Fréttablaðið - 07.02.2002, Page 18

Fréttablaðið - 07.02.2002, Page 18
FRÉTTABLAÐIÐ 7. febrúar 2002 FIMMTUDACUR HVAÐA PLÖTU ERTU AÐ HLUSTA A? Með hjartað utan á „Ég var að fá mér Ifs Like This með Rickie Lee Jones. Alveg frábær plata. Hún syngur þekkt lög á sinn hátt. Það er eins og maður sé að heyra þau í fyrsta sinn. Hún er yndisleg þessi söng- kona, syngur með hjartað utan á sér." Margrét Kristín Sigurðardóttir (Fabúla) söngkona Borgarleikhúsið: Klónun manna Fiarkennsla.is •Persónuleg tölvukennsla Klæðskerasaumuð tölvunámskeið fyrir fólk á öllum aldri. Hringdu núna og við veitum þér ókeypis ráðgjöf um hvernig þínu námi er best háttað! Upplýsingar í sima 511-4510 og 698 6787 18 Gaukur á Stöng: Oður til Janisar Joplin tónleikar „Það er engin sem nær Jan- is Joplin fullkomlega en ég geri mitt besta til að syngja í hennar anda. Ég tel mig vera í góðum málum ef ég næ broti af þeirri tilfinningu sem hún lagði í sönginn," segir Sigríður Guðnadóttir, söngkona, en hún ásamt góðum hópi tónlistarmanna ætla að flytja óð til rokksöngkonunnar hásu Janisar Joplin í kvöld á Gauki á Stöng. Tónleikarnir verða sendir út í beinni útsendingu á Rás 2 og hefjast þeir klukkan 22.10. Sigríður segir tónleikana byggða upp í réttri tímaröð og saga Janisar Joplin sögð um leið. Útvarpskonan Andrea Jónsdóttir sjái um þá kynn- ingu og segir Sigríður engan fróðari um líf og starf söngkonunnar. ■ JANIS JOPLIN Stjarna Janisar Joplin reis hæst á sjöunda áratuginum. Hún fæddist 19. janúar áríð 1943 lést 4. október árið 1970. Norræna húsið: Raddir frá Norðurlöndum bókmenntir í tilefni af 40 ára af- mæli bókmenntaverðlauna Norð- urlandaráðs og til að vekja athygli á 50 ára afmæli Norðurlandaráðs eru þeir rithöfundar sem tilnefnd- ir hafa verið í ár nú í hringferð um Norðurlöndin. Kari Aronpuro, Mikael Torfason, Eva Runefelt og Ole Korneliussen ætla í kvöld í Norræna húsinu að hitta íslenska bókmenntaunnendur. Þau munu spjalla um störf sín og lesa brot úr verkum sínum. Kynnir er Jórunn Sigurðardóttir dagskrárgerðar- maður hjá RÚV. Á sunnudag kl. 14 verður síðan í Norræna húsinu dagskrá með fyrirlestrum, upplestrum og pall- borðsumræðum um bókmenntir. m MIKAEL TORFASON Mikael Torfason ásamt Gyrði Elíassyni eru tilnefndir til bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs fyrir hönd íslands. fyrirlestur Bryndís Valsdóttir, M.A. í heimspeki, heldur fyrir- lestur í kvöld klukkan 20 í Borgar- leikhúsinu þar sem hún ræðir hvort réttlætanlegt sé að ein- rækta (klóna) menn. Fyrirlestur- inn byggir hún á meistaraprófs- ritgerð sinni um efnið sem hún lauk frá Háskóla Islands sl. vor, en í henni fjallaði hún um tvenns konar tilgang með einræktun, annars vegar læknisfræðilegan og hins vegar að eignast börn. Að fyrirlestrinum loknum munu þeir Vilhjálmur Árnason, prófessor í heimspeki og Guð- mundur Eggertsson, prófessor í erfðafræði bregðast við erindinu. Síðan verða almennar umræður undir stjórn Ástríðar Stefánsdótt- ur, læknis og dósents í siðfræði við KHÍ. ■ Suðræn ástríða einkennir íslenska dansara íslenski dansflokkurinn frumsýndi síðastlið- inn laugardag tvö dansverk í Borgarleikhús- inu. Annar danshöfundanna segist semja dans fyrir fólk sem sé ekki menningarlegir ofvitar. pans „Allar þær góðu stundir sem ég hef upplifað á írskum krám endurspeglast m.a. í þessu verki,“ segir breski danshöfund- ur Richard Wharlock um „Lore“ annað tveggja dansverka sem ís- lenski dansflokkurinn frumsýndi RICHARD WHARLOCK Wharlock segist geta ímynda sér að erfitt sé að halda góðum dönsurum I fámenn- inu á íslandi. Líkt sé með dansinum og fótboltann, þeir bestu fari utan. Máli sínu til stuðníngs nefndi hann Eið Smára Gudjohnsen, leikmann Chelsea. síðastliðinn laugardag. Hitt verk- ið „Through Nana’s eyes“ er samið af ísraelanum Itzik Galili í kringum tónlist Tom Waits. Wharlock segir dansverkið „Lore“ ekki einungis höfða til þeirra sem séu ekki menningar- legir ofvitar heldur ættu allir að hafa gaman af. Hann segir dans- inn listform sem hann vilji færa nær almenningi sem alla jafnan fari ekki á danssýningar. Við dansverkið notar hann írska tón- list m.a. þjóðlagapönksveitina Pogues og segir hann lífsgleði og kraft tónlistarinnar uppsprettu dansverksins. Stólar og trékubb- ar eru mikið notaðir í verkinu og segir Wharlock skírskotunina krármenningu og byggingar- vinnu sem hann segir Ira ávalt tilbúna að starfa við. Wharlock er staddur hér fyrir tilstuðlan Katrínar Hall, listræns stjórnanda íslenska dansflokks- ins, sem hann segir hafa unnið mjög gott starf í þágu dans- fSLENSKI DANSFLOKKURINN Atriði úr dansverkinu Through Nana's eyes eftir Itzik Galili. flokksins. „íslenski dansflokkur- innn hefur verið að vekja athygli erlendis, fyrst og fremst sem nú- tímadansflokkur. Katrín hefur fengið til liðs við sig marga þekk- ta danshöfunda og hefur það ekki síst vakið athygli á flokknum. ís- lenskir dansarar búa yfir mikilli orku og einbeitingu. Þessi mikla ástríða sem einkennir dansarana hefur komið mér á óvart og minnir margt á blóðheita Suður- landabúa, fyrir utan litarrhaft- ið,“ bætir hann við kíminn. Wharlock rekur sinn eigin dansflokk í Sviss þar sem hann er búsettur ásamt eiginkonu sinni og tveimur sonum. Hann er marg- verðlaunaður danshöfundur og segir sig ljónheppinn að vera að vinna við það sem hann hafi gam- an af. „Ég byrjaði að læra mat- reiðslugerð í Frakklandi áður en ég snéri mér að ballettinum." Blaðamanni fannst langur vegur frá eldamennskunni í ballettinn og spurði hvað hefði valdið sinna- skiptunum. „Mjög einfalt, kven- fólk. Ég man greinilega fyrsta danstímann, ég og þrjátíu og fimm gullfallegar konur. Ég var þess fullviss ég hefði dáið og far- ið til himna.“ Síðan bætti hann við. „Að öllu gríni slepptú var þetta nú ekki aðalástæðan heldur hin mikla þörf mín að vinna í skapandi umhverfi með skapandi fólki. Draumur minn hefur svo sannarlega ræst.“ kolbrun@frettabladid.is FIMMTUDAGURINN 7. FEBRUAR Allar almennar rafvörur- FUNDIR Öryggiskerfl - Símar - Tölvulagnavörur og fl. II/// W RAFLAGNIR ÍSLANDS ehf. VERSLUN - HEILDSALA 12.30 Bergljót Magnadóttir dýrafræðing- ur, Keldum og Sigrún Lange líf- fræðingur, Keldum flytja I dag er- indið FISHAID, Evrópuverkefni um þróun ónæmiskerfís þorsks og áhrif ónæmisörvandi efna á ákveðna ónæmisþætti og sjúk- dómsvarnirJ' Fræðslufundir eru haldnir í bókasafni Keldna. Bóka- safnið er I húsi 2 (næsta bygging fyrir neðan hús 1, nyrsta hús með aðalínngangi og móttöku). 21.00 Jóhanna Jónas leikkona, Margrét Eir söngkona og Guðmundur Pét- ursson gítarleikari, flytja á Kaffi- leikhúsinu kvöld blús og gospel tónlist ásamt leikni efni eftir Langston Huges og Mayu Angelou. Er þetta einskonar óður til hinnar svörtu bandarísku menningar. Miðaverð er 1.200 krónur. 16.15 Geir Þórólfsson flytur fyrirlestur til meistaraprófs við véla- og iðnaðar- verkfræðiskor Háskóla íslands I dag I stofu 158 í VR-II. Erindið nefnir hann: Bestun á nýtingu lághita jarðvarma til raforku- framleiðslu. 20.00 Bryndís Valsdóttir, M.A I heim- speki, heldur fyrirlestur í kvöld I Borgarleikhúsinu þar sem hún ræðir hvort réttlætanlegt sé að einrækta (klóna) menn. 22.00 Elstu reglulegu klúbbakvöld Reykjavíkur, Breakbeatis, renna áfram af krafti á sínu þriðja starfs- ári. I kvöld mun dj. Björn Ingi skipa sess gesta-plötusnúðsins á Breakbeatis kvöldi I annað sinn á sinum ferli og spila þykkustu drum & bass, jungle og experimental breakbeat tónanna ásamt dj. Reyni, dj. Adda og dj. Kristní. Að- gangseyrir er að vanda aðeins 300 kr [fyrir klukkan 23:00], en 500 kr. eftir þann tíma. Hillukerfi - Vinnuborð - Plastvörur^ Verkfæri - Fataskápa - Tröppur tílainnréttingar og fl. 20.00 Opið hús verður hjá Nýrri dögun, samtökum um sorg og sorgarvið- brögð, í kvöld. Á opna húsinu mun sr. Bragi Skúlason, sjúkrahúsprest- ur, kynna nýútkomna bók sína, Sorg - í Ijósi lífs og dauða. Opna húsið er haldið í Safnaðarheimiii Háteigskirkju, 2. hæð, og er öllum opið. Aðgangur er ókeypis.. 22.10 Janis Joplin tónleikarverða haldnir í kvöld á Gauki á Stöng. Andrea Jónsdóttir á Rás 2 sér um kynn- ingu. Um flutning tónlistarinnar sér Sigríður Guðnadóttir um ásamt góðum hópi tónlstarmanna. LEIKLIST 20.00 Borgarleikhúsið sýnir I kvöld leik- ritið Boðorðin 9 eftir Ólaf Hauk Símonarson. TÓNLEIKAR 19.30 Sinfóníuhljómsveit íslands og Tónlistarskólinn í Reykjavík halda tónleika I Háskólabíói I kvöld. Stjórnandi er Bernharður Wilkinson. Tónleikarnir eru fyrri hluti einleikaraprófs Árna Björns Árnasonar, píanóleikara. 20.00 í Þjóðleikhúsinu verður í kvöld sýnt leikritið Cyrano - skoplegur hetjuleikur. 20.00 Jón Gnarr verður með uppistand á Nýja sviði Borgarleikhússins I kvöld. Tiikynningar sendist á netfangið ritstjorn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.