Fréttablaðið - 19.02.2002, Qupperneq 15
ÞRIÐJUDAGUR 19. febrúar 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
15
EM 2004:
Leikirnir ákveðnir í dag
fótbolti Á hádegi í dag verður
ákveðið hvernig leikirnir í
fimmta riðli undankeppni Evr-
ópumeistaramótsins 2004 fara
fram. Ásamt íslandi eru í riðlin-
um, Þjóðverjar, Litháar, Færey-
ingar og Skotar. Dagsetningarn-
ar liggja nokkurn veginn ljósar
fyrir en ákveða þarf í hvaða röð
liðin rnætast. Fundurinn fer
fram í Frankfurt í Þýskalandi.
Eggert Magnússon, formaður
KSI, Geir Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri og Atli Eðvalds-
son landsliðsþjálfari eru í
Frankfurt.
Fundurinn hefur vakið mikla
athygli þar sem að Þjóðverjinn
Berti Vogts kemur þar fram í
fyrsta skipti sem landsliðsþjálf-
ari Skotlands. Skotar staðfestu
fyrir helgi að Vogts var ráðinn í
starfið. Hann tekur við liðinu 1.
mars. Vogts er 55 ára og leiddi
Þjóðverja til sigurs í Evrópu-
keppninni 1996. Það er því nokk-
uð rafmagnað loftið i milli
skoskra og þýskra '.andsliðanna
þessa daganna.
Vogts er kokhraustur í nýja
starfinu hjá Skotum og segist
reiðubúinn að fara í sálræna
keppni við Þýskaland. Hann hef-
ur áður verið í svipuðum samn-
ingaviðræðum og veit hver hern-
aðartækni Þjóðverjanna er. „Ég
ákvað oft dagsetningar fyrir
Þýskaland. Við viljum ekki mæta
Þjóðverjum í fyrsta leik. Þeir
vilja væntanlega spila seint við
Skotland. Það er gott, ég þarf
tíma með skosku leikmönnunum.
Skipan leikja er mikilvæg. Við
viljum spila fyrsta leik heima.
Við þurfum þrjú stig,“ sagði
Vogts. Hann greindi einnig frá
því að fyrir þremur árum var
reynt að fá hann í stöðu skoska
landsliðsþjálfarans en hann neit-
aði. Hann þjálfaði lið Kuwait
áður en hann hélt til Skotlands. ■
SPENNA
Berti Vogts verður í eldlínunni í Frankfurt í dag. Þar sest hann niður með fyrrum sam-
starfsmönnum sínum hjá landsliði Þýskalands sem landsliðsþjálfari Skotlands. íslendingar
verða einnig á fundinum.
Argentískar fótboltabullur:
Einn lést í
fjöldaslagsmálum
fótbolti Ofbeldi stuðningsmanna
tveggja liða fyrir leik þeirra varð
til þess að einn maður lést og tólf
aðrir særðust í Argentínu á
sunnudaginn. Meðal þeirra særðu
eru sex lögreglumenn.
Hinn 22 ára gamli Gustavo
Rivero var skotinn í brjóstið fyrir
utan leikvang í Buenos Aires.
Einn annar var skotinn í bakið og
hlaut alvarleg meiðsli. Rivero var
stuðningsmaður Independiente,
sem spilaði við andstæðinga sína í
Racing Club. Independiente vann
leikinn 2-1. Rúmlega 400 manns
lentu í slag fyrir utan leikvang
Independiente, sem er aðeins 200
metrum frá leikvangi Racing.
Slagsmálin áttu sér stað
klukkutíma fyrir leikinn og stóðu
í fimm mínútur. Sjónarvottar
sögðu fjölda fólks hafa verið í
miklum æsingi, veifandi hnífum
og skjótandi úr byssum. Lögregl-
an handtók 80 manns. Leiknum
sjálfum var síðan frestað í fimm
mínútur þegar stuðningsmenn
Independiente köstuðu reyk-
sprengju í átt að markverði
Racing.
Einnig kom til átaka milli
stuðningsmanna Gimnasia og
Estudiantes á sunnudaginn. Þar
voru 30 handteknir. Ofbeldi hefur
plagað knattspyrnu í Argentínu
frá áttunda áratugnum. Mikið er
um skipulagðar klíkur, sem stan-
da fyrir slagsmálum og öðrum
Útsala
SKAPBRÁÐUR BOLTI
Riquelme hjá Boca Juniors og Franco hjá San Lorenzo áttust einnig við í argentísku deild-
inni í Buenos Aires á sunnudaginn.
uppákomum. Hundruðir hafa
særst og látist vegna þeirra í
gegnum árin. í fyrra lést einn
Argentínubúi vegna ofbeldis í
kringum knattspyrnu. Árið 2000
voru þeir fimm. ■
JS'®**
yiNTERgpoeer
tmsptnr
Settu öryggið á oddinn - renndu við og veldu úr spennandi framboði af notuðum gæðabílum
r
1
■, í fegÖfP
Hyundai Accent GLS Hyundai Sonata GLSi Renault Clio RT Mercedes Benz E220
Nýskr. 1.2000, I500cc vél, Nýskr. 4.1999,2000cc vél, Nýskr. 6.1994, I400cc vél, Nýskr. 10.1993, 2200cc vél,
5 dyra, 5 gíra, grænn, ekinn 47 þ. 4 dyra, sjálfskiptur, grænn, ékinn 24 þ. 5 dyra, 5 gíra, grænn, ekinn 101 þ. 4 dyra, sjálfskiptur, blár, ekinn 197 þ.
MI822. Verð: 930 þ. MY484. Verð: 1.390 þ. PF357. Verð: 470 þ. YD457. Verð: 1.350 þ.
Rover 416 SLi
Nýskr. 1.1999, I600cc vél,
4 dyra, 5 gíra, blár, ekinn 52 þ.
DA553. Verð: 1.250 þ.
Grjóthálsi I, s. 575 t 230, www.bl.is * Akureyri, Bílaval, Glerárgötu 36, s. 46 I I 036 • Akranes, Bíiasafan Bílás, Þjóðbraut I, s. 43 I 2622 « Keflavík, BHasala Keflavíkur, Bolafæti I,