Fréttablaðið - 13.02.2002, Qupperneq 10
FRÉTTABLAÐIÐ
FRÉTFABLAÐIÐ
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Gunnar Srriári Egilsson
og Jónas Kristjánsson
Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson
og Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: iP-prentþjónustan ehf.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vlsir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgar5væðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingartostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
| BRÉF TIL BIAÐSINS]
10
13. febrúar 2002 MIOVIKUDAGUR
Þrjár lotur um þrjár lotur
1999
Gunnar Birgisson, alþingismað-
ur, er fyrsti flutningsmaður
frumvarps um að ólympískir
hnefakeikar verði leyfðir á ís-
landi. Bann við hnefaleikum gekk
í gildi árið 1956. Frumvarpið tók
ekki til þess að leyfa hnefaleika
atvinnumanna, enda ólíkt hættu-
legri íþrótt en ólympískir hnefa-
leikar. Munurinn liggur meðal
annars í höfuðhlífum og að lotur
eru þrjár í stað allt að tólf í at-
vinnumannaboxi. Röksemdir
Gunnars og meðflutningsmanna
hans voru að slys væru ekki
meiri í ólympískum hnefaleikum
en öðrum íþróttum. Iðkendur
hnefaleika og áhugafólk um
íþróttina fór mikinn á síðum
blaða og hvöttu til þess að frum-
varpið yrði samþykkt. Andstæð-
ingar frumvarpsins úti í samfé-
lagingu voru flestir læknar sem
töldu að alvarlegur skaði fylgdi
íþróttinni. Á þingi barðist Katrín
Fjeldsted, læknir, hvað harðast
gegn frumvarpinu. Hún vísaði í
rannsóknir sem sýndu að aukin
hætta á Parkinson- og Alzheimer
fylgdu hnefaleikum. Flytjendur
bentu á að í ólympískum hnefa-
leikum notuð menn höfuðhlífar.
Katrín svaraði að þrátt fyrir slík-
ar hlífar yllu högg á höfuðið
heilahristingi. Frumvarpið kom
til atkvæðagreiðslu og féllu at-
kvæði þannig að 26 þingmenn
greiddu atkvæði með frumvarp-
inu, en 27 voru á móti.
Práður í umræðnnni
I ólympískum hnefaleikum eru þrjár lotur.
Þrjár lotur þurfti einnig til að koma í gegn
frumvarpi um að leyfa ólympíska hnefa-
leika á íslandi.
2000
Haustið 2000 kom þing saman að
venju og lagði Gunnar Birgisson,
þá aftur fram frumvarp sama efn-
is. Alþingi samþykkti að vísa því
til menntamálanefndar. Á vordög-
um þingsins dagaði frumvarpið
uppi og var ekki tekið til atkvæða-
greiðslu.
2001
Gunnar Birgisson lætur ekki deig-
an síga og dregur aftur fram box-
hanskana. Þingmenn suða um að
hann sé að eyða tíma þingsins í
frumvarp sem nýlega sé búið að
fella. í þetta sinn kemst frumvarp-
ið í gegn. Guðmundur Hallvarðs-
son sem greitt hafði atkvæði gegn
frumvarpinu í fyrri atkvæða-
greiðslu, lýsir sig nú samþykkan
því. Frumvarpið er tekið til at-
kvæðagreiðslu og nú falla atkvæði
þannig að 32 styðja frumvarpið, en
22 eru á móti. Tveir sitja hjá. ■
JÓNAS SKRIFAR:
ORDRETT
Skikkum
þingmenn
í hnefaleika
Ingibjörg skrifar
*
Eg þyki nú ekki þrætugjörn
manneskja að eðlisfari, en nú
get ég ekki lengur orða bundist.
Mér finnst með ólíkindum að
æðstu menn þessa lands skuli
hafa ákveðið að lögleiða jafn
ógeðfellda „íþrótt“ og hnefa-
leika.
f sakleysi mínu hélt ég að
þingmennirnir okkar hefðu smá
vott af skynsemi, en svo er
greinilega ekki. Nú hafa þessir
menn, sem hafa atvinnu af því að
nota höfuðið til að leysa landsins
vandamál, samþykkt að leyfa
ungviði þessa lands að nota það
sem stuðpúða. Nú er löglegt að
láta berja úr sér vitið. Á sama
tíma og löggjafinn reynir að
finna leiðir til að sporna gegn
auknu og sífellt hrottafengnara
ofbeldi, samþykkir hann að lög-
legt sé að æfa hnefaleika. Ákveð-
in mótsögn er fólgin í þessu.
Megum við kannski næst búast
við því að sett verði upp æfinga-
aðstaða fyrir hnefaleika á Litla
Hrauni. Svona rétt til að efla enn
endurhæfingu afbrotamanna.
Réttast væri að skikka þá
þingmenn sem samþykktu nýju
löggjöfina til að taka þátt í fyrsta
hnefaleikamótinu. Víst er að ekki
getur orðið af því mikill skaði. ■
Annars flokks borgarar
Reykvíkingar og aðrir íbúar höfuðborgarsvæðis-
ins eru annars flokks borgarar í landinu. Ríkis-
valdið er á ýmsa vegu misnotað gegn þessu fólki.
Vegur þar þyngst eindregin byggðastefna núver-
andi stjórnvalda, einkum í vegagerð og flutningi
opinberra stofnana af svæðinu.
Ráðherrum Sjálfstæðisflokksins hefur ekki
verið falið að reyna að kúga Reykvíkinga til að
kjósa flokkinn í borgarstjórn í von um betra veð-
ur af hálfu ríkisstjórnarinnar, þótt einstakir ráð-
herrar kunni stundum að blindast af hatri á nú-
verandi valdhöfum borgarinnar.
Hættulegt væri að reyna að kúga Reykvíkinga
til að kjósa rétt, því að aðgerðir ríkisstjórnarinn-
ar gegn höfuðborgarsvæðinu koma jafnmikið nið-
ur á nágrannabyggðum Reykjavíkur, þar sem
Sjálfstæðisflokkurinn er víða við völd, ýmist einn
sér eða í samfloti með öðrum flokkum.
Hitt er hins vegar rétt, að flokkar ríkisstjórn-
arinnar telja sér útlátalaust að níðast á höfuð-
borgarsvæðinu og íbúum þess. Ráðherrarnir
mundu ekki haga sér eins og þeir gera, ef kjós-
endur létu flokka þeirra gjalda fyrir að gera þá að
annars flokks borgurum í landinu.
Aldrei hefur verið sett fram sannfærandi
skýring á geðleysi Reykvíkinga og annarra íbúa
höfuðborgarsvæðisins gagnvart ríkisvaldinu. Ef
til vill hafa þeir hreinlega keypt kenningar um, að
þeir séu sjálfir eins konar úrhrök íslenzkrar þjóð-
menningar og eigi ekki betra skilið.
Við hverja breytingu kjördæmaskipunarinnar
hefur verið reiknað með, að aukinn þingstyrkur
suðvesturhornsins mundi draga úr ofbeldi hins
opinbera. Sú hefur ekki orðið raunin. Þingmenn
svæðisins hafa möglunarlítið leyft stjórnvöldum
að valta fram og aftur yfir kjósendur sína.
Næst verða þingmenn höfuðborgarsvæðisins
helmingur allra þingmanna í landinu. Enn eru
uppi vonir um, að ný tilfærsla leiði til óhlutdræg-
ari viðhorfa stærstu stjórnmálaflokkanna í garð
„Ekkert bendir þó enn til,
að kjósendur á höfuðborgarsvœðinu
hyggist láta stjórnmálaflokka
taka afleiðingum gerða sinna
gegn svœðinu. “
íbúanna á svæðinu, enda eru þeir mikill og vax-
andi meirihluti kjósenda í landinu.
Ekkert bendir þó enn til, að kjósendur á höfuð-
borgarsvæðinu hyggist láta stjórnmálaflokka
taka afleiðingum gerða sinna gegn svæðinu. Við
munum því áfram þurfa að sæta ráðherrum á
borð við núverandi samgönguráðherra og núver-
andi iðnaðar- og stóriðjuráðherra.
Sturla Böðvarsson er dæmigerður fulltrúi afl-
anna, sem kjósendur í Reykjavík efla til valda í
landinu. Hann leggur sig í líma við að hindra
brýnustu samgöngumannvirki í Reykjavík til að
eiga fyrir jarðgöngum úti á landi, þvert gegn
sjónarmiðum um arðsemi og umferðaröryggi.
Það er ekki bara hagsmunamál suðvestur-
hornsins að koma frá völdum þeim þingmönnum,
sem stuðlað hafa að ráðherradómi hatursmanna
höfuðborgarsvæðisins, heldur er það líka þjóðar-
mál, að höfuðborgarsvæðið sé samkeppnishæft
við erlenda segla atgervis og peninga.
Höfuðborgarsvæðið er eini staðurinn á land-
inu, sem getur keppt við útlenda staði um atgervi
og peninga á tímum hnattvæðingar. Því er beinlín-
is þjóðhagslega hagkvæmt, að íbúar svæðisins
láti hið bráðasta af geðleysi sínu og bíði færis að
reka þingmenn sína úr starfi.
Kjósendur á höfuðborgarsvæðinu þurfa að
velja sér allt aðra og betri þingmenn, sem tryggja
þjóðinni afturhvarf frá öllum þáttum hinnar skað-
legu byggðastefnu núverandi stjórnvalda.
Jónas Kristjánsson
ROTHÖGG
„Þetta er mikill
ósigur fyrir for-
sjárhyggjuna."
Gunnar I. Birgís-
son, aiþingismaður
og hnefaleikafrum-
kvöðull um lögleið-
ingu hnefaleika.
Fréttablaðið, 12.
febrúar.
VIÐSKIPTAHUGMYND
VERÐUR TIL
„Ég var að lesa hið ágæta danska
tímarit Familie Journal og sá þá
viðtal við konu sem ræktar
snigla."
Jakob Narfi Hjaltason, grænmetisbóndi
og sniglaræktandi í Biskupstungum fékk
hugmyndina um sniglarækt úr danska
kvennatímaritinu Familie Journal. Frétta-
blaðið, 12. febrúar.
INNSÝN ÆVISAGNARITARANS
„Engu líkara en
Davíð Oddssyni
standi stuggur
af öllu sem út-
lent er. Hann
talar eins og
heimaalið barn.
Ef til vill þyrfti
hann að búa er-
lendis um skeið
til að vinna bug
á þessum útlendingaótta sínum.
Kannski væri ráð að senda hann
til útlanda í eitt ár eða tvö.“
Eiríkur Jónsson, blaðamaður og höf-
undur bókar um ævi Davíðs Oddssonar.
DV, 12. febrúar.
| KVIÐDÓMURINN:
Trúverðug skýrsla
eða reiknikúnstir
Skiptar skoðanir eru um nýútkomna skýrslu Hagfræðistofnunar Háskólans um áhrif auðlindagjalds á afkomu
ríkissjóðs. Skýrslan var unnin fyrir Landsamband íslenskra útvegsmanna. Niðurstaða skýrslunnar var að
auðlindagjald kynni að hafa neikvæð áhrif á landsframleiðslu og fjárfestingu. Tekjur ríkisins myndu minnka.
BRYNJÓLFUR
BJARNASON
FRAMKVÆMDASTJÓRI GRANDA:
Mismunum
atvinnugreina
Brynjólfur
Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri út-
gerðarfyrirtækis-
ins Granda, segist
vera sammála
skýrslu Hag-
fræðistofnunar
Háskóla íslands.
„Ég er sammála því að svona sér
skattlagning í atvinnugrein hafi
þau áhrif til lengri tíma að tekjur
ríkisins geti orðið rninni."
Hann telur að með auðlindagjaldi
í sjávarútvegi sé verið að mis-
muna atvinnugreinum slíkt eigi
ekki við í öðrum greinum. „Ég tel
að þetta sé mismunum á milli at-
vinnugreina. Það er ekki verið að
setja á skilgreinda auðlindanotk-
un á aðrar atvinnugreinar.“ Hann
segir að fyrirtæki í sjávarútvegi
greiði tekjuskatt eins og hver
önnur fyrirtæki. „Ég tel það vera
farsælast í samkeppni." ■
ÁRNI
MATHIESEN
SJÁVARÚTVEGS RÁÐ H ER RA:
Sammála
mörgu
a„Mér finnst þetta
mjög trúverðug
skýrsla. Ég held
að ég sé sammála
henni í megin at-
riðum, þ.e. of
mikil skattlagning
dregur frekar úr
skatttekjum hins
opinbera heldur en að auka hana.
En eins og kemur fram í umfjöll-
un skýrsluhöfunda þá eru þeir
ekki að leggja til að skattar verði
með öllu aflagðir, þar sem þeir
eru nauðsynlegir til að borga ým-
iskonar þjóðfélagskostnað," sagði
Árni Mathiesen, sjávarútvegsráð-
herra. „Sá lærdómur sem mér
finnst að ég eigi að draga af þess-
ari skýrslu er sá að það þurfi að
fara varlega í að innheimta auð-
lindaskatt. Það þýðir samt ekki
að það sé ekki hægt að innheimta
hann á hóflegan en skynsamlegan
hátt.“ ■
MARKÚS
MÖLLER
HAGFRÆÐINGUR HJÁ
SEÐLABANKANUM:
Auðvelt að
velja líkön
„Það eru engar
fréttir að Ragnar
Árnasyni reikni
út að útgerðar-
menn eigi að
borga sem
minnst," segir
Markús Möller,
hagfræðingur.
„Það er auðvelt að velja líkön og
forsendur til að fá þetta út ef
menn gleyma því að með frjáls-
um fjármagnsflutningum stranda
fjárfestingar fremur á skorti á
góðum fjárfestingarkostum en á
erfiðleikum á að fjármagna þá;
að fjárfesting í sjávarútvegi er of
mikil en ekki of lítil, og að út-
gerðarmenn yrðu því að fjárfesta
erlendis eða í greinum sem þeir
þekkja ekki. Ef fjárfesting er of
lítil, er miklu vitlegra t.-d. að
lækka fyrirtækjaskatta." Markús
segist hins vegar dást að forystu
LÍU sem „sýni snilldartakta.“ ■
ÁRNI
BJARNASON
FORSETI FARMANNA- OG FISKI-
MANNSAMBANDS ÍSLANDS
Skakkar
forsendur
„Ég er nú ekki bú-
inn að sjá skýrsl-
una. Ég sá þetta
bara í fréttunum,“
segir Árni
Bjarnason, forseti
Farmanna- og
fiskimannasam-
bands íslands.
„Við ályktuðum gegn auðlinda-
gjaldi á okkar þingi. Hvort sem
það er kallað hóflegt eða óhóf-
legt. í ályktuninni kemur fram að
við sjáum ekki með hvaða hætti
það auki líkur á sátt um fiskveiði-
stjórnun. Né hvað slík skatt-
heimta yfir höfuð komi fiskveiði-
stjórnunarkerfinu við.“ Árni seg-
ir að forsendurnar fyrir útreikn-
ingunum ekki réttar, þ.e. þær
lykiltölur sem notaðar eru til að
finna út hve mikið gjaldið á að
vera. „Við viljum meina að þegar
útgerð og fiskvinnsla séu á sömu í
hendi skekkist útkoman." ■
SVERRIR
HERMANNSSON
FORMAÐUR FRJÁLSLYNDA-
FLOKKSINS:
Auðlindagjald
er skálkaskjól
„Auðlindagjald er
skálkaskjól. Þeir
ætla að kaupa frið
um það að eiga
fiskinn í sjónum
út á það að borga
málamyndar auð-
lindagjald. Þannig
er öll sagan. Ég
spyr er ekki nóg ákvæði í lögum
til að skattleggja sjávarútveginn
eins og sanngjarnt er? Hvað
vantar í það?“ sagði Sverrir Her-
mannsson, formaður Frjáls
lyndaflokksins.
Hann segir að hið mikla leigu-
verð sem er á kvóta myndi hver-
fa ef hann yrði boðinn upp á
frjálsum markaði. „Þetta brjál-
æðisverð myndi hverfa marg-
faldlega ef það yrði boðið upp á
markaði. Þetta er bara staðfest-
ing á því að auðlindagjaldið er yf-
irskin og’skálkaskjól." ■