Fréttablaðið - 13.02.2002, Side 6

Fréttablaðið - 13.02.2002, Side 6
SPURNING DAGSINS Ertu ánægður með lögleiðingu áhugamannahnefaleika? SE lííM Já, það er ég. Það ætti sem minnst af höft- um að vera í þjóðfélagi okkar. Stefán Richter Cunnlaugsson, húsasmiður. Gunnsteinn Sigurðsson: Hefur ekki trú á sérframboði prófkjör Gunnsteinn Sigurðsson, skólastjóri Lindaskóla náði 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokks í Kópavogi í prófkjöri sl. helgi. Hann datt naumlega út í síðasta prófkjöri og vant- aði þá einungis 21 atkvæði upp á að ná 5. sæti. „Ég er fyrst og fremst mjög ánægður, þetta er stór og mikill sigur sem gunnsteinn ég náði. Fyrir sigurðsson flokkinn er mikil- Gunnsteinn segir vægt að SVOna baráttuna háða margir skyldu sjá af drenglyndi. sér fært að taka þátt, en tæplega 2.700 manns gerðu það.“ Aðspurður sagði Gunnsteinn að vissulega kæmi á óvart að Gunnar I. Birgisson skyldi ekki hafa fengið betri kosningu. Á það væri samt að líta að meiri dreif- ing hafi verið á atkvæðum í þessu prófkjöri. „Síðast var ekki sami fjöldi sem sótti á efstu sætin. Svo kom á óvart að Bragi skyldi lenda svona neðarlega." Þá hafði Gunn- steinn ekki trú á að Bragi Micha- elsson færi í sérframboð vegna niðurstaðna prófkjörsins, en Bragi féll niður í 6. sæti. „Við vor- um í þessum hópi 8 efstu fram- bjóðendur frá því síðast og ein- hverjir hlutu að verða undir í þeirri baráttu," sagði hann. ■ I NORPURLÖNP | Morðið á hinni 14 ára gömlu Sonay Ashraf Ahmad hefur vakið mikla athygli í Danmörku. Sonay er innflytjandi sem hrakt- ist af heimili sínu fyrir tveimur árum eftir að faðir hennar hafði misþyrmt henni. Honum mislík- aði að hún átti danskan kærasta og umgekkst Dani. Foreldrar stúlkunnar, sem fannst látinn rétt fyrir utan Vordingborg, hafa bæði verið yfirheyrð. Danska lögreglan er með morðið í rann- sókn. FRÉTTABLAÐIÐ 13. febrúar 2002 MIÐVIKUDAGliR Júlíus Vífill segist hætta sáttur: Prófkjör skerpa menn og málefni Stjórniviál Júlíus Vífill Ingvars- son, framkvæmdastjóri Ingvars Helgasonar og Bílheima og borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segist vera mjög fylgjandi prófkjörsleið þegar verið er að velja á framboðslista. Hann vísar því samt á bug að ástæða þess að hann hafi ákveð- ið að gefa ekki kost á sér fyrir listann í vor sé sú leið sem valin var innan flokksins. Kjörnefnd vinnur nú að uppstillingu á fram- boðslista fyrir Sjálfstæðisflokk- inn. „Ég tel prófkjör skerpa menn og málefni. Menn ná að kynna framboð sitt og fyrir hvað þeir standa. Ég verð sjálfur að keppa á samkeppnisgrundvelli í mínum störfum og hef sem betur fer gaman af því,“ segir Júlíus Vífill. Hann bendir á að þrátt fyrir kosti hafi prófkjörsleiðin einnig sína galla, hún geti kallað fram sárindi og hún sé kostnað- arsöm. „Það verður að meta þetta hverju sinni,“ segir Júlíus Vífill sem segist bera mikið traust til þess fólks sem starfar í kjörnefndinni. „Ég hef trú á því að hún velji lista sem færa mun JÚLfUS VÍFILL INGVARSSON Segir ekki sáluhjálparatriði að vera í stjórn- málum. Útilokar þó ekki að hann snúi aft- ur til starfa í stjómmálum. Sjálfstæðisflokknum sigur vor.“ Júlíus Vífill var sterklega orðaður við leiðtogaprófkjörið sem halda átti í Sjálfstæðis- flokknum. Síðastliðinn föstudag tilkynnti hann svo að hann myndi ekki gefa kost á sér á list- ann í vor. Ástæða þessarar ákvörðunar er að sögn Júlíusar sú að hann vill helga sig rekstri fyrirtækis síns og fjölskyldunn- ar. „Ég var kallaður til af kjör- nefnd árið 1998. Mér fannst þá sjálfum og finnst enn mikilvægt að láta rödd athafnalífsins heyr- ast í stjórnmálum og því tók ég þátt,“ segir Júlíus Vífili Ingvarsson. ■ Gagnrýna styrk til LTU vegna flugs til Egilsstaða Akvörðun markaðsráðs ferðaþjónustunnar um 10 milljóna króna styrk til LTU vegna flugs til Egilsstaða sætir gagnrýni. Viðmælandi Fréttablaðsins sagði að styrkurinn líktist frekar einhvers konar byggðastefnu en markaðsátaki í ferðaþjónustu. Formaður markaðsráðsins sagði gagnrýnina koma mjög á óvart. ferðaþjónustan Ákvörðun mark- aðsráðs ferðaþjónustunnar að styrkja flug þýska flugfélagsins LTU til Egilsstaða um 10 milljón- ir króna hefur sætt nokkurri gagnrýni hjá sumum innan ferða- þjónustunnar. Flugfélagið hyg- gst fljúga viku- lega til Egils- staða í sumar í samvinnu við ferðaskrifstof- una Terra Nova- Sól hf. Vegna viðskiptatengsla manna innan ferðaþjónust- unnar við fyrir- tæki á Austur- landi vildu þeir viðmælendur sem Fréttablað- ið ræddi við ekki tjá sig undir nafni. Einn við- m æ 1 a n d i n n sagði að með þessu væri verið að styrkja einn landsf jórðung og greinilegt væri að pólitíkusar réðu þarna ferðinni. Þetta líktist frekar ein- hvers konar byggðastefnu en markaðsátaki í ferðaþjónustu. „Það er í sjálfu sér verið að borga með fluginu líkt og ríkið hefur gert með paprikuna - þetta er bara niðurgreiðsla," sagði við- mælandinn. „Ég held að ferða- þjónustan sem slík sé ekkert á ÓMAR BENEDIKTSSON Formaður markaðs- ráðs ferðaþjónust- unnar sagði að beint flug til Egils- staða ætti að styrk- ja ferðaþjónustuna í heild. „ Ég býst við að hliðstaett myndi eiga sér stað ef að menn sýndu áhuga á einhverju slíku annarsstaðar, án þess að svara því." EGILSSTAÐIR Flugfélagið LTU mun fljúga einu sinni í viku til Egilsstaða í sumar. Flugfélagið er i samstarfi við Terra Nova Sól hf. Allir geta kosið Stefán Jón Hafstein í fyrsta sæti því prófkjörið er opið Kjörfundur hefst miðvikudaginn 13. febrúar og lýkur sunnudaginn 17. febrúar í Austurstræti 14, 4. hæð. Kosið verður alla virka daga frá kl. 16.00-19.00, en laugardag og sunnudag kl. 10.00-17.00. Upplýsingar f síma 552 9244 móti því að það sé veitt einhverj- um peningum í að markaðssetja Austurland. Maður gerir það samt ekki með því að markaðs- setja eitthvað flug með LTU til Egilsstaða - það gerir maður ekki. Með því er einfaldlega verið að hygla LTU og einni ferðaskrif- stofu. Það er ekki hægt að taka út einn aðila. Hvað með Vestfirði, Norðurland-vestra eða Suður- land. Þar eru engir flugvellir. Hvers eiga þeir að gjalda." Viðmælandinn sagði að nú gæti vel farið svo að þau fyrir- tæki sem fljúgi til íslands yfir há- annatíman settu það einfaldlega sem skilyrði að fá einhverjar milljónir fá ríkinu til að standa undir fluginu. Magnús Oddsson ferðamála- stjóri sagðist ekki sjá neitt athug- vert við styrk ríkisins til Terra Nova Sól og LTU. Ákveðið hefði verið að nota 10 milljónir króna til að kynna Egilsstaði og Austurland í Þýskalandi í tengslum við flugið. LTU legði síðan sömu upphæð á móti í markaðsstarfið. Þegar hann var spurður hvort aðrir mættu eiga von á svipuðum styrk ef þeir vildu fljúga á landsbyggðina, sagði hann: „ Ég býst við að hlið- stætt myndi eiga sér stað ef að menn sýndu áhuga á einhverju slíku annarsstaðar, án þess að svara því.“ Ómar Benediktsson, formaður markaðsráðs ferðaþjónustunnar, sagði að beint flug í landsfjórð- unginn ætti að efla ferðaþjónust- una í heild. Hann skildi því ekki hvers vegna menn væru óánægðir með tilhögunina. Það kæmi sér mjög á óvart enda hefði ákvörðun- in verið tekin fyrir rúmu ári. Ferðaþjónusta í öðrum landsfjórð- ungum, eins og t.d. Vestfjörðum og Suðurlandi, yrði styrkt á næstu árum. Þar væri enginn flugvöllur og því yrði að gera það öðru vísi en með beinu flugi. trausti@frettabladid.is Sameiningaráform endurlífguð: EFA kaupir sig inn í Þróunarfélagið fjárfestingasjóðir Eignarhalds- félagið Alþýðubankinn keypti í fyrradag 16,6% hlut í Þróunarfé- laginu af Straumi fyrir rúmar 400 milljónir króna. Ný staða kann því að vera komin upp varðandi sameiningu félaganna. í síðasta mánuði slitnaði upp úr viðræðum þess efnis vegna ágreinings um skiptihlutfall í sameinuðu félagi. Samkvæmt heimildum blaðsins vildu bæði félög meta eigin óskráð hluta- bréf hærra en hitt sætti sig við. Þróunarfélagið hafi þó formlega slitið viðræðum við EFA. Flluta- bréf í fyrirtækj- um sem ekki eru skráð á markað eru fyrirferða- mikil í fjárfest- ingarsafni begg- ja fjárfestingar- sjóða. „Ég tel að þessi hlutabréfa- viðskipti muni ekki draga úr lík- unum á samein- ingu félaganna," ásmundur stefánsson Enn áhugi fyrir sameiningu. sagði Ásmundur Stefánsson, framkvæmdastjóri Eignarhalds- félagsins, en tók þó fram að 16,6% atkvæðisréttur í Þróunar- félaginu gæfi EFA ekki alvald yfir framvindunni. Nokkrir lífeyrissjóðir sem eiga stóra hluti í báðum félög- um, þ.á.m. Sameinaði Lífeyris- sjóðurinn, Framsýn og Lífiðn, munu hafa þrýst á um samein- ingu, enda myndi slíkt styrkja bæði EFA og Þróunarfélagið. Samanlagt tap þeirra á síðasta ári var um 2 milljarðar króna. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.