Fréttablaðið - 19.02.2002, Qupperneq 6
6
FRETTABLAÐIÐ
19. febrúar 2002 ÞRIÐJUDAGUK
SPURNING DAGSINS
Hver vínnur prófkjör Samfylk-
ingarinnar?
Ætli það verði ekki Helgi Hjörvar.
Lárus Blöndal er lögmaður.
Jón Kristjánsson, heil-
brigðisráðherra um
heilsugæsluna:
Meira að-
laðandi fyr-
ir lækna
heilbrigðismál „Það er skortur á
heimilislæknum. Ástæðan gæti
verið sú, að menn vilja vinna und-
ir öðru fyrirkomulagi en nú er,“
segir Jón Kristjánsson, heilbrigð-
isráðherra. Hann átti fyrir helgi
fund með nefnd á vegum heil-
brigðisráðuneytisins um eflingu
heilsugæslu. „Fyrst og fremst
þarf hraðari uppbyggingu á
heilsugæslu í Reykjavík. Við höf-
um einnig skoðað hvernig hægt er
að gera heilsugæslukerfið að
meira aðlaðandi vinnustað og fjöl-
ga heimilislæknum. Aðsókn í
greinina og áhugi fyrir henni hef-
ur verið að glæðast. Margir vilja
þó hafa fleiri möguleika en þá
sem fyrir eru. Ýmis rekstrarform
hafa verið skoðuð. Meðal annars
hvort möguleiki sé á, að gera
þjónustusamninga og opna mögu-
leika fyrir sjálfstætt starfandi
lækna,“ segir Jón. Hann býst við
að nefndin skili tillögum um leiðir
til að efla heilsugæslu, í lok mars.
„Mín stefna er þó óbreytt. Að-
gangur að heilsugæslu á, eftir
sem áður, að vera greiður. Allir
eiga að standa jafnir í heilbrigðis-
kerfinu," segir Jón. ■
BSRB 60 ára:
Samvinnan
skilar árangri
kjaramál Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja, BSRB fagnaði því
í sl. viku að 60 ár voru liðin
stofnun þess. Það voru fulltrúar
14 félaga starfs-
manna ríkis og
sveitarfélaga
sem stóðu aó
stofnun banda-
lagsins. Innan
vébanda þeirra
voru þá 1550 fé-
lagsmenn. Á af-
mælisárinu eru
aðildarfélögin
alls 33 með um
18 þúsund fé-
lagsmenn. Ög-
mundur Jónas-
son formaður BSRB segir alveg
augljóst að starfsemi og sam-
vinna BSRB og aðildarfélaga
þess hefur skilað miklum ár-
angri í kjara- og réttindamálum
félagsmanna. Hann segir að
haldið verði áfram á þeirri braut
enda verkefnin næg í síbreyti-
legum heimi launafólks.
Hann segir að besta afmælis-
gjöfin sem félagsmenn aðildar-
félaga BSRB gætu fengið sé að
stjórnvöld virki krafta þeirra og
framlag til að gera samfélagið
enn betra. Það mundi verða öll:
um landsmönnum til hagsbóta. í
tilefni af þessum áfanga í sögu
BSRB hefur Þorleifur Óskars-
son sagnfræðingur verið ráðinn
til að rita sögu þess. ■
ÖGMUNDUR
Segir að BSRB
leggi m.a. áherslu
á að bæta samfé-
lagsþjónustuna.
Genabreytt svín:
Framleiða líf-
Skandinavíska flugfélagið SAS:
Einkavætt innan fárra ára?
ÓSLÓ. ap Ríkisstjórn Noregs veltir
því nú fyrir sér að selja hlut sinn
í skandinavíska flugfélaginu
SAS. Frá þessu var skýrt í norska
dagblaðinu Verdens Gang.
Dagblaðið sagði allar líkur á
því að flugfélagið verði einka-
vætt innan fárra ára.
Norska ríkið á nú 14,3 prósent
í flugfélaginu. Danska ríkið á
sömuleiðis 24,3 prósent. Sænska
ríkið á um það bil 22 prósent. Af-
gangurinn af flugfélaginu er nú
þegar í einkaeigu.
Ansgar Gabrielsen, iðnaðar-
ráðherra Noregs, vildi ekki stað-
festa þessi einkavæðingaráform
í viðtali við norska útvarpið.
RÚMLEGA TÍU MILLJARÐA TAP
Þrír af stjórnendum skandinavíska flugfé-
lagsins SAS skýrðu á þriðjudaginn fjölmiðl-
um frá gríðarlegu tapi flugfélagsins á síð-
asta ári. Aðalorsöki tapsins sögðu þau vera
atburðina i Bandarikjunum 11. september.
Hann gaf þó í skyn að hann sjálf-
ur teldi réttast að einkavæða
flugfélagið.
„Það er ekki vilji okkar að
veikja flugfélagið. Ósk okkar er
að styrkja það. Sjálfur tel ég að
ef aðrir eigendur taki við þá
styrkist það,“ sagði Gabrielsen.
Rúmlega 30.000 manns starfa
hjá SAS, sem var stofnað árið
1946 við sameiningu ríkisflugfé-
laga Svíþjóðar, Noregs og Dan-
merkur. I síðustu viku skýrði
SAS frá því að rekstrartap þessi
á síðasta ári hafi numið 1,1 millj-
arði sænski'a króna. Það sam-
svarar rúmlega tíu milljörðum ís-
lenskra ki'óna. ■
færi fyrir fólk
læknavísindi Eftir fimm til sjö ár
verður hægt að græða líffæri úr
svínum í fólk. Þetta kom fram á ráð-
stefnu um framfarir í læknavísind-
um. Vísindamenn fást nú við að
breyta genum svína til að þau henti
betur til ígræðslu. Gera verður líf-
færi þeii’ra mannlegri svo minni lík-
ur séu á, að mannslíkaminn hafni
þeim. Tveir hópar vísindamanna,
sögðu á ráðstefnunni, að þeim hefði
þegar tekist að einrækta svín, með
genasamsetningu sem hentaði
mönnum. Þótt ígræðslurnar verði
möguleiki innan fárra ára, er enn
mörgum læknisfræðilegum og sið-
ferðilegum spurningum, ósvarað. ■
George W. Bush ætlar
að „grípa tækifærið“
Vel fór á með Bush og Koizumi í Japan í gær. Bush varði stefnu sína gagnvart Irak, Iran og
Norður-Kóreu. Koizumi styður tal Bush um „öxul hins illa“.
tókíó. ap George W. Bush Banda-
ríkjaforseti segist staðráðinn í að
„grípa tækifærið" núna til þess að
gera hinum „óstýrilátu ríkjum",
sem bandarísk stjórnvöld nefna
svo, ókleift að ganga í bandalag
með hryðjuverkasamtökum.
Hann varði í gær af fullum krafti
stefnu sína gagnvart Norður-
Kóreu, íran og írak. Fyrir fáein-
um vikum sagði hann þessi þrjú
ríki mynda „öxul hins illa“. Þau
ummæli urðu þegar í stað afar
umdeild.
Bush varði stefnu sína á blaða-
mannafundi með Junichiro
Koizumi, forsætisráðherra Jap-
ans, í gær. Bush kom til Japan á
sunnudagskvöld á ferð sinni um
Asíu. Þeir ræddu saman í þrjá
klukkutíma í gær.
„Ég skil alveg það sem er að
gerast á alþjóðavettvangi," sagði
Bush. „Fólk segir ýmislegt. En
þeir leiðtogar sem ég hef rætt við
skilja fullkomlega, nákvæmlega,
hvað þarf að gerast.“
Bush sagði þjóðarleiðtogana
skilja að Bandaríkin ætli sér ekki
eingöngu að taka til höndum í
Afganistan. Þeir skilji fullvel að
„sagan hafi gefið okkur einstakt
tækifæri til að verja frelsið. Og
við ætlum að grípa tækifærið, og
gei’a það.“
Hann sagði „alla möguleika á
borðinu" varðandi það, hvernig
tekið verði á írak, íran og Noróur-
Kóreu. Væntanlega átti hann þá
við að einn möguleikanna, sem til
greina kæmu, væri stríð. Til þess
að sefa áhyggjur samherja sinna
bætti hann þó við: „Við viljum
leysa öll mál með friðsamlegu
hætti, hvort sem það er íi"ak, íran
BANDARÍKJAFORSETI í JAPAN
Þau George W. Bush og Laura eiginkona hans hittu meðal annars súmó-glímukappann Musashimaru í Japan i gær. Þau eru á ferð um
Asíuríki.
eöa Norður-Kórea."
Koizumi, forsætisráðherra
Japans, sagðist styðja orðalag
Bush um „öxul hins illa“. Hann
sagði Bush hafa sýnt mikla róse-
mi og varkárni gagnvart ríkjun-
um þremui'.
í heimsókn sinni til Japan sagð-
ist Bush jafnframt hafa áhyggjur
af efnahagslífinu í Japan. Reynd-
ar í öðrum Asíuríkjum líka.
Koizumi hefur heitið hörðum
efnahagsumbótum, en ekkert hef-
ur enn orðið af framkvæmdum.
„Aðalmarkmið mitt með þess-
um fundi,“ sagði Bush um þrigg-
ja tíma spjall sitt við Koizumi,
„var að meta hversu mikill ákafi
og löngun og vilji er til að leggja
erfiða vinnu af mörkum til þess
að ná fram djörfum markmiöum.
Og eftir að hafa hlustað lengi á
forsætisráðherrann í dag og
horfst í augu við hann, þá tel ég
mig hafa fullvissu fyrir því að
þetta sé einmitt það sem hann
ætlar að gera.“ ■
Konu meinað ábyrgðum á 20 þúsund kr. yfirdrætti:
Segir ástæðuna vera að
hún sé innflytjandi
bankamál Kona á Eskifirði segir
að henni hafi verið meinað að
vei’a í ábyrgðum fyrir 20 þúsund
króna yfirdráttaláni systur sinn-
ar af þeirri ástæðu að hún sé inn-
flytjandi. Henni var synjað af
Gísla Benediktssyni, útibústjói’a
Landsbankans á Eskifirði. „Ef
hann hefði útskýrt reglurnar
væri þetta allt í lagi,“ segir
Aleksandra Janina Wojtowicz
sem öðlaðist íslenskan ríkisborg-
ararétt í fyrra eftir að hafa búið á
íslandi í sex ár. „Hann nefndi
þær ekki, sagði bara að ég fengi
þetta ekki af því að ég væri ekki
„alvöru ís-
lendingur“.“
Aleksandra
segist vera
skuldlaus með
öllu.
„Ég vísa á
bug gagnrýni
á okkar útibú-
stjóra,“ segir
Halldór Jón
Kristjánsson
bankastjóri
halldór Landsbank-
Þjóðerní réði engu um ans. „Það er
synjunina. engin mis-
munun gerð af þessu tagi í
Landsbankanum. Við erurn t.d.
nteð fjölmarga erlenda ríkisborg-
ara í vinnu. Við sækjumst eftir
öllum góðum viðskiptum, alveg
óháð þjóðerni. Það vita Eskfirð-
ingar að framkoma Gísla ein-
kennist af miklum heiðarleika og
sanngirni gagnvart öllum við-
skiptavinum bankans. Það var
farið eftir öllum eðlilegum vinnu-
reglum í þessu sambandi." Hall-
dór segir að þar hafi verið tekið
mið af viðskiptasögu og öðrum
skilyrðum fyrir því að útlán séu
veitt. ■
INNLENT
Hlutabréf Keflavíkurverktaka
hf. verða afskráð á Verð-
bi’éfaþingi í dag. Lýkur þar nteð
rúmlega átta mánaða veru félags-
ins á markaði. í lok september sl.
kom það fyrrum valdhöfum í opna
skjöldu að svonefnd fjandsamleg
yfirtaka hafði átt sér stað fyi’ir
fi’aman nefið á þeim og Bjarni
Pálsson, ungur athafnamaður,
eignast meirihluta í fyrirtækinu.
Bjarni á nú um 97% hlutafjár og
því uppfyllir félagið ekki lengur
skilyrði um dreifingu eignarhluta.
Hlutabréfsjóðurinn Hmark tap-
aði rúmum 11 milljónum
króna á árinu 2001. Árið áður var
tapið nokkru meira eða 44 milljón-
ir. Eignir eru að mestu í skráðum
erlendum félögum, þ.m.t. 20 millj-
ónir króna í Microsoft, 17 í IBM
og 17 í lyfjafyrirtækinu Pfizer.
Handbært fé var 108 milljónir
króna í ái’slok sem er um 80 millj-
óna lækkun frá fyrra ári.