Fréttablaðið - 19.02.2002, Page 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
19. febrúar 2002 ÞRIÐJUDAGUR
HVER ER TILGANGUR LÍFSINS?
Göfugmennska
Að koma göfugmannlega fram og láta gott
af sér leiða.
Davíð Þór Jónsson, Radíusbróðir
METÖLULISTI
Aðallisti íslenskra bóka
vikuna 11.-18. febrúar
A Anders Bæksted
GOÐ OG HETJUR l’ HEIÐNUM SIÐ
o
o
ö
o
o
ö
o
o
o
Nigel Nelson
SKOÐADU LÍKAMA ÞINN
Ýmsir höfundar
AF BESTU LYST I
Álfheiður og Guðfinna Eydal
SÁLFRÆÐI EINKALÍFSINS.
J.K. Rowling
HARRY POTTER OG LEYNIKLEFINN
J.R.R Tolkien
HRINGADRÓTTINSSAGA
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
BJÖRG
J.R.R Tolkien
HRINGADRÓTTINSSAGA
Astrid Lindgren
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
R. Kiyosaky & S. Leichter
RÍKI PABBI, FÁTÆKI PABBI
Metsölulisti:
Bækur um
líkama og sál
bækur Bókamarkaðsbækur eru
allsráðandi á vinsældarlista Ey-
mundsson. Af nýjum
bókum á listanum má
helst nefna Sálfræði
einkalífsins eftir
Álfheiði Steinþórs-
dóttur og Guðfinnu
Eydal. Bókin um
Harry Potter og
leyniklefann og
Hringadróttinssaga
hafa verið inn á listanum um mar-
gra vikna skéið og er engin breyt-
ing á. Bók vikunnar hjá Eymunds-
sonar er sagan um Ronju ræn-
ingjadóttur eftir Astrid Lindgren.
Hún kom fyrst út árið 1981 en hef-
ur nú verið endurútgefin. Þorleif-
ur Hauksson þýddi. ■
RONJA RÆN-
INGJADÓTTIR
Smur-
stöð
Samband kynþáttar og þjóðemis á fyrri hluta 20. aldar:
Fordómafullir tímar
einangrunarsinna
fyrirlestur „Það voru margir
menntamenn að velta vöngum yfir
sambandi kynþáttar og þjóðernis á
fyrri hluta 20. aldar. Menn voru
alltaf að skrifa hugvekjur um málið
og fræða þannig landann um skoð-
anir sínar á þessum efni,“ segir
Unnur Birna Karlsdóttir, sagnfræð-
ingur. Hún heldur í dag fyrirlestur
um efnið. Hann er hluti fyrirlestrar-
aðar Sagnfræðingafélagsins.
Kynþáttahyggja var mjög út-
breidd í umræðunni á þessum tíma
segir Unnur. „Á þessum tíma gátu
menn talað hispurslaust um þessi
mál, sem í dag þykir óviðeigandi.
Þau héldu samt áfram að skjóta upp
kollinum og gera jafnvel enn í dag.“
Unnur segir að kynþáttahyggja
hafi verið flogið á sama hátt í um-
ræðunni og markaðshyggjan í dag,
hún hafi verið notuð til útskýringar
á ýmsum atriðum í þjóðmálaum-
ræðunni.
„Þetta voru náttúrulega for-
dómafullir tímar, tímar einangrun-
arsinna og þess háttar. En umræðan
hér á landi var engan vegin sérstök,
hún endurspeglaði það sem var að
gerast erlendis." ■
UNNUR BIRNA KARLSDÓTTIR
Erindi hennar „Maður íslenzkur. Um samband þjóðernis og kynþáttar" hefst kl. 12:05 í
stóra sal Norræna hússins í dag og lýkur stundvíslega kl. 13:00.
Hið sígilda ævintýri um Rauðhettu er komið á svið í Hafnaríjarðarleikhúsinu. Leikstjóri og
höfundur er danska leikkonan Charlotte Böving. Henni finnst skipta höfuðmáli að höfðað sé
til tilfinninga í leikhúsi, hvort sem er fyrir börn eða fullorðna.
leikhús Allir þekkja ævintýrið
um Rauðhettu sem til er í mis-
munandi útgáfum. Charlotte
Böving hefur skrifað leikritið
úr lengri útgáfu af ævintýrinu
sem fæstir hafa lesið. Hún leik-
stýrir líka verkinu og hefur
samið söngva fyrir sýninguna.
„Ég held að Rauðhetta eigi
alltaf erindi við börn,“ segir
hún. „Rauðhetta er líka sterkari
í þessari uppfærslu en í ævin-
týrinu eins og við þekkjum það
best.“ Charlotte segist hafa lesið
ýmisleg þegar hún var beðin að
leikstýra barnaleikriti í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu, barnaleikrit,
ævintýri, íslenskar þjóðsögur
og fleira. „Rauðhetta kom bara
upp aftur og aftur. Það er svo
mikill kraftur í þessari sögu.“
Charlotte finnst vera eitt-
hvað dæmigert eða erkitýpískt
við persónurnar í sögunni, barn-
ið sem táknar lífið og sköpun-
ina, ömmuna sem stendur fyrir
hið gamla og viskuna og veiði-
manninn sem reyndar er aðeins
breyttur í meðförum Charlotte
og verður nokkurs konar trúður.
„Ulfurinn sem er dýrið, sem er
fráðugt og getur borðað okkur.
g hef sjálf hitt úlfa, sem full-
orðin manneskja, úlfa sem ég
hef þurft að gæta mín á. Þetta
er ekki bara fyrir börn. Maður
verður að hlusta á sína eigin
rödd sem segir okkur að til er
fólk sem er okkur hættulegt og
við verðum að læra að verjast
því.“ Það sem verður Rauðhettu
til bjargar í leikritinu er að
hlusta á hin vísu rödd sem
prjónuð er inn í rauðu hettuna
frá ömmunni. „En stundum
hlustar hún ekki, hún tekur
hettuna af sér og lætur plata
sig.“
Charlotte finnst það sama
gilda um barnaleikhús og annað
leikhús. „Mér finnst skipta máli
í leikhúsi að eitthvað snerti okk-
ur maður geti orðið hræddur,
VIÐ HÚSIÐ HENNAR ÖMMU
Charlotte Böving hefur snúið sér að því að skrifa leikrit og leikstýra eftir að hún flutti til íslands. Hún segist þó vona að hún eigi eftir
að leika hér.
hlegið eða fundið fyrir ástinni.“
Skilaboðin í leikritinu segir
Charlotte vera að vara sig á úlf-
unum og kannski ekki síður að
það sé í lagi að vera hræddur.
Það sé alveg eðlilegt. Aðalatrið-
ið sé að geta brugðist við þó að
maður sé hræddur, að hlusta á
röddina og vinna úr aðstæðun-
um.
Rauðhetta var frumsýnd um
helgina og eru næstu sýningar á
laugardaginn kl. 14 og sunnu-
daginn kl. 14 og 16.
steinunn@frettabladid.is
Mikill kraftur í Rauðhettu
Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík
Sími: 5774500
velaland@velaland.is
ÞRIÐJUDAGURINN
19. FBRÚAR
FUNDUR__________________________
12.05 Unnur Bima Karlsdóttir sagnfræð-
ingur flytur í dag - fyrirlestur í há-
degisfundaröð Sagnfræðingafé-
lags íslands sem hún nefnir
"Maður íslenzkur. Um samband
þjóðernis og kynþáttar". Fundur-
inn er haldinn í stóra sal Norræna
hússins og lýkur stundvíslega kl.
13:00. Hann er opinn öllu áhuga-
fólki um sögu og menningu.
19.30 Stofnfundur Afríka 20:20 - félag
áhugafólks um málefni Afríku
sunnan Sahara verður haldinn í
kvöld í Alþjóðahúsinu, Hverfis-
götu 18, 3. hæð. Markmið félags-
ins er að skapa vettvang fyrir um-
ræðu og stuðning við málefni
sem varða Afríku og stuðla að
auknum menningarlegum sam-
skiptum.
20.00 Búdda nunnan Gen Nyingpo ætl-
ar I kvöld að kenna fólki hvernig
hægt er að halda ró sinni þegar
hlutir fara úrskeiðis í fyrirlestraröð
sem ber yfirskriftina „How to sol-
ve our anger problem" Kennslan
fer fram í stofu 101 í Odda, Há-
skóla íslands næstu þrjú þriðju-
dagskvöld.
16.00 Önnur málstofa Verkfræðistofnun-
ar Háskóla íslands verður haldin í
dag. Umræðuefnið er: Evrópu-
staða - Kynning á rannsóknum,
sem tengjast forsendum álags- og
öryggiskerfis Evrópustaðla. Mál-
stofan er haldin I stofu 157 í húsi
Verkfræðis- og raunvísindadeildar
(VR-II) að Hjarðarhaga 2-6.
LEIKHÚS________________________________
20.00 Gamansöngleikur Verslunarskól-
ans, Slappaðu af eftir Felix Bergs-
son, verður fluttur á Stóra sviði
Borgarleikhússins.
20.00 Nemendaleikhúsið sýnir leikritið
Islands þúsund tár eftir Elísabetu
Jökulsdóttur. Sýnt er að Sölvhóls-
götu 13.
SÝNINGAR___________________________
Sýningin Breiðholtið frá hugmynd til
veruleikastendur yfir í Listasafni Reykja-
vík - Hafnarhúsi. Þar eru sýndar teikn-
ingar og skissur þeirra sem skipulögðu
Breiðholtshverfin þrjú ásamt Ijósmynd-
um af hverfinu óbyggðu og byggðu. Þá
eru á sýningunni, í samtarfi við RÚV,
ýmis konar myndefni sem tengist Breið-
holtinu ásamt útvarpsupptökum með
efni frá uppbyggingartíma hverfisins.
Sýningin stendur til 5. maí.
Handritasýning í Stofnun Árna Magnús-
sonar, Árnagarði við Suðurgötu. Hand-
ritasýning er opin kl. 14-16 þriðjudaga
til föstudaga.
Sýningin Landafundir og ragnarök
stendur yfir í Pjóðmenningarhúsinu.
Sýningin er samstarfsverkefni við Landa-
fundanefnd og fjallar um landafundi og
siglingar íslendinga á miðöldum með
áherslu á fund Grænlands og Vínlands.
MYNDLIST_____________________________
í Veislugallery og Listacafé í Listhúsinu í
Laugardal er nú samsýning þriggja lista-
manna. Þar sýna Sergio Vergara, Elín-
borg Kjartansdóttur, sem sýnir glerverk,
og Blær. Sýningin stendur til 28 febrúar.
í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni stend-
ur sýningin Carnegie Art Award 2001.
Liðlega 20 listamenn frá Norðurlöndun-
um fimm taka þátt í sýningunni. Meðal
þeirra er einn íslendingur, Kristján Guð-
mundsson.
Guðmundur Tjörvi Guðmundsson sýnir
Ijósmyndir í Gallerí Skugga v/Hverfis-
götu. Yfirskrift sýningarinnar nr Hrafna-
þing. Opið er frá kl. 13-17 alla daga
nema mánudaga. Sýningin stendur til
24. febrúar.