Fréttablaðið - 13.12.2001, Page 14
FRETTABLAÐIÐ
13. desember 2001 FIMMTUDACUR
Amerískar lúxus
Jólatilboð!
Verðdæmi
King
Queen
áður kr 184.350
áður kr 134.900
nú kr 136.420
nú kr. 99.840
ESSO-deild karla:
Haukar
lögðu Val
HANPBOLTi Toppslagur fór fram í
ESSO-deildinni í gær. Þá mættust
Haukar og Valur á Ásvöllum.
Heimamenn unnu leikinn 24-23. í
hálfleik voru Haukar komnir með
fimm marka forskot, 15-10, en Vals-
menn tóku á honum stóra sínum og
minnkuðu muninn. Það dugði þó
ekki til. KA tók á móti Víkingi á Ak-
ureyri. Það var eins og í Hafnar-
firðinum, heimavöllurinn knúði
fram sigur og KA vann leikinn ör-
ugglega, 31-20. Þriðji og síðasti
leikur kvöldsins fór fram í Garða-
bænumþar sem Stjarnan tók á móti
Fram. Öfugt við hina leiki kvölds-
ins unnu gestirnir leikinn. Staðan
var jöfn í hálfleik, 11-11, en Fram
fór á skrið í seinni hálfleik og vann
27-23.
í gær átti að fara fram í Vest-
mannaeyjum viðureign ÍBV og HK.
Honum var frestað vegna ófærðar
og fer fram kl. 20 í kvöld, ef veður
leyfir. ■
ESSO DEILD KARLA
Lið Leikir U J T Mörk Stig
Haukar 12 11 1 0 332:291 23
Valur 12 8 1 3 327:299 17
IR 11 7 1 3 285:266 15
UMFA 11 6 1 4 265:254 13
Þór A. 11 5 2 4 312:300 12
KA 12 5 2 5 305:295 12
Crótta/KR 11 6 0 5 281:284 12
Fram 12 3 4 5 294:286 10
FH 11 3 3 5 280:283 9
Selfoss 11 4 1 6 290:303 9
IBV 10 4 1 5 271:288 9
HK 11 3 2 6 304:311 8
Stjarnan 12 3 2 7 288:311 8
Víkingur 11 0 1 10 238:301 1
UNITED RÉTTIR ÚR SÉR
Roy Keane skorar hér annað mark
Manchester United í 4-0 sigurleik liðsins á
móti Derby í Ensku úrvalsdeildinni I gær.
Liverpool mætti einnig Fulham en sá leikur
endaði með markalausu jafntefli.
Ein mest selda heilsudýnan í heiminum
Alþjóðasamtök Chiropractora mæla með
King Koil heisludýnunum.
Refefejan
Skipholti 35 • Sítni: 588-1955
LAGER SALA
| Gæsaskyttirí
heima í stofu.
Myndvarpinn
varpar myndinni
afbráðinni
ávegginn
og riffillinn er
tengdur
myndinni, þegar
þú hittir fellur
bráðin til jarðar.
Hörkuspennandi
I og skemmtilegt
verkfæri.
áður kr. 12.900,-
Saumavélin sem saumar, gengur fyrir rafhlööum, Þú getur saumað
á dúkkuna þína. - Box með tvinna, skærum, málbandi o.fl. fylgir.
Næstumþvi alvöru .. *—'
saumavél.
áður kr. 2.100,-
MonsterTruck.
Þessi er alveg frábær.
Þú trekkir hann upp með því að
& ýta á hann og krafturinn
%i er ótrúlegur, hann veður yfir
allt sem í vegi hans er.
tm áður kr. 2.900,-
Opnunartími:
alla daga frá kl 13-17
(lokað á sunnudögum)
I.Guðmundsson ehf.
Skipholti 25 • 105 Reykjavík
Leiftur skuldar tæpar
30 milljónir króna
Leiftur hefur óskað eftir fjárhagsstyrk frá bæjarstjórn Ólafsfjarðar til að
geta gengið til nauðasamninga. Skuldir félagsins námu 45 milljónum
króna í fyrra.
fótbolti Leiftur á Ólafsfirði hefur
farið fram á fjárhagslegan styrk
frá bæjarstjórn Ólafsfjarðar.
Benedikt Sverrisson, sem verið
hefur formaður Leifturs
síðastliðið ár, sagði að
skuldir félagsins
næmu um 26 til 28
milljónum króna og að
ef það fengi styrk frá
bænum yrði gengið til
nauðasamninga, annars
blasi gjaldþrot við. Bæjar
stjórn myndi taka erindið
fyrir á fundi á þriðjudaginn.
„Það er búið að vera að vinna í
þessum málum síðan í fyrra,“
sagði Benedikt. „Skuldir félagsins
voru allt aðrar í fyrra en þær eru
í dag. Þær voru að minnsta kosti
45 milljónir króna. „
Að sögn Benedikts eru fjöl-
margar ástæður fyrir slæmri
fjárhagsstöðu Leifturs. Hann
sagði að félagið hefði, líkt og
mörg önnur félög á íslandi, spen-
nt bogann alltof hátt, m.a. hefði
launakostnaður leikmanna verið
of hár, en að ýmislegt annað hefði
einnig spilað þar inn í.
„Ég held að of hár launa-
kostnaður hafi samt
ekki verið dropinn sem
fyllti mælinn. Það er al-
veg sama hvað þú ert að
gera ef þú borgar of
mikið fyrir einn þátt þá
hlýtur það að koma niður á
einhverjum öðrum."
Skuldir félagsins hafa því
lækkað um 17 til 19 milljónir á
milli ára og sagði Benedikt að það
mætti þakka aðahaldi í rekstri og
þá hefðu einstaklingar einnig lagt
sitt af mörkum með fjárframlög-
um til félagsins.
Vissulega yrði reksturinn
áfram erfiður þó gengið yrði til
nauðasamninga, en ef gjaldþrota-
leiðin yrði farin þyrfti að leggja
félagið niður og stofna nýtt. Nýja
félagið myndi síðan þurfa að hefja
keppni í 3. deild og sagði Benedikt
að reynslan hefði sýnt að öll upp-
bygging yrði mun erfiðari ef lið
neyddust til að gera það. ÍBÍ
(íþróttabandalag Isafjarðar) var
lagt niður á sínum tíma og knatt-
spyrnan hefur í raun aldrei náð
sér á strik á ísafirði síðan þá, þó
nýtt knattspyrnufélag hafi verið
stofnað.
Benedikt sagði afar mikilvægt
fyrir félög að vera með sterkan
meistaraflokk, því ungmennin
sem æfðu hjá þeim þyrftu að eiga
sér fyrirmyndir og hafa að ein-
hverju að stefna. Efnilegir knatt-
spyrnumenn vildu leika með góð-
um liðum og að Akureyringar
hefðu t.d. orðið vitni að því þegar
knattspyrnan hefði verið í lægð
þar. Þá hefðu knattspyrnumenn
þar frá flykkst til Olafsfjarðar
sem þá átti lið í efstu deild. Leift-
ur lék í efstu deild frá árinu 1995
til 2000, en í síðastliðið sumar lenti
liðið í fimmta sæti í 1. deild. ■
HART BARIST
Claudio Caniggia, leikmaður Glasgow Rangers, var eitt sinn dæmdur í þrettán mánaða
keppnisbann fyrir kókalnneyslu líkt og landi hans Maradona.
Erfiður rekstur í Ameríku:
Boca skuldar Caniggia
300 milljónir króna
fótbolti Allir bankareikningar
argentínska liðsins Boca Juniors
hafa verið frystir þar sem liðið
skuldar Claudio Caniggia, fram-
herja Glasgow Rangers, rúmar
tvær milljónir punda eða um 300
milljónir íslenskra króna. Liðið
má ekki kaupa né selja leikmenn
þar til það hefur gert upp við
framherjann snjalla.
Caniggia lék með Boca frá ár-
inu 1996 til 1998. Hann gerði
samning við liðið þess efnis að
hann fengi borgað fyrir hvern
spilaðan leik en þegar Carlos Bi-
anchi tók við þjálfun liðsins árið
1998 var Caniggia ýtt út í kuldann.
Hann sætti sig ekki við það og fór
í mál við Boca sem endaði með
fyrrgreindum dómsúrskurði.
Mál Caniggia er ekki eins
dæmi því Faustino Asprilla, sem
leikið hefur með mexíkóska liðinu
Atlante, gekk útaf æfingu fyrir
nokkru þar sem hann segir liðið
skulda sér laun. „Þeir skulda mér
tveggja mánaða laun, auk
bónusa," sagði Asprilla í samtali
við fjölmiðla en hann lék eitt sinn
við Parma.
Stjórn Atlante neitar því hins-
vegar að skulda honum pening og
hafa hótað að fara í mál við kól-
umbíska framherjann. ■
Leikmenn KH:
Fáekki
borgað
FÓTBOLTI Leikmenn KR eiga inni
vangoldin laun til nokkurra mánaða
hjá félaginu. Fjárhagsstaða KR-
Sport er ekki sterk og verið er að
endurskipuleggja félagið og lækka
fastan kostnað þess. í sambandi við
það verða samningar leikmanna
teknir til skoðunar.
í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi
kom fram að leikmenn liðsins hefðu
boðað til verkfalls eftir áramót
vegna þessa. Heimildarmaður
Fréttablaðsins sagði hinsvegar að
leikmenn hefðu ekki fundað um
umrætt verkfall og formaður KR-
Sport, sem vildi ekki tjá sig um
málið, sagðist ekki kannast við að
boðað hefði verið til verkfalls. ■
NBA:
Lakers
tapa heima
körfubolti Los Angeles Lakers tap-
aði 104-93 fyrir Seattle Superson-
ics á heimavelli í fyrrakvöld.
Lakers tapaði þar með sínum öðr-
um leik í röð því á föstudaginn tap-
aði liðið fyrir Sacramento Kings
97-91 á útivelli.
Gary Payton fór fyrir sínum
mönnum og skoraði 29 stig fyrir
Supersonics og gaf 10 stoðsending-
ar. Shaquille O’Neal skoraði 37 stig
fyrir Lakers og tók 16 fráköst.
Lakers hefur nú sigraði í 16 leikj-
um en tapað í þremur. ■