Fréttablaðið - 01.02.2002, Page 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
1. febrúar 2002 FÖSTUDAGUR
Hafnarfjörður:
Slökkvilið
berst við
sinuelda
Ikveikia Slökkviliðið í Hafnarfirði
var kallað út tvisvar í gær vegna
sinuelda. Að sögn lögreglu bárust
fleiri tilkynningar um sinuelda en
suma þeirra slökkti hún sjálf.
Óvenju mikið hefur verið um
sinuelda í Hafnarfirði undanfarnar
vikur og er það mjög óvenjulegt
miðað við árstíma. Mest hefur ver-
ið kveikt í sinu í Setbergslandinu og
í Hvaleyrarholtinu og eru það oft-
ast ungir drengir sem eiga í hlut.
Að sögn lögreglu hefur engin veru-
leg hætta skapast vegna eldanna. ■
Jónína Bjartmarz um Símann:
Gera úlfalda úr mýflugu
síminn „Stjórnarandstaðan er
að gera úlfalda úr mýflugu
með málflutningi sínum um
sölu Símans,“ segir Jónína
Bjartmarz, þingmaður Fram-
sóknarflokks og stjórnarmað-
ur í Símanum. Ýmsir þing-
menn stjórnarandstöðu sögð-
ust í utandagskrárumræðu um
málið á miðvikudag efins um
að þingmeirihluti væri enn
fyrir sölu. Jónína sagði það á
misskilningi byggt, full sam-
staða væri hjá stjórnarflokk-
unum um málið. Hún sagðist
sammála Magnúsi Stefánssyni og bræðrum sínum, um að endur- Símans, burtséð frá einkavæð-
Kristni H. Gunnarssyni, flokks- skoða þurfi söluáformin fari svo ingu, enn í fullu gildi. ■
JÓNÍNA BJARTMARZ
Ekki óeining milli stjórnar-
flokkanna.
ÖGMUNDUR JÓNASSON
Efast um að þingmeirihluti
sé fyrir sölu.
að ásættanlegt verð fáist ekki.
Komið hefur fram að danska
fyrirtækið TDC vill ógjarnan
greiða 5,75 krónur á hlut fyrir
25% í fyrirtækinu.
„Samningaviðræður eru
enn í gangi og ekki útséð með
niðurstöðu. Eg hygg að full
samstaða sé meðal stjórnar-
þingmanna um að Síminn
verði ekki seldur nema fyrir
ásættanlegt verð.“ Jónína
sagði fyrirvara framsóknar-
manna um að ríkið leggi til fé
til uppbyggingar grunnets
Mál Árna Johnsen:
Sjáenn
fyrir endann
LÖGREGLUMÁi „Það er ekkert frek-
ar um það að segja en ég sagði
síðast. Þá sagði ég að við sæjum
fyrir endann á þessu. Það stend-
ur,“ segir Jón H. Snorrason, yfir-
maður efnahagsbrotadeildar rík-
islögreglustjóra.
Með orðum sínum er Jón að
vísa til þess sem hann sagði í
samtali við Fréttablaðið fyrir
þremur vikum, eða 10. janúar sl.
Þá sagði hann að niðurstöðu
rannsóknar ríkislögreglustjóra á
málefnum Árna Johnsen væri að
vænta á næstu vikum eða mánuð-
um. ■
liiui //, 'm jiaúu;
Skólavörðustíg 12
á horni Bergstaðastrætis, sími
551 9090
kóngafólk Marta Lovísa
prinsessa í Noregi missir
konunglegan titli sinn í dag
og iaun hennar sem prins-
essa féllu niður um áramót.
Ástæðan er sú að prinsess-
an er á leiðinni út í eigin
rekstur, stofnar í dag fyrir-
tæki á sviði menningar-
miðlunar, Prinsesse
Martha Louises Kultur-
formidling.
' •. Tekjur hennar
Viðskipta- munu fram.
vmimir eru vegjs eingöngu
Þe8ar _ verða í gegn-
komnir á um fyrirtækið.
blað og Fyrirtæki
koma fyrstu prinsessunnar
tekjur fyrir- er spáð góðu
tækisins frá gengi. Talið er
norskum að hún geti selt
ríkisfyrirtæk- út á nafnið en
um, ríkisút- einnig að hún
varpinu hafi sýnt fram
NRK og á að hún hafi
þjóðleikhús- eitthvað að
inu, Rik- bjóða. Við-
steatret. skiptavinirnir
^ eru þegar
komnir á blað
og koma fyrstu tekjur fyr-
irtækisins frá norskum rík-
isfyrirtækum, ríkisútvarp-
inu NRK og þjóðleikhús-
inu, Riksteatret.
Um leið og Prinsessan missir
titilinn Hennes Kongelige
Hpyhet, eða hennar konunglega
tign, fær hún algert frelsi til um-
svifa í atvinnulífinu. Hún hefur
látið hafa eftir sér að hún stefni á
-
AFSALAR sér tign og skattfrIðindum
Marta Lovísa er áhugamanneskja um menningu. Hún hefur sung-
ið í kór, leikið á þverflautu og tekið þátt í starfi þjóðdansahóps.
Einnig hefur prinsessan getið sér gott orð í hestamennsku.
framtíð í viðskiptalífinu þar sem
hún sérhæfir sig í menningar-
miðlun og útilokar ekki að hún
muni vinna með væntanlegum
eiginmanni sínum, rithöfundinum
Ari Behn. Prinsessan setur með
þessu stefnuna á borgara-
legt líf. í norskum fjöl-
miðlum hefur komið fram
að hún hlakkar til að verða
þátttakandi í atvinnulíf-
inu. Hún bendir á að ekki
sé einsdæmi að konung-
bornir hafi vinnu og bend-
ir á Kristínu prinsessu í
Svíþjóð og Konstantín
prins í Hollandi.
Prinsessan hefur ekki
tekið ákvörðun um hvaða
eftirnafn hún muni taka
upp nú þegar hún missir
titilinn en til greina kemur
að hún taki upp nafn vænt-
anlegs eiginmanns síns,
Behn. Marta Lovísa vill
ekki tjá sig um það hvort
hún sjái eftir titlinum en
bendir á að hún sé ekki
fyrsta prinsessan sem
missir hann. Prinsessurn-
ar Ástríður og Ragnhildur,
föðursystur hennar, mis-
stu sína titla þegar þær
gengu í hjónaband. „Okk-
ur finnst eðlilegt að það
tengist því að ég fer út í
atvinnulífið, að þar verði
skilin fremur en þegar ég
gifti mig,“ segir Marta
Lovísa. Að mati
prinsessunnar er alger-
lega eðlilegt að hún fái
ekki lengur lífeyri sem þjóðhöfð-
ingi. „Okkur finnst ekki rétt að ég
fái bæði lífeyri, sem er skatt-
frjáls, og afli mér um leið skatt-
skyldra tekna."
steinunnafrettabladid.is
Árbæjarskóli:
Listaverk eft-
ir Veturliða
fjarlægt og
eyðilagt?
borgarrád Listaverk eftir Vetur-
liða Gunnarsson, sem hékk á
vegg í Árbæjarskóla, virðist
týnt og tröllum gefið. Nú standa
yfir framkvæmdir við skólann
vegna stækkunar hans og fengu
borgarráðsfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins óstaðfestar fregnir
af því að listaverkið hefði verið
fjarlægt og eyðilagt. Lögðu þeir
því fram fyrirspurn til borgar-
stjóra um málið. Engin svör
fengust.
„Það er ljóst að þessi fyrir-
spurn kom mönnum verulega á
óvart,“ sagði Júlíus Vífill Ingv-
arsson, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins. „Ef svo er að
þetta listaverk hafi verið eyði-
lagt án samráðs við listamann-
inn og án þess að menn hafi gert
tilraun til þess að varðveita það
þá viljum við vita það. Öll lista-
verk eru verðmæt og listaverk
eftir Veturliða eru bæði verð-
mæt og dýrmæt. Okkur ber
skylda gagnvart borgarbúum og
listamönnum að hafa fullar gæt-
ur á því hvað verður um lista-
verkin og hvernig um þau er
gengið." ■
| VESTFIRDIR I
Menn á Patreksfirði muna
vart eftir öðru eins tíðarfari
og í vetur. Smá snjór er í fjöllum
en á láglendi hefur nánast ekki
verið snjór það sem af er vetri.
Lögreglan á Patreksfirði man
ekki eftir að færð hafi verið jafn-
góð og í vetur. í hefðbundnu ár-
ferði er ófært um Klettháls og
Austur-Barðastrandasýslu á þess-
um árstíma. Aðeins hefur verið
ófært í nokkra daga til Reykja-
víkur í vetur og síðustu vikur
hefur færð verið mjög góð.
Davos-ráðstefnan að
þessu sinni í New York:
Mótmæl-
endur boða
truflanir
new york í dag hefst í New York
fjögurra daga ráðstefna helstu
fjármála- og stjórnmálaleiðtoga
heimsins um efnahagslífið á jörð-
inni. Ráðstefnur sem þessar hafa
hingað til verið haldnar árlega í
Davos í Sviss. Að þessu sinni var
ákveðið að halda hana í New York.
Hamid Karzai, forseti bráða-
birgðastjórnar Afganistans, ávarp-
ar opnunarfund ráðstefnunnar.
Fjöldi listamanna kemur auk þess
fram við opnunina, þar á meðal
Bono, Peter Gabriel, Paul Simon
og Herbie Hankock.
Andstæðingar alþjóðavæðingar
hafa boðað til margvíslegra mót-
mælaaðgerða í New York meðan
ráðstefnan stendur yfir. Segjast
MÓTMÆLAAÐGERÐIR kynntar
Beka Economopolos heitir þessi kona,
sem skipulagt hefur mótmælaaðgerðir
gegn efnahagsráðstefnu sem hefst í New
York í dag. Hún kynnti blaðamönnum mót-
mælaaðgerðirnar nú í vikunni.
skipuleggjendur mótmælanna
ætla að trufla ráðstefnuna eftir
bestu getu. Búist er við þúsundum
mótmælenda, sem hafa uppi slag-
orð á borð við: Heimurinn getur
verið öðru vísi.
Lögreglan i New York hefur af
því tilefni mikinn viðbúnað. Und-
anfarnar vikur hefur hún verið að
æfa sérstaklega aðferðir við að
halda mannfjölda í skefjum og
brjóta á bak aftur mótmæli sem
fara úr böndunum. ■
Ætlar sér framtíð
í viðskiptalífinu
Norska prinsessan Marta Lovísa, dóttir Haraldar Noregskonungs og
eldri systir Hákonar krónprins, afsalar sér í dag konunglegum titli sín-
um. Hún telur fara betur á því að missa titilinn í tengslum stofnun fyrir-
tækis síns en við að ganga í hjónaband.
Við sérhæfum okkur í fl
Tökum að okkur stærri sem
salögnum!
i minni verk
ir gegnheilar
granítflísar,
Niöurkomnar gegnheilar
30x30 cm
Aðeins kr. 3.400,- pr
Innifalið er: Flísar. lím, fúaa, ari
m. ón VSK.
: rlísar, lím, fúga, grur nur og vinna.
Miðað er við tilbúin gólf.
Gegnheilar flísar erii þolgóðar og mikið
lagðar á t.d. vinnustaði, verkstæði og
bílskúra þar sefn álag er mikið.
LAGERUTSALA
Aðeins
4 verð
500- kr
1000- kr
1 500- kr
2000- kr
•Buxur • Bolir
• Peysur • Kjólar
•Brjóstahaldarar
• Náttfatnaður
• Undirfatasett
cos
Undirfataverslun
Glæsibæ, sími 588 5575
Opið mán-fös. kl.11-18
laugard. kl. 11-16.
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
blómaverkstæði
INNA®