Fréttablaðið - 13.12.2001, Blaðsíða 24
I
FRETTABLAÐIÐ
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 7520
VlÐ SECJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á vísir.is Fyrstur með fréttirnar
SímaLottó!
600.000 kr. sigling með
Úrval- Útsýn fyrir 300 kr. ?
Hringdu strax í
907-2000
DragiS allcr flmmtudaga. Fylgstu mcfi á RÚV.
Ekki missa af vinningi!
Bakþankar
STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR
......................
Málið er vinur
og förunautur
Eitt af því skemmtilegasta við að
vera maður er að eiga tungumál
sem hægt er að nota til að tala, skrifa
og ekki síst hlusta á aðra. í beitingu
tungumálsins er fólgin mikil sköpun,
sköpun sem allir menn eiga sameig-
iniega því allir eiga sér móðurmál.
—«—
Örvun í skapandi beitingu
málsins er afar mikilvæg öllum
börnum og unglingum. Það á að
þrykkja þessu fólki til að tala, skrifa
og hlusta alveg viðstöðulaust. Aðal-
atriðið er að tungumálið sé lifandi
og fólki handgengið. Þó að það sé
góðra gjalda vert að nota sömu orð
og notuð voru fyrir þúsund árum og
sömu málfræðireglur líka er þetta
ekki lykilatriði heldur að geta notað
málið til að segja það sem maður er
að hugsa. Móðurmálskennsla á að
örva fólk til þess konar sköpunar en
ekki letja það og alls ekki vekja ótta
við málið.
—♦—
Það er mikil lenska að fárast
yfir því hvernig ungt fólk talar. Mál-
far unglinga er að vísu á köflum
nokkuð einhæft. Hins vegar er til
fólk á öllum aldri sem talar einhæft
mál, jafnvel þótt það noti orð sem
hafa verið til í málinu frá alda öðli og
hviki aldrei frá málfræðireglunum.
Þetta finnst mér oft gleymast þegar
talað er um að heimur versnandi fari.
—♦—
Eitt af því sem einkennir fólk á
unglingsaldri er að það vill storka
umhverfinu. Það er eðlilegur liður í
þroska sérhvers manns að setja
spurningarmerki við gildin sem
manni hafa verið kennd bæði heima
og í skólum. Þetta er liður í því að
verða fullorðinn og þurfa sjálfur að
taka ákvarðanir og seinna meir að
innprenta öðrum sín gildi. Ef ekki
væru unglingsárin með sínum spurn-
ingarmerkjum við það sem kennt
hefur verið og ákveðinni uppreisn
væri líklega fátt skapandi gert meðal
okkar mannanna.
■
Uppreisn unglingsáranna nær
vítt og breitt, meðal annars til máls-
ins. Sú uppreisn er oft fólgin í því að
nota erlendar slettur en líka að beita
málinu á einhvern hátt öðruvísi en
tíðkast hefúr, til dæmis með því að
hnika til merkingu orða. Slettur
koma og fara og yfirleitt eru þær
felldar inn í íslenska beygingakerfið
þannig að málkerfinu sjálfu stafar
lítil ógn af þessum tímabundnu gest-
um. í óhefðbundinni beitingu málsins
er Iíka oft fólgin sköpun og mjög lif-
andi málnotkun. Aðalatriðið er að
vera í góðu vinfengi við móðurmálið
sitt, líta á það sem förunaut sinn og
lifandi tæki sem nota má til að tjá sig
um allt sem maður hugsar.
„Líkt og síðasta saga Sjóns er Mcd titrandi tcír bullandi skemmtileg og
íyndin. 1 lún bregður sér í margra kvikinda líki, er grótesk. ljóðræn,
dulspekileg og heimssöguleg. Saman mynda þessar tvær skáldsögur
Sjóns magnaða aldarlokakviðu. Þetta eru iantasíur, þar sem allt er
með ólíkindum en þó spriklandi af jarðbundnu lífí. dauða, kynlífi
og slagsmálum."
Jón Vngr i Jóhannsson, DV
„í stuttu máli sagt er þessi skáldsaga rnjög skemmtileg, bugmyndarík og
fvndin furðusaga. Þetta er heimur sem er heillandi, fvndinn og
skemmtilegur. Sjón hefur tekist að skapa íurðusögu sem er mjög vel skrifuð
og dregur lesandann áfram.“
Hákon Gunnarsson, kistan.is
M
Mál og menning
„Einstök skáldsaga. fjölskrúðug, Ijölþætt og ævintýraleg, og umfrarn allt:
dýrlega skennn tileg.“
Úlíliildur Dagsdóttir, Kaslljósi
sound. vision.sou/
NS-11 eru hljómtæki sem hafa vakið athygli
fyrir það að uppfylla helstu óskir þeirra
sem eru að leita að hljómgæðum ásamt
fallegri og stílhreinni hönnun. /A ?
http://www.fJoneer-eur.com
Þegar fegurð, stíll og gæði sameinast
Verð: 76.900,-stgr
BRÆÐURNIR
PÍORMSSON
HLJÓMTÆKI
Lágmúla 8 • Slmi 530 2800