Fréttablaðið - 01.02.2002, Page 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
1. febrúar 2002 FÖSTUDAGUR
■ 20 ára afmæli OA-samtakanna:
Sýnilegur bati bæði
líkamlega og andlega
MATARFfKN
OA-samtökin starfa á sama grundvelli og AA-samtökin og eru opin öllum þeim sem vilja
hætta hömlulausu ofáti.
Dúndur
tilboð!
10 tíma 3ja mán.
Ljósakort á 3500 kr.
Grænatúni 1 Kópavogi
Sími 554 3799
lIfsstíll „Það er mikill kraftur í
samtökunum og mikill bati sem er
sýnilegur basði líkamlega og ekki
síst andlega," segja tveir tals-
menn OA-samtakanna sem eru
samtök fólks sem á við sameigin-
legt vandamál að stríða „matar-
fíkn“ Samtökin hafa starfað á
þessu ári í 20 ár á íslandi. Af því
tilefni verður haldinn opinn af-
mælisfundur í Gerðubergi næst-
komandi sunnudag kl. 14. Viðmæl-
endur fréttablaðsins, karl og
kona, koma ekki fram undir nafni
því samtökin vernda félagsmenn
sína með nafnleynd sem þau segja
grundvöll starfseminnar.
Hann gekk fyrst í samtökin
fyrir 5-6 árum en hún hefur verið
samfleytt í 21/2 ár. Til samans
hafa þau misst tæp 70 kg. Hann
hefur náð sinni kjörþyngd, hún er
enn á niðurleið. Bæði eru sam-
mála um að þetta sé fíkn. Fólk
tengi saman offitu við aumingja-
skap í staðinn fyrir að líta á þetta
sem fíkn sem komi engri skyn-
semi við. „Það hefur verið gífur-
leg uppvakning innan samtakanna
hér á landi. Offituvandamálið er
orðið sýnilegra og þarf ekki annað
en að líta inn á næstu líkamsrækt-
arstöð. Einnig er fólk farið að átta
sig á að megrun gengur ekki upp
og skilar jafnan tímabundnum ár-
angri. Þegar fólk er orðið lang-
þreytt á þessu er það tilbúið til að
ganga í OA og fara fara þessa ein-
földu leið. Hún er einföld en ekki
auðveld," segir hann. Bæði ítreka
að allir séu velkomnir í samtökin.
Eina skilyrðið fyrir þátttöku sé
löngunin til að hætta hömlulausu
offáti. ■
Utsala - Flísar - Utsölulok
Dagana 30. janúar til 2. febrúar verður
15-50% afsláttur á öllum vörum á lager
Mílanó-Flísaverslun
Ármúla 17a - Sími: 511 1660
Vertu ekki of sein að panta
fermingarmyndatökuna. JaHM
Gerðu verðsamanburð. Hjá okkur eru allar
myndirnar sem þú færð í myndatökunni stækk- aðar og fúllunnar. Innifalið í myndatökunni 12 stækkanir 13X18 cm 2 stækkanir 20x 25 cm og ein stækkun 30x40 cm í ramma. .
Ljósmyndastofa Mynd sími 565 4207
Ljósmyndastofa Kópavogs sími : 554 3020
Pantið núna
Kays sumarfötin
Argos vörurnar
Panduro fomirið
aa// Magnússon
LA JF verslun/skrifstofa, Hólshrauni 2 Hfj.
Samfylkingin
Sameiginlegur félagsfundur
samfylkingarfélaganna í Reykavík
Sameiginlegur félagsfundur Samfylkingarfélaganna í
Reykjavík verður haldinn í Ársal á Hótel Sögu í
Reykjavík laugardaginn 2. febrúar 2002 kl. 13.30.
Dagskrá:
Samkomulag viðræðunefnda Samfylkingarinnar, Fram-
sóknarflokksins og Vinstri hreyfingarinnar - græns
framboðs vegna sameiginlegs framboðs til borgar-
stjórnar í Reykjavík vorið 2002.
Aðferð Samfylkingarinnar við val í sæti flokksins á
Reykjavíkurlistanum
Önnur mál
Allir samfylkingarfélagar í Reykjavík eru hvattir til
að mæta á fundinn og taka þátt í umræðum og
afgreiðslu tillagna um samstarf undir merkjum
Reykjavíkurlistans.
Það er engin vandi að
deyja, vandinn er að lifa
Þjóðleikhúsið frumsýnir í kvöld leikritið Onnu Kareninu eftir Tolstoj
leikrit Anna Karenina er ein af
mikilvægustu skáldsögum nítj-
ándu aldarinnar og hefur heillað
lesendur á öllum tímum, ekki síst
vegna áhrifamikillar lýsingar
skáldsins á titilpersónunni og ör-
lögum hennar. Hefur þessi mikla
saga um ástríður og grimm örlög
verið vinsælt viðfangsefni leik-
húsfólks í gegnum tíðina. Þjóðleik-
húsið frumsýnir í kvöld Önnu
Kareninu og byggir leikverkið á
nýrri leikgerð eftir Helen Ed-
mundson. „Þó að stuðst sé við Ed-
mundson verður hver einasta upp-
færsla eigi síður að eiga sína leik-
gerð. Því settist ég niður síðasta
sumar og vann við að stækka alla
umgerð og bætti við persónum.
Það má segja við notum þessa
spennandi leið Edmundson en
leysum jafnframt hlutina á okkar
eigin máta.“ Segir Kjartan
Ragnarsson leikstjóri. Leikgerð
Edmundson hefur vakið mikla at-
hygli og er óvenjuleg að þvi leyti
að hér er ekki einungis sjónum
beint að titilpersónunni Önnu
Kareninu heldur einnig annarri
aðalpersónu skáldsögunnar Levin,
sem talinn er endurspegla líf og
skoðanir Tolstojs sjálfs. Kjartan
segir leikgerðina leggja meiri
áherslu á það sem Tolstoj vildi
koma á framfæri með bók sinni
þ.e. leitinni að tilganginum í lífinu.
„Það er mjög auðvelt að lesa Önnu
Kareninu einungis sem sögu konu
sem samfélagið leyfir ekki að hafa
sitt frelsi, sem er vissulega rétt að
hluta til. Það er bara ekki öll sag-
an. Hinn hliðin er Konstantín
Levin. Aðalsmaður sem er alltaf að
leita að einhverjum siðferðilegum
standpunkti til að lifa. Má segja að
annars vegar sé þetta ástarsaga
Levins og Kittýjar og hins vegar
Vronskís og Önnu.“
Blaðamaður spyr hvort óhjá-
kvæmilegt sé að grimm örlög fylgi
í kjölfar mikillar ástríðu. „í öllu
falli er það einmitt sem manni
finnst Tolstoj vera að segja. Ef
maðurinn nær ekki stjórn á tilfinn-
ingaheimi sínum er voðin vís. Til-
ganginn eigi að leita í einhverju
æðra.“ Kjartan var spurður hvort
boðskapur sögunnar ætti sér stoð í
nútímanum. „Fullkomlega. Hin ei-
lífa glíma að reyna að ná tökum á
lífinu áður en hinn óhjákvæmilegi
dauði bankar upp á. Eins og Tolstoj
sagði sjálfur: Það er engin vandi
að deyja, vandinn er að lifa. Þess-
ari hugsun velta allar kynslóðir
fyrir sér.“
kolbrun@frettabladid.is
Stór útsala
Yfirhafnir í úrvali
25-70%
afsláttur
Fyrstir koma
fyrstir fá
Allt á að seljast
\oAhú5ID
Mörkinni 6, sími 588 5518
Opið laugard. frá kl. 10-15