Fréttablaðið - 19.02.2002, Qupperneq 2
KJÖRKASSINN
NAUMUR
MEIRIHLUTI
Evrópusinnar merja
sigur á Evrópuand-
stæðingum.
Á i'sland að sækja um
aðild að ESB?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Spurning dagsins í dag:
Saknarðu beinna útsendinga frá Ólymp-
íuleikunum?
Farðu inn á visi.is og segðu
þina skoðun
Einkavæðingu Símans:
Jóhanna vill
rannsóknar-
nefnd
stjórnmál Jóhanna Sigurðardóttir,
þingmaður Samfylkingar, sagði á
þingi í gær að það hlyti að koma til
greina að skipa sérstaka rannsókn-
arnefnd til að fara ofan í einka-
væðingu Símans og
þau mál sem henni
tengjast.
„Valdahroki hef-
ur leikið stjórnend-
ur Símans svo að
þeir hygla sjálfum
sér á kostnað skatt-
greiðenda", sagði
Jóhanna. „Mér
finnst þetta mál orð-
ið svo stórt, svo
viðamikið og svo
mikil ósvífni og
hneyksli í þessu
máli öllum saman að
Alþingi ber skylda til að fara ofan í
þetta mál.“
Össur Skarphéöinssonj formað-
ur Samfylkingar, hafði gagnrýnt
forsætisráðherra fyrir að synja
því að taka þátt í utandagskrárum-
ræðu um málefni Símans. Forsæt-
isráðherra gæti ekki sett sam-
gönguráðherra fyrir sig í þessu
máli sem skotskífu.
Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra, vísaði því á bug að hann
væri að víkja sér undan því að taka
þátt í umræðum. „Það er-hins veg-
ar þannig og það þekkja menn að
þegar kemur að tilteknum einstök-
um fyrirtækjum og málefnum
þeirra er það viðkomandi fagráó-
herra sem veitir andsvör varðandi
þau mál en ekki forsætisráð-
herra.“ ■
JÓHANNA
SICURÐAR-
DÓTTIR
Ósvífni
og hneyksli
í málefnum
Landssímans.
FRETTABLAÐIÐ
19. febrúar 2002 ÞRIÐJUDAGUR
Kæra á Húsasmiðjuna
vegna gjaldþrots
T.L. rúlla:
Ekki þörf á
rannsókn
GJALDÞROT Ríkislögreglustjóri telur
ekki tilefni til að hefja rannsókn
vegna kæru skiptastjóra þrotabús
T.L.-rúlla á hendur forráðamönn-
um systurfélaganna TV-fjárfest-
ingafélags og Húsasmiðjunnar. TV-
fjárfestingafélag keypti T.L. rúllur
tveimur árum fyrir gjaldþrotið.
Beindist kæra skiptastjórans að
því að eignum hefði verið skotið
undan gjaldþrotaskiptunum, eins
og sagt var frá í Fréttablaðinu í lok
nóvember.
„Að vandlega athuguðu máli
hefur efnahagsbrotadeildin komist
að þeirri niðurstöðu að ekki þyki
nægjanlegt tilefni til að hefja rann-
sókn vegna kærunnar," segir í
bréfi fulltrúa Ríkislögreglustjóra
til lögmanns forráðamanna TV-
fjárfsetingafélags og Húsasmiðj-
unnar.
Ágreiningur aðilanna er þó ekki
úr sögunni því skiptastjórinn hefur
jafnframt höfðað bótamál vegna
þessa á hendur sömu aðilum. ■
Heimsmarkaðsverð á bensíni lækkar um 37% á einu ári:
Tveggja prósenta lækkun
til Islendinga á sama tíma
neytendur Bensínverð hefur lækk-
að um rúmlega 2% ef borið er sam-
an krónuverð á lítra nú í febrúar
og í febrúar í fyrra. Á sama tíma
hefur vísitala neysluverðs hækkað
um 9%. Heimsmarkaðsverð á
bensíni hefur hins vegar lækkað
um 37% sama tíma sé miðað við
verð í dollurum á tonn á markaðs-
svæði íslands. Á sama tíma hefur
íslenska krónan fallið í verði. Doll-
arinn er í dag 18% dýrari en hann
var fyrir ári síðan.
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra
bifreiðaeigenda (FÍB), segir FÍB
hafi gert athugasemdir við það á
síðasta ári að álagning olíufélag-
anna hefði stöðugt farið hækkandi.
Hlutur þeirra í hverjum seldum
lítra var t.d. nær 30% sl. haust, en
að meðaltali 22% árið 1999. Run-
ólfur segir olíufélögin hafa á síð-
asta ári leitast við að rétta af tap
vegna gengisfellinga með því að
auka álögur á bensínið.
Runólfur bendir þó á að hlut-
fallsleg álagning olíufélaganna á
bensíni sé lægri nú í febrúar en í
janúar. Hann telur skýringu þess
vera ákveðið aðhald á markaðn-
um hér um þessar mundir. Run-
ólfur bendir á að í janúar hækk-
aði heimsmarkaðsverð á bensíni
lítillega frá desember, en vana-
lega rökstyðja olíufélögin verð-
breytingar með breytingum á
heimsmarkaðsverði mánuðinn á
undan. ■
SKILAR SÉR EKKI
lækkandi heimsmarkaðsverð á bensíni
hefur ekki skilað sér til islendinga.
Nágrannar urðu
ekki varir við neitt
„Þetta bendir manni á að maður er hvergi óhultur/4 segir íbúi í nágrenninu. „Hún var bara á leið
í vinnu í sakleysi sínu/‘ segir tengdadóttir konunnar sem fann manninn myrtan á gangstéttinni.
„Sef laust og hefði vaknað við átök eða hávaða/* segir kona sem býr rétt við vettvanginn.
Konan sem
gekk fram á
manninnþar
sem hann lá f
blóði sínu um
morguninn
var gestkom-
andi hjá fjöl-
skyldu sonar
hennar.
;—*—
lögreglumál íbúar við Víðimel í
Reykjavík þar sem maður var
myrtur í fyrrinótt urðu ekki varir
við neitt óeðlilegt um nóttina. í
gær gekk lögregla hús úr húsi og
talaði við fólk. Ibúar í grennd við
morðstaðinn sem blaðið hafði
samband við tóku undir að ekkert
^__ hafi heyrst og
sumir drógu
reyndar í efa að
árásin gæti hafa
átt sér stað í göt-
unni. Legregla
segir þó öll
verksummerki
benda til að sú hafi
verið raunin.
Kona sem býr
rétt við staðinn
þar sem maðurinn
fannst sagðist ör-
ugglega hefði vaknað ef háreysti
hefðu verið um nóttina. „Ég sef
mjög laust og við opinn glugga.
Svo er þetta alveg þögul gata. Ég
vaknaði þegar lögreglan var hér
fyrir utan og þeir voru samt ekki
með sirenur eða neitt. Ég hefði
vaknað ef það hefðu verið átök
eða hávaði,“ sagði hún. Lögregla
vildi ekkert gefa uppi um hvort
þetta benti til að maðurinn hafi
ekki getað veitt árásinni mót-
spyrnu.
Aðrir íbúar í grennd við morð-
staðinn sögðust heldur ekki hafa
orðið við neitt varir. „Mér brá
mikið þegar lögreglan bankaði
upp á klukkan hálf átta í morgun,
en þá vorum við nýbúin að kveik-
ja Ijósið. Þetta er helvítis við-
bjóður," sagði maður í næsta
húsi. Hann sagði að sér hafi jafn-
vel flogið í hug að setja íbúð sína
á sölu. „Ætli maður verði ekki
bara að flýja í úthverfin," bætti
hann við. „Þetta bara bendir
manni á að maður er hvergi
óhultur,“ sagði kona í nágrenninu
og taldi atburðinn til marks um
VÍÐIMELUR í CÆRMORGUN
íbúi við Víðimel segist örugglega myndu hata vaknað ef læti hefðu verið í götunni um
nóttina þegar ráðist var á manninn. Erfitt er að ráða af ummerkjum hvort maðurinn gat
veitt árásinni mótspyrnu.
að heldur meira bæri á skugga-
hliðum stórborgarmenningarinn-
ar í Reykjavík en verið hafi.
Konan sem gekk fram á
manninn þar sem hann lá í blóði
sínu um morguninn var gestkom-
andi hjá fjölskyldu sonar hennar.
Hún var á leið í vinnu þegar hún
sá manninn á gangstéttinni. Að
sögn tengdadóttur konunnar var
henni mjög brugðið. „Hún hring-
di strax á lögregluna og svo var
tekin skýrsla af henni. Hún var
bara á leið í vinnu í sakleysi sínu.
Það er hræðilegt að svona skuli
eiga sér stað hér í Vesturbænum
í Reykjavík og vonandi að þeir
finni þann sem gerði þetta,“
sagði hún.
oli@frettabladid.is
Breytt umhverfi í grænmetisinnflutningi:
Grænmeti lækkar verulega í vikunni
neytendur íslenskir neytendur
eiga von á því að grænmeti
verði mun ódýrara síðar í vik-
unni. Þá eiga að skila sér út í
verðlagið afnám á 30% verðtolli
á fjölmörgum tegundum á
grænmeti. í síðustu viku gaf
landbúnaðarráðuneytið út
reglugerð um niðurfellingu
verðtolls og magntolls af fjöl-
mörgum grænmetistegundum.
Einnig var gefin út reglugerð
þar sem lagður er magntollur á
kartöflur, sveppi, hvítkál og gul-
rætur. Þessar breytingar eru
hluti af tillögum grænmetis-
nefndar. Breytingarnar voru
kynntar 5. febrúar sl. og kom þá
fram í máli landbúnaðarráð-
herra að þær myndu þýða um
15% lækkun á grænmeti að
meðaltali og allt að 55% lækkun
á sumum tegundum, t.d.
papriku.
Guðmundur Marteinsson,
framkvæmdastjóri Bónus, sagði
í samtali við blaðið að ekki væri
farið að selja grænmeti sem af-
greitt hefði verið síðan verðtoll-
arnir voru felldir niður í síðustu
viku. Hann segir að það verði
örugglega í þessari viku sem
neytendur verða varir við breyt-
inguna. Hann vildi ekki spá um
hversu mikil lækkunin yrði, það
myndi meðal annars ráðast af
markaðsverðinu erlendis.
Jóhannes Gunnarsson, for-
maður Neytendasamtakanna,
segir að þau samtök muni fylgj-
ast grannt með því að þessar
breyjingar skili sér út í verðlag-
ið. „Ég reikna með því að engum
detti annað í hug en að þær geri
það. Ég geri ráð fyrir því að þeir
aðilar sem gerðu ákveðið sam-
komulag um þessi mál, tryggi
framgang þess. Það hefur verið
mikil umræða um þennan mála-
flokk og það verða örugglega
margir sem fylgjast með þess-
um málum.“ ■