Fréttablaðið - 13.02.2002, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 13. febrúar 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
7
Fundur fjármálaráðherra Evrópusambandsins:
Þýskaland slapp með skrekkinn
brussel. ap Fjármálaráðherrar
Evrópusambandsríkjanna sam-
þykktu í gær að sleppa Þýskalandi
við ávítur vegna fjárlagahalla.
Fjárlagahalli Þýskalands er óðum
að nálgast þriggja prósenta há-
markið, sem Evrópusambandið
setti sér fyrir nokkrum árum.
Þess í stað samþykktu fjár-
málaráðherrarnir sérstaka viðvör-
un, sem á sér ekkert fordæmi í
sögu bandalagsins. Þýskaland ít-
rekaði í staðinn vilja sinn til að
halda sig innan markanna. Þýska
stjórnin hét því jafnframt að fjár-
lagahallinn verði að mestu úr sög-
unni árið 2004, í staðinn fyrir 2006.
Einnig lofaði hún að auka ekki út-
gjöld og verja öllum óvæntum
tekjum þetta árið til þess að draga
úr fjárlagahallanum.
Sömu skilmálar voru látnir
gilda fyrir Portúgal, sem einnig
átti yfir höfði sér ávítur vegna of
mikils fjárlagahalla.
Það voru hins vegar þýsk
stjórnvöld sem á síðasta áratug
KJÖTKVEÐJUHÁTÍÐ í KAUPHÖLLINNI
Meðan þýski fjármálaráðherrann slapp
með skrekkinn í Brussel í gaer héldu verð-
bréfasalar í kauphöllinni í Frankfurt upp á
lokadag kjötkveðjuhátíðarinnar. Hefð er
fyrir því að þeir mæti með grímur í vinn-
una síðasta dag kjötkveðjuhátíðarinnar.
lögðu sjálf mesta áherslu á að
Evrópusambandið setti aðildar-
ríkjum sínunt hámark fyrir fjár-
lagahalla. Nú glíma þau hins veg-
ar við efnahagskreppu. Þess
vegna eru þau lent í þeirri vand-
ræðalegu stöðu að verða fyrsta
ríkið sem nálgast hættumörkin.
Theo Waigel var fjármálaráð-
herra Þýskalands þegar þessar
reglur voru samþykktar. Hann
sagði þessa málamiðlun, sem fjár-
málaráðherrarnir samþykktu í
gær, vera afleita. „Þetta er eins og
barn sem hefur fengið lélegar ein-
kunnir og vill svo ekki koma með
þær heim til sín,“ sagði hann. ■
Hvarf Daniel Pearl:
Talinn á lífi
karachi - ap Lögreglan í Pakistan
hefur ráðist til inngöngu og leitað
í húsum, að vísbendingum um
hvarf blaðamannsins Daniel
Pearl. Tekist hefur að rekja tölvu-
póst, sem sýnir myndir af Pearl í
haldi mannræningjanna. Lögi'egl-
an hefur nú í haldi frænda manns
sem talinn er hafa sent póstinn.
Myndir af Pearl fundust í fartölvu
Farhad Naseem, og var hann
handtekinn ásamt tveimur öðrum
síðastliðinn sunnudag. Honum
hafði láðst að hreinsa harða drifið
á tölvunni. Haft er eftir lögregl-
unni í Karachi, að verið sé að
rannsaka fjölda vísbendinga. All-
ar líkur séu á því að Pearl sé á lífi.
Þeir vonist til þess að málið verði
upplýst fljótlega. ■
MEÐLAGSGREIÐSLUR
Tryggingastofnun greiddi á síðasta ári um
2,4 milljarða í meðlög með tæplega 15
þúsund börnum.
Tryggingastofnun:
Meðlög fyrir
2,4 milljarða
innheiwitustofnun Á sl. ári greiddi
Tryggingastofnun um 2,4 millj-
arða króna í meðlög með börnum.
Þar af náði Innheimtustofnun
sveitarfélaga að fá til baka um
tæpa 2 milljarða, eða 1.968 millj-
ónir króna. Það er um 67,6%.
Þetta er nokkuð slakari árangur
en var árið þar á undan. Þá náðist
að innheimta um 71% af þeim
meðlögum sem Tryggingastofnun
hafði greitt út. Urn nýliðin áramót
hækkaði meðlagið um 8,5%. Það
er því 15.076 krónur á mánuði fyr-
ir hvert barn frá 0 -18 ára. í fyrra
greiddi Tryggingastofnun meðlög
með tæplega 15 þúsund börnum.
Þessu til viðbótar getur 18 ára
unglingur fengið svonefnt mennt-
unarmeðlag til 20 ára aldurs. Það
nemur sömu upphæð á mánuði og
venjulegt meðlag. Ef viðkomandi
meðlagsgreiðandi er ekki gjald-
fær greiðir Tryggingastofnun
þetta úr ríkissjóði sem barnalíf-
eyrir samkvæmt barnalögum. Þá
er alltaf töluvert um það á ári
hverju að kveðnir séu upp úr-
skurðir hjá sýslumannsembætt-
um landsins að meðlagsgreiðend-
ur taki þátt í fermingarkostnaði
barna sinna. Viðmiðunargjald
dómsmálaráðuneytisins er um 40
- 50 þúsund krónur fyrir ferming-
arbarnið. ■
--^-
Shimon Peres þreifar
fyrir sér:
Friðaráætlun
tekið fálega
jerusalem. ap í gær reýndi Shimon
Peres, utanríkisráðherra ísraels,
að kynna nýja meðráðherrum sín-
um friðaráætlun sem hann og
þingforseti Palestínu höfðu sett
saman. Bæði Ariel Sharon forsæt-
isráðherra og Binyamin Ben-Eli-
ezer varnarmálaráðherra gáfu þó
lítið fyrir áætlunina. Aðrir ráð-
herrar í stjórninni höfðu einnig
litla trú á henni.
Peres sagði áætlunina fela í sér
þrjá áfanga. Fyrst yrði komið á
vopnahlé. Síðan myndi ísrael við-
urkenna ríki Palestínumanna og
Palestínumenn jafnframt viður-
kenna Ísraelsríki. í síðasta áfang-
anum yrði svo samið um landa-
rnæri hins nýja ríkis Palestínu-
manna. ■
Hringdu í okkur í síma 522 8000
og pantaðu gjöf handa ástinni þinni.
Frí sendingarþjónusta ásamt fallegri rós
á höfuðborgarsvæðinu.
DEBENHAMS
SMÁRALIND
FYRIK ÁSTINA
Komdu á óvart með gjöf frá Debenhams á Valentínusardaginn.
Sérvaldir gjafapakkar
fyrir hann og hana.
Verð frá 3.500 kr.