Fréttablaðið - 19.02.2002, Side 14
FRÉTTABLAÐIÐ
ÓLYMPÍULEIKAR
JAFNIR I SILFUR
Síðastliðinn fimmtudag gerðist það
að tveir skíðagöngumenn komu jafnir í
mark. Þetta voru Norðmennirnir Thomas
Alsgaard og Frode Estil. Þeir fengu báðir
silfurverðlaun. Hér er teygð mynd af því
þegar þeir komu í mark. Þar sést hvernig
Alsgaard teygir ristina fram og er hnífjafn
Estil yfir línuna.
ÞRIOJUDAGURINN
19. FBRÚAR
HANPBOLTI_________________________
KA - Stjarnan mætast í Esso-deild karla í
KA heimilinu klukkan 20.00.
Grótta/KR tekur á móti FH á Seltjarnar-
nesi I kvöld kl. 20 f Esso-deild karla.
í Vestmannaeyjum mætast ÍBV og IR í
Esso-deild karla kl. 20.00.
14
19. febrúar 2002 ÞRIÐJUDAGUR
Lewis vill berjast:
Tyson leiti sér hjálpar
hnefaleikar Líklegt þykir að bar-
dagi Lennox Lewis og Mike
Tyson fari fram í Bandaríkjunum
í júní. Hann fer hinsvegar ekki
fram í Georgíufylki, eins og talið
var þegar Tyson fékk hnefaleika-
leyfi þar nýlega. Fylkisstjórinn
hefur sagt að hann muni ekki
leyfa köppunum að berjast í Ge-
orgíu.
Texas virðist því vera líkleg-
asti staðurinn í augnablikinu.
Kalifornía hefur einnig lýst yfir
áhuga að halda bardagann. Tals-
maður Lennox Lewis tilkynnti
um helgina að hann hafi mikinn
áhuga á því að berjast við Tyson.
Bardaginn verði hinsvegar að
vera „ósvikinn fþróttaviðburð-
ur“. Hann fari fram í Bandaríkj-
unum vegna þess að samningur
kappanna geri ráð fyrir því. Lew-
is vill að Mike Tyson nýti tímann
fram að bardaga til að leita sér
sálrænar hjálpar. „Mér fannst
það greinilegt þegar hann kom
fyrir nefndina í Nevada að hann
þarfnast hjálpar," sagði talsmað-
ur Lewis. „Ef bardaginn fer fram
í júní hefur hann nægan tíma til
þess. Við styðjum hann heilshug-
ar í því.“ ■
LENNOX LEWIS
Honum finnst greinilegt að Tyson þurfti að
nýta tímann fram að bardaga til að leita
sér sálrænnar hjálpar.
Evrópa vaknar á ný
Eftir tveggja mánaða vetrarleyfi byrja bestu knattspyrnulið Evrópu á ný að keppa innbyrðis.
I vikunni er bæði spilað í Meistaradeild Evrópu og UEFA bikarnum.
KÖRFUBOLTI_____________
Suðurnesjastúlkurnar í Grindavíkog
Keflavík eigast við í t. deild kvenna í
Grindavík. Leikurinn hefst kl. 20.00.
Norðmaðurinn Aamodt:
Gullinu
ógnað
ólympíuleikar í gær birtist í Aften-
posten auglýsing frá skíðafram-
leiðandanum Nordica með mynd
af Kjetil Aamodt að fagna gull-
verðlaunum í risasvigi. Nordica
sér Aamodt fyr-
ir skíðum og
skíðaskóm.
Uppi varð fótur
og fit hjá nors-
ka ólympíu-
sambandinu
þegar þetta
uppgötvaðist. í
reglugerðum
Ólympíuleik-
anna stendur
að keppendur
mega ekki
koma fram í
auglýsingum eða viðburðum á
vegum styrktaraðila á meðan á
leikum stendur. Aðeins má óska
þeim til hamingju, án þess að
mynd fylgi með. Brjóti keppendur
reglurnar eiga þeir á hættu að
vera dæmdir úr leik þegar keppni
er lokið. Þannig gæti Aamodt
misst gullin tvö frá Salt Lake.
Norska sambandið reyndi að stöð-
va prentun Aftenposten í gær-
morgun án árangurs. Sent var
skammarbréf til Nordica og af-
sökunarbeiðni til Alþjóða ólymp-
íunefndarinnar. Þar voru menn
ánægðir með skjót viðbrögð og er
því búist við að Aamodt verði fyr-
irgefin mistök Nordica. ■
fótbolti Margir hvíldu sína bestu
leikmenn um helgina. í flestum til-
vikum eru deildarleikirnir ekki
taldir jafn mikilvægir og Evrópu-
leikirnir. í dag mætast í D riðli
Meistaradeildar Bayer Leverku-
sen og Arsenal og Juventus og
Deportivo la Coruiia. í C riðli mæt-
ast Real Madrid og Porto og Sparta
Prag og Panathinaikos. Fjórða um-
ferð Evrópukeppni bikarhafa fer
fram í dag og á fimmtudaginn.
Hjá Arsenal var það ekki hvíld,
heldur akstur, sem var ráðlagður
fyrir Hollendinginn Dennis Berg-
kamp. Arsene Wengre þjálfari lét
hann keyra til Þýskalands um
helgina til að undirbúa sig. Berg-
kamp er haldinn mikill flug-
hræðslu. Hann er einnig í banni £
ensku deildinn. Flughræðslan hef-
ur orðið til þess að hann missir
jafnan af Evrópuleikjum, spilaði
síðast í Meistaradeildinni í
Barcelona í september 1999.
D riðill er einn sá jafnasti í
Meistaradeildinni. Þar eru öll liðin
með þrjú stig. „Riðillinn er í miklu
jafnvægi," segir Klaus Toppmoell-
er, þjálfari Leverkusen. „Það verð-
ur erfitt en við munum ná í fjórð-
ungsúrslitin, ásamt Arsenal. Við
þurfum fjögur stig.“
KfNVERJINN dettur
Bandaríkjamaðurinn Apolo Anton Ohno,
Kanadabúinn Mathieu Turcotte og Ahn
Hyun-Soo frá Kóreu voru á fullri ferð í síð-
ustu beygju og gátu allir sigrað. Þá dettur
Kínverjinn Li Jiaiun og dregur þá með sér.
AUGLÝSINGIN
Hefði getað reynst
dýrkeypt
Timbur, steinull, þakjárn, panill,
vatnsklæðning, pallaefni, listar
grindarefni, saumur, skrúfur, boltar.
MEISTARAEFNI
BYGGINGAVÖRUR
■í
MARKAHÆSTUR
Frakkinn David Trezeguet hjá Juventus er markahæsti leikmaður Meistaradeildar Evrópu.
Hann er búinn að skora átta mörk. Næstir honum er Elber hjá Bayern Munchen og Ruud
Van Nistelrooy með sex mörk. Juventus mætir Deportivo la Coruna í dag.
Arsenal leggur áherslu á að
koma í veg fyrir fimmta tapið á
útivelli í röð í Meistaradeildinni.
Juventus mætir sigurstranglegt til
leiks á móti Deportivo. Liðið vann
Fiorentina 2-1 á laugardaginn og
komst í efsta sæti ítölsku deildar-
innar í fyrsta skipti í vetur. Það er
einnig í úrslitakeppni ítalska bik-
arsins. „Það er erfiður mánuður
framundan," segir framherjinn Al-
essandro Del Piero. „Liðið verður
að ætla sér að vinna alla bikara til
að ná hámarksárangri."
Á Spáni tekur Real Madrid á
móti Porto. Real er með þægilega
forystu í C riðli. Það er með sex
stig, Sparta með þrjú og Porto og
Panathinaikos með eitt. Real tap-
aði 2-1 fyrir Athletico de Bilbao
um helgina og missti efsta sæti
spænsku deildarinnar. Það hefur
ekki unnið síðustu átta útileiki.
Porto er í þriðja sæti í Portúgal en
á í vandræðum með framherja.
Grikkirnir í Panathinaikos fara
til Prag. Sparta tapaði forystu í
deildinni um helgina, tapaði 1-0
fyrir FC Liberec, sem tekur þátt í
Evrópukeppni bikarhafa. En
Grikkirnir eru í sveiflu, unnu síð-
ustu sjö leiki og eru í öðru sæti í
sinni deild.
Tveir leikir fara fram í Evrópu-
keppni bikarhafa í dag. AC Milan
fer til Hollands og spilar við Roda.
Milan þarf að vinna sig í áliti hjá
áhorfendum. Liðið gerði marka-
laust jafntefli við Atalanta á
sunnudaginn og var baulað á Rui
Costa og Adriy Shevchenko af
þeirra eigin stuðningsmönnum. Þá
spilar Valencia við Servette. ■
Skautahlaup í Salt Lake Gity:
Heppinn Astrali vann gull
... OG ALLIR KLESSA A VEGGINN
Skautahlaupararnir fjórir klesstu utan I vegginn á 60 km hraða. Þeim til mikillar skelfingar
nálgast Ástralinn Bradbury. Hann var langsiðastur I hlaupinu.
ólympIuleikar Steven Bradbury
datt í lukkupottinn þegar hann
vann fyrstu gullverðlaun Ástrala
á Vetrarólympíuleikum á sunnu-
daginn. Bradbury keppti £ 1000
metra skautahlaupi á stuttri
braut. Hann var búinn að vera
síðastur allan tímann, enda ekki
sigurstranglegur fyrirfram, en
þegar hinir fjórir keppendurnir
duttu i siðustu beygjunni renndi
hann sér rólega fram úr.
„Ég var búinn að ákveða að
vera aftastur og biða eftir árek-
Stri. Það tókst,“ sagði Bradbury
ánægður eftir hlaupið. Ekki voru
allir áhorfendur ánægðir með
sigur hans en hann svaraði þeim
fullum hálsi. „Einhverjir öskr-
uðu að ég ætti þetta ekki skilið.
Segjum bara að ég hafi sagst
vera ósammála."
Það er ekki hægt að segja að
Bradbury hafi ekki átt sigurinn
skilinn þegar litið er á feril hans.
Hann hefur tvisvar jafnað sig
eftir alvarleg meiðsli. 1994 fékk
hann skauta í lærið í keppni. Þá
þurfti að sauma 111 spor og gefa
honum fjóra lítra af blóði fyrir
það sem hann missti. Fyrir
tveimur árum klessti hann með
... NEMA HEPPNI ÁSTRALINN
Bradbury silast yfir markllnuna. Bandaríkja-
maðurinn Ohno náði að renna sér á mag-
anum yfir llnuna til silfurs. Hann slasaðist
á læri við áreksturinn á vegginn. Turcotte,
sem er á bakvið Bradbury, fékk brons.
höfuðið á undan á girðingu á æf-
ingu. Þá þurfti Bradbury að vera
í hálskraga í tvo mánuði. í þetta
skiptið borgaði það sig fyrir
hann að standa á fótunum.
Bradbury var spurður hvort
hann hefði enn staðið á fótunum í
lok kvöldsins, eftir allan fögnuð-
inn. Sumir hafa kvartað yfir
ströngum reglum varðandi frí-
tíma íþróttamannanna. „Því mið-
ur,“ sagði hann. „Við vorum ekki
komin í veisluna fyrr en klukkan
hálf tvö. Allir voru reknir út
klukkan þrjú. Svona er þetta
hérna í Utah.“ ■