Fréttablaðið - 13.12.2001, Page 18
HVER ER TILGANGUR LÍFSINS
Að lifa fyrir daginn
Að lifa í dag og deyja á morgun.
Stefán Máni rithöfundur
Véla-
viðgerðir
VELALAND
VÉLASALA * TÚRBÍNUR
VARAHLUTIR • ViÐGERÐIR
Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík
Sími: 577 4500
velaland@velaland.is
BORGARLEIKHUSIÐ
STORA SVIÐID
NYJA SVIDID
FJANDMAÐUR FOLKSINS e. Henrik Ibsen
Fim. 27. des. kl. 20 LAUS SÆTI
Áskriftargestir munið valmöguleikann!!!
BLÍÐFINNUR e. Þorvald Þorsleinsson_______
Sun. 30. des. kl. 14 LAUS SÆTI
KRISTNIHALD UNDIR JÖKLI e. Halldór Laxness
Fös. 28. des. kl. 20 - LAUS SÆTI
MEÐ VlFIÐ ILÚKUNUM e. Rav Coonev_________
Lau. 29. des. kl. 20 - LAUS SÆTI
Lau. 19. jan. kl 20 - LAUS SÆTI
SÍMI: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13 -18 alla virka daga
og fram að sýningu sýningardaga.
Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383
midasala@borgarleikhus.is www.borgarleikhus.is
JÓLAGAMAN BORGARLEIKHÚSSINS_________________
Leikið - sungið - lesið - dansað kringum jólatré
Jólasveinar - Bóla - Grýla & Leppalúði - Eóda Heiðrún o.m.fl.
Lau. 15. des. kl. 17
Sun. 16. des. kl. 17
Aðgangseyrir kr. 500
BEÐIÐ EFTIR GODOT e. Samuel Beckett
Fös. 28. des. kl. 20 LAUS SÆTI
ÞRIÐJA HÆÐIN
PÍKUSÖGUR 6. Eva Ensler
Lau. 29. des. kl. 20 UUS SÆTI
LITLA SVIÐIÐ
VETUR IBÆ_________________________________
Kvöldvaka með Kötlu Margréti og Eddu Björgu,
Jazztrió, leynigestur o.tl.
Sun. 16. des. kl 20
GJAFAKORTILEIKHUSIÐ Heill heimur i einu umslagi
• Sendum heim ■
13. desember 2001 FIMMTUDAGUR
BÆKUR
Þófyrr hefdi verið
Sögur, leikrit, Ijóð
að hefur skipt sköpum fyrir ís-
lenskar bókmenntir að eiga
snillinga í bókmenntaþýðingum.
íslendingar eru svo heppnir að
eiga nokkra slíka. Vonum seinna er
komið út heildarsafn verka Geirs
Kristjánssonar eins merkilegasta
þýðanda þjóðarinnar.
Hverjum unglingi er hollt að
verða fyrir nokkrum bókmennta-
legum vitrunum á viðkvæmum
aldri. Eina slíka á ég Geir Krist-
jánssyni að þakka. Þegar ég las
þýðingu hans á „Ský í buxum,“ eft-
ir Majakovski var eins og ég væri
lostinn eldingu, kraftur þýðingar-
innar dreif mig með sér, þaðan sem
ég átti ekki afturkvæmt. Hugurinn
þroskast í slíkum skrefum.
frumsamin verk og þýoingar
Höfundur: Geir Kristjánsson
Úgefandi: Mál og menning 2001
412 bls.
Mér þykir mestur fengur í öll-
um þýðingunum á einum stað, en
það er líka forvitnilegt að kynnast
frumsömdu efni Geirs. Það sýnir
að hann var prýðilegur höfundur,
þótt þýðingarsnilldin yfirskyggi
nokkuð hans eigin verk. Margir
höfundar gætu vel lifað við hand-
bragð frumsömdu verkanna, en
næmi, sköpunarkraftur og mál-
snilld þýðinganna munu halda
nafni Geirs á lofti svo lengi sem
menn lesa íslensku.
FIMMTUPAGURINN
13. DESEMBER
JÓLASVEINAR_________________________
10.30: Giljagaur kemur til byggða og lít-
ur við í Ráðhúsi Reykjavíkur.
FYRIRLESTRAR OG MÁLSTOFUR
12.10: Svanborg Sígmarsdóttir kynnir
doktorsritgerðina Human Dignity
and Political Theory, sem hún er
að skrifa við University of Essex, á
Málstofu stjórnmálafræðiskorar í
stofu 201 í Odda.
16.15: Ragnheiður Hrönn Stefánsdóttir
flytur erindið The downstream
pathway of the hypocretin
receptors í sal Krabbameinsfélags
Islands, efstu hæð.
20.00: Sr. Sigfinnur Þorleifsson, sjúkra-
húsprestur, heldur fyrirlestur í
Fossvogskirkju undir fyrirsögninni
Jólin og sorgin.
TÓNLEIKAR
21.00: Tónleikar á aðventu með Bubba
Morthens á Kringlukránni.
21.00: Jólatónleikar Borgardætra á
Nasa. Trfóið eru Andrea Gylfa,
Ellen Kristjáns og Berglind Jón-
asdóttir og undirleikarar Eyþór
Gunnarsson og Birgir Bragason.
21.00: Djasskvöld í Múlanum, Húsi
Málarans. Davíð Þór Jónsson á
píanó, Valdimar Kolbeinn Sigur-
jónsson á kontrabassa og Helgi
Svavar Helgason á trommum.
22.00: Grungekvöld á Gauk á Stöng.
Steini úr Dead Sea Apple og Val-
ur Buttercup leika uppáhaldslög.
21.00: Erna Blöndal heldur tónleika
ásamt Vitringunum, skipaða Eð-
valdi Stefánssyni, Guðmundi
Pálssyni og Erni Arnarsyni, í
Kaffileikhúsinu.
UPPLESTUR___________________________
20.30: Vinstri grænir efna til bóka- og
upplestrarkvölds á Næsta bar.
Einar Már Guðmundsson, Katrin
Jakobsdóttir, Rakel Pálsdóttir,
Vigdís Grimsdóttir, Kristín
Ómarsdóttir og Þórunn Valdi-
marsdóttir lesa upp.
SKEMMTUN____________________________
20.00: Jólagleði Súfistans. Óvæntar
uppákomur, jólahappdrætti og
fleira. Sigurður Flosason og
Gunnar Gunnarsson leika.
Er náunginn takmarkið
eða leið að takmarkinu?
Hvað er mannleg virðing? Svanborg Sigmarsdóttir doktorsnemi hef-
ur komist að því að skilningur manna á hugtakinu er margþættur. I
dag kl 12.10 mun Svanborg ræða þessa hluti og fleira í málstofu í
Odda, stofu 201. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
DVERCARNIR MÓTMÆLTU
( Þýskalandi og Frakklandi er lögbundið í stjórnarskrá ríkjanna að virða skuli virðingu
mannsins. Fyrir nokkrum árum kom upp mál í Frakklandi þar sem banna átti dvergakast
sem íþrótt og var það byggt á þeirri kenningu Kants að ekki ætti að nota aðra mann-
eskju sem hlut. Dvergarnir mótmæltu harðlega og vildu fé að taka þá ákvörðun sjálfir.
málstofa Þegar Svanborg var í
mastersnámi ætlaði hún að skri-
fa um mannréttindakenningar.
Mannréttindayfirlýsing Samein-
uðu þjóðanna og reyndar vel
flestar réttindayfirlýsingar S.Þ.,
að hennar sögn, hefjast á því að
virða beri mannlega virðingu.
Öll önnur réttindi mannsins byg-
gja á þessu.
„Það töluðu allir eins og það
ætti að liggja í augum uppi hver
þessi mannlega virðing væri. Ég
var hins vegar ekki alveg sam-
þykk því að þetta væri svona
augljóst,“ segir Svanborg, sem í
doktorsritgerð sinni í stjórn-
málafræði fjallar um hugtakið
mannleg virðing.
í ritgerðinni ber hún saman
greiningu þriggja fræðimanna
og hugsuða á hugtakinu, þeirra
Immanuel Kants, Charles
Taylors og Maclntyre.
„Ég hef viljað fylgja skil-
greiningu Taylors sem fjallar
annars vegar um að mannleg
virðing feli í sér að það sé eitt-
hvað einstakt við manninn og
hins vegar um þá hugsjón
mannsins að lifa hinu virðulega
lífi sem m.a. kemur fram í því
hvernig við berum okkur þegar
við komum fram opinberlega eða
tölum við ókunnugt fólk. Um það
hvort fólki takist að öðlast virð-
ingu annarra.“
Hún segir ýmislegt í samfé-
laginu sem gefi okkur vísbend-
ingar um hvað við eigum að virða
í fari annarra. Sjálf hefur hún
verið á móti slíkum algildingum
þar sem samfélagið sé stöðugum
breytingum undirorpið.
„Kant sagði að virða bæri
manninn af því að hann væri
sjálfráða. Maðurinn væri sið-
ferðileg vera sem væri fær um
að taka eigin ákvarðanir og að
allar ákvarðanir væru einstak-
ar.“
Hún segir slíkar ákvarðanir
ekki falar að mati Kants: Það
sem ekki hafi verð hafi virðingu,
segi hann og tengi skilgreining-
una skylduboði sínu; hvernig
eigi að koma fram við menn.
Aldrei eigi að koma fram við
sjálfan sig né aðra eins og það sé
leið að takmarki heldur eins og
það sé takmarkið í sjálfu sér, að
mati Kants.
„Fólk er auðvitað alltaf að
nota annað fólk en það eitt gerir
það ekki að ósiðlegum manneskj-
um að mínu mati. Hins vegar má
spyrja sig: Ef manneskjur eru
ekki færar um að taka eigin
ákvarðanir er þá í lagi að nota
þær? Til að mynda manneskju
sem liggur í dái?
Ég kemst að þeirri niðurstöðu
að í nútíma fjölþjóðlegu samfé-
lagi sé ekki hægt að byggja rétt-
indi manna á skilgreiningu
Kants.“
kristjangeir@frettabladid.is
Harðir
Skrúfjárna/bitasett
42 stk í tösku
2.995 kr.
Bita-, bora- og toppasett
42 stk í öskju
1.995 kr.
pakkar
Robust hleðsluborvél
14.4V, hleðslutími 1 klst.
2 rafhlöður og taska fylgir
11.995kr.
16" verkfærataska
með skrúfuboxi
995 kr.
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is •