Fréttablaðið - 13.12.2001, Page 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
13. desember 2001 FIMMTUDAGUR
Sala Perlunnar í Öskjuhlíð:
Söluverð mótast
af starfseminni
INNLENT
kipverji, sem var bjargað sl.
þriðjudagskvöld, eftir að hann
tók út af togaranum Kaldbak í
Eyjafirði, segist alltaf hafa verið
sannfærður um að hjálp bærist og
þakkar lífgjöfina réttum viðbrögð-
um áhafnarinnar. Skipverjinn var
um 10 mínútur í sjónum. RÚV
greindi frá.
A' hugi innlendra f járfesta á Sím-
anum hefur glæðst í vikunni og
fór gengi félagsins á Tilboðsmark-
aði VÞÍ hæst í 6,30 á þriðjudag. Út-
boðsgengið í september var 5,75 og
er því um töluverða hækkun að
ræða. Telja má að hækkunin
skýrist af tilboðum TeleDanmark
og Providence í 25% kjölfestuhlut í
Símanum sem eru til skoðunar hjá
einkavæðingarnefnd.
fasteignir Unnið er að því að koma
á eignaskiptasamningi fyrir
Perluna í Öskjuhlíð, að sögn Finn-
boga Kristjánssonar hjá Fasteigna-
sölunni Fróni. „Það er í sjálfu sér
ekkert voðalega mikið vandamál.
Þetta verður bara leyst og er ekki
þröskuldurinn í sjálfu sér,“ sagði
hann og taldi þröskuldinn frekar
liggja í háum fasteignagjöldum, 32
milljónum á ári, og háu fasteigna-
mati. „En fasteignamatið sem er 1,8
milljarðar myndi kannski skiptast í
eignaskiptasamningi. Samt hef ég
ekki trú á að það liggi í tönkunum
heldur frekar í kúplinum," sagði
hann og taldi óhætt að búast við að
sala Perlunnar gæti tekið einhvern
tíma. „Miðað við hvað þetta er sér-
stök bygging má alveg búast við að
þetta verði eitthvað fram á næsta
ár. Við höfum lent í að vera með
byggingar sem eru sérsniðnar fyrir
alveg ákveðna starfsemi í sölu í á
annað ár þannig að alveg rólegir
eins og er, yfir þessu.“ Finnbogi
FINNBOGI KRISTJÁNSSON
Finnbogi segir að verði spilavítisrekstur
heimilaður á Islandi þýddi það að töluvert
hærra verð gæti fengist fyrir Perluna yrði
hún tekin undir slíka starfsemi.
sagði að söluverðið yrði að fá að
mótast dálítið enda væru engar
sambærilegar eignir að bera sig
saman við, en það mótaðist óneitan-
lega af nýtingarmöguleikum bygg-
ingarinnar og fleiri þáttum. ■
Frakkland:
Kosningar
haldnar í vor
parís. ap Forsetakosningar verða
haldnar í Frakklandi dagana 21.
apríl og 5. maí næstkomandi.
Þingkosningar verða síðan
haldnar dagana 9. júní og 16.
júní.
Ríkisstjórn Frakklands tók
ákvörðun um þetta í gær, en
kjörtímabil Jaqcues Chiracs
Frakklandsforseta rennur út 16.
maí.
Nú þegar hafa fjölmargir ein-
staklingar kynnt framboð sitt til
forsetaembættisins, en hvorki
Chirac né Lionel Jospin forsætis-
ráðherra, hafa ekki enn gefið nein-
ar yfirlýsingar um framboð. ■
Bætt vínmenning
eða áhrif bjórsins?
Læknir og vínsérfræðingur segir aukna sölu ATVR e.t.v. til marks um breytta vínmenningu.
Læknir hjá SAA segir lengi hafa verið búist við aukningu í framhaldi af lögleiðingu bjórsins.
3.500 manns bíða aftöku
í Bandaríkjunum:
85 aftök-
ur í fyrra
washington. ap Á árinu 2000 voru
áttatíu og fimm fangar teknir af
lífi í Bandaríkjunum, sem er
þrettán aftökum færra en árið
áður.
Meira en 3.500 fangar bíða
hins vegar aftöku í 37 ríkjum
Bandaríkjanna. Þar af eru rúm-
lega fimmtíu konur.
Yfirvöld í Texas tóku fjörutíu
manns af lífi árið 2000 en í Okla-
homa voru aftökurnar ellefu.
49 hinna líflátnu voru hvítir á
hörund, 35 svartir og einn ind-
jáni.
Nærri allir voru teknir af lífi
með því að eitri var sprautað í
æð þeirra, en fimm enduðu æv-
ina í rafmagnsstól.
Frá því árið 1977, þegar af-
tökur voru heimilaðar á ný í
Bandaríkjunum, hafa samtals
683 fangar verið teknir af lífi
þar. ■
vínmenning Einar Thoroddsen,
læknir og landsþekktur vínsér-
fræðingur, segir að sölutölur
ÁTVR um aukna vínsölu kunni að
endurspegla breytta vínmenningu
hér á landi. „Ég get vel imyndað
mér að þetta endurspegli þann
aukna áhuga og vit sem fólk hefur
á þessu. Alla vega hjá þeim sem
tala við mig á förnum vegi.
Kannski hefur heilsufarsáróður-
inn um jafna neyslu haft einhver
áhrif,“ sagði hann og benti á að
sumar kannanir hafi talið sig sýna
fram á að regluleg, hófleg áfeng-
isneysla sé heilsusamleg. „Það er
allt frá einu glasi og upp í hálfa
flösku á dag, eftir atvikum. Sumir
halda þessu fram og örugglega
eitthvað til í því. Svo eru sjálfsagt
einhverjir annmarkar ef fólk leið-
ist út í stigaukna neyslu. Ef léttvín
aukast á kostnað annara tegunda,
þá er ég svo sem manna fegnast-
ur, en gallinn er bara sá að þau eru
of dýr á íslandi," sagði Einar.
Guðbjörn Björnsson, læknir
SÁÁ, segist ekki sjá breytingar á
vínmenningu í sínu starfi, enn
sem komið er. „Sannleikurinn er
sá að við sjáum ekki nema toppinn
á ísjakanum og fáum bara þá sem
komnir eru í mestu vandræðin. Að
jafnaði tekur langan tíma og mörg
ár fyrir breytingar að koma í ljós
hér hjá okkur, en það getur alveg
tekið 10 ár að þróa alkóhólisma,"
sagði hann og bætti við að um
nokkurt skeið hafi verið búist við
aukningu í þeim efnum, en rúm 12
ár væru síðan bjórinn hafi verið
leyfður á íslandi. ■
EINAR THORODDSEN
Einar segir ekki ólíklegt að kyrrseta
geri það að verkum að víndrykkja
og golf séu algeng hugðarefni
lækna, enda séu þeir „dellukarlar
og þverhausar" upp til hópa og
stundi oft vel áhugamál sín.
Ný bók eftir Ólaf Hauk Símonarson
Fáir höfundar hafa skemmt íslenskum
bömum og unglingum betur en Ólafur
Haukur á síðustu áratugum.
Þessi bók er í senn organdi fyndin og
raunsönn lýsing á samskiptum fólks
í nánu sambýli.
Frábær bók.
„Hafi fullorðið fólk gaman af
bókum fyrir böm eru þær
góðar. Það á svo sannarlega
við um Fólkið í blokkinni.“
Sigurður Helgason, Mbl.
Mál og mynd
Bræðraborgarstíg 9*101 Reykjavík
Sígraent eðaltré í haesta gaeðaflokki frá
skátunum prýðir nó þúsundir ísienskra heimiia.
10 ára ábyrgð <s* Eldtraust
ia 12 stærðir, 90 - 500 cm
Stálfótur fylgir
Ekkert barr að ryksuga
i>* Truflar ekki stofublómin
ta Þarf ekki að vökva
a. íslenskar leiðbeiningar
tí Traustur söluaðili
ta Skynsamleg fjárfesting
/Annsiffe'Siikks] 2
Bandalog íahsnskra tkóia
Akranes:
Hart deilt um
fjárhagsáætlun
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Bæjarstjórn Akra-
ness afgreiddi fjár-
hagsáætlun næsta
árs á fundi sínum á
þriðjudagskvöld og
er þar gert ráð fyr-
ir að 14 milljón
króna halli verði á
rekstri bæjarsjóðs.
Sjálfstæðismenn
gagnrýndu fjár-
hagsáætlunina harkalega. „Það er
dapurleg staðreynd að nú þegar
tekjur Bæjarsjóðs Akraness hafa
ekki í annan tíma verið meiri og
álögur á bæjarbúa aldrei verið
jafnháar, þá er skuldastaðan verri
en nokkru sinni áður. Það er skoðun
okkar sjálfstæðismanna að ekki sé
hægt að styðja lántökur til að halda
úti rekstri og í raun er það algjört
ábyrgðarleysi." Fulltrúar meiri-
hluta Framsóknar
og Akraneslista í
bæjarstjórn lýstu
furðu sinni á bók-
un sjálfstæðis-
manna þar sem
fulltrúi sjálfstæð-
ismanna hafi unnið
að gerð áætlunar-
innar í bæjarráði
og aldrei komið
fram að hann hafi
ekki ætlað að standa að áætluninni.
„Þess vegna kemur það mjög á
óvart að bæjarfulltrúar sjálfstæð-
isflokksins hlaupi nú út undan sér
og skýli sér bak við bókun sem er
full af rangfærslum. Meirihlutinn
lýsir yfir mikilli vanþóknun á slík-
um vinnubrögðum og telur afstöðu
bæjarfulltrúa Sjálfstæðismanna
lýsa ömurlegri málefnafátækt
þeirra." ■
Danski ríkislögreglustjórinn:
AKRANES
Hart var deilt um fjárhagsáætlun
næsta árs á bæjarstjómarfundi.
Fjarlægði klámsíðu-
tengil af heimasíðunni
klámsíða Tengill inn á heimasíðu
TV3 sem leiddi inn klámsíðu af
heimasíðu dönsku lögreglunnar
hefur verið fjarlægður af danska
ríkislögreglustjóranum. Var þetta
gert eftir að tölvudeild íslenska
ríkislögreglustjórans hafði sam-
band við upplýsingadeild danska
ríkislögreglustjórans í kjölfar
fréttar á Strik.is um tengingu inn
á klámsíðu af íslenska lögreglu-
vefnum í gegnum hinn danska.
Samstarf hafði verið með dan-
ska ríkislögreglustjóranum og
TV3 vegna sjónvarpsþáttarins
„Efterlyst" og í þeim tilgangi
hafði tenglum milli heimasíða
þessara tveggja aðila verið kom-
ið á. TV3 hafði síðan bætt inn
tenglin inn á klámsíðu á sinni
heimasíðu og um það var danska
ríkislögreglustjóranum ekki
kunnugt fyrr en sá íslenski benti
á það. ■