Fréttablaðið - 19.02.2002, Blaðsíða 16
FRÉTTABLAÐIÐ
16
^ooc i6índeí suoAauia*55<i
19. febrúar 2002 ÞRIÐJUDACUR
HASKOLABiO
HAGATORCi • SÍMI >30 1919 • STÆRSTA SÝNINGARTJALD LANDSiNS
duets
MAHIA Hfl iU
ANhAt *MUtÍHtR
PAUl DIAMAftt
Mlíft ITVrH
ÖWVNItM PALTRUW
«?Olt ÍfflMMAN
lÉf&Msp-PIXAR
SKRÍMSLÍ HF
MJ NUJNT £KK» TRÚA MNU €ICM AUGAl
Sýnd kl. 7 og 9.15
IVANILLA SKY kL 7 og 9 J01
IGEMSAR kL 5,7 og 91
AMELIE kl. 4.45,7 0g9.15j
Sýnd kl. 5 m/ísl. tali
jREGÍNA kL 5f
IMÁVAHLÁTUR kl. 51
Ielling kL 7 og 10[
srnHfíH v fíia
y( ÁLfABAKKA
4 TILNIFNINGAR TIL
ÓSKARSVERÐLAUNA
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30
VANILLA SKY
________________ Kl. 350,555,8 ogiai0m/ens.tal uit 2«
kL 8 og 10.30 II334I Kl. 3.50 og 5.55 m/ísltal vrrua
|VANILLA SKY ‘Jgi kL 5.20,8 og 1035 1ETÍ| jREGÍNA
kL 3.45 |
[HEARTS IN ATL— kl. 6, 8 og 10.20
| ATLANTIS m/ IsL tali
□□ Dolby ÍDDJ Thx SÍMI 564 0000 • wwv/.smarabio.is
jOCEAN’S ELEVEN kl. 8 og 10.10 |g'i,[ jHARRY POTTER m/ isl tali kL 4 j
CROSSROADS
Britney stingur af til L.A. og tekur þátt í
tónlistarkeppni.
Frumraun Britney Spears:
Hræðilegir
dómar
kvikmyndir Svo virðist sem söng-
konurnar Mariah Carey og Britn-
ey Spears eigi það sameiginlegt
að eiga erfitt að framlengja
stjörnuskini sínu yfir á hvíta
tjaldið. Þó svo að myndin „Cross-
roads“, sem er frumraun Britney
í bíó, hafi farið í annað sæti yfir
aðsóknarmestu myndirnar í
Bandaríkjunum á fyrstu viku
sinni hafa gagnrýnendur nánast
einróma gefið henni tvo þumla
niður. Því er ekki búist við jafn
góðu gengi í næstu viku.
Einn gagnrýnandi komst þan-
nig að orði að myndin væri eins og
eitt af myndböndum hennar,
nema hvað það tæki 90 mínútur
og þú þyrftir að borga til þess að
sjá það. Flestir þeirra líktu mynd-
inni við langa auglýsingu á popp-
feril hennar.
Britney fékk þó ekki jafn
hræðilega útreið og Mariah fyrir
leik sinn þrátt fyrir að móttökurn-
ar hafi verið góðar.
„Crossroads" fjallar um það
þegar þrjár æskuvinkonur stinga
af til Los Angeles eftir að sætur
tónlistarmaður lokkar þær út í að
taka þátt í tónlistarkeppni. Sögu-
þráður myndarinnar fékk verstu
útreiðina af öllu.
Næst munum við sjá stúlkuna í
þrióju myndinni um Austin
Powers, hvað sem sú mynd kemur
nú til með að heita. ■
Fermingamyndatökur
Fjölskylduljósmyndir
Brúðkaupsmyndir
Ljósmyndarinn Mjódd
Sírr i 557 9550
9ar'"ftokka 3
FRÉTTIR AF FÓLKI
Breska söngkonan Dido segist
óttast það stöðugt að fara á
tónleikaferðalag til Bandaríkj-
anna. Þar séu
„eiginhandaárit-
unar veiðimenn-
irnir“ af annari
tegund og svífast
einskis. Hún seg-
ir að þar neyðist
hún til þess að
ráða lífverði þeg-
ar hún fer í versl-
unarleiðangur en annarsstaðar
séu aðdáendur mun kurteisari.
Dido er að leggja af stað í tón-
leikaferðalag um Bandaríkin og
þegar er uppselt á alla leikvang-
ana sem hún kemur fram á.
Dúettaplata R. Kelly og Jay-Z
verður gefin út samkvæmt
áætlun í Bandaríkjunum þrátt
fyrir að sá fyrrnefndi er undir
lögreglurannsókn. Kelly er sakað-
ur um að hafa tekið upp á mynd-
band mök sín við stelpu undir
lögaldri. Kelly heldur fram sak-
leysi sínu og segist ætla að taka á
málinu á þeim grundvelli sem
það er; sem „bölvað rugl“.
Mikill ys og þys hefur verið
gerður úr því að þrír blökku-
menn séu tilnefndir til Ósk-
arsverðlauna. Á 73 ára sögu verð-
launanna hefur það aðeins gerst 6
sinnum að blökkumaður hefur
unnið fyrir leik.
Það hefur aldrei
gerst fyrr að
tveir blökku-
menn í einu hafi
verið tilnefndir í
flokknum „besti
karlleikari í aðal-
hlutverki". Þar
eru þeir Denzel
Washington og
Will Smith til-
nefndir. Það hef-
ur þó einu sinni
gerst fyrr að þrír
blökkumenn hafi
verið tilnefndir á
sama ári, það
gerðist árið 1972
en allir fóru tómhentir heim.
Samtök blökkumanna í Banda-
ríkjunum vonast nú eftir því að
tala svartra Óskarsverðlaunahafa
hækki. Leikkonan Ilalle Berry er
tilnefnd í flokknum „besta leik-
konan í aukahlutverki" fyrir leik
sinn í myndinni „Monster’s Ball“
og þykir sigurstrangleg.
r ■ 1 r f X f
1 onsmioar 1
kjallaranum
Stafrænn Hákon heitir eins manns sveitin sem hitar upp fyrir
tvenna tónleika Godspeed You Black Emperor um miðjan
mars í Islensku óperunni.
tónlist Stafrænn Hákon heitir
ekki Hákon, heldur Ólafur Jós-
ephsson. Hann gaf nýverið út
sína aðra breiðskífu, „Á ástandi
rjúpunnar“, og það aðeins sex
mánuðum eftir útgáfu
frumraunarinnar. Hann gerir
allt sjálfur. Semur og tekur upp í
kjallaranum heima hjá sér, leik-
ur á öll hljóðfærin, gefur út, fjöl-
faldar og dreifir plötum sínum í
búðir. Honum einum til mikillar
undrunar virðist framtak hans
vera falla í góðan jarðveg og
miðað við vaxandi áhuga fer það
að vera spurning hvort það verk-
efni að halda utan um allt saman
sjálfur komi til með að reynast
honum um of.
„Ég byrjaði á því að gefa út
fyrri plötuna í 10 eintökum, mér
til yndisauka,“ segir Ólafur/Staf-
rænn Hákon yfirvegaður og
hallar sér aftur í viðkvæmum
tréstól sem hann hefur komið
sér fyrir í. „Svo fóru einhverjir
brjálæðingar að kaupa þetta,
þannig að ég framleiddi bara eft-
ir eftirspurn. Þegar eintökin
klárast kem ég bara með 20 til
viðbótar."
Plötur Stafræns Hákons hafa
hingað til verið fáanlegar í
Hljómalind og 12 Tónum en
Ólafur segir það á dagskránni að
trítla með eintök í Japis. Það ætti
að vera orðið flestum ljóst aö
Ólafur stendur ekki í þessu í von
um grúbbíur, gull né græna
skóga. Hann virðist meira að
segja feimin við að troða nafni
sínu á plötukápuna. „Mér finnst
Stafrænn Hákon bara flott
nafn,“ segir hann og hlær. „Þetta
nafn varð til í Fimbulfambi og ég
ákvað að nota það.“
Ólafur virðist ekki hafa áhuga
á því að tala við útgefendur. „Eg
vil bara gera þetta sjálfur. Ég
STAFRÆNN HÁKON
Var að gefa út sína aðra breiðskífu, „Á ástandi rjúpunnar", á sex mánuðum. Hann kýs
að gera allt sjálfur, til þess að „losna við allt vesen" eins og hann orðar það. Heima-
síða Hákons er www.islandia.is/hauskupa/heima.htm.
held að það sé ekki mjög stór
markaður fyrir svona tónlist
hérna. Það tekur því ekki að
standa í svoleiðis veseni. Tónlist-
in fer alltaf í pásu í smá tíma ef
maður fer inn í þannig ferli. Ég
vil kasta þessu út þegar þetta er
sem ferskast. Nýja platan er tek-
in upp frá september til desem-
ber og gefin út í janúar."
Þegar kemur að tónleikahaldi
hringir Ólafur í félaga sína. „Þá
verður Stafrænn Hákon að
hljómsveit. Ég get ekki spilað
þetta einn. Við þurfum að æfa og
það tekur sinn tíma. Lögin breyt-
ast nú líka smá þegar við erum
að æfa. Þeir koma með sitt, bæta
við og skreyta. Ég er ekkert að
skipa þeim fyrir. Kem bara með
grunninn og þeir spila með.“ Hér
hefur Ólafur komið sér það vel
fyrir í stólnum að blaðamaður
ákveður að benda honum á að
stólinn sé við það að brotna.
Ólafur er mikill Godspeed að-
dáandi. „Eru það ekki allir? Ég
hef séð þá tvisvar á tónleikum og
það var ákveðin geðveiki. Þannig
að þetta er mikill heiður," hér
stoppar hann, hlær feimnislega,
og heldur svo áfram. „Að minns-
ta kosti fyrir mig.“
Miðasala á seinni tónleika
Godspeed hefst í Hljómlind á
miðvikudaginn (20.02.2002) kl.
20:02.
biggi@frettabladid.is