafi
þurft að kasta oft til að ná loðnunni. Verð-
ið er hátt og loðnan feit.
ar fram líða stundir.
Nokkuð margir bátar hafa verið
þarna norður af Þistilfirði og að
Langanesi og sagði Jón að ein átta
skip hefðu verið í kringum Júpiter
áður en bræla skall á.
Skipverjarnir á Júpiter ætla að
róa fram að 20. desember og halda
svo aftur á miðin eftir áramótin.
Jón segist vona að vertíðin standi
fram yfir janúar eftir að áhöfnin
hafi eytt góðum jólum í faðmi fjöl-
skyldunnar. ■
Lagersala - Lagersala
Lagersalan við hliðina á Rafha húsinu, Lækjargötu 30.Hafnarfirði heldur áfram.
Mikið úrval af gjafa- og jólavörum.
Erum að taka upp mikið magn af nýjum vörum
Fatnaður frá kr 300.- Jólaskraut frá kr. 50.- Skór frá kr 400.-
Fallegar úlpur kr. 1.900,- Skyrtur kr. 300.- Snyrtivörur kr. 50,-
Skartgripir frá kr. 50.- til kr. 300,- Vídíóspólur nýjar og notaðar eitt verð
kr. 300.- Fallegar handtöskur og seðlaveski frá kr 400,- til kr. 1.500,-
Opið alla daga i desember frá kl. 11.00 - 18.00 fram að jólum
og 11.00 - 18.00 milli jóla og nýárs
Upplýsingar í síma 869 8171
Fræðslukvöld í Fossvogskirkju
kl. 20-22 á vegum Kirkjugarða Reykjavíkur-
prófastsdæma, prófastsdæmanna í Reykjavík
og Nýrrar dögunar, samtaka um sorg og
sorgarviðbrögð.
Sr. Sigfinnur Þorleifsson, sjúkrahússprestur,
fjallar um efnið: Jólin og sorgin.
Allir velkomnir.
INTER
SPORT
jólainnkaupin
i Islandsbanka
— og þú ræður hvað gjafirnar kosta!
Nú getur þú gert öll þín jólainnkaup
á einum staó og komiÓ þeim sem þér
þykir vænt um skemmtilega á óvart
med nýstárlegri gjöf frá íslandsbanka.
Gjöfina færðu í fallegri gjafaöskju.
Gefðu gjöf sem vex!
Islandsbanki
- þar sem gjafirnar vaxa!
VINTERSPORT
VINTERSPORT
riNTERSPORT
VINTERSPORT
Þú færð jólagjjöfína
f Intersport
-k'
¥
www.isb.is
VINTERSPORT
Bildshöfða • S10 8020
Smáralind » 510 8030
www.intersport.is