Fréttablaðið - 01.02.2002, Síða 4

Fréttablaðið - 01.02.2002, Síða 4
SVONA ERIIM VIB Haldlagt amfetamín Þegar skoðaðar eru tölur um magn ávana- og fíkniefna, sem lögregla og tollgæsla leggur hald á, sést að þær eru mjög mis- munandi á milli ára. Hér að neðan er magn amfetamlns sem lagt var hald á. Töl- ur frá 1996 og 1997 eru frá lögreglunni I Reykjavík. Ár gr- 1996 6.117 1997 2.066 1998 1.875 1999 5.078 2000 10.268 Heimild: Ársskýrsla rikislögreglustjóra 2000 REYKINGAR Á MATSÖLUSTÖÐUM Nings er í fararbroddi veitingastaða sem þjóna reyklausum viðskiptavinum. „Það er vont þegar verið er að dæma menn sak- lausa," segir framkvæmdastjórinn. Reykingar á veitingastað: Brutu ekki tóbaks- vamarlögin rekstub Bjarni Óskarsson, fram- kvæmdastjóri Nings, segir veit- ingastaðinn ekki hafa brotið lög um tóbaksvarnir þegar reykingar voru leyfðar á litlu afmörkuðu svæði inni á staðnum. Nings hafi verið í fararbroddi þeirra veitingastaða sem vilja draga úr reykingum á matsölustöðum. „Nú erum við al- farið búnir að banna reykingar á staðnum. Það má enginn reykja þó það mætti samkvæmt lögum,“ seg- ir Bjami. Viðskiptavinir Nings kölluðu á lögreglu og kærðu staðinn fyrir að leyfa reykingar fyrir stuttu. Lög- reglan tók skýrslu af viðskipta- mönnunum, vaktstjóra og sendi sýslumanninum í Kópavogi. Bjarni segir að þeim hafi ekki enn verið birt ákæra. Allir sjá það að Nings hafi ekki brotið lög þar sem segir í 9. grein tóbaksvarnar- laga að það megi heimila reykingar á afmörkuðum svæðum. Því er ekki hægt að byggja ákæruna á því og þetta mál sé leikaraskapur sem beinist að einum veitingastað. Heppilegra væri að beina sjónum að öllum þeim veitingastöðum sem brjóta þessi lög tvímælalaust. „Það er fullt af veitingastöðum sem mega standa sig betur í þessu en við erum ekki einn af þeim,“ segir Bjarni Óskarsson. ■ FRÉTTABLAÐIÐ 1. febrúar 2002 FÖSTUDAGUR Borgarstjóri: Kosið um verk R-lista og borgin Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir borgarstjóri sagði á fundi með framsóknarmönnum í gær að í komandi kosningum til borgar- stjórnar verði kosið um verk R- listans, framtíðarsýn hans á næsta kjörtímabili og áframhaldi upp- byggingu lífsgæða í borginni. Al- freð Þorsteinsson borgarfulltrúi sagði að framboð Björns Bjarna- sonar menntamálaráðherra mundi auðvelda kjósendum valið vegna þess að hann stæði fyrir frjáls- hyggju og einkavæðingu, öndvert við R-listann. Þá taldi hann einsýnt að sjálfstæðismenn mundu fara út í rógsherferð gegn einstökum frambjóðendum R-listans eins og í tveimur undangengnum kosninga- baráttum. Á fundinum dró borgarstjóri upp ófagra mynd af því hvernig viðskilnaður sjálfstæðismanna hefði verið þegar R-listinn fékk lykla að Ráðhúsinu fyrir átta árum. Hún sagði að stjórnkerfi borgarinnar undir stjórn Davíðs Oddssonar hefði verið eins og INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR Segist hafa það eftir talnaglöggum manni að Björn Bjarnason hefði sagt 147 sinnum ég í Silfri Egils á dögunum. gamall traktor og alveg úr takti við þá stjórnunarhætti sem þá voru að ryðja sér til rúms. Sem dæmi nefndi hún að bókhaldskerfi borgarinnar hefði verið ákaflega frumstætt, upplýsingakerfi hefði nánast ekki verið til, öll skjalavist- un í skötulíki, verkaskipting á milli embættismanna hefði verið óljós og fjárhagsáætlanir hefðu aðeins verið gerðar til eins árs í senn í stað þriggja ára svo nokkuð sé nefnt. Hún sagði að sl. átta árum hefði þetta verið fært til nú- tímahorfs með dreifðri valddreif- ingu, skipulagi, áætlanagerð og framtíðarsýn. ■ 40% verðmunur á mjólkurvörum Bónus er 46 sinnum með lægsta verð á mjólkurvörum. 11-11 og Nýkaup eru 37 sinnum með hæsta verðið. Þetta kemur fram í verðkönnun ASI. verðkönnun Allt að 41% verð- munur er á mjólkurvörum á milli verslana. Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun ASÍ. Mestur verðmunur er á mjólkurvörum sem ekki eru verðmerktar af framleiðanda. Verslanir hækkuðu mjólkurvörur í mörgum tilvikum meira en Mjólkursamsalan og Osta- og smjörsalan um áramótin. Bónus er langoftast með lægsta verðið, eða 46 sinnum. 11-11 og Nýkaup eru 37 sinnum með hæsta verð, Nóatún 24 sinnum og Strax 19 sinnum. Að sögn Ágústu Ýr Þorbergs- dóttur, verkefnisstjóra hjá ASÍ, kom verðmunurinn ekki á óvart. Hún segir hann í samræmi við verðmun á öðrum vörum. „Hann kemur sennilega mörgum á óvart.“ Verðlagsnefnd mjólkurvara ákvað um áramót að verð á mjólk- urvörum skyldi hækkað 1. janúar sl. Þá hafði mjólkurverð verið óbreytt í 1 ár. Meðaltalshaekkun var 6,5%, en hækkanir eru á bil- inu 3%-ll%. Hækkunin í verslun- um nemur hins vegar allt að 20%. Skýring hækkunar verðlags- nefndar er hækkun á verði til MIKILL VERÐMUNUR Verslanir hækkuðu mjólkurvörur meira en sem mjólkurbænda og hækkun á vinrtslu og dreifingarkostnaði mjólkur. í könnun ASÍ kom í ljós að verslanir hækkuðu ekki verð á öllum mjólkurvörum strax og þær voru því heimsóttar þrívegis. Farið var í síðasta skipti 25. janú- ar sl. Þá höfðu flestar verslanir hækkað verðið. Þá kom einnig í ljós að verslanir sem höfðu hækk- að verðið eftir áramót, höfðu VERÐ A NOKKRUM MJOLKURVORUM V) 3 C S e 10 e £ o ts o z Q. 3 JS <0 «2 n uT a 3 10 ■6 10 Z Samkaup 10-11 >< (0 ö V) c 'B n 'O Z Nýkaup ll-ll # 3 e 3 2 Léttmjólk 11 76 79 77 82 84 85 85 86 86 86 86 13% Kókómjólkl/4l 49 55 56 55 61 62 61 63 69 69 69 41% Sýrður rjómi 130 131 134 149 156 156 164 169 173 179 173 38% Létt súrmjólk 11 105 106 107 117 119 118 124 120 125 125 128 22% Smjörvi 300g 157 159 159 169 166 169 185 179 189 189 189 20% Skólaostur lkg 913 913 961 961 899 961 961 961 961 961 899 7% Á MJÓLKURVÖRUM nemur hækkun verðlagsnefndar mjólkurvara. lækkað þær aðeins aftur. ASÍ tel- ur skýringu þessa vera mikla um- ræðu um verðlækkanir. Fram kemur að mestur munur sé á mjólkurvörum og osti sem ekki er verðmerktur af framleið- anda. Ostur sem er verðmerktur af framleiðanda er ávallt á sama verði í öllum verslunum, þó í ein- staka tilvikum gefi Bónus og Krónan 5% afslátt á kassa. Athygli vekur að mismunandi verð er á mismunandi bragðteg- undum á vörum eins og óska- jógúrt og engjaþykkni sem kosta það sama frá framleiðanda. Sama er upp á teningnum í léttmjólkur- vörum. Léttsúrmjólk kostar það sama og súrmjólk frá framleið- anda en er yfirleitt dýrari í versl- unum. Ágústa segir skýringu þess líklega vera þá að vinsælli vörur séu verðlagðar hærra en þær óvinsælli. ■ SIGRÚN MAGNÚSDÓTTIR Sigrún Magnúsdóttir er formaður fræðslu- ráðs Reykjavlkurborgar. „Aðgerðarleysi borgarinnar jaðrar við ofbeldi." Tónskóli Hörpunnar: Stjórnsýslu- kæra vegna neitunar stjórnsýsla Tónskóli Hörpunnar í Grafarvogi hefur sent stjórnsýslu- kæru til félagsmálaráðuneytisiris vegna þess að Reykjavíkurborg greiðir ekki rektstrarstyrki til skól- ans eins og til annarra tónlistar- skóla. Kjartan Eggertsson, eigandi Tónskóla Hörpunnar og skólastjóri hans, segir að Reykjavíkurborg hafi ekkert aðhafst í málinu þrátt fyrir tilmæli Samkeppnisráðs þar um. „Það er með ólíkindum að borg- aryfirvöld skuli beita aðila eins og tónlistarskóla slíkri rangsleitni," segir Kjartan í fréttatilkynningu. „Aðgerðarleysi borgarinnar jaðrar við ofbeldi, því borginni má vera ljóst að lítil stofnun eins og Tón- skóli Hörpunnar og forráðamenn hennar hafa ekki ótakmarkaðan tíma og orku til að standa í mála- ferlum og ekki er fjármunum til að dreifa hjá skóla sem býr við sam- keppnislegt ójafnræði." Þess má geta að tónskólar í Reykjavík heyra undir fræðsluráð borgarinna. Formaður ráðsins er Sigrún Magnúsdóttir. Hún er eigin- kona Páls Péturssonar félagsmála- ráðherra. Búast má því við Páll víki sæti við úrlausn málsins. ■ Smáralincl AV/S______________ Vantar þig bíl í Smáralind? Viltu að bíllinn bíði eftir þér á Reykjavíkurflugvelli? Nýgengi HIV smitaðra í fyrra: 11 greindir HIV jákvæðir Bíll í A flokki, daggjald kr. 3.700,- Ótakmarkaður akstur, tryggingar.og skattar Sími: 591 4000 Fax: 591 4040 E-mail: avis@avis.is - Dugguvogur 10 - www.avis.is heilbrigðismál Ellefu grein- dust HIV jákvæðir á árinu 2001. Meirihluti þeirra eru karlar. Jón Helgi Gíslason, framkvæmdastjóri Alnæm- issamtakanna, segir þetta vera ívið fleiri en árið áður. Þá var tilkynnt um tíu ein- staklinga sem greindust HIV jákvæðir. Fjöldinn hafi farið stigvaxandi síðan 1993. Jón Helgi segir Alnæmis- samtökin aðstoða HIV já- kvæða og aðstandendur þeir- ra ásamt því að sinna fræðslustarfi fyrir ungt fólk í skól- um. „Við togumst svolítið á milli þess að vera félagsheimili fyrir HIV jákvæða og fólk með alnæmi og svo að sinna fræðslustarfi út á við.“ Jón Helgi segir að samtökin hafi áform um víðtækt fræðslustarf í HIV SMITAÐIR NÝGENGI GREININGA SJÚKLINGA MEÐ HIV SMIT OG ALNÆMI OG DÁNARTALA AF VÖLDUM ALNÆMIS Á ÍSLANDI MIÐAÐ VIÐ 31. DESEMBER 2000 (www.aids.is) grunnskólum landsins. Nú eru við- ræður í gangi við landlækni og heil- brigðisyfirvöld um samstarf í þeim málum. Verið er að vinna að útgáfu upplýsingabæk- lings til að dreifa til fólks. Nauðsynlegt sé að fræða ungt fólk sem er að byrja að stunda kynlíf. Það þurfi að gera sér grein fyrir smitleiðum HIV og hvernig stunda eigi öruggt kynlíf. í lok síðasta árs opnuðu samtökin upplýsingasíðu á netinu, aids.is. Þar er að finna upplýsingar sem tengist sjúkdóminum. Þeg- ar HIV smitaðir eru skoð- aðir eftir áhættuhegðun sést að smituðum gagnkynhneigðum ein- staklingum fjölgar nú síðustu ár. Greining HIV smitaðra í röðum samkynhneigðra stendur í stað eða fækkar. Öflug fræðsla um öruggt kynlíf í þeim áhættuhóp virðist ráða þar nokkru. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.