Fréttablaðið - 04.02.2002, Qupperneq 18
HVAÐ ERTU AÐ LESA?
Góður lestur í hálsbólgu
Það skal ég með ánægju upplýsa. „Heím-
speki skálsögunnar" heitir bók sem kom ný-
lega út og er eftir hina ýmsu fræðimenn. Þá
bók les ég mér til mikillar ánægju. Á nátt-
borðinu mínu liggur einnig mikið fjölskyldu-
drama sem heitir „What a carve up" eftir
Jonathan Coe. Það gott að loka sig inn í
þeim heimi. Auk þessara tveggja er ég að
rifja upp „Frásögn af margboðuðu morði"
eftir Gabriel Garcia Marques. Guðbergur
Bergsson þýddi og lesturinn er skemmtileg
upprífjun.
Guðrún Helgadóttir er rithöfundur og fyrrum
alþingismaður.
18
FRÉTTABLAÐIÐ
4. febrúar 2002 MANUDAGUR
Norrænu leikskáldaverðlaunin árið 2002:
Hægan Elektra
tilnefnt til verðlauna
tilnefning Leikritið Hægan Elektra
eftir Hrafnhildi Hagalín Guð-
mundsdóttur hlaut tilnefningu
Leiklistarsambands íslands til
norrænu leikskáldaverðlaunanna
fyrir árið 2002. Verðlaunin verða
veitt á Norrænum leiklistardög-
um í Færeyjum þann 7. -11. ágúst
í sumar. Dómnefnd skipuð þeim
Magnúsi Þór Þorbergssyni, Ing-
unni Ásdísardóttur og Bjarna
Jónssyni valdi úr þeim 11 íslensku
leikverkum sem frumsýnd voru á
árunum 2000 og 2001. Var tilnefn-
ingin samdóma álit dómefndar.
Þjóðleikhúsið frumsýndi Hæga
Elektra á Litla sviði Þjóðleikhúss-
ins í febrúar árið 2000. Aðalper-
sónur verksins eru mæðgur;
leikkonur, sem ráku til skamms
tíma tilraunaleikhús. Á sama tíma
og rifjuð er upp á kvikmynda-
tjaldi örlagarík sýning í leikhús-
inu varpa persónurnar á sviðinu
ljósi á flókið samspil sín í milli
sem gerir hvorutveggja í senn, að
brjóta niður samband þeirra og
binda þeir enn fastar hvor annar-
TILNEFNING TIL NORRÆNU LEIKSKÁLDAVERÐLAUNANNA
Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir er ekki alls ókunn því að vera tilnefnd til Norrænu
leikskáldaverðlaunanna. Hlaut hún þessi eftirsóttu verðlaun fyrir fyrsta leikritið sem hún
skrifaði, Ég og meistarinn.
ri. Undir einföldu yfirborði leik-
ritsins býr vandlega útfærð og
margræð útlegging á goðsögninni
um hina harmi slegnu Elektru, en
hún bíður þess að mega hefna
dauða föður síns sem móðirin
myrti.
Hægan Elektra er annað leikrit
Hrafnhildar en hún skrifaði áður
leikritið Ég er Meistarinn sem
sýnt var í Borgarleikhúsinu árið
1990. Hlaut Hrafnhildur Norrænu
leikskáldaverðlaunin fyrir það
leikrit. ■
Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar
Námskeiðið
Trúarstef í kvikmyndum
_ verður haldið í Háskóla íslands sex miðvikudaga
frá 6. febrúar til 13. mars 2002 kl. 20:00-22:00.
Kennarar:
dr. Arnfríður Guðmundsdóttir lektor, Bjarni Randver Sigurvinsson
guðfræðingur, dr. Gunnlaugur A. Jónsson prófessor og
Þorkell Ágúst Óttarsson BA í guðfræði.
Verð kr. 4.900,-
Upplýsingar á Biskupsstofu í síma 535 1500
http://www.kirkjan.is/leikmannaskoli/
eið hefst þann 5.2.2002
endur hefst þann 5.feb.
föstud. Kl. 19:30
I Lífssýnar)
'ar í síma: Y
YOGA
Vertu ekki of sein að panta
fermingarmyndatökuna.
Gerðu verðsamanburð. Hjá okkur eru allar
myndirnar sem þú færð í myndatökunni stækk-
aðar og fullunnar. Innifalið í myndatökunni 12
stækkanir 13X18 cm 2 stækkanir 20x 25 cm og
ein srækkun 30x40 cm í ramma.
Ljósmyndastofa Mynd
sími 565 4207
Ljósmyndastofa Kópavogs
sími: 554 3020
Aðalfundur
Þróunarfélags íslands hf.
Aðalfundur Þróunarfélags íslands hf. verður haldinn
mánudaginn 11. febrúar2002 kl. 16:00 á Grand Hótel Reykjavík.
DAGSKRÁ
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 14. grein
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um heimild til stjórnar félagsins til að
kaupa eigin hlutabréf, alit að 5%.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá og reikningar félagsins liggja frammi
á skrifstofu félagsins, viku fyrir aðalfund.
Stjórn Þróunarfélags íslands hf.
Vorðtir tialdið i Reylijí»viH, 20. - 28. febrúar
Réttíndi á allar vinnuvélar
Nánari upplýsingar og skráning
hjá Iðntmknlatofnun í sírnWBTtfTfW/
897 0601 og á vefsíðu www.ltl.la
Hvað er í boði á
Listahátíð 2002?
Sigur Rós og sígaunar, sápukúlur og salsa, trylltur tangó, karnival og
klassík er meðal dagskráratriða Listahátíðar Reykjavíkur í vor.
listahátId Unnendur klassískrar
tónlistar hafa mörgu að fagna á
Listahátíð. Ástæðan fyrir því er
að stærstu erlendu laxarnir á há-
tíðinni í ár eru úr þeirri kvísl-
inni. Helsta tilhlökkunarefnið er
líklegast einleikstónleikar hins
heimsþekkta rússneska fiðlu-
leikara Maxim Vengerov í Há-
-—♦— skólabíó 16. maí.
Vengerov hefur
þrátt fyrir ungan
aldur lagt heim-
inn að fótum sér.
Hann hefur til
dæmis verið val-
inn fyrsti tónlist-
arsendiherra
Barnahjálpar
Sameinuðu Þjóð-
anna og muna
vafalaust ein-
hverjir eftir hon-
um á minningar-
tónleikunum um
Díönu prinsessu.
Tveimur dög-
Af öðrum at-
burðum Lista-
hátíðar árið
2002 má
nefna söng-
hópinn Vocal
Sampling, sýn-
ingu argent-
ínska dans-
hópsins El
Escata og sýn-
ingu spænsku
sápukúlutrúð-
anna í
Ambrossiu.
..—
um eftir að Vengerov lætur fiðl-
una væla stígur June Anderson,
ein glæsilegasta sópransöng-
kona okkar tíma, upp á svið Há-
skólabíós. Hún hefur sungið með
öllum helstu söngvurum heims
þar á meðal „tenórunum þrem-
ur“, Carreras, Pavarotti og Dom-
ingo. Kvikmyndaáhugamenn
muna kannski best eftir henni úr
kvikmynd leikstjórans Milos
Forman, „Amadeus." Þar fékk
hún það ábyrgðarfulla verk að
syngja lögin sem Næturdrottn-
ingin syngur í Töfraflautunni.
Vínberið á Ritzkexinu eru svo
tvennir tónleikar Kronos
strengjakvartettsins í Borgar-
ÓVENJULEGUR KVARTETT
Strengjakvartettinn Kronos er einn virtasti strengjakvartett slðustu ára og leikur í góð-
um félagsskap á Listahátíð í Reykjavík.
leikhúsinu 28. og 29. maí. Þetta
er líklegast einn allra virtasti og
óvenjulegasti strengjakvartett
síðustu áratuga og keppast tón-
skáldin við að semja fyrir hann
verk. Kronos hafa safnað til sín
Grammy-verðlaunum og unnið
með ýmsum heimsþekktum tón-
listarmönnum, þar á meðal
Björk „okkar“ Guðmundsdóttur.
Var það á Telegram plötunni sem
innihélt nýjar útgáfur laganna af
Post plötunni.
Sígaunasveitin Taraf De
Haidouks ætti að vera okkur ís-
lendingum að skapi. Hér er um
að ræða fjörugan 14 manna hóp
frá Belgíu sem leikur forna laut-
artónlist af hjarta og sál einung-
is vegna þess að þeir kunna ekk-
ert annað. Tónleikar þeirra
verða í Borgarleikhúsinu þann
29. maí.
Athygli vekur að hljómsveitin
Sigur Rós ætlar að kafa enn
dýpra í arfleifð okkar íslendinga
og takast á við það metnaðar-
fulla verk ásamt Hilmari Erni
Hilmarssyni að hefja hið gleym-
da Eddukvæði, „Hrafnagaldur
Óðins“, til vegs og virðingar á
ný. Kvæðamaðurinn og sam-
starfsfélagi þeirra gulldrengja,
Steindór Andersen, verður þeim
vitaskuld til halds og traust við
flutning verksins. Til þess að að-
stoða flæði tilfinninga mun Árni
Harðarson stjórna strengjasveit
og kór er leikur með hljómsveit-
inni.
Af öðrum atburðum Listahá-
tíðar árið 2002 má nefna söng-
hópinn Vocal Sampling, sýningu
argentínska danshópsins E1
Escata, sýningu spænsku sápu-
kúlutrúðanna í Ambrossiu og
frumsýningu Þjóðleikhússins á
Hollendingnum fljúgandi eftir
Wagner.
biggi@frettabladid.is
RÁÐSTEFNUR MÁNUDAGURINN tímarit bókasafnanna í huga. Sýningunni
4. FEBRÚAR
13.15 Borcarfræðasetur boðar til ráð- lýkur á miðvikudag.
stefnu í hátíðarsal aðalbyggingar
Háskóla Islands um ríki, borg og
sveitarfélög, stjórnskipuleg tengsl
og samskipti. Frummælendur eru
Stefán Ólafsson, forstöðumaður
Borgarfræðaseturs, Sigurður Lín-
dal, prófessor, Gunnar Helgi
Kristinsson, prófessor, Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson, formaður Sam-
bands fsl. sveitarfélaga, Björg
Ágústsdóttir, bæjarstjóri í Grund-
arfirði og Sigfús Jónsson, land-
fræðingur og ráðgjafi hjá Nýsi hf.
Forsætisráðherra, Davíð Oddson,
og borgarstjóri, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, ávarpa ráðstefnuna.
Pallborðsumræður verða að lokn-
um fyrirlestrum.
liður í verkefninu Norrænar
barnamyndir sem var haldið
haustið 2001 á Hólmavík, Sel-
fossi, Hvolsvelli og Hofsósi. Nám-
skeiðið stendur milli kl. 15 og 19
alla daga fram á föstudag.
SYNINGAR
NAMSKEIÐ
NÁM
SKl IIJ
t«
l.liilccl-i.iol. tfHUIi
15.00 Námskeið fyrir börn og unglinga á
aldrinum 10 til 16 ára í teikni-
myndagerð verður haldið í Nor-
ræna húsinu þessa viku. Yfirskrift
þess er Börn I sögunni - Börn
semja söguna. Verkefnið er f sam-
vinnu Norræna hússins og Ani-
mationsværkstedet sem kemur
með búnað og kennara. Það er
Handritasýning í Stofnun Árna Magn-
ússonar, Arnagarði við Suðurgötu.
Handritasýning er opin kl. 14 -16 þriðju-
daga til föstudaga.
Sýningin Landafundir og ragnarök
stendur yfir í Þjóðmenningarhúsinu.
Sýningin er samstarfsverkefni við Landa-
fundanefnd og fjallar um landafundi og
siglingar íslendinga á miðöldum með
áherslu á fund Grænlands og Vínlands.
MYNDLIST___________________________
Listakonan Eygló Harðardóttir sýnir
verk sín í Þjóðarbókhlöðu.Ý Þetta er
sjöunda sýningin í sýningaröðinni Fell-
ingar sem er samstarfsverkefni Kvenna-
sögusafns, Landsbókasafns og 13 starf-
andi myndlistarkvenna.Ý Verkin sem
Eygló sýnír eru unnin með bækur og
Á laugardag opnaði nýr sýningarsalur,
Hús málaranna, á Eiðistorgi, Seltjarnar-
nesi. Þar sýna nú Haukur Dór og Einar
Hákonarson, en þeir eru jafnframt for-
stöðumenn hins nýja sýningarsalar.
Hannes Lárussonsýnir í Vestursal
Listasafns Reykjavikur - Kjarvalsstöð-
um. Ellefu hús hafa verið reist og nefnist
sýningin Hús í hús. Hún stendur til 1.
apríl.
Afmælissýning Myndhöggvarafélags
Reykjavíkur er haldin i miðrými Lista-
safns Reykjavíkur - Kjarvalsstöðum í
tilefni af 30 ára afmæli félagsins. Sex
listamenn hafa verið valdir úr röðum fé-
lagsins til að sýna á þremur aðskildum
sýningum, tveir og tveir í senn. Þeir sem
sýna núna eru Níeis Hafstein og Sól-
veig Aðalsteinsdóttir. Sýningin stendur
til 24. febrúar.
Kristinn Pálmason heldur málverkasýn-
ingu í Galieríi Sævars Karls. A sýning-
unni verða óhlutbundin málverk og
tölvuunnar sviðs?ttar Ijósmyndir. Mál-
verkin eru bæði unnin í ollu og akrll
með mismunandi aðferðum.