Fréttablaðið - 04.02.2002, Side 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
4. febrúar 2002 MÁNUDAGUR
lH'irlMiíf.
Brunastigar
STigar, &
ir=3 HANDRIÐ
GRIDfhi Dalbrekku 26, Kópavogi
»iml 6641890 www.grid.is
RENNISLETT
• Afrétting gólfa undir gólfefni
• Flotílögn í nýbyggingar
• Lökkuð flotgólf
• Tilboðsgerð og ráðgjöf
Flotefni
ehf
Verktakar í ftotítögnum
897 1060
flotefni@mmedia.is
Véla-
viðgerðir
VELALAIMD
VÉLASALA • TÚRBINUR
VARAHLUTIR > VIÐGERÐIR
Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavik
Sími: 577 4500
velaland@velaland.is
< .v
íslendingur hefur vakið athygli í Danmörku fyrir góð-
an árangur áfengismeðferða:
Opnar meðferðarheimili
við sólarstrendur Spánar
ÁFENCISVANDI Gizur Helgason, einn
aðaleigandi meðferðarstofnunar-
innar Frederiksberg Centeret í
Danmörku, hyggst opna meðferð-
arheimili á Spáni í mars á þessu
ári. Gizur segist hafa orðið var við
að fólk, sem komið er á eftirlaun
og hafi nægan frítíma, komi til
meðferðar hjá honum vegna
áfengisvandamála. Margir þessara
sjúklinga dvelja á sólarströndum
og því hafi þessi hugmynd kvikn-
að. Meðferðarheimilið verður stað-
sett miðsvæðis við sólarstrendur
GIZUR
HELGASON
(gær var auglýst
eftir starfsfólki í
Berlingske
Tidende.
Spánar í bænum
Fuuengriola.
Verið er að inn-
rétta meðferðar-
heimilið og verð-
ur það formlega
opnað í byrjun
mars. í apríl hefst
reglubundin með-
ferð áfengis-
sjúkra.
Gizur segir
þetta vera tveggja
ára tilraunaverk-
TVEGGJA ÁRA TILRAUNAVERKEFNI
Rauði díllinn á kortinu sýnir hvar Gizur
hyggst þjónusta alkóhólista.
efni sem fyrirtæki hans er að legg-
ja þó nokkra fjármuni í. Sjúklingar
greiði allan kostnaðinn við með-
ferðina sjálfir. Meðferðarstofnun-
in sé einkafyrirtæki sem býður
upp á úrræði sem reynst hefur
mjög vel. Kostnaður er minni við
hvern sjúkling þar sem ekki er um
innlögn að ræða.
„Við tókum íslensku meðferðar-
úrræðin og sniðum það inn í með-
ferðina hjá okkur,“ segir Gizur.
Fólk mætir í fyrirlestra, á fundi og
er í hópvinnu á daginn. Tekin eru
stutt hlé á milli en svo er haldið
áfram. Að því loknu heldur fólk
heim til sín með heimavinnu. Það
íhugar sín mál með fjölskyldunni
og getur þannig leyst úr vandamál-
um, sem koma upp heima fyrir, í
meðferðinni að degi til. „Þó fólkið
fari heim þá höldum við því sál-
rænt inni í meðferðinni tuttugu og
fjóra tíma,“ segir Gizur.
Áður starfaði Gizur á Suður-
nesjum sem framhaldsskólakenn-
ari. Árið 1986 tók hann sig til og
hóf að hjálpa Dönum með áfengis-
vandamál. Hann hóf svo eigin
rekstur í samstarfi við geðdeild
Frederiksberg Hospital stuttu
seinna. ■
Islenska ríkið styrkir HSÍ um 15 milljónir kr. í kjölfar frábærs árangurs á EM í Svíþjóð:
Eðlilegt að koma til
móts við afreksmenn
HANDBOLTI Ríkisstjórnin hefur
ákveðið að styrkja Handknatt-
leikssamband íslands um 15 millj-
ónir króna í tengslum við frammi-
stöðu íslenska landsliðsins á Evr-
ópumeistaramótinu í Svíþjóð. Hér
er um veglegan styrk að ræða en
geta má þess
að ferð ís-
lenska lands-
liðsins til Sví-
þjóðar kostar
16 milljónir.
„Það var
samþykkt til-
laga mín um
að styðja
Handknatt-
leikssamband-
ið um 15 millj-
ónir króna í til-
efni af Evr-
ópumeistara-
keppninni. Ég
hafði samband
við Guðmund
Guðmundsson
þjálfara lands-
liðsins og
óskaði þeim góðs gengis og bað
fyrir bestu kveðjur," segir Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
sem lagði fram tillöguna á ríkis-
stjórnarfundi á föstudag.
„Þetta er hluti af því sem við
höfum verið að vinna að í tengsl-
um við að efla afreksmannasjóð
ÍSÍ. Ég tel reyndar eðlilegt að
reynt sé að koma til móts við það
þegar afreksmenn í hópíþróttum
komast á þetta stig eins og þessir
ágætu menn eru komnir núna. Ég
tel að það eigi að hafa svigrúm í
afreksmannasjóðnum til að styrk-
ja þá sérstaklega og þeir voru
búnir að færa fyrir því rök,“ segir
Björn.
Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, segir framlag
ríkisstjórnarinnar mjög ánægju-
legt og sérstaklega í ljósi þess að
BJÖRN
BJARNASON
Tillaga Bjöms Bjarna-
sonar menntamála-
ráðherra um að styrk-
ja HS( í tengslum við
frábært gengi íslenska
landsliðsins á EM í
handbolta var sam-
þykkt á ríkisstjórnar-
fundi á föstudag.
fSLENSKA LANDSLIÐIÐ
HS( hefur átt í fjárhagserfiðleikum frá því HM-keppnin í handbolta var haldin hér á landi
árið 1995. Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HS( segir styrkinn skipta samandið
verulegu máli.
kostnaður vegna undirbúnings og
fararinnar nemur alls 16 milljón-
um króna. Þess má geta að kostn-
aðurinn er um 60 prósent af árs-
veltu A-karlalandsliðsins undan-
farin ár sem er í kringum 25 millj-
ónir.
„Þetta er auðvitað bara frábært
til að ná fjármálum Handknatt-
leikssambandsins á réttan stað.
Þetta er búinn að vera erfiður
rekstur frá því við héldum HM í
handbolta árið 1995,“ segir Einar.
Óvenju mikið var lagt í undir-
búning fyrir EM í Svíþjóð, meðal
annars með leikjunum gegn Norð-
mönnum og Þjóðverjum hér á
landi og í leikjum gegn Frakk-
landi og Póllandi ytra. Einar segir
að oft áður hafi slæm fjárhags-
staða HSÍ bitnað á undirbúningi
fyrir stórmót og því muni styrk-
urinn koma til með að skipta
landsliðið verulegu máli. ■
BRUGÐIST VIÐ SKIPULAGÐRI
GLÆPASTARFSEMI
Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykjvik,
Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á
Keflavíkurflugvelli, Haraldur Johannessen,
ríkislögreglustjóri, Stefán Eiríksson, skrif-
stofustjóri f Dómsmálaráðuneyti og Jón H.
B. Snorrason, saksóknari.
Vítisenglum vísað úr
landi:
Fáfnir undr-
ast hörku yf-
irvalda
VÍtisenglar Forsvarsmenn vél-
hjólaklúbbsins Fafnir MC (Fáfnir)
undrast hörku yfirvalda við að
vísa úr landi liðsmönnum Vít-
isengla frá Danmörku. Liðsmönn-
um Vítisengla var mætt af lög-
reglu þegar þeir komu til landsins
sl. fimmtudag, nokkrum var strax
vísað úr landi en öðrum daginn
eftir. Brynjólfur Þór Jónsson,
talsmaður Fáfnis, sagði Vítisengl-
ana hafa verið í erindagjörðum
ferðamanna á íslandi. Brynjólfur
segir vinskap vera á milli Fáfnis,
sem er 13 manna klúbbur með að-
setur í Grindavík, og Vítisengla
og verið sé að skoða hvort Fáfnir
geti fengið inngöngu í samtökin.
Hann sagðist þó enga vitneskju
hafa um hvort að Vítisenglar ætli
að hasla sér völl hér á landi.
fslensk lögregluyfirvöld hafa
heimildir fyrir því segir Haraldur
Johannessen, ríkislögreglustjóri.
Ríkislögreglustjóri að Vítisenglar
stunduðu skipulagða glæpastarf-
semi og á blaðamannafundi sl.
föstudag kom fram að aðgerðirn-
ar á Keflavíkurflugvelli og brott-
vísun mannanna væru aðgerðir til
að bi'egðast við henni. Þær voru
unnar í samvinnu við lögreglu-
embætti á Norðurlöndum. ■
Rannsókn beinist að dauðri kú fyrir tuttugu árum:
Miltisbrandurinn
kom frá Texas
washington. ap Þegar bandaríski
dýralæknirinn Michael L. Vickers
kom að dauðri kú í Suður-Texas
árið 1981, þá sá hann ekkert sér-
stak við hana umfram hundruð
annarra dauðra nautgripa, sem
hann hafði séð í starfi sínu.
Hann tók lífsýni úr dýrinu og
sendi með rútu til rannsóknar-
stöðvar í Texas. Grunur hans um
miltisbrand var fljótt staðfestur.
Dr. Konrad Eugster, þáverandi
yfirmaður rannsóknarstofunnar,
minnist þess að bandaríski herinn
hafði skömmu áður beðið um ný
miltisbrandssýni. Tvö kælibox
með miltisbrandsbakteríum voru
vopnarannsóknarstöðvar banda-
ríska hersins í Fort Detrick í Mar:
yland. Herinn áttaði sig fljótlega á
að þarna var um að ræða óvenju
hættulegt afbrigði af miltis-
brandi.
Dýralækninum í Texas kom
ekki til hugar að tuttugu árum síð-
ar myndu miltisbrandssýklai',
sem ræktaðir voru úr sýnunum
sem hann tók, skjóta skelk í
bringu Bandaríkjamanna og valda
mörgum óbætanlegu tjóni. Fimm
manns létu lífið og tólf aðrir sýkt-
ust af miltisbrandi, sem sendur
var í pósti til Flórída, New York
og Washington.
ÖRYGGISVÖRÐUR f WASHINGTON
Öryggi í Bandaríkjunum hefur veríð hert mjög í kjölfar hryðjuverkanna 11. september og
miltisbrandssýkinganna í kjölfar þeirra.
. ú því send til höfuðstöðy^. efna- E.kki er vitað hyernig miltis-
brandurinn komst í hendur mis-
yndismanns, sem sendi hann í
pósti síðastliðið haust. Ekki er
heldur vitað hver sökudólgurinn
er. En upprunastaður miltis-
brandsins er nú kominn í ljós. ■