Fréttablaðið - 13.02.2002, Síða 22
22
Kínasýning hjá Sævari Karli:
Skrautbúningar og munir
sýning Á raeðan við íslendingar
sprengdum okkur með saltkjöti
sprengdu Kínverjar „kínverja" og
aðra flugelda til þess
að fagna nýju ári. Því
samkvæmt dagatali
þeirra hófst nýtt ár, ár
hestsins, í gær. Árinu
sem var að ljúka var
ár slöngunnar.
Unnur Guðjóns-
dóttir, sem m.a. hefur
staðið fyrir hópferð-
um til Kína í yfir 10
ár, hefur sett upp sýn-
ingu í gluggum versl-
unar Sævars Karls við
Bankastræti til þess
að fagna nýja árinu.
Á sýningunni má m.a. sjá
skrautlega búninga og aðra muni
frá tímum Ching keisara sem hún
hefur safnað saman,
m.a. á ferðalögum sín-
um um Kína. Aðrir
búningar eru frá
Yunnan héraði en það
eru þjóðbúningar
minnihluta þjóðflokka.
í Kína búa 56 mismun-
andi þjóðflokkar og
stærstur þeirra eru
Han þjóðflokkurinn,
sem er um 93% þjóð-
arinnar. Þess má þó til
gamans geta að hin 7%
eru um 55 milljónir
manna. ■
UNNUR GUÐJÓNSDÓTTIR
Hefur staðið fyrir hópferðum
til Kína í ein 10 ár. Næstu
ferðir eru áætlaðar I mal.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Utspil Valgerðar Sverrisdóttur
við kynningu á tillögu að
byggðaáætlun hefur mælst mis-
jafnlega fyrir. Mönnum hefur
)ótt skrýtið að hún hafi kynnt
málið á fundi fyr-
ir norðan fyrir
helgi án þess að
það hafi verið
lagt fyrir þing-
flokkana. Byggða-
áætlunartillagan
var komin á vef
iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytisins strax á föstu-
dagskvöld. Ekki var ráðherrann
að hafa fyrir því að láta samherja
sína í þingflokki Framsóknar vita
af því. Enda fréttu sumir þeirra
ekki af því fyrr en á mánudags-
morgun að þeir gætu farið að
kynna sér tillöguna.
Ekki eru allir á eitt sáttir um
hversu góða möguleika Stefán
Jón Hafstein eigi í prófkjöri Sam-
fylkingar í Reykjavík. Samfylk-
ingarmenn sem blaðið hefur rætt
við eru margir þeirrar skoðunar
að prófkjörsbarátta Stefáns sé
illa skipulögð og
yfirlýsingar hans
vanhugsaðar. Þá
benti einn maður
á að það gagnað-
ist lítið að bjóða
fram eina einstak-
linginn sem væri
lengur að taka
ákvarðanir um framboð en Björn
Bjarnason. Vísaði hann þar til
þess aö Stefán Jón hefur verið
nefndur við flest framboð án
þess láta verða af þvL.fyrr en
nú.
Stuðningsmönnum Stefáns Jóns
þótti hins vegar kyndugt að
sjá Hrafn Jökulsson birtast í ís-
landi í bítið á mánudagsmorgun
sem sérstakan
álitsgjafa um
frambjóðendur í
prófkjöri Sam-
fylkingar. Enda
fékk Stefán Jón
nokkrar pillur frá
Hrafni. Það sem
fór fyrir brjóstið á mönnum er að
Hrafn hefur stutt við bakið á
Helga Hjörvar bak við tjöldin og
vinnur nú að endurkjöri hans í
fyrsta sætið. Því telja menn að
það hefði verið eðlilegra að velja
aðeins hlutlausari mann til að
greina prófkjörið.
Hrafn er ekki eini maðurinn úr
stuðningsmannasveit Össur-
ar Skarphéðinssonar sem koma
nú að kjöri Helga Hjörvar. Hafa
menn rætt um að sveit Össurar
hafi verið ræst út
til að tryggja
Helga góða kosn-
ingu og ekki síður
að koma í veg fyr-
ir að Stefán Jón
næði of góðum ár-
angri. Með því
megi vinna aðeins gegn yfir-
burðastöðu Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur í Samfylkingunni.
Margir hafa litið á Össur sem
formann til bráðabirgða þar til
Ingibjörg Sólrún tekur við hlut-
verkinu. Össur hefur ekki verið
þeirrar skoðunar og sjá ýmsir
þess i.v xki að með þessu vilji
hann a að það séu ýmsir
sterk: :: Samfylkingunni en
borgarstjórinn.
Halldór Ásgrímsson dró ekki
úr yfirlýsingum um stuðning
sinn og Framsóknarflokksins við
R-listann á almennum stjórn-
málafundi í Reykjavík í fyrra-
kvöld. Sjálfstæðismenn hafa
lengi horft til þess að leiðin til að
fella R-listann sé
að að ala á óá-
nægju framsókn-
armanna með
borgarstjórnar-
meirihlutann. Það
er alkunna úr
stjórnmálum í
borginni frá árum
hinna sterku borgarstjóra sjálf-
stæðismanna að hópur framsókn-
armanna og krata fylgdi sjálf-
stæðismönnum að málum í borg-
arstjórnarkosningum en kaus svo
flokkinn sinn í þingkosningum.
Fátt bendir til þess að sú saga sé
í þann veginn að endurtaka sig.
Þvert á móti virðist persónufylgi
Ingibjargar Sólrúnar tryggja að
lausafylgið loðir enn betur við R-
listann. Að því leyti virðist hún
komin í sömu stöðu og hinir
sterku borgarstjórar sjálfstæðis-
manna á árum áður; menn eins
og Geir Hallgrímsson og Davíð
Oddsson. Þeir náðu að skírskota
langt út fyrir eigin flokk. Kosn-
ingabaráttan sem nú stendur yfir
mun skera úr um hvort Björn
Bjarn^son nær á sama hátt að
höfða út fyrir raðir flokksmanna
og sækja inn á miðjuna.
Skoðanakönnun Fréttablaðsins
gaf sjálfstæðismönnum ekki
tilefni til bjartsýni á kjörþokka
borgarstjóraefnisins síns. Björn
Bjarnason hefur áberandi lítinn
stuðning kvenna
og utan raða
Sjálfstæðisflokks-
ins er persónu-
fylgi hans hverf-
andi í samanburði
við Ingibjörgu
Sólrúnu. Þess
vegna er horft
með enn meiri eftirvæntingu en
ella til starfa kjörnefndar Sjálf-
stæðisflokksins. Því þrengri
skírskotun sem leiðtogi listans
hefur því brýnna verður fyrir
kjörnefndina að stilla upp breið-
um lista. Sérstaklega þykir nauð-
synlegt að fá sterka konu, sem
boðleg verður í eitthvert þriggja
efstu sæta listans. Þau nöfn, sem
mest hafa verið í umræðunni, t.d.
Hanna Birna Kristjánsdóttir og
Tinna Traustadóttir, þykja þó
tæplega hafa þá reynslu sem þarf
til að rísa undir einhverju af
þremur efstu sætunum. Þess
vegna leitar Sjálfstæðisflokkur-
inn enn að sinni Jóhönnu af Örk
og það verður hún sem á að færa
flokknum það fylgi meðal kvenna
sem þarf til að „frelsa Ráðhúsið"
eins og það heitir á máli herská-
ustu hægri manna.
Hart hefur verið lagt að Sig-
rúnu Jónsdóttur, bæjarfull-
trúa í Kópavogi, að gefa kost á
sér í fyrsta sæti í prófkjöri Sam-
fylkingar fyrir sveitarstjórnar-
kosningar. Sigrún nýtur dyggs
stuðnings í Kópavogi og þykir
óumdeildari en sumir aðrir bæj-
arfulltrúar flokksins. Stuðnings-
menn hennar telja hana því nokk-
uð örugga með gott sæti og vilja
margir að hún gefi kost á sér til
að leiða listann.
v < v
[ spásímanum 9086116 er
spákonan Sirrý og spáir í
ástir og örlög framtíðar.
Einnig tímapantanir fyrir
einkatíma í sama síma.
Andleg leiðsögn, miðlun, tarot, spilaspá,
draumaráðningar og huglækningar.
Leitum lausna við vandamálum.
Verð við frá kl.15-2
i sima 908-6040. Hanna
Laufey Héðinsd. miðill s-9085050
Tarotlestur, miðlun, draumaráðningar,
fyrri líf, fyrirbænir.
Sími9085050
Spái í bolla og spil
Nútíð og framtíð - 6 ára reynsla
Uppl. hjá Önnu
ís. 587-4376 / 861-1129
MIÐLUN - SPÁMILÐUN
LÍFSSPORIN ÚR FORTÍÐ í NÚTÍÐ
OG FRAMTÍÐ.
TÍMAPANTANIR OC UPPL. í SÍMA
5616282 ATH. BREYTT SÍMANR. OG
í SÍMA 8215756.
■C •>
Sálarrannsóknarfélag íslands
stofnað 1918
Garðastræti 8, Reykjavík.
Miðlarnir og huglæknarnir
Birgitta Hreiðarsdóttir, Bjarni
Kristjánsson, Erna Jóhanns-
dóttir , Guðrún Hjörleifsdóttir,
Hafsteinn Guðbjörnsson, Krist-
ín Karlsdóttir, Lára Halla Snæ-
fells, María Sigurðardóttir,
Rósa Ólafsdóttir, Skúli Lórenz-
son og Þórunn Maggý Guð-
mundsdóttir starfa hjá félaginu
og bjóða upp á einkatíma.
Einig starfar Amy Engilberts
dulspekingur hjá félaginu og
býður upp á einkatíma.
Friðbjörg Óskarsdóttir heldur
utan um mannræktar-, þróun-
ar- og bænahringi.
Upplýsingar og bókanir eru í
s. 551 8130 alla virka daga frá
kl. 9.00 til 15.00 Einnig er hægt
að senda fax, 561 8130, eða
tölvupóst, srfi@isholf.id
SRFÍ.
Iðnaður
Námskeið
Námskeið í tré og
trérennismíði hefjast í
febrúar, lýkur fyrir páska
Kennari
Þórarinn Þórarinsson
Upplýsingar í síma
894 3715
www. simnet. is/inni
Trévinnustofan ehf
Sími 8958763
fax 5546164
Smiðjuvegur 1 1 e
200 Kópavogi
Sérsmiöi í aldamótastíl
Fulningahurðir • Stigar
Gluggar. Fög . Skrautlistar
Trjáklippingar
Tek að mér að klippa tré og runna
Karl Guðjónsson
skrúðgarðyrkjumeistari
Símar: 551-9361 & 899-7773
Tölvupóstur: kalli@islandia.is
Vefsíða: www.islandia.is/kalli
Iðnaður
Brennipennar U jþ
Steinalípitromlur
Ostaskerar og önnur áhöld
til að skepta...
Ótal margt annað!
Gylfi
Hólfshrauni 7,
220 Hafnarfirðí
Sími: 555 1212 / www.gylfi.com
Getum bætt við
okkur verkum.
Vönduð vinna
Tímakaup/Tilboð
Hvað sem er ehf.
Alhliða húsaviðhald og málun
Uppl í síma
895 1404 eða 6987335
Sandspörtlun og alhliða
málningarvinna.
Hannes Valgeirsson,
löggiltur málarameistari.
Sími: 897-7617
Húsfélög - húsverðir - gjaldkerar
Útvegum alla iðnaðarmenn í allar
viðgerðir og viðhald fljótt og vel.
Göngum frá ársreikningum húsfélaga
Góð og hagkvæm þjónusta
HÚSVÖRÐUR ehf
Sérhæfð þjónusta fyrir húsfélög
Símar. 533 34 34, 8242501, 8243502
ÞUSUND
ÞJALASMIÐIR
Tökum að okkur ýmis verkefni í
tengslum við íbúða-, húsa- og
fyrirtækjahúsnæði.
- raflagnir - parketlagnir - flísa-
lagnir - almenn smíðavinna
Tilboð eða tímavinna
Vönduð vinnubrögð
Uppl. gefnar í
s. 8673727 / 8653131
alla virka daga milli 10-18.
A+ verktakar
Bílar
Til sölu
Trooper Tdi árg 09-01, 7 manna
sjálfsk, 35" breyttur ekin 8 þús.,
hvítur glæsilegur jeppi skipti
ath. bílalán. Verð 4.390.000 Stgr.
Uppl i sima 8939918
Til sölu
Þessi glæsilegi Ford Thunderbird 1959,
allur sem nýr. Einnig 13 feta viking felli-
hýsi með útdraganlegri hlið árg 2000 og
Ford Focus high series árg 99.
Uppl f síma 5640090 eða 8205207
Bílar
Hvort sem bíllinn er nýr eða
gamall, beyglaður eða bilaður,
þá getum við lagað hann.
Bílanes,
bifreiðaverkstæði
Bygggörðum 8,
s. 561 1190 og 899 2190
Bónstöðin
Stormur
Skemuvegur 46 bleik gata
fyrir neðan bifreiðaverkstæði Jónasar
Alþrif á fólksbílum 3.500 kr.
Uppl í síma 557 7462
1■
Ýmlslegt
Gervihnattabúnaður
frá kr. 48.900,- stgr.
OREIND%
Auðbrekka 3 - Kópavogur
s. 564 1660 - www.oreind.is
Tölvuviðgerðir-Er tölvan biluð?
Láttu fagmenn í tölvuviðgerðum leysa málið.
Sækjum - Sendum
(Ódýr kostur eitt (ADSL) á tvær tölvur)
Mjög gott verð.
S: 696-4755 eða 564-4039.
Kristinn. www.heimsnet.is/tolvur
Sjóstöng frá Reykjavík
með MB Carlsberg.
Aflinn grillaður um borð.
Einnig er hægt að leigja
bátinn í allskyns ferðir.
Uppl í síma 8922924 eða 8939918