Fréttablaðið - 04.02.2002, Side 13
MÁNUDAGUR 4. febrúar 2002
Uppsagnir hjá IÚ:
Fækkað um fimm
stöðugildi
fjölmiðlar íslenska útvarpsfélagið
fækkaði um mánaðarmótin um
fimm stöðugildi á útvarpssviði fyr-
irtækisins. Jón Axel Ólafsson, yfir-
maður útvarpssviðs, sagðist ekki
muna nákvæmlega hversu mörg-
um hefði verið sagt upp. Uppsagn-
irnar væru hluti af skipulagsbreyt-
ingum í rekstrinum.
„Það er alltaf sársaukafullt að
horfa á eftir góðu fólki,“ sagði Jón
Axel. „Við erum bara að reka fyrir-
tæki og það er öllum hollt að end-
urskipuleggja og skoða sinn rekst-
ur þegar vel gengur."
Jón Axel sagði
að á næstu dögum
yrðu skipulags-
breytingarnar
kynntar nánar.
Tveir nýir dag-
skrárstjórar hefðu
verið ráðnir. Mar-
grét Valdimars-
dóttir myndi taka
við Radíó X og
Hulda Bjarnadóttir
við Létt. Þá yrðu
gerðar einhverjar breytingar á út-
varpi Sögu. ■
JÓN AXEL
ÓLAFSSON
„Alltaf sársauka-
fullt að horfa á
eftir góðu fólki."
Efnahagsspá Seðlabanka íslands:
Lækka ekki vexti og
spá lægri verðbólgu
efnahagsmál Seðlabanki íslands tel-
ur ekki efni til að lækka vexti. Vísar
bankinn til þess að verðbólga hafi
verið mikil að undanförnu. „Mikil-
vægt er að grafa ekki undan gengi
krónunnar til að tryggja framgang
verðlagsmarkmiðs kjarasamninga
og verðbólgumarkmiðs Seðlabank-
ans,“ segir í Peningamálum, nýút-
komnu riti Seðlabankans.
Bankinn telur verðbólguhorfur
hafa batnað frá því í nóvember og
spáir nú 3% verðbólgu í stað 4%
áður. „Ástæðan er styrking gengis-
ins annars vegar og horfur um verð-
lækkun í alþjóðaviðskiptum hins
vegar. Á móti kemur meira launa-
skrið á síðasta ári og væntanlegar
kostnaðarhækkanir vegna samn-
ings ASÍ og Samtaka atvinnulífsins í
desember. Samkvæmt spánni eru
líkur á að verðlagsviðmiðun kjara-
samninga í maí náist ekki. Frávikið
verður þó lítið og markmiðið gæti
náðst ef gengi krónunnar styrkist
frekar og/eða átak til lækkunar
verðlags skilar marktækum ár-
angri,“ segir í riti bankans og talið
að frekari hækkun gengis eða meiri
framleiðsluslaka þurfi á næstu
misserum til að ná markmiði um 2,5
prósenta verðbólgu á næsta ári. ■
Björn Bjarnason í Morgunblaðinu:
Mun sitja í minni-
hluta í borgarstjórn
stjórnmál Björn Bjarnason,
menntamálaráðherra og væntan-
legur leiðtogi lista Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórnarkosn-
ingunum, ætlar sér að sitja í
borgarstjórn þó kosningunum
lykti með ósigri Sjálfstæðis-
flokksins. Þetta kemur fram í
viðtali við Björn í sunnudags-
blaði Morgunblaðsins. Björn seg-
ist ætla að hverfa frá störfum
sem ráðherra þegar framboðs-
listi Sjálfstæðisflokksins hefur
verið ákveðinn. Hann segir tvo
möguleika vera í stöðunni, leyfi
frá störfum eða afsögn úr emb-
ætti en segir ekki hvora leiðina
hann ætlar að fara. Björn segir
einnig að hann hafi ákveðið að
hætta sem menntamálaráðherra
að loknu núverandi kjörtímabili,
hvað sem borgarstjóraframboð-
inu líður, átta ár séu nægur tími í
fagráðuneyti. ■
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Sigurjón Gunnsteinsson og Ólafur
Guðlaugsson. Þeir eru stofnendur Hnefaleikafélags Reykjavíkur og hafa
margra ára reynslu af boxþjálfun. Þeir bjóða nú nýja og gamla nemendur
sína velkomna á námskeiðið.
• Box er toppíþrótt fyrir þá sem vilja styrkja sig og stunda hámarks brennslu.
Mfe
í Ræktinni er nú hægt að kaupa allan útbúnað til boxþjálfunar eins og
vafninga, æfingahanska (sekkhanskar), hringhanska (sparring hanskar)
góma (munnstykki), sippubönd ofl.
RÆKTIN
Suöurströnd 4, Seltjarnarnes
Námskeiðið hefst m i ð v i k u d a g i n n 6. febrúar
\(#Hlýl5ID
Mörkinni 6, sfmi 588 5518
Opið laugard. frá kl. 10-15
Stór útsala
Yfirhafiiir í úrvali
25-70%
afsláttur
Fyrstir koma
fyrstir fá
Allt á að seljast