Fréttablaðið - 13.02.2002, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 13. febrúar 2002
FRETTABLAÐIÐ
19
HANDHAFAR
BÓKMENNTAVERÐLAUNA
NORÐURLANDARÁÐS í 10 ÁR
2002
LARS SAABYE CHRISTENSEN, NOREGI
2001
JAN KJÆRSTAD, NOREGI
2000
HENRIK NORDBRANDT, DANMÖRKU
1999
PIA TAFDRUP, DANMÖRKU
1998
TUA FORSSTRÖM,FINNLANDI
1997
DORRIT WILLUMSEN, DANMÖRKU
1996
0YSTEIN L0NN, NORECI
1995
EINAR MAR CUOMUNDSSON, ÍSLANDI
<994
KERSTIN EKMAN, SVÍÞJÓÐ
1993
PEER HULTBERG, DANMÖRKU
BÓKMENNTAVERÐLAUN NORÐUR-
LANDARÁÐS HAFA VERIÐ VEITT FRÁ
ÁRINU 1962.
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs:
Raunsæ en ævintýraleg
saga kynslóða
bókmenntir Norskur höfundur Lars
Saabye Christensen fær bók-
menntaverðlaun Norðurlandaráðs
í ár fyrir bók sína Halvbroren eða
Hálfbróðirinn.
Saabye Christensen er fæddur
árið 1953 og hefur lengi verið vin-
sæll í heimalandi sínu. Hann gaf
út fyrstu bók sína sem var ljóða-
bók, þegar hann var 23 ára gamall
en sló í gegn árið 1984 með skáld-
sögunni Beatles. Hálfbróðirinn er
orðin metsölubók fyrir löngu í
Noregi og hefur hlotið fleiri en ein
bókmenntaverðlaun þar.
Tilurð sögunnar um Hálfbróð-
urinn má rekja til sendibréfs frá
dönskum föðurafa Kristensens til
fjölskyldu sinnar. Bréfið skrifaði
hann aldamótaárið 1900 þegar
hann var í leiðangri til Grænlands
þangað sem sótt var sauðnaut fyr-
ir Dýragarðinn í Kaupmannahöfn.
Christensen segir sjálfur að bréf-
ið hafi lifað með honum allt frá
því að hann hóf rithöfundarferil
sinn undir lok áttunda áratugar
síðustu aldar. Afurðin er gríðar-
mikil saga um hinn dvergvaxna
Barnum Nilsen, hálfbróður hans
Fred og saga þriggja undangeng-
inna kynslóða forfeðra þeirra.
Saabye Christensen mun hafa
verið 10 ár að skrifa bókina sem
er um 650 blaðsíðna löng.
Verðlaunin eru 350 þúsund
VERÐLAUNAÐUR FYRIR ÆTTARSÖGU
Norski rithöfundurinn Lars Saabye
Christensen fær bókmenntaverðlaun Norð-
urlandaráðs í ár fyrir bók sína Hálfbróðir-
inn.
danskar krónur og verða afhent í
Helsinki í október. ■
því
: verða
m í Ráðhúsi Reykjavíkur.
hann hefur safnað norður
Þetta er í annað sinn sem Lúk-
as sýnir tréskurðarverk sín. Á
sýningunni eru 57 verk. Hann
segist mjög ánægður með við-
tökur sýningarinnar. Hann situr
mest yfir henni sjálfur og segist
þakklátur fyrir þær jákvæðu
viðtökur sem hún hefur fertgið.
steinunn@frettabladid.is
20.00 Á Smíðaverkstæðinu er í kvöld
sýning á gamanverkinu Með fulla
vasa af grjóti. Uppselt.
KVIKMYNDAHÚS____________________
20.00 Filmundur sýnir myndina Diva frá
árinu 1981, eftir franska leikstjór-
ann Jean-Jacques Beineix. í Divu
segir frá mótorhjólasendli
nokkrum sem er mikill óperuað-
dáandi. Hann þráir að eignast
upptöku með uppáhaldssöngkon-
unni sinni. Myndin er sýnd í Há-
skólabíói. Frekari sýningar eru
miðvikudaginn 13.02 kl. 20:00,
fímmtudaginn 14.02. kl.22:30,
sunnudaginn 17.02 kl. 18:00 og
mánudaginn 18.02 kl. 22:30.
IVIYNPUST_____________________________
Lúkas Kárason sýnir trélistaverk, unnin
úr rekaviði af Ströndum, í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Yfirskrift sýningarinnar er
Gengið á reka. Lúkas er ættaður af
Ströndum og hefur haft atvinnu af sjó-
sókn. Verkin á sýningunni eru unnin á
síðustu 4 til 5 árum. Sýningunni lýkur
17. febrúar.
Guðmundur Tjörvi Guðmundsson sýnir
Ijósmyndir í Gallerí Skugga v/Hverfis-
götu. Yfirskrift sýningarinnar er Hrafna-
þing. Opið er frá kl. 13-17 alla daga
nema mánudaga. Sýningin stendur til
24. febrúar.
Guðmundur Ingólfsson sýnir úrval Ijós-
mynda úr fjórum syrpum sem hann hef-
ur unnið að undanfarna tvo áratugi.
Sýningin er í Grófarsal, Grófarhúsi,
Tryggvagötu 15. Opnunartími er 12-17
virka daga og 13-17 um helgar. Sýningin
stendur til. 24. mars.
Sýning á verkum eftir Gerlu stendur nú
yfir i Þjóðarbókhlöðunni í sýningaröð-
inni Fellingar. Fellingar hóf göngu sína í
júní á síðasta ári og er sýning GERLU sú
áttunda í röðinni. Fellingar er samstarfs-
verkefni Kvennasögusafnsins, Lands-
bókasafns íslands - Háskólabókasafns
og þrettán starfandi myndlistarkvenna.
Opnunartíma Kvennasögusafnsins er
milli klukkan 9 og 16 alla virka daga.
Sýning Ingu Þóreyjar Jóhannsdóttur,
Rögnu Sigurðardóttur og Sigríðar
Ólafsdóttur stendur í Listasafni ASf,
Ásmundarsal. Á sýningunni eru málverk
og þrfvíð verk. Einnig er unnið með fs-
lenska útsaumshefð. Listasafn ASl er
opið frá kl. 14 til 18 alia daga nema
mánudaga. Sýningin stendur til 17. febr-
úar.
f Listasafni íslands standa fjórar sýning-
ar á verkum f eigu safnsins. Sýningarnar
nefnast einu nafni Huglæg tjáning -
máttur litarins. Dæmi af islenskum
expressjónisma. Sýnd eru verk Jóhann-
esar S. Kjarval, Finns Jónssonar, Jó-
hanns Briem og Jóns Engilberts. Lista-
safn Islands er opið alla daga nema
mánudaga kl. 11 til 17. Ókeypis er í
safnið á miðvikudögum. Sýningin stend-
ur til 14. aprfl.
í Húsi málaranna, á Eiðistorgi, Seltjarn-
arnesi sýna nú Haukur Dór og Einar
Hákonarson, en þeir eru jafnframt for-
stöðumenn hins nýja sýningarsalar.
Hannes Lárussonsýnir í Vestursal
Listasafns Reykjavíkur - Kjarvalstöð-
um. Ellefu hús hafa verið reist og nefnist
sýningin Hús í hús. Hún stendur til 1.
april.
Afmælissýning Myndhöggvarafélags
Reykjavikur er haldin í miðrými Lista-
safns Reykjavíkur - Kjarvalsstöðum í
tilefni af 30 ára afmæli félagsins. Sex
listamenn hafa verið valdir úr röðum fé-
lagsins til að sýna á þremur aðskildum
sýningum, tveir og tveir í senn. Þeir sem
sýna núna eru Níels Hafstein og Sól-
CLAHINS
WAvw.clarins.com
fif íffl I (UAN
? tyfsMi
veig Aðalsteinsdóttir. Sýningin stendur
til 24. febrúar.
Kristinn Pálmason heldur málverkasýn-
ingu í Galleríi Sævars Karls. Á sýning-
unni verða óhlutbundin málverk og
tölvuunnar sviðsettar Ijósmyndir. Mál-
verkin eru bæði unnin í olíu og akríl
með mismunandi aðferðum.
í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi
sýnir þýski listamaðurinn Bernd Koberl-
ing olíu- og vatnslitamyndir. Unnar frá
1988, m.a. hér á landi. Kjarvalsstaðir
eru opnir alla daga 10-17 og miðviku-
daga 10-19. Sýningin stendur 3. mars.
Hjá Ófeigi, Skólavörðustíg 5, sýna lista-
menn sem reka gallerí Meistara Jakob f
sama húsi, til janúarloka. Listamennirnir
eru Aðalheiður Ólöf Skarphéðinsdótt-
ir, grafík, Auður Vésteinsdóttir, listvefn-
aður, Elísabet Haraldsdóttir, leiriist
Guðný Hafsteinsdóttir, leirlist Kristin
Sigfríður Garðarsdóttir, leirlist Kristín
Geirsdóttir, málverk, Margrét Guð-
mundsdóttir, grafík Sigríður Ágústs-
dóttir, leirlist Þorbjörg Þórðardóttir,
listvefnaður Þórður Hall, málverk.
Nú stendur yfir sýning á 27 olíumálverk-
um eftir Helga Hálfdánarson í
Listacafé og Veislugallery í Listhúsinu
í Laugardal. Myndirnar eru á tilboðs-
verði út desembermánuð. Helgi hefur
stundað nám í olíumálun í Myndlistar-
skóla Reykjavíkur '84 - 87 og á ýmsum
námskeiðum þar, í Myndlista- og hand-
(ðaskólanum og í T.H. Aachen í Þýska-
landi .
Sýning á verkum Þórðar Hall myndlist-
armanns stendur yfir í Hallgrímskirkju
um þessar mundir. Sýningin er opin alla
daga frá 9-17 og er aðgangur ókeypis.
Sýningin stendur til 20. febrúar.
Tilkynningar sendist á netfangið
ritstjorn@frettabiadid.is
Kynningar í Lyf og heilsu
í dag miðvikudag kl. 14-18
Lyf og heilsa, Melhaga 20
Lyf og heilsa, Hamraborg 11 Kópavogi
Fimmtudag kl.14-18
Lyf og heilsa, Austurstræti 12
Lyf og heilsa, Álfabakka 12 Mjódd
Föstudag kl. 14-18
Lyf og heilsa, Kringlunni
Lyf og heilsa, Selfossi
Þín bíður sýnishorn af því nýjasta frá Clarins á meðan á kynningu stendur!
*ÍBSS
Ákveðinn og traustur dugnaðarmaður
Hrannar Björn er áræðinn borgarfulltrúi og framkvæmdamaður. Hann hefur verið meðal ötulustu upplýsenda um málefni
borgaranna, og verið afkastamikill á ritvellinum. Hann hefur flutt mál sitt af einurð og eftirtektarverðri kurteisi og
háttvísi. Hann hefur þannig staðið sig afburðavel í upplýsingaskyldu gagnvart kjósendum.
Stuðningsmeiui Hrannars lijönis Arnarssonar í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir framboð Reykjaiíkulistans.
I/ .... ,,l. • 1’ I' . II/ifrt/»-íTé4,/YvéJ 1 C£»1 oonT1
ð, sími: 551 8871